Morgunblaðið - 16.11.1993, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
ptorðunMaftÍfc
B
1993
ÞRIDJUDAGUR 16. NOVEMBER
BLAD
adidas
Landslið íslands
í handknattleik
leikur í Adidas
HANDBOLTI
Ostojic
komaftur
til UBK
Serbneski handboltarisinn Milad-
in Ostojic, sem stakk af til út-
landa í síðustu viku án þess að láta
Breiðabliksmenn vita, kom aftur til
íslands fyrir síðustu helgi og lék með
Breiðabliki gegn Fylki í 2. deild sl.
sunnudag og gerði þá 8 mörk og var
markahæstur.
Eins og skýrt var frá í blaðinu sl.
miðvikudag kom það Biikum í opna
skjöldu er þeir fréttu að Ostojic væri
farinn úr landi, en hann átti að leika
með liðinu í 2. deild á þriðjudags-
kvöld. Það kom þeim jafn mikið á
óvart er hann mætti aftur á æfigu
á föstudag.
Sighvatur Blöndai, varaformaður
handknattleiksdeildar Breiðabliks,
sagði að Ostojic hefði beðist afsök-
unar á þessu brotthvarfi sínu. Hann
gaf þá skýringu að hann hefði farið
til Serbíu vegna þess að bróðir hans
hefði orðið fyrir skotárás í Bosníu.
Bróðirinn hafði hins vegar sloppið
betur en á horfðist.
KORFUBOLTI
Persónulegt
met Rhodes
JOHN Rhodes
hjá Haukum
setti persónu-
legt met í frá-
köstum í
leiknum gegn
Skagamönn-
um í úrvals-
deildinni á
laugardaginn
þegar hann
hirti 30 frá-
köst í vörn og
sókn. „Þetta
er persónulegt
met hjá mér
og hefur verið
markmiðið frá
því ég kom til
Islands. Gamla metið var 29
fráköst og nú er bara að setja
markið hátt á ný: 31 frákast,"
sagði John eftir leikinn.
Strax í leikhléi leit út fyrir
að metið yrði slegið því þá hafði
John hirt 19 fráköst en aðrir
leikmenn beggja liða samtals
níu.
■ Leikirnir / B4
KNATTSPYRNA
Gaman, en hissa“
Guðmundur E. Stephensen, Vík-
ingi, er í landsliði íslands í
borðtennis, sem mætir Færeyingum
í Laugardalshöll á mánudaginn
kemur, en liðið var valið í gær-
kvöldi. Guðmundur er yngsti A-
landsliðsmaður íslands i íþróttum,
en hann er 11 ára gamail. Engu
að síður var hann stigahæstur ís-
lenskra borðtennismanna á sfðustu
leiktíð og hefur haldið uppteknum
hætti í vetur, er efstur með 33
punkta að þremur mótum loknum.
„Það er gaman að vera valinn,
en ég var hissa og átti eiginlega
ekki von á þessu,“ sagði Guðmund-
ur í gærkvöldi. Hann sagðist hafa
æft borðtennis frá sex eða sjö ára
aldri og verið átta eða níu ára þeg-
ar hann lék fyrst með landsliði 14
ára og yngri, en fyrr á árinu var
hann í landsliði 18 ára og yngri.
Aðrir í landsliðinu eru Ingólfur
Ingólfsson, sem er 16 ára og næst
stigahæstur í vetur með 23 punkta,
Kristján Jónasson, Kristján Viðar
Haraldsson og Aðalbjörg Björg-
vinsdóttir.
m
Biðstaða hjá Antony
Karli og Kristjáni
Forráðamenn norska liðsins Bodö/Glimt, sem komu til landsins um helg-
ina og ræddu við forráðamenn Fram og Vals og landsliðsmennina Krist-
jáns Jónssonar og Anthony Karl Gregory, fóru án þess að samningar næð-
ust um félagaskipti leikmannana.
Mál beggja er í biðstöðu og það kemur í ljós á næstu dögum, hvort þeir
fara til Bodö. „Það á eftir að binda ýmsa enda, en það ber lítið á miili,“
sagði Kristján Jónsson við Morgunblaðið í gær, en sænska félagið Örgryte
í Gautaborg hefur einnig sýnt honum áhuga. „Ég er miklu spenntari að fara
til Bodö, enda er félagið stærra. Þá skemmir það ekki, að Bodö tekur þátt
í Evrópukeppninni næsta keppnistímabil," sagði Kristján.
BORÐTENNIS / ISLENSKA LANDSLIÐIÐ
Ur KAíÞór
Ormarr Orlygsson með
knöttinn í KA-búningn-
um. Hann leikur með Þór
næsta sumar.
Ormarr
meðÞór
ORMARR Örlygsson, knattspyrnumaður úr KA á Akureyri, hefur
ákveðið að ganga til liðs við nágrannana f Þór fyrir næsta keppnis-
ttmabil. Hann lýsti þvf yfir að hann væri hættur eftir nýliðið tíma-
bil, en snérist hugur er Sigurður Lárusson, þjálfari Þórs, falaðist
eftir honum og skrifaði undir félagaskipti í Þór f gærkvöldi.
,rmarr, sem verður 31 árs síðar
í mánuðinum, sagði við Morg-
unblaðið í gærkvöldi að það væfi
talsvert mikið mál að skipta milli
Akureyrarfélaganna, „en Sigga tókst
að sannfæra mig um að þetta væri
ekki rétti tíminn til að hætta. Og
fyrst ég fer af stað aftur, þá heillaði
1. deildin," sagði Ormarr aðspurður
um það hvers vegna hann
hefði skipt, en ekki hald-
ið áfram með KA.
„Svanasöngurinn verður
þarna,“ bætti hann vjð,
og sagðist ekki hugsa
lengra en til eins árs,
ekki að sinni a.m.k.
Sigurður Lárusson var hæst-
ánægður eftir að gengið hafði verið
frá félagaskiptum Ormarrs í gær-
kvöldi. „Það er mjög gptt að fá besta
vængmann á íslandi. Ég hef lýst því
yfir áður að Ormarr sé það, og stend
við það. Þetta er mikill styrkur fyrir
Þórsliðið, en fyrst og fremst er það
ánægjulegt fýrir knattspyrnuáhuga-
menn á Akureyri að svo góður leik-
maður skuli ekki hætta.“
Ormarr hóf ferilinn hjá KA, lék
síðan með Fram í nokkur ár og varð
íslandsmeistari tvisvar og bikar-
meistari jafnoft með félaginu. Eftir
að hann snéri norður á ný varð hann
Islandsmeistari með KA 1989.
KNATTSPYRNA: EYJOLFUR SKORAÐI1101. LEIKNUM MEÐ VFB STUTTGART / B3