Morgunblaðið - 07.11.1993, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1993
B 9
T rúarleg
tónlist-
arsókn
I ÞEIM eilífðarslag sem poppútgáfan er
gleymist iðulega að sitthvað meira er að
seljast en það sem helst er hampað í fjöl-
miðlum. Nægir þar að nefna trúarlega
tónlist, en það vill gleymast þegar fjálg-
lega er rætt um mest seldu plötur á Is-
landi að þar raða sér ofarlega á lista plöt-
ur með trúartónlist sem selst hafa í þús-
undatali.
Trúarleg tónlist er vissulega víða til, en
úrvalið jafnan lítið, svo þeir sem að henni
leita gera vel í að leita í plötuverslun
Fíladelfíumanna, Jötuna, en nýr fram-
kvæmdastjóri hennar Friðrik Baldursson,
hyggst auka veg verslunarinnar til muna.
Friðrik leggur áherslu á að trúarleg tón-
list keppi við venjulega tónlist á jafnréttis-
grundvelli, hvað varðar allan umbúnað, laga-
smíðar og flutning. „Vitanlega verður tónlist-
in ekki skilin frá boðskap hennar, sem er
jákvæður og ætlað að vera það, en þar með
er ekki sagt að tónlistin sé bara fyrir trúaða."
Morgunblaðið/Júlíus
Jákvæður boðskapur Friðrik Baldursson.
Friðrik segist vilja auka sölu á trúarlegri
tónlist til muna og liður í því er að lækka
plötuverð og stórauka úrvalið, en hann er
einnig með á prjónunum ýmar leiðir til að
ná til þeirra sem kaupa myndu vilja tónlist-
ina hefðu þeir að henni aðgang. „Eg er ekki
að segja að ég vilji keppa við stórverslanirn-
ar, enda ræ ég á allt önnur mið en þær,“
segir hann, „þó vissulega geti nánast allir
fallið fyrir tónlistinni, ef þeir gefa sér tíma
til að hlusta."
Þunglynd sýra
Morgunblaðið/Kristinn
ÞAÐ er mikil uppsveifla í
íslensku rokki með enskum
textum, þá helst í kjölfar
velgengni Jet Black Joe á
síðustu misserum. Ein
sveita sem haslað hafa sér
völl er Viridian Green, sem
tekur upp kröftugt starf
um þessar mundir eftir
sumarfrí.
Viridian Green er ársgöm-
ul rokksveit, sem leikur
þunglynda sýru, segir einn
sveitarmanna, en aðrir mót-
mæla því harðlega að þeir séu
þunglyndir, en ná saman um
að þeir séu gefnir fyrir róleg
lög, „við erum miklir ballöðu-
boltar“. Þeir félagar byijuðu
ferilinn á að spila í Hlégarði,
„kunnum ekkert að spila"
segja þeir og kíma að minn-
ingunni.
Drifkraftur Viridian Green
er að það sé ágæt afsökun
fyrir að vera atvinnulaus að
vera í hljómsveit, „að vera
tónlistarmaður og þurfa ekki
að vinna“, segja þeir félagar
í hálfkæringi, en bæta svo við
Ballöðuboltar Viridian Green.
að mikið þurfi að vinna í tón-
listinni ef vel eigi að vera.
„Við megum ekki trufla heila-
sellumar með því að vera að
pæla í einhveiju öðru.“
Viridian Green lék í Tveim-
ur vinum í síðustu viku, og
leikur á Hressó á fimmtudag.
T rans-
danssveit
DÆG1IRTONLIST
Hvab er Móeidur ad bralla?
Lögin við vinnuna
ÞAÐ er almennt vitað að Móeiður Júníusdóttir er
snjöll söngkona, enda hefur hún víða sungið undanfar-
in misseri. Fátt hefur þó verið um söng hennar á plöt-
um, en hún hefur verið iðin við að troða upp og sung-
ið jassdægurlög úr ýmsum áttum, íslensk sem erlend,
þar á meðal lög sem Billie Holiday söng á sínum tíma.
Fyrir skemmstu hljóðritaði Móeiður úrval af tónleika-
dagskrá sinni og Smekkleysa gefur út á plötu, Móa
syngur - Lögin við vinnuna, á næstu dögum.
eftir Árna
Matthíosson
Móeiður Júníusdóttir
vakti fyrst verulega
athygli þegar hún sigraði í
söngkeppni framhaldsskól-
anna fyrir margt löngu.
Síðan hef-
ur hún
sungið
flestar
gerðir tón-
listar, þar
á meðal í
dúettnum
Bong, sem
hún skipar
með kærasta sínum Eyþóri
Arnalds, og skemmst er að
minnast lags þeirra á
Núlldisknum. Móeiður hef-
ur þó öllu meira gert af því
að syngja jassdægurlög við
góðan orðstí, með ýmsum
undirleikurum og það getur
því ekki komið á óvart að
hún hljóðriti plötu með
slíkri tónlist.
Móeiður segir að upptök-
ur á plötunni hafi verið
gaumgæfilega undirbúnar.
Hljómsveit, sem skipuð var
auk hennar Kjartani Valdi-
marssyni píanóleikara,
Matthíasi Hemstock
trommuleikara, Þórði
Högnasyni kontrabassa-
leikara og Jóel Pálssyni
saxófónleikara, kom saman
og æfði af kappi þau lög
sem taka átti upp og hún
segir að útsetningar hafi
mótast á þeim æfingum.
Þegar hljómsveitin var vel
samæfð var öllu stillt upp
í Gerðubergi og tuttugu lög
hljóðrituð á fjórum tímum,
en eftirá voru síðan sextán
lög valin á sjálfa plötuna.
Flest laganna eru í fyrstu
upptöku og fyrir vikið má
segja að í raun sé platan
tónleikaplata. Til að ná svo
fram réttum andblæ fengu
þau hljóðnema lánaða í
Útvarpinu, fjörgamla
lampahljóðnema, sem er
mikið rarítet.
Móeiður segist hafa
verið að syngja mörg
laganna síðastliðin
þtjú ár, „og þegar
ég var búin að
vera að syngja
þessi lög þetta
lengi þá lang-
aði mig að
koma þeim
almennilega
frá mér og
plata er besta
leiðin til
þess“. Hún
segir að plat-
an hafi átt
sér langan
aðdraganda,
en ákvörð-
unin sjálf
hafi verið
tekin
skyndilega.
Ekki finnst
henni erf-
þau lög sem mér fínnst
skemmtileg.“
Eins og áður segir átti
Bong-dúettinn lag á Núlld-
isknum svonefnda og á
reyndar annað lag á óútgef-
inni safnplötu sem Spor
gefur út. Margur myndi
halda að mikil gjá sé á milli
svo ólíkrar tónlistar, en
Móeiður er á öðru máli.
„Mér finnst þessi tónlist
ekki langt frá danstónlist-
inni. Mér finnst jass standa
nálægt danstónlist og lúta
sömu lögmálum. Ég geri
ekki upp á milli, mér finnst
jafn gaman að syngja hvort
tveggja, en það er vitanlega
meira spennandi að vera
að skapa eitthvað sjálf, eins
og við Eyþór gerum í
Bong.“
Móeiður segist breyta
lögunum mikið eftir
stemmningunni hvert sinn
og þau séu í raun aldrei
eins. „Með þessari plötu er
ég búin að festa lögin með
þessum hóp eitt ákveðið
kvöld og við eigum vísast
eftir að spila þau eitthvað
öðruvísi þegar við förum
að kynna plötuna á út-
gáfutónleikunum á
Borginni og væntan-
lega víðar.“
ÞAR kom að því að dans-
sveitin góðkunna Pís of
keik lyki við breiðskífu, en
líklega hefðu þau lög fyllt
á aðra breiðskífu sem sveit-
in hefur sent frá sér á safn-
plötum undanfarin misseri.
Upptökur allar gengu vel,
svo vel reyndar að platan
var tilbúin tveimur vikum
á undan áætlun.
Pís og keik gerði samning
við Spor hf. í vor, fyrsta
sveitin sem samdi við það
fyrirtæki, og platan, sem
kemur út á næstu dögum,
er afrakstur þess samnings.
Að sögn Mána Svavarssonar,
tónlistarstjóra sveitarinnar,
tóku liðsmenn upp ellefu lög,
samtals um klukkustund af
tónlist. Hann segir að sveitin
hafi stigið skref í átt að harð-
ari danstónlist; „það má helst
kalla þetta transtónlist, en
þó það séu á plötunni eitt eða
tvö róleg lög, þá er öllu minna
sungið nú og tónlistin harð-
ari. Siggi Flosa lyftir síðan
Ijósmynd/Björg Sveinsdóttir
Danstrans Ingibjörg Guð-
mundsdóttir, söngkona Pís of
keik.
einu lagi á æðra plan þegar
hann tekur magnað jasssaxó-
fónsóló ofan á danstakt, ætli
það sé ekki rétt að kalla það
jasstrans," segir Máni og
kímir.
Það sem sungið er á plöt-
unni er á ensku, ólíkt fyrri
útgáfum Pís of keik, en Máni
segir að það sé engin launung
að sveitin stefni stíft á er-
lendan markað fyrir tilstilli
Spors.
Plötuflóð
PLÖTUÚTGÁFA verður blómlegri nú en oft áður og
niargar merkar plötur væntanlegar. Fyrsta „stór“plat-
an, plata Bubba Morthens, er komin út og komin á
toppinn, en á næstu vikum rekur hver platan aðra.
ur Pláhnetuna sér til halds
og trausts við kynningu á
sinni plötu og byijar af
krafti á næstu dögum,
Todmobile, sem er á mikilli
yfirreið um landið, og Kær-
íeikssafnplata í umsjá Jóns
Olafssonar.
itt að syngja lög sem söng-
konur eins og Billy Holiday
og álíka söngstjörnur hafi
gert fræg, „þetta eru bara
lög, uppáhaldslög mín í
mörg ár og sem mér finnst
skemmtileg. Ég syng bara.
Þó plata Bubba hafi verið
fyrsta stórsöluplatan
hafa fjölmargir sent frá sér
plötur nú þegar og margar
hafa selst þokkalega. Þar
má nefna Hörð Torfason,
Harald Reynisson, Orra
Harðarson, Árna Johnsen
og danssveitina góðkunnu
Bubbleflies.
Meðal platna sem vænt-
anlegar eru í vikunni eða
upp úr næstu helgi eru plöt-
ur Móeiðar Júníusdóttur,
Nýdanskrar, Pís of keik,
Herberts Guðmundssonar,
sem lítið hefur heyrst frá
undanfarin ár, Rabba, sem
verður með útgáfutónleika
á miðvikudag, P.S. & Co.,
einskonar safnplata með
nýjum lögum í bland, Stef-
áns Hilmarssonar, sem hef-
Stakur Stefán Hilmarsson
sendir frá sér sína fyrstu sóló-
skífu á næstu dögum.
Ljósmynd/Eiður Snom
Dægurjass Móeiður Jún-
íusdóttir.