Morgunblaðið - 16.11.1993, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 16.11.1993, Blaðsíða 5
4 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1993 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1993 B 5 KÖRFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILD Hraðlestin fór út af sporinu á Nesiimu KR-ingar unnu IBK ífyrsta sinn ítæp tvö ár ítvíframlengdum leik KR-IINIGAR sigrðu Islands- og bikarmeistara IBK 121:116 ífyrsta sinn ítæp tvö ár íjöfnum og æsispennandi leik sem þurfti að tvíframlengja í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi á sunnudagskvöld. „Þetta var erfiðasti leikur sem ég hef spilað — ég er alveg bú- inn. Þetta var mikilvægur sigur fyrir sjálfstraustið íliðinu," sagði Hermann Hauksson KR-ingur eftir leikinn. Hann var hetja Vest- urbæinga og gerði sex af síðustu lengingunni. Leikurinn var bráðskemmtilegur allan tímann og ekki eyðilagði það skemmtunina að fá tvívegis framlengingu. Valur B. Áhorfendur voru vel Jónatansson með á nótunum og skrifar stemmningin í hús- inu eins og hún ger- ist best suður með sjó. KR-ingar byijuðu betur í fyrri hálfleik og voru oftast fyrri til að skora en íslandsmeistararnir voru aldrei langt undan. Sama var upp á teningnum í síðari hálfleik og þegar 2 mín. voru eftir af venjuleg- um leiktíma hafði KR 9 stiga for- skot, 91:82. En Keflvíkingar sýndu mikinn styrk síðustu mínúturnar og gerðu 11 stig á móti tveimur frá KR-ingum, sem gerðu mörg mistök 11 stigum liðsins í síðari fram- í sókninni. Meistaramir fengu tæki- færi til að klára leikinn, en Guðjón Skúlason hitt ekki úr skoti sínu þegar sex sek. voru eftir og því þurfti framlengingu. í fyrri framlengingunni var ÍBK með frumkvæðið en KR náði alltaf að halda sér inní leiknum og þegar 50 sek. voru eftir og staðan 105:106 fékk Albert tvö vítaskot fyrir ÍBK, en hitti aðeins úr fyrra. KR náði frákastinu og Hermann jafnaði 107:107 og því framlengt öðru sinni. Keflavík komst í 114:116 með tveimur körfum frá_Alberti Óskars- syni í röð. Láms Árnason svaraði með glæsilegri þriggja stiga körfu og með henni var Keflavíkurhrað- lestin stöðvuð. KR tók framúr og og sigurinn í höfn, 121:116. IMjarðvík hafði völdin Njarðvíkingar unnu öruggan sigur gegn slöku liði Snæ- fells í „Ljónagryfjunni“ í Njarðvík á sunnudagskvöld- ið. Margir áttu von á spennandi leik þar sem tvö efstu liðin í A og B riðli áttu í hlut, en leikurinn varð ekki einu sinni spennandi því Njarðvíkingar tóku fljótlega öll völd og Snæfellingar náðu aldrei að ógna sigri þeirra. Lokatölur urðu 103:70, eftir að staðan í hálf- leik hafði verið 52:35. „Við náðu aldrei upp stemmn- ingu hvort heldur var í vörn eða sókn. Njarðvíkingar aftur á móti sýndu mjög góðan leik og fengu að leika á þeim hraða sem þeim hentar. En þrátt fyrir þennan mikla mun held ég að úrslitin gefi samt ekki rétta mynd af getu lið- anna því við eigum að geta miklu meira en þetta,“ sagði Ríkharður Hrafnkelsson liðsstjóri Snæfells Björn Biöndal skrifar frá Njarðvík við Morgunblaðið eftir leikinn. Lið Njarðvíkur var jafnt að þessu sinni þar sem flestir komu við sögu og fengu að leggja sitt af mörkum. Njarðvíkingar urðu þó fyrir áfalli, því þeir misstu Val Ingimdunarson útaf í síðari hálf- leik vegna meiðsla. Lið Snæfells var vægast sagt ákaflega slakt svo ekki sé meira sagt ef frá er talinn Bandaríkjamaðurinn Chip Ent- wistle sem var sá eini sem náði að standa í Njarðvíkingum. KR-ingar börðust vel í þessum leik, gáfust aldrei upp. Liðið er á mikilli uppleið og stór munur á lið- inu frá því í fyrstu umferðunum. Lazlo Nemeth þjálfari er greinilega að gera góða hluti og verður KR að teljast til alls líklegt miðið við þennan leik. Nikolic, Grissom, Guðni, Hermann og Lárus léku all- ir mjög vel. Keflvíkingar léku einn- ig vel, en heilladísimar voru ekki þeirra megin í lokin. Bow var þeirra bestur en Kristinn, Albert, Guðjón og Jón Kr. léku einnig vel. „Við áttum að gera út um leikinn í venjulegum leiktíma, en við gerð- um þá nokkur mistök og þeir jöfn- uðu. En við sýndum það í framleng- ingunni að við erum í mjög góðri æfingu enda búnir að æfa stíft síð- an í júlí. Það er góður andi í liðinu og þetta er allt á uppleið. Ég vil koma á framfæri þakklæti til stuðn- ingsmanna KR og vonandi halda þeir áfram að mæta á leiki og styðja við bakið á okkur,“ sagði Lárus Árnason, Ieikstjórnandi KR-inga. Morgunblaðið/Bjarni Einbeiting MIRKO Nikolic, Serbinn í liði KR-inga, átti mjög góðan leik á móti íslands- og bikarmeisturum ÍBK á sunnudaginn. Hér á hann sendingu og virðist Albert Óskars- son ekki alveg vera með á nótunum. Á minni myndinni er fyrirliði KR-inga, Guðni Guðnason, einbeittur á svip. Hann fékk skurð á ennið í síðari hálfleik, lét það ekki á sig fá — lék út allan leikinn. Fimmti sigur Grindvíkinga í röð Grindvíkingar fögnuðu fimmta sigri sín- um er þeir lögðu Val að velli í síð- asta leik í milliriðlakeppninni 109:81 í Grindavík. Þar með hafa Frímann Þeir unnið alla leiki sína við Úlafsson liðin úr A-riðlinum. skrífar Grindvíkingar náðu fljótt góðri forystu og var eins og Valsmenn kæmust ekki almennilega í gang. Meðan heimamenn röðuðu niður körfum hittu þeir illa eða komu varla skoti á körfu. Gestirnir tóku þó góðan kipp um miðbik hálfleiksins og náðu að minnka muninn í 7 stig og var það mest fyrir góða frammistöðu Brynjar Sigurðssonar sem barðist af krafti og skoraði góðar körfur af miklu harðfylgi. Heimamenn juku mun- inn á ný og voru 10 stigum yfir í hálfleik. Þessi munur hélst með liðunum lengstum í seinni hálfleik þó að heimamenn hittu vel úr þriggja stiga skotum sínum. Hjörtur Harðarson, sem hafði gert tvö stig í fýrri hálfleik, tók sig til og gerði fjórar þriggja stiga körfur á stuttum tíma. Smám saman jókst munurinn og úrslitin sanngjarn heimasigur í lokin. „Það hefur loðað við okkur að vanmeta liðin sem eru með fá stig og við ákváðum að láta slíkt ekki gerast í kvöld og fimmti sigurinn í röð er í höfn. Það er góð stemmn- ing í hópnum og menn eru ákveðnir í að standa sig enda þýðir ekki annað,“ sagði Guðmundur Bragason, þjálfari Grindvík- inga. Heimamenn áttu allir ágætan dag og nýttu vel breiddina í liðinu með því að láta alla taka þátt. Hjá Val átti Brynjar Sigurðs- son mjög góðan leik í fyrri hálfleik en var ekki eins áberandi í þeim seinni. Booker var dijúgur en hitti illa fyrir utan og Ragn- ar bjargaði andlitinu með góðum seinni hálfleik. Rhodesí ham Oruggt hjá Tindastóli Tindastóll sigraði Skallagrím 84:80 á Sauðárkróki á sunnu- dagskvöld. Fyrri hálfleikur var slakur hjá báðum liðum, Frá Bimi mikið um mistök, og Björnssyni á til marks um það var Sauðárkróki staðan aðeins 10:10 þegar ellefu mín. voru eftir af hálfleiknum. Skalla- grímsmenn höfðu lengstum frum- kvæðið, en þegar fjórar mín. voru eftir af fyrri hálfleik skoraði Lárus glæsilega þriggja stiga körfu fyrir Tindastól, Ingvar lék sama leikinn í næstu sókn, og þannig náðu heima- menn fjögurra stiga forystu. Gestirn- ir svöruðu þegar og náðu að komast tveim stigum yfir og voru þar að verki Birgir Mikaelsson og Gunnar Þorsteinsson, bestu menn Skalla- gríms. Ingvar skoraði síðan þriggja stiga körfu og forysta Tindastóls í hléinu var eitt stig. Peter Jelic, þjálfari, hefur örugg- lega lesið vel yfir sínum mönnum í Ieikhléi, því allur annar bragur var á leik Tindastóls eftir það. Liðið náði mest 18 stiga forystu og hélt því forskoti mest allan tímann. Undir lokin náðu Skallagrímsmenn að saxa á forskotið og munaði þar mest um Birgi Mikaelsson, sem var yfirburða- maður. Henning Henningsson, Gunn- ar Þorsteinsson og Alexander Ermol- inskí börðust einnig vel. Allir leik- menn Tindastóls léku vel í seinni hálfleik. Ingvar, Lárus, Buntic og Ómar voru bestir, Páll vann vel og einnig Hinrik, sem átti þó köflóttan leik. TILÞRIFAMIKIL fráköst Johns Rhodes og seigla Akurnesinga gladdi helst augað þegar Hauk- ar lögðu nýliðana í úrvalsdeild- inni, IA, naumlega að velli 79:76 f Hafnarfirði á laugardag- inn en úrslit leiksins réðust ekki fyrr en undir lok leiksins enda gáfust Skagamenn aldrei upp. Heimamenn tóku mikinn sprett í byijun og náðu nokkurra stiga forskoti en tókst engan veginn að ■■■■m hrista af Skagamenn Stefán sem jöfnuðu og kom- Stefánsson ust yfir. Enn einn skrifar sprettur hjá Haukum með fimm stigum frá Guðmundi Björnssyni tryggði Hafn- firðingum sex stiga forskot í leikhléi. Eftir hlé var sama upp á teningn- um, Haukar spiluðu vel í nokkrar mínútur og náðu forystunni en Akur- nesingum tókst jafnt og þétt með góðri baráttu að hala inn stig og loks ná forystunni. Á endasprettin- um voru þó Haukar sterkari, þó ekki mætti miklu muna. „Þeir höfðu engu að tapa, hafa tapað illa undanfarið og voru því villtir og æstir í þessum leik, því hvað er betra til að ná sér á strik en að sigra liðið við toppinn. Við þurftum því að leggja okkur alla í leikinn, líkamlega og sálarlega," sagði John Rhodes sem var allsráð- andi undir báðum körfunum og átti skemmtilegar stoðsendingar. Bræð- urnir Jón Arnar og Pétur Ingvars- synir, Sigfús Gizurarson og ekki síst Bragi Magnússon léku vel á köflum en Hauk- arnir voru einhvern veginn ekki alveg á tánum í þessum leik. Skagamenn geta gengið með höfuðið hátt frá leiknum, góð barátta og þolinmæði skilaði þeim langt og örlítil heppni í lokin hefði getað skilað þeim alla leið gegn einu af hærra skrifuðum liðum úrvalsdeildarinnar. „Við sýndum í þessum leik að við getum staðið okkur og höfum karakter. Við lékum án Har- alds Leifssonar og ef við leik- um alla okkar Ieiki svona, kvíði ég ekki falli en við verð- um þá að spila alla leikina svona. Við töpuðum á því að Haukarnir breyttu vörninni og við vorum nógu lengi að átta okkur til að þeir kæmust yfir, þó við næðum þeim yfir- leitt,“ sagði Ivar Ásgrímsson þjálfari og leikmaður Skaga- manna, sem átti stórlejk. Þó Dwayne Price væri stiga- hæstur með 24 stig bar ekki mikið á honum en þess meira á baráttunni hjá hinum. Skagamenn keyra mikið á sömu sex mönnunum og leik- urinn hefði ekki mátt vera mikið lengri því fjórir af þess- um sex voru komnir með fjór- ar villur þegar fimm mínútur voru til leiksloka. htóm FOLK TENNIS Þakka fyrir lexíuna - sagði Gustafsson sem var nánast niðurlægður af Sampras Heuter Pete Sampras frá Bandaríkjunum sigraði í Evrópubandalagsmóitnu um helgina. Hér er hann með demantspaðan, sem er verðlagður á 70 milljónir króna, og mun varðveita hann í eitt ár. PETE Sampras frá Bandaríkj- unum sigraði Svíann Magnus Gustafsson með ótrúlegum yf- irburðum í úrslitum á Evrópu- bandalagsmótinu ítennis sem lauk í Antwerpen í Belgíu á sunnudag. Það tók Sampras aðeins 53 mínútur að gera út um leikinn, 6:1 og 6:4. Sampras, sem er 22ja ára, hafði mikla yfirburði í leiknum og sýndi og sannaði hvers vegna hann er efstur á heimslistanum. Þetta var áttundi sigur hans á árinú. Hann komst í 5:0 í fyrsta setti og það tók hann aðeins 18 mínútur að klára settið 6:1. Það var aldrei spurning hver var betri í síðara settinu en Gustafsson náði að hanga í 35 mínútur. Svíinn, sem er í 19. sæti á heimslistanum, getur vel við unað því hann vann Michael Stich og Boris Becker í 8-manna úrslitum og undanúrslit- um. Ótrúlegt ár „Þetta ár hefur verið ótrúlegt hjá mér,“ sagði Sampras. „Ég leik betur og betur með hveiju móti. Ég vann tvö stærstu mót ársins, Wimbledon og opna bandaríska og nú þetta. Þessi leikur var í mínum höndum frá upphafi og ég leyfði honum aldrei að komast inní leikinn," sagði Sampras sem fékk rúmlega 11 milljónir í verðlaunafé og demants-skreyttan gulltennis- spaða til varðveislu í eitt ár. Tenn- isspaðinn vinnst til eignar ef sami maður vinnur hann þrisvar. Verð- mæti spaðans er um 70 milljónir og er Ivan Lendl sá eini sem unn- ið hefur þessi eftirsóttu verðlaun til eignar, árið 1985. „Pete er bestur. Hann hefur allt. Ég þakka honum fyrir þessa lexíu sem ég lærði í dag,“ sagði Gustafsson, sem lék í fyrsta sinn gegn Sampras. „Hann verðskuldar að vera í efsta sæti heimslistans." ■ SIGFÚS Gizurarson, leikmað- ur Hauka í körfubolta, var rekinn af leikvelli gegn Val síðastliðinn þriðjudag, fyrir brot á Guðmundi Guðjónssyni Valsara, og segja dómarar að það þýði sjálfkrafa tveggja leikja bann. Engu að síður lék Sigfús með gegn Skagamönn- um um helgina því aganefnd fund- ar á þriðjudögum og skýrsla 3óm- ; ara í leik Vals og Hauka verður þar af leiðandi ekki tekin fyrir fyrr en í dag, þriðjudag. ■ REYNIR Kristjánsson er lið- stjóri hjá úrvalsdeildarliði Skaga- manna í körfubolta. Eftir leikinn gegn Haukum á laugardaginn fór Reynir niður í búningsklefa á stutt- an fund með liði sínu, IA, en dreif sig síðan uppí sal til að þjálfa liðið sitt, Hauka, því hann þjálfar tvo flokka hjá því liði. Reyndar er Reynir úr Hafnarfirði og spilaði lengi með Haukum. ■ BJARNI Felixson, íþrótta- fréttamaður RÚV, var heiðursgest- ur á leik KR og ÍBK á sunnudags- kvöld. Hann heilsaði leikmönnum fyrir leik ásamt lukkudýri KR-inga, Rauða Ljóninu, sem setti skemmti- legan svip á leikinn. H ÓLAFUR Gottskálksson, sem leikur með ÍBK, tróð svo hraustlega i aðra körfuna í upphitun fyrir leik- inn að hún féll saman. Það tók smá tíma að koma henni í lag aftur og varð fimm mínútna seinkun á leikn- um vegna þessa. ■ TVO vantaði hjá Skallagrími, sem venjulega eru í byrjunarliði. Elvar Þórólfsson og Ari Gunnars- son voru báðir í leikbanni. BLAK / ÍSLANDSMÓTIÐ Loksins hafðist það hjá KA Guðmundur H. Þorsteinsson skrifar Leikmenn KA náðu loksins að hafa sigur í oddahrinu en það þurfti langa og stranga úrslitahrinu gegn HK á Akureyri um helgina. Þetta var sannkallaður hörkuleikur þar sem bæði liðin áttu ágæta spretti. Það tók fimm hrinur að klára leikinn en úrslitahrinan leiksins var sú lengsta eftir nýju reglunum í blakinu. KA tryggði sér sigur í leiknum með því að vinna úrslitahrinuna 21-19 þar sem taug- ar leikmanna voru þandar til hins ítrasta. Sálfræðilegt Stefán Jóhannesson þjálfari KA var að vonum ánægður með sigur- inn og sagði að þetta hefði fyrst og fremst verið sálfræðilegur sigur. „Við höfum oft verið komnir í 2-0 á móti HK en ekki náð að fylgja því eftir. Við vorum afslappaðir í oddahrinunni og vorum meðal ann- ars undir 13-11 en náðum að halda haus núna og klára dæmið.“ Þetta var fyrsti heimasigur KA á árinu en liðið hafði tvívegis tapað 3-2 eftir að hafa verið 2-0 yfir gegn Þrótti R. og Stjörnunni. Guðbergur Egill Eyjólfsson uppspilari HK fer í leikbann eftir leikinn þar sem hann fékk rautt spjald fyrir að hafa í frammi mótmæli við dómara leiks- ins Kristján Sigurðsson, sem hafði góð tök á leiknum. Magnús Aðal- steinsson stóð sig mjög vel í hávörn KA manna og náði einum sjö stigum í leiknum sem er mjög gott. Enn vinnur Stjarnan Stjarnan lagði Stúdenta öðru sinni á stuttum tíma, nú í odda- hrinu. Stúdentar höfðu forystu fyr- ir fjórðu hrinuna, 2-1 en framhaldið varð heldur endasleppt hjá Stúdent- um sem misstu frumkvæðið þegar Morgunblaðið/Bjarni Hávörn Stjörnunnar HÁVÖRN Stjörnunnar var sterk í leiknum gegn Stúdentum. Hér ná þeir Emil Gunnarsson, Eiríkur B. Þorsteinsson og Örn Kr. Arnarson að veijast skelli frá Búlgaranum Dravko Demirev, þjálfara og leikmanni ÍS. mest reið á og Stjörnupiltarnir voru ekki lengi að nýta sér slaka mót- töku Stúdenta. Sigur Stjörnunnar var sanngjarn og verðskuldaður þar sem Gottskálk Gizurarson og Emil Gunnarsson voru bestir, en hjá Stúdentum bar Zdravko Demirev uppi leik sinna manna en dugði ekki til. Marteinn Guðgeirsson aðal- dómari leiksins stóð sig mjög vel með áberandi slaka línuverði sem eru að verða lenska í Garðabænum. íslandsmeistarar Víkings töpuðu á Neskaupstað Kvennalið Þróttar N. gerði sér lítið fyrir um helgina og lagði ís- lands- og bikarmeistara Víkings tvívegis um helgina. Ef fram heldur sem horfir er liðið líklegt til frekari afreka í vetur og möguleiki á titili gæti verið fyrir hendi ef liðið spilar af sama krafti og undanfarið. Þetta var þriðji tapleikur Víkinga í röð og það þarf leita langt aftur til að finna aðra eins frammistöðu á þeim bænum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.