Morgunblaðið - 29.12.1993, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 1993
15
Skandinavísk sagnfræði
Békmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Saga mannkyns. Ritröð AB. 15.
bindi. Til móts við óvissa framtíð.
1965-1985 eftir Sven Tagil. Gísli
Jónsson íslenskaði. Ritstjórar:
Knut Helle, Jarle Simensen, Sven
Tagil, Káre Tonnesson. Ritstjórn
íslensku útgáfunnar: Eiríkur
Hreinn Finnbogason og Jóhannes
Halldórsson. Almenna bókafélag-
ið 1993.
í 15. bindi Sögu mannkyns er
vissulega höggvið nærri samtíðinni,
enda virðist höfundurinn, Svíinn
Sven Tagil, logandi hræddur eða að
minnsta kosti smeykur. í formála
skrifar hann að umrætt bindi sé frá-
brugðið öllum hinum, það hafi ekki
skýrt afmarkaðan endi þótt hann sé
miðaður við 1985: „Þá var endirinn
líðandi stund, sem nú er orðin for-
tíð, og síðan hafa miklir atburðir
gerst, sem ekki er séð fyrir endann
á.“
Fýrsti kaflinn, Einkenni samtíma-
sögunnar, fer að stórum hluta í
umræðu og bollaleggingar um að-
ferðir sagnfræðingsins. Lögð er
áhersla á að „raða, skilja og skýra“
til þess að framsetning verði góð.
Réttilega er drepið á þann vanda sem
felst í því að greina það sem er sögu-
lega mikilvægt frá því sem aðeins
liggur á yfirborði. Hvað það varðar
er auðvelt að hafa rangt fyrir sér.
Hlutlægni og afstaða eru líka á
dagskrá. Að vera hlutlægur er
vandasamt þegar verið er að lýsa
aðstæðum sem bæði höfundur og
lesandi hrærast í. Viljanum til að
vera óhlutdrægur má ekki rugla
saman við skort á afstöðu.
Undir allt þetta má taka.
„Valið eitt á vandamálum til um-
fjöllunar lætur í ljósi afstöðu á sinn
Sven Tagil
hátt“, skrifar höfundurinn. En því
má bæta við að afstaðan kemur líka
fram í því hverju er sleppt.
Sven Tágil er trúr þeirri stefnu
að „fást við vandamál“, ekki síst
vanþróaðra ríkja og minnihlutahópa.
Afríka og Asía eru honum sérstak-
lega hugleiknar. Hann eyðir tölu-
verðu rúmi í að fjalla um þjóðfélags-
ástand í vanþróuðum ríkjum og
ýmsir þjóðarleiðtogar, meðal þeirra
Julius Nyerere og Gaddafi, eru ofar-
lega á blaði.
Vitnað er í ljóðskáldið Leopold
Sedar Senghor sem lengi var forseti
Senegals, en fræg eru orð hans um
Afríkustolt: „Afríkustolt þýðir að
maður gerir sér grein fýrir afrískri
menningu og ætlar sér að vernda
og efla sígildi hennar". Þetta stolt
sem Senghor sagði að fæli i sér lýð-
ræði, einingu og bróðurþel, mann-
lega hlýju, taldi hann að kæmi ský-
rast fram í í listinni, „sönnustu tján-
ingu sjálsvitundar fólksins — en líka
í tilfinningu fyrir mynd og hrynj-
andi, fyrir táknum og fegurð“.
Þetta mikla skáld er af einhveijum
undarlegum ástæðum sagður „einn
helsti skáldsagnahöfundur afríksk-
ur“ í Sögu mannkyns, en mér er
ekki kunnugt urn að hann hafi skrif-
að skáldsögu. Ljóðabækur hans eru
fjölmargar og hann er snjall rit-
gerðahöfundur.
Sú skandinavíska sagnfræði sem
Sven Tagel aðhyllist er fremur vin-
veitt sósíalisma og meira er gert af
því í sögu hans að gagnrýna vest-
ræna stjórnarhætti en þá sem eiga
sér marxískar rætur.
Meðal margra slíkra dæma er
texti um samizdat og tamizdat í
Sovétríkjunum: „Ekki var það
Kommúnistaflokkur Ráðstjórnar-
ríkjanna sem fann upp opinbert eftir-
lit með öllu því sem fólki á að vera
leyfílegt að lesa. Ritskoðun og af-
skiptasemi gagnvart óþægilegum
höfundum var daglegt brauð fyrr
meir í Rússlandi keisarans. Á Stal-
ínstímabilinu var eftirlitið hert og
margir rithöfundar Iögðu bókstaf-
lega líf sitt í hættu með skrifum sín-
um.“
Ekki skii ég hvaða erindi keisarinn
á í þessa umfjöllun um neðanjarðar-
rit í Sovétríkjunum nema honum sé
ætlað að réttlæta að einhveiju leyti
skipulagðar ofsóknir Sovétleiðtoga
og handbenda þeirra gegn rituðu og
töluðu orði.
Fleiri slík dæmi mætti vitanlega
tína til, en í heild er hófsamlega fjall-
að um eldfimt tímabil og þess að
minnsta kosti freistað að skilja og
skýra með hlutlægum hætti.
Þýðing Gísla Jónssonar er vel
unnin og læsileg.
HLUTABRÉFASJÓÐUR VlB HF.
kt. 451290-1189
Ármúla 13a, Reykjavík.
Hlutabréfaútboð
Útboðsfjárhæð kr. 100.000.000,-
1. söludagur 17. desember 1993
Gengi 1. söludag 1,15
Gengi 29. desember 1,16
Umsjón: Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Aöili aö Veröbréfaþingi íslands •
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30. Myndsendir 68 15 26.
■■■■■■■
TILBOÐ
VIKUNNAR
HAGKAUP
Nýtt símanúmer/fíágkauþfskeifunni 635000