Alþýðublaðið - 20.11.1920, Qupperneq 1
O-efiÖ át tetf A-H>ýöisfiLol£lá:snaiiaot.
1920
Laugardagian 20 nóvember.
268 tölubl.
Yöruskömtunin og stjórnin.
Verðlagsnefnd nauðsynleg um alt land.
Alþýðublaðið bélt því fram,
þegar í byrjun, er verðlagsnefndin
<var skipuð, að engri átt næði að
hún hefði ekki víðtækara vaids-
svið en Reykjavík. Hin biöðin
víttu mjög þessa skoðun og báru
það á Aiþýðublaðið, að það væri
andvígt verðlagsnefnd. Sn eins og
•margsýnt hefir verið fram á hér í
Iblaðinu, voru það aðeins útúrsnún-
Ingar andstæðinganna og tilhneig-
ing þeirra til að rýra álit blaðsins,
að fjarstæðu þessari var haldið
fram. Þegar svo auglýsingin um
skömtun á sykri og hveiti kom
ót, benti blaðið á hve fjarri öllu
lagi sú ráðstöfun væri.
Svo mönnum gefist kostur á að
heyra álit manna utan Reykjavík-
m um þessi mál, birtum vér hér
bréfkafla frá ísafirði:
.... Það er óhugsandi annað,
en að gleymska ráði því, að ekki
er tekið fram í reglugerðinni, að
framtalning sé gerð á hveiti og
sykri og dregið af seðlaútlátura
íyrir birgum. Samvinnumannaráð-
lierrann, Pétur Jónsson, getur ekki
verið þektur fyrir að gefa efna-
mönnunutn svona forréttindi, ekki
síst af því, að það eru einkum
fátæklingar sem þurfa sykurskamt-
inn sinn, vegna erfiðrar aðstöðu
um mjólkurútvegun. En með þessu
lagi, að augiýsa skömtun fyrirfram
með tveggja mánaða fyrirvara og
draga ekki frá seðlaúthiutun fyrir
birgðum, er efnamönnum gefið
íækifæri til að kaupa upp allan
sykur í iandinu.
Steyttur sykur er nú seldur hér
á kr. 4 50 kg., 80 aur. fyrir ofan
hámarksverð í Rvlk.
Hvers eiga iandsmenn utan
Rvíkur að gjalda, að jjþeir skuli
þurfa að greiða nauðsynjavöru
meira en 20% hærra verði en
'Reykjavíkurbúar. Ekki er So aura
.„fiutnings"kostnaður á hvert kg,
Nei, flutningskostnaðurinn er
ekki meira en 6 aurar á kg., og
haidist þetta verðlag áfram, þá
greiðir þetta eina kauptún, með
h. u. b. 2000 fbúum, hátt á
þriðja þúsund krónur á mán-
uði, eða utn þrjátíu og iimm
þdsund og fimm hundruð krón-
ur á ári í óhæfilegan auka-
skatt,* sem annaðhvort rennur í
vasa kauptnanna hér eða heildsala
í Reykjavík.
Vill nú ekki stjórnin sjá hvað
þetta er ranglátt og fúlmenskulegt
í alla staði gagnvart alþýðu þessa
Iands. Vill hún ekki skilja það,
að sem landsstjórn á hún að bera
hag alls landsins fyrir brjósti, en
ekki einstakra sníkjudýra, sem
nota sér neyðina, er stafar af við
skiftakreppunni. Vill hún ekki
bæta þetta ranglæti með því, að
iáta verðlagsnefndinn ná til alls
landsins. Því er barið við að það
geti ekki komið að notum. Verð-
lagsnefndin geti ekki vitað svo
gjörla um vöruverð á öllu landinu.
Þetta er, fljótt athugað, þungbær
mótbára, en ef við skoðum máiið
vel, þá er hún einkisvirði. Ekkert
er auðveidara en að fela Iögreglu-
stjórum að síma verðlagsnefnd,
einu sinni eða tvisvar á mánuði,
verð á helstu nauðsynjavörum,
eða að fá einhvetja sjáltboðaliða
til að gera það; nógir neytendur
myndu verða til þess. Yrði þetta
gert, myndi það verða undantekn-
ing að okrað væri á helstu lífs-
nauðsynjum, í stað þess, að nú
mun undantekning að ekki sé á
einhvern hátt okrad á lífsnauá-
synjum almennings.
Eg hefi kastað þessum stað-
reyndum og tiliögum fram í þeirri
von, að það beri einhvern árangur,
*) Sykureyðslan reiknuð lh kg.
á mann á viku.
sé ekki landsstjórnin staurblind
fyrir því, hvað almenningi er fyrir
beztu.
Það hvílir þung ábyrgð á herð-
um þeirrar stjórnar sem leyfir
kaupsýslumönnunum óhindrað að
þjaka alþýðu þessa Iands, þvf
þegar alþýðan vaknar og sér að
„hún er voldug og sterk", þá
verða tök hennar á blóðsugunum
því fastari sem blóðsugurnar hafa
verið ágengari við alþýðuna."
Grikklanðsmálin.
Erlend mynt.
Khöfn 20. nóv.
Sænskar krónur (100) kr. 142,50
Norskar krónur (100) — 99,35
Dollar (1) — 7.47
Pund sterling (1) — 25,71
Þýzk mörk (100) — 10,60
Frankar (100) — 44.75
Kvöldskemtnn heldur Verk-
stjórafélag Reykjavíkur til ágóða
fyrir styrktarsjóð sinn annað kvöld
í Bárunni. Þar verður margt ti!
skemtunar, sem sjá má af aug-
Iýsingu annars staðar í blaðinu.
Minervnfnndnr verður í kvöld.
Bragi hefir söngæfingu í G.T.-
húsinu á morgun kl. 3.
Khöfn, 20. nóv.
Reutarsfréttastofa tilkynnir, að
Kondurioti sé farinn frá, en Olga
drotning hafi fallist á að verða
við beiðni stjórnarráðsins um að
taka við ríkisstjórn unz Konstantin
kemur heim.