Morgunblaðið - 07.11.1993, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.11.1993, Blaðsíða 16
16 B MORGUNBLAÐIÐ MYNDASOGUR SUNNUDAGUR 7. NOVEMBER 1993 STJORNUSPA eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Það er hálf dauft yfir sam- kvæmislífinu hjá þér í dag. Láttu ekki úrillan vin spilla skapi þínu í kvöld. Naut (20. apríl - 20. maf) Þú hefur í mörgu að snúast heima í dag, en gestir gætu komið í heimsókn á óheppi- legum tíma. Reyndu að sýna þeim þolinmæði. Tvíburar (21. maí - 20. júnf) Ferðalangar geta orðið fyrir óvæntum útgjöldum. Láttu það ekki á þig fá þótt sumir kunni ekki að meta góðar hugmyndir þínar. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Erfitt getur verið að komast að samkomulagi um kaup eða sölu í dag, en úr rætist fljótlega. Farðu sparlega með fé. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) <ef Aðrir þurfa á aðstoð þinni að halda í dag og þú færð lítinn tíma til að sinna eigin málum, en þolinmæði þraut- ir vinnur allar. Meyja (23. ágúst - 22. sentemberf <3\F Þú hefur í mörgu að snúast og hefur lítinn tíma til að sinna þörfum annarra. Verk- efni er torleystara en þú ætlaðir. vög T (23. sept. - 22. oktöber) Annríki heima fyrir getur valdið því að þú hefur ekki tök á að sækja mannfagnað í dag. Taktu gylliboði með varúð. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Heppnin er með þér í við- skiptum og því óþarfi að beita hörku. í kvöld eru sam- eiginlegir hagsmunir ástvina í fyrirrúmi. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) Sýndu þolinmæði í sunnu- dagsumferðinni í dag. Þú átt erfitt með að gera upp hug þinn varðandi meiriháttar fjárfestingu. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Óþarfa afskiptasemi vinar getur farið í taugamar á þér. Farðu gætilega með peninga og varastu óþarfa skuldasöfnun. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðh í samskiptum vina eða ást- vina gildir það að kunna bæði að gefa og þiggja. Varastu að særa tilfinningar annarra með vanhugsuðum orðum. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Þú verður fyrir töfum í dag sem valda því að þú kemur ekki öllu í verk sem þú ætl- aðir. Reyndu að slappa af í kvöld. Stjórnuspána á að lesa sem dœgradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni msindalegra staðreynda. DYRAGLENS VIÐOFtœUHÞUpAÐ, 60S6l\ - CÍJ AÐ þö fáÓNO TEKM AO @(JA ] , TiL HZEiDUR., l'ATTV GRETTIR PAV?‘£> to-te, TOMMI OG JENNI LJOSKA #\/erz Efz )J Þ&tta pETTA, PABBU£Tf? i/ILLI 7 BLómSTvete ■\\ (v/neoesmAÐue- hann icom 'AmAMr/eiei 'pMstiM Apsrcesru nófn. t/M SKGAMtrANAlÞNAÐAR. - 7 VA,<SSTVKS>D ( NEF-NT FAe-' V af þetM £>0 ‘O. NEFNT FAeiN } TÓTI TRaj&UR, OR.VAF. 06 BOGI.EIR.ÍICUIÍ F7ALA/Z. SAXl, GVSB/eÆPUfe, HEM/U/ 6unn •• FERDINAND SMAFOLK DAD TOOK ME TO ANOTHER NOCKEY 6AME LA5T NI6MT.. Pabbi fór með mig á hokkileik Ég hitti manninn sem ekur Zamboni. í gærkvöldi. zuccini-vagninum. Hvað sem það nú er. BRIDS Umsjón Guðm. Páll Arnarson Bridsfréttaritari The New York times, Alan Truscott, er lítt hrifinn af þeirri stefnu bandaríska bridssambandsins að banna notkun „óvenjulegra“ sagnvenja í opnum mótum. Hann kallar Jjessa stefnu „Catch-22“. „Ástæðan fyrir banninu er sú,“ segir Truscott, „að spilarar hafa litlu reynslu að glíma við þessar sagnvenjur. En ástæðan lýrir reynsluleysinu er einmitt sjálft bannið!" MULTI tveggja tígla opnunin er á bann- listanum. Sem spilurum í Evrópu þykir harla sérkennilegt, þar sem MULTI þykir jafn sjálfsagð- ur hlutur og Stayman. Sam- bandið vestra er þó eitthvað að gefa sig, því nota má MULTI þegar í úrslitakeppni er komið, „en þá er álitið að taugar kepp- enda séu almennt sterkari", seg- ir Truscott og er ekki alveg laus við hæðni. Hér er spil úr banda- rískri „úrslitakeppni". Austur gefur; enginn á hættu. Norður ♦ G942 VÁ3 ♦ 8643 Vestur ♦ Á85 Austur ♦ KD5 4 7 VKD4 IIIIH ¥ G109876 ♦ 1095 ♦ ÁD2 + 0742 Suður ♦ G96 ♦ Á10863 V52 ♦ KG7 4K103 Vestur Norður Austur Suður 2 tíglar* Pass 2 hjörtu Pass Pass 2 spaðar 3 hiört 3 spaðar Allir pass ’Skelfirinh ógurlegi Útspil: hjartakóngur. Vestur fékk að eiga fyrsta slaginn á hjartakóng og hann spilaði hjarta áfram. Þótt spað- inn liggi illa, er láglitalegan sagnhafa hagstæð. Sagnhafi notaði innkomuna á hjartaás til að spila tígli. Ef hann fær að eiga þann slag á tígulgosa, spil- ar hann næst spaðaás og spaða. Vestur er inni og reynir kannski lauf. Suður drepur gosa austurs með kóng og spilar aftur spaða. Og nú hefur hann fullt vald á spilinu, því vömin getur ekki hreyft laufið. En austur fann réttu vörnina. Hann stakk upp tígulás og spil- aði laufníu! Sem er eina leiðin til að fríspila slag á lauf áður en sagnhafi gerir tígulinn góðan. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson I undanrásarliði Evrópukeppni taflfélaga í París í haust kom þessi staða upp í viðureign alþjóðlegu meistaranna Alexanders Fau- lands (2.435), Graz í Austurríki og Englendingsins Matthews Sadlers (2.535) sem teflir fyrir Clichy í París. Sadlet hafði svart og átti leik. Hann fann óveijandi mát í fjór- um leikjum: 36. — Hxf3+!, 37. gxf3 — Dh4+ og hvítur gafst upp því eftir 38. Kg2 - He2+ er hann mát í næsta leik. Clichy sigraði í riðlinum og er eitt þriggja franskra liða í átta Iiða úrslitum. Þar tefla Clichy, Rockaden frá Stokkhólmi, La Dame Blanche Auxerre frá Frakklandi, Lyon Oyonnaix frá Frakklandi, Hung- aroil-Honved frá Búdapest, SC Margareten Winterthur frá Vín, Bosna Sarajevo frá Bosníu og væntanlegir gestgjafar í úrslitun- um, Hilversum frá Hollandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.