Morgunblaðið - 16.11.1993, Qupperneq 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1993
Þeir landsleikjahæstu í knattspyrnu
Peter Shilton, Englandi
Pat Jennings, Norður-írlandi
Heinz Hermann, Sviss - ■ •
Björn Nordqvist, Svfþjóð WJ
Dino Zoff, ftaiíu % /
Hector Chumpitaz, Perú /J/f A
Oleg Blochin, Sovétríkjunum /lil /
lliubbrhVuum.lÁuiiamii
Ladislau Bölöni, Rúmeníu
1119
Bobby Charlton, Englandi
108
108
106
Billy Wright, Englandi
—»105
Thorbjðrn Svenssen, Noregi
Grzegors Lato, Póllandi
FranzBeckenbai^^
J104
|l04
(103
103
Mattháus slær þýska metið á morgun,
í vináttulandsleik gegn Brasiliumönnum.
Hann er sá eini í þessum hópi, sem enn er að.
■ ANNA Bauscher sigraði í 800
m skriðsundi og setti met í sínum
aldursflokki á móti í Philadelphiu
í Bandaríkjunum á dögunum, en
beið ekki eftir verðlaunaafhending-
unni. „Ég syndi til að halda lífi,
ekki fyrir frægðina," sagði Anna.
Hún er 91 árs.
■ HEIKE Drechsler, heims- og
ólympíumeistara í langstökki
kvenna, barst á dögunum morðhót-
un í bréfi. Langstökkvarinn, sem
sat á þingi Austur-Þýskalands
fyrir sameiningu þýsku ríkjanna,
neitaði nýlega ásökunum þess efnis
að hún hefði starfað fyrir Stasi,
öryggislögreglu Austur-Þýska-
lands, en upplýsti hins vegar að
Stasi hefði reynt að fá sig til starfa
1986 en hún neitað.
■ DRAZENS Petrovics, króa-
tíska körfuboltamannsins snjalla,
sem lést í bílslysi í sumar, var
ÍHémR
FOLK
minnst á fimmtudag fyrir fyrsta
heimaleik New Jersey Nets, sem
hann lék með í NBA-deildinni.
Keppnistreyja númer 3, sem hann
lék jafnan í, var dregin upp í tjáfur
í heimahöll Nets og leikmannsins
minnst, að viðstöddum foreldrum
hans og bróður.
Hl SEXTUG kona í Florida greip
til örþrifaráðs í fyrri viku, þegar
hún var ekki sammála eiginmannin-
um um hvað þau ættu að í sjónvarp-
inu. Konan vildi sjá fréttir, en eigin-
maðurinn leik í bandarísku fótbolta-
deildinni, NFL; konan hafði fengið
nóg af fótboltanum, dró fram
skammbyssu og hleypti tvisvar af
— skotin fóru í öxl og kviðarhol
mannsins, segir í USA Today, en
hann er að jafna sig.
■ VERÐLA UNAHÖFUM á
Ólympíuleikunum í Lillehammer á
næsta ári gæti orðið kalt á fótun-
Enski markvörðurinn Peter Shilton
á að baki fleiri landsleiki en nokkur
annar knattspyrnumaður
um. Verðlaunapallarnir verða nefni-
lega úr aldagömlum jökulís, en mik-
ill slíkur ís verður fluttur frá Sogni,
í vesturhluta Noregs, til Lille-
hammer þar sem hann verður tálg-
aður í viðeigandi form.
■ OLAV Bekken, 58 ára safn-
stjóra, veitist sá heiður að kveikja
Ólympíueldinn sem logar meðan á
leikunum í Lillehammer stendur.
Hann sigraði í keppni í því að
kveikja eld að hætti steinaldar-
manna; keppendur voru látnir núa
saman tveimur prikum og Bekken
var fljótastur að kveikja eld með
þessum hætti — 104 sekúndur.
Hann verður látinn endurtaka leik-
inn 27. nóvember nk. og Marta
Lovísa prinsessa sér síðan um að
kveikja í kyndlinum sem hlaupið
verður með um Noreg í 75 daga;
allt þar til leikarnir verða settir, 12.
febrúar.
HRAEN
Leikir íslands og Búlgaríu í
undankeppni Evrópumóts
landsliða í handknattleik í síðustu
viku vöktu ekki mikinn áhuga
almennings. Aðeins 334 greiddu
aðgang að þeim fyrri, á fimmtu-
dagskvöld, og 190 á þann seinni
kvöldið eftir, en þá var 16 ára
og eldri reyndar boð-
ið á leikinn.
Þegar Króatía kom
til leiks fyrir stuttu
mættu ^ 1.500 manns
í Kaplakrika, sem
getur vart talist mik-
ið þegar eitt besta
landslið heims á í hlut — tvö
þeirra bestu, mætti líkast til
segja, og það er jafnvel enn frek-
ar áhyggjuefni, en léleg aðsókn
á leikina tvo sem nefndir voru í
upphafí.
Þegar dregið var í riðla kom í
Ijós að tvö þeirra liða sem íslend-
ingar mæta eru frábær; Króatar
og Hvít-Rússar. Viðureignin
gegn þeim fyrrnefndu hér heima
er að baki, en báðir leikirnir gegn
Hvít-Rússum verða hér í janúar.
Þá hlýtur að mega búast við
margmenni, endai staða íslands
góð í riðlinum og við annan aðal-
keppinautinn að etja. Finnland
er fímmta liðið, og síðasti leikur
íslands er gegn frændþjóðinni hér
heima. Þá ætti spennan í riðlinum
að verða í hámarki, og áhorfend-
ur að fjölmenna, verði allt með
felldu.
Mannfæðin í Höllinni á leikj-
unum við Búlgari var sláandi, en
kom hún á óvart? Skoða verður
nokkur atriði. í fyrsta lagi höfðu
fslenskir ijölmiðlar greint frá
frammistöðu Búlgara í keppninni
fyrir íslandsferðina, en þeir höfðu
sannarlega ekki riðið feitum hesti
frá leikjum sínum; reyndar ekki
tapað „nema“ með nfu mörkum
og tíu fyrir Króötum en með 29
— tuttugu og níu — marka mun
í fyrri leiknum gegn Hvít-Rúss-
um, 43:14, og níu mörkuríi í þeim
seinni. Við því er ekki hægt að
búast að fjöldi fólks komi til að
sjá íslendinga etja kappi við slíkt
lið, því miður. Það er líklega liðin
tíð, nóg önnur afþreying í boði.
Auðvitað sorglegt, en líklega
staðreynd engu að síður. íslensk-
ir áhorfendur eru svo góðu vanir,
að þeir hafa greinilega hugsað
sem svo að „strákamir okkar“
myndu sigra svo auðveldlega í
þessum leikjum, að það tæki því
ekki að fara í Höllina. Peninga-
leysi fólks á þessum „síðustu og
verstu“ hefur eflaust einnig spil-
að inní hve fáir komu, og síðast
en ekki sfst sú staðreynd að Stöð
2 sýndi báða leikina beint. Eftir
að hafa séð búlgarska liðið í fyrri
leiknum var í það minnsta ekki
hægt að búast við mörgum áhorf-
endum á þann seinni.
Lið Búlgariu var mjög slakt,
lék rólega — svo ekki sé fastar
að orði kveðið — og kom greini-
lega til landsins til að tapa með
sem minnstum mun. Það eru lið
eins og það búlgarska sem ættu
að fá menn til að breyta reglum
íþróttarinnar í þá veru, að tíma-
mörk verði sett á hveija sókn í
handknattleik eins og í körfu-
knattleik. Þar gefst það mjög
vel, leikurinn verður hraður og
skemmtilegur fyrir vikið. Þannig
er handknattleikurinn vissulega
oft, og þannig á hann að vera.
Handknattleikur er ekki hæga-
gangs-íþrótt. Fólk vill hraða og
spennu.
Skapti
Hallgrímsson
Því ekki að setja tíma-
mörk á sóknir einsog
í körfuknattleik?
Erþað tilviljun að GUÐMY GUNMSTEIIMSDÓTTIR eríyrirliðieins og pabbinn?
Kannski er það
í genunum
GUÐNÝ Gunnsteinsdóttir, landsliðskona íhandknattleik
úr Stjörnunni, verður fyrirliði landsliðsins sem mætir
ítölum í undankeppni EM í íþróttahúsinu Ásgarði annað
kvöld. Hún hefur einnig verið fyrirliði Stjörnunnar mörg
undanfarin ár — hefur leikið með meistaraflokki félagsins
frá þvf hún var 16 ára eða í 10 ár og á yfir 60 landsleiki
að baki. Guðný leikur í stöðu línumanns eins og bróðir
hennar, Skúli.
Guðný sagðist hafa byijað að
æfa handknattleik þegar
hún var 12 ára. Var reyndar búin
að prófa aðrar
EfJjr íþróttagreinar eins
ValB. og gengur en fann
Jónatansson sig best í hand-
boltanum. Það
þarf ekki að koma á óvart því
faðir hennar, Gunnsteinn Skúla-
son Valsmaður, var einn besti
handknattleiksmaður landsins og
var m.a. fyrirliði landsliðsins á
sínum tíma. Guðný er 26 ára og
er í námi í sjúkraþjálfun — á þriðja
ári. Hún er í sambúð með Sig-
geiri Magnússyni, sem einnig er
handboltamaður, en hefur nú lagt
skóna á hilluna.
Faðir þinn var fyrirliði lands-
liðsins á sínum tíma ogSkúIi bróð-
ir þinn er fyrirliði Stjörnunnar,
er þetta ættgengt?
„Já, ætli það ekki. Kannski er
þetta í genunum eða að við séum
svona frek og stjómsöm. Annars
held ég að þetta sé tilviljun. Eins
og hjá Stjörnunni þá var ég sett
fyrirliði fyrir nokkrum árum og
það hefur ekkert verið rætt meira
um það síðan.“
En hvenær byijaðir þú að æfa
handbolta af alvöru?
„Ég byijaði tólf ára og þá voru
engir yngri flokkar til hjá Stjörn-
unni, en það breyttist fljótt því
við vorum það margar stelpur sem
æfðum og gátum því fljótlega
myndað lið.“
Hefur þú alltaf leikið á línunni?
„Nei, ég byijaði sem skytta
enda var ég frekar stór 12 ára
gömul, en síðan hætti ég að
stækka og fór þá inná línuna og
sé ekki eftir því.“
Það hlýtur að vera mikið talað
um handbolta í fjölskyldunni?
„Nei, það er nú það skrýtna
Morgunblaðið/Kristinn
Guðný Gunnsteinsdóttir hitar upp fyrir átökin á morgun. „Ég byijaði
sem skytta enda var ég frekar stór 12 ára gömul, en síðan hætti ég að
stækka og fór þá inná línuna."
við það, að við tölum ekki mikið
um handbolta. Við hittumst svo
sjaldan nú orðið og höfum því um
margt annað að tala. En við fylgj-
umst auðvitað með hvort öðru á
handboltavellinum."
Nú er landsleikur framundan
við Ítalíu, á íslenska liðið mögu-
leika á sigri?
„Já, ég held það og við ætlum
okkur sigur. Við unnum Portúgal
og Ítalía gerði jafntefli við Portúg-
al á heimavelli svo út frá þeim
úrslitum ættum við að eiga raun-
hæfa möguleika á sigri. Eins tap-
aði ítalska liðið fyrir Rússum með
meiri mun en við gerðum."
Eru framfarir í kvennahand-
boltanum hér á landi?
„Já, það er mun meiri breidd
núna en áður. Landsliðið er það
jafnasta sem ég hef verið í —
margar jafngóðar. Reyndar verð-
um við núna án Auðar Hermanns-
dóttur sem er meidd og eins ér
spurning með Laufeyju Sigvalda-
dóttur, en þær stóðu sig báðar
mjög vel gegn Rússum.“
Nú ert þú orðin 26 ára og með
elstu leikmönnum landsliðsins.
Ertu nokkuð á þeim buxunum að
fara að hætta?
„Nei, ég er ekkert að hætta.
Mér finnst ég alltaf vera jafn ung
og lítil stelpa. það er reyndar
skrýtið að það eru þijár í Stjörnu-
liðinu sem eru yngri en ég og
búnar að eiga börn. Áður var allt-
af talað um þessar ungu og gömlu
í liðinu, en nú er talað um þessar
ungu, ungu mömmurnar og svo
þessar geldu.“