Morgunblaðið - 16.11.1993, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 16.11.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1993 B 3 KNATTSPYRNA Höfumekki náðað nýta fær- in okkar - segir Eyjólfur Sverrisson, sem skoraði mark í sínum 101. leik með Stuttgart, sem mátti þola tap, 1:4, fyrir Bayer Leverkusen EYJÓLFUR Sverrisson skoraði mark ísínum 101. leikfyrir Stuttg- art, en það dugði ekki gegn Bayer Leverkusen á Gottlieb-Daiml- er-leikvellinum í Stuttgart, því að gestirnir skoruðu fjögur mörk. „Það var sárt fyrir okkur að tapa þessum leik, því að við lékum mjög vel, en leikmenn Leverkusen skoruðu úr öllum fjórum skot- unum sem þeir áttu að marki okkar," sagði Eyjólfur, sem skor- aði mark sitt með skalla eftir sendingu frá Ludvig Kögl á 17. mín. Eyjólfur lék sinn 100. leik gegn Karlsruhe í sl. viku. ekki náð að skora. Fritz Walter fékk mýmörg tækifæri gegn Le- verkusen, en brást bogalistin. Ég held það það sé aðeins tímaspurs- mál hvenær við förum virkilega í gang. Við verðum að vera þolinmóð- ir í leikjunum fram að vetrarfríi og safna stigum þannig að við missum ekki af lestinni og koma síðan tví- efldir til leiks eftir áramót og ná þá góðri sigurgöngu.“ - Farið þið í æfíngabúðir í vetr- arfríinu, eins og undanfarin ár? „Já, en það er ekki ákveðið hvert við förum. Við höfum fengið boð frá Argentínu, Kanaríeyjum og Portúgal.“ Stuttgart leikur næst gegn Dyn- amo Dresden, sem hefur staðið sig vel að undanfömu undir stjóm Sieg- fried Held, fyrrum landsliðsþjálfara íslands. Dresden gerði góða ferð til Bremen um helgina, þar sem liðið vann Werder Bremen 0:1. Aðalvandamál okkar að undan- förnu hefur verið hvað við nýtum illa marktækifærin. Við fengum tækifæri til að skora þrjú mörk í byrjun leiksins. Sóttum grimmt að marki Leverkusen, sem fékk tvær skyndisóknir í fyrri hálf- leik — og skoraði Brasilíumaðurinn Paulo Sergio í bæði skiptin. Varnar- menn okkar voru komnir of framar- lega — til að auka sóknarþunga okkar. Við byijuðum einnig mjög vel í seinni hálfleik, en það sama var upp á teningnum — leikmenn Leverkusen fengu tvö tækifæri, sem þeir nýttu. Bernd Schuster skoraði þriðja markið beint úr auka- spyrnu og síðan skoraði Sergio fjórða markið," sagði Eyjólfur. - Hver er ástæðan fyrir að sókn- arleikurinn gengi ekki upp? „Ég veit það ekki. Það eru þús- und ástæður fyrir því. Við höfum leikið vel að undanförnu, en höfðum Eyjólfur Sverrisson lék á hægri kantinum gegn Bayem Leverkusen og skoraði mark með skalla. Brehme aftur í þýska landsliðið Berti Vogts, þjálfari Þýskalands, hefur kallað á Andreas Brehme til liðs við sig fyrir vináttuleik gegn Brasilíu í Köln á morgun, en leikur- inn er jafnframt 600. landsleikur Þjóðveija. Brehme, sem er 33 ára, tilkynnti í fyrra að hann væri hætt- ur að leika með landsliðinu — eða eftir Evrópukeppni landsliða í Sví- þjóð. Hann hefur leikið 74 lands- leiki. Vogts ætlar Brehme stórt hlut- verk á miðjunni í heimsmeistara- keppninni í Bandaríkjunum á næsta ári, þar sem Þjóðveijar fá það hlut- verk að veija heimsmeistaratitlinn. Landsliðshópur Þýskalands er þannig skipaður: Markverðir: Bodo Illgner (Köln), Andreas Köpke (Númberg). Varnarmenn: Guido Buchwald (Stuttgart), Thomas Helmer (Bayern Munchen), Jurgen Kohler (Juvent- us), Lothar Mattháus (Bayern Munchen), Michael Schulz (Dort- mund). Miðvallarspilarar: Stefan Effen- berg (Fiorentina), Maurizio Gaudino (Frankfurt), Thomas Hássler (Roma), Andreas Möller (Juventus), Andreas Brehme (Kaiserslautern), Thomas Strunz (Stuttgart) Sóknarleikmenn: Bernd Hobsch (Werder Bremen), Jurgen Klins- mann (Mónakó), Karlheinz Riedle (Dortmund), Ulf Kirsten (Bayer Le- verkusen). Leikmenn Stoke ' r buðu Jordan vel- kominn með sigri að var góð stemmning í kringum leikinn gegn Leicester og ekki skemmdi það að við náðum sigri," sagði Þorvaldur Örlygsson, landsliðs- maður í knattspymu, eftir að Stoke hafði lagt Leicester að velli, 1:0, á heimavelli. Joe Jordan stjórnaði Stoke í fyrsta deildarleiknum. Það var Nig- el Gleghorn sem skoraði sigurmark Stoke með skoti af 23 m færi — knötturinn hoppaði yfír Gavin Ward, markvörð Leicester, sem hafði haldið marki sínu hreinu í yfír 400 mín. Með sigrinum er Stoke komið í sjötta sætið í 1. deild. „Við höfum verið að fara hægt og sígandi upp töfluna og það er viss stígandi í lið- inu. Það er alltaf gaman þegar vel gengur og ég hef skemmt mér vel að undanförnu. Ég kann vel við mig hjá Stoke, en hingað kom ég í nýtt andrúmsloft. Það var gott að leika undir stjórn Lou Macari, en við höf- um fengið litla reynslu af Joe Jord- an. Hann er rólegur og yfírvegaður og kemur til með að miðla af reynslu sinni sem leikmaður í Englandi og á Ítalíu," sagði Þorvaldur. Þorvaldur og félagar hans eru komnir til Ítalíu, þar sem þeir leika í kvöld gegn Padova í ensk-ítölsku bikarkeppninni, en síðan leikur Stoke gegn Pescara í desember. „Ef við náum tveimur til þremur stigum úr þessum leikjum, komumst við í undanúrslitin," sagði Þorvaldur. Þorvaldur Örlygsson er ánægður i herbúðum Stoke. ■ ÞÓRÐUR Guðjónsson fékk góða dóma fyrir leik sinn með Bochum gegn Mannheim. Boch- um tapaði 0:1 á útivelli. Þórður fékk tvö góð tækifæri til að skora — skaut framhjá marki og þá varði markvörður Mannheim ótrúlega skot frá Þórði. ■ MICHAEL Sternkopf, sem tók stöðu Hollendingsins Jan Wouters á miðjunni hjá Bayern Miinchen, var hetja félagsins gegn Karlsruhe — skoraði í 1:0 sigurleik. ■ FRANKFURT mátti þola tap, 0:3, í Hamborg. Rald Weber, mið- vallarspilari Frankfurt, var borinn af leikvelli meiddur á ökkla og mun mun hann ekki leika meira með lið- inu á þessu ári. ■ SÆNSKI landsliðsmaðurinn Patrik Andersson, sem hefur verið hjá Blackburn, var seldur til Bor- ussia Mönchengladbach um helg- ina á 46,5 millj. ísl. kr., en Black- burn keypti hann fyrir ári frá Malmö FF á 83,7 millj. kr. ■ HOLGER Fach, fyrirliði Mönchengladbach, leikur ekki með liðinu næstu fímm vikumar — vöðvi í læri slitnaði. ■ SIEGFRIED Held, þjálfari Dynamo Dresden, hefur gert það gott að undanförnu, en lið hans lagði Bayern Miinchen að velli í bikarkeppninni í sl. viku og vann síðan í Bremen á föstudag. Það var hlegið að Held þegar hann tók við Dresden, enda þótti félagið ekki líklegt til afreka — ekki með góðan mannskap og þá verða fjögur stig tekið af félaginu í lok keppnis- tímabilsins. ■ HELD hefur ekki verið yfírlýs- ingaglaður í íjölmiðlum, eins og aðrir þjálfarar — heldur hefur hann látið lítið á sér bera og látið verkin tala. Nú er rætt um það í Þýska- landi, að Held verði ömgglega út- nefndur þjálfari ársins, ef hann nær að halda Dresden í úrvalsdeildinni. ■ CHRISTOPH Daum, þjálfari Stuttgart, er ekki vinsælasti mað- urinn hjá stuðningsmönnum félags- ins. Nokkrir áhorfendur voru með áletraðan borða um helgina — þeg- ar Stuttgart lék gegn Leverkusen, sem á stóð: „Ævintýrið er búið. Farðu heim!“ ■ LEIKMENN og stjórnarmenn Stuttgart styðja við bakið á Daum, sem sagði í viðtali að hann ætlaði ekki að gefast upp. ■ BERND Schuster er geysilega vinsæll á meðal leikmanna Lever- kusen. Schuster lék mjög vel í Stuttgart og þegar hann skoraði mark beint úr aukaspyrnu, hljóp markvörðurinn Riidiger Vollbom sjötíu metra út úr markinu til að fagna Schuster. ■ GERHARD Voack, forseti Niirnberg, hefur þurft lögreglu- vernd síðan hann rak þjálfarann Willi Entenmann frá félaginu fyrir helgi, þrátt fyrir að leikmenn og stjórnarmenn félagsins vildu að Entenmann yrði áfram. Voack hefur fengið morðhótanir. Ástæðan fyrir því að Voack rak þjálfarann, var að Entenmann ráðfærði sig ekki við hann fyrir leiki — um hvernig liðið væri skipað. ■ BRASILÍSKI landsliðsmaður- inn Bebeto, sem leikur með La Coruna á Spáni, sagði um helgina að hann ætlaði að fara heim til Brasilíu eftir þetta keppnistímabil. ■ MARSEILLE hefur fengið lán- aðan brasilíska landsliðsmanninn Anderson da Silva frá Servette frá Genf. Hann er 22 ára og var markahæsti leikmaðurinn í Sviss með 20 mörk. Da Silva hefur verið líkt við Romario hjá Barcelona. ■ MARSEILLE hefur jþurft að selja þijá Ieikmenn til Italíu að undanförnu, til að bjarga fjárhag félagsins — leikmennirnir sem eru farnir eru Marcel Desailly, Paulo Futre og Alen Boksic.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.