Alþýðublaðið - 20.11.1920, Page 1

Alþýðublaðið - 20.11.1920, Page 1
O-efiÖ át tetf A-H>ýöisfiLol£lá:snaiiaot. 1920 Laugardagian 20 nóvember. 268 tölubl. Yöruskömtunin og stjórnin. Verðlagsnefnd nauðsynleg um alt land. Alþýðublaðið bélt því fram, þegar í byrjun, er verðlagsnefndin <var skipuð, að engri átt næði að hún hefði ekki víðtækara vaids- svið en Reykjavík. Hin biöðin víttu mjög þessa skoðun og báru það á Aiþýðublaðið, að það væri andvígt verðlagsnefnd. Sn eins og •margsýnt hefir verið fram á hér í Iblaðinu, voru það aðeins útúrsnún- Ingar andstæðinganna og tilhneig- ing þeirra til að rýra álit blaðsins, að fjarstæðu þessari var haldið fram. Þegar svo auglýsingin um skömtun á sykri og hveiti kom ót, benti blaðið á hve fjarri öllu lagi sú ráðstöfun væri. Svo mönnum gefist kostur á að heyra álit manna utan Reykjavík- m um þessi mál, birtum vér hér bréfkafla frá ísafirði: .... Það er óhugsandi annað, en að gleymska ráði því, að ekki er tekið fram í reglugerðinni, að framtalning sé gerð á hveiti og sykri og dregið af seðlaútlátura íyrir birgum. Samvinnumannaráð- lierrann, Pétur Jónsson, getur ekki verið þektur fyrir að gefa efna- mönnunutn svona forréttindi, ekki síst af því, að það eru einkum fátæklingar sem þurfa sykurskamt- inn sinn, vegna erfiðrar aðstöðu um mjólkurútvegun. En með þessu lagi, að augiýsa skömtun fyrirfram með tveggja mánaða fyrirvara og draga ekki frá seðlaúthiutun fyrir birgðum, er efnamönnum gefið íækifæri til að kaupa upp allan sykur í iandinu. Steyttur sykur er nú seldur hér á kr. 4 50 kg., 80 aur. fyrir ofan hámarksverð í Rvlk. Hvers eiga iandsmenn utan Rvíkur að gjalda, að jjþeir skuli þurfa að greiða nauðsynjavöru meira en 20% hærra verði en 'Reykjavíkurbúar. Ekki er So aura .„fiutnings"kostnaður á hvert kg, Nei, flutningskostnaðurinn er ekki meira en 6 aurar á kg., og haidist þetta verðlag áfram, þá greiðir þetta eina kauptún, með h. u. b. 2000 fbúum, hátt á þriðja þúsund krónur á mán- uði, eða utn þrjátíu og iimm þdsund og fimm hundruð krón- ur á ári í óhæfilegan auka- skatt,* sem annaðhvort rennur í vasa kauptnanna hér eða heildsala í Reykjavík. Vill nú ekki stjórnin sjá hvað þetta er ranglátt og fúlmenskulegt í alla staði gagnvart alþýðu þessa Iands. Vill hún ekki skilja það, að sem landsstjórn á hún að bera hag alls landsins fyrir brjósti, en ekki einstakra sníkjudýra, sem nota sér neyðina, er stafar af við skiftakreppunni. Vill hún ekki bæta þetta ranglæti með því, að iáta verðlagsnefndinn ná til alls landsins. Því er barið við að það geti ekki komið að notum. Verð- lagsnefndin geti ekki vitað svo gjörla um vöruverð á öllu landinu. Þetta er, fljótt athugað, þungbær mótbára, en ef við skoðum máiið vel, þá er hún einkisvirði. Ekkert er auðveidara en að fela Iögreglu- stjórum að síma verðlagsnefnd, einu sinni eða tvisvar á mánuði, verð á helstu nauðsynjavörum, eða að fá einhvetja sjáltboðaliða til að gera það; nógir neytendur myndu verða til þess. Yrði þetta gert, myndi það verða undantekn- ing að okrað væri á helstu lífs- nauðsynjum, í stað þess, að nú mun undantekning að ekki sé á einhvern hátt okrad á lífsnauá- synjum almennings. Eg hefi kastað þessum stað- reyndum og tiliögum fram í þeirri von, að það beri einhvern árangur, *) Sykureyðslan reiknuð lh kg. á mann á viku. sé ekki landsstjórnin staurblind fyrir því, hvað almenningi er fyrir beztu. Það hvílir þung ábyrgð á herð- um þeirrar stjórnar sem leyfir kaupsýslumönnunum óhindrað að þjaka alþýðu þessa Iands, þvf þegar alþýðan vaknar og sér að „hún er voldug og sterk", þá verða tök hennar á blóðsugunum því fastari sem blóðsugurnar hafa verið ágengari við alþýðuna." Grikklanðsmálin. Erlend mynt. Khöfn 20. nóv. Sænskar krónur (100) kr. 142,50 Norskar krónur (100) — 99,35 Dollar (1) — 7.47 Pund sterling (1) — 25,71 Þýzk mörk (100) — 10,60 Frankar (100) — 44.75 Kvöldskemtnn heldur Verk- stjórafélag Reykjavíkur til ágóða fyrir styrktarsjóð sinn annað kvöld í Bárunni. Þar verður margt ti! skemtunar, sem sjá má af aug- Iýsingu annars staðar í blaðinu. Minervnfnndnr verður í kvöld. Bragi hefir söngæfingu í G.T.- húsinu á morgun kl. 3. Khöfn, 20. nóv. Reutarsfréttastofa tilkynnir, að Kondurioti sé farinn frá, en Olga drotning hafi fallist á að verða við beiðni stjórnarráðsins um að taka við ríkisstjórn unz Konstantin kemur heim.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.