Morgunblaðið - 07.01.1994, Side 2

Morgunblaðið - 07.01.1994, Side 2
2 C MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1994 ERU GRASALÆKNINGAR KANNSKI HEFÐ- BUNDNAR LÆKNINGAR ♦ HOLLUSTU HÁ- KARLALÝSIS ♦ HJÓNAKL ÚBBAR ÍKIRKJUN- UM ♦ BÖRN SEM HORFA Á SJÓNVARP LESA MEIRA ♦ DAGMÆÐRUM HEFUR FÆKKAÐ ♦ AF SKÁTAHREYFINGUNNI OG STARFI HENNAR Ljósmynd/Gísli Þorsteinsson Ungir hugvitsmenn úr Foldaskóla ásamt Páli Kr. Pálssyni, forstjóra Vífilfells hf., Braga Gunnarssyni úr Félagi íslenskra hugvitsnianna og Einari Gunnarssyni verksmiðjustjóra inni í húsi því sem fékk fyrstu verðlaun. Vífilfell hf. verðlaunaði unga hugvitsmenn um áramótin Verðlaunahafarnir þrír, frá vinstri: Gunnar H. Hrafnsson, Björgvin Steinarsson og Einar Sigurður Einarsson á kók-kassabíl, sem þótti frumlegasta hugmyndin. UM ÁRAMÓT verða einungis rauðlitaðir Coca-cola kassar í umferð á vegum Vífilfells hf., og hefur fyrirtækið haft tveggja ára aðlögunartíma til að skipta gömlu kössunum út fyrir nýja. Þar með eru gömlu gulu kassarnir, sem áður voru í umferð, ekki lengur brúklegir undir kókið, en fyrirtækið situr uppi með ein tólf þúsund eintök af þeim í birgðageymslum. Því var það svo að forstjóri fyrir- tækisins, Páll Kr. Pálsson, ákvað að fá unga hugvitsmenn til þess að koma í verksmiðjuna og glíma við það verkefni hvernig best væri að nýta gömlu kassana, sem ekki mætti nota lengur. Aðeins var um að ræða nemendur í Foldaskóla, en hann hefur einmitt verið nefnd- ur móðurskóli nýsköpunar. For- stjórinn ákvað að setja 50 þúsund kr. í verkefnið, m.a. til þess að efla samstarf atvinnulífs og skóla, og létu viðbrögðin ekki á sér standa. Margar skemmtilegar úrlausnir bárust og það var svo hinn 28. desember sl. að nemendurnir tólf, sem sendu inn mismunandi marg- ar tillögur, voru boðaðir í fundar- sal Vífilfells þar sem m.a. var boðið upp á pítsu og kók. Þátttak- endur fengu allir viðurkenningar fyrir góðar lausnir og þrír upp- rennandi hugvitsmenn voru verð- launaðir sérstaklega. Fyrstu verð- laun, fyrir bestu og raunhæfustu tillöguna, hlaut Einar Sigurður Einarsson. Hans tillaga var hús úr kók-kössum fyrir börn á dag- heimilum. Onnur verðlaun komu í hlut Björgvins Steinarssonar, sem vildi nýta kassana til að búa til úr þeim húsgögn fyrir yngstu kyn- slóðina og myndu slík húsgögn að vonum passa mjög vel inn í fyrr- nefnd hús. Þriðju verðlaun, sem veitt voru fyrir frumlegustu hug- myndina, fékk Gunnar H. Hrafns- son. Hann stakk upp á því að sér- hanna kassabíla úr gulu kössun- um. Að aflokinni verðlaunaafhend- ingunni var gestunum boðið í verk- smiðju Vífílfells þar sem verðlaunatillögurnar stóðu full- mótaðar. „Næsta mál á dagskrá er að ræða við forsvarsmenn dagvistar- stofnana um það hvort vilji sé til þess að nýta þessar hugmyndir. Ef svo er myndum við sjá um að búa til þessi hús, húsgögn og bíla og koma þeim fyrir á barnaheimil- unum,“ segir Páll, sem dregur ekki úr því að Vífilfell hafí verið og sé mjög jákvætt gagnvart auknu samstarfi við skólana í landinu — „kannski ekki síst vegna þess að ég hef sjálfur verið að kenna kúrs í Háskólanum um frumkvöðla og nýsköpun." „Það eitt kann að hafa áhrif á það að þetta fyrirtæki hefur gert meira af því að tengjast skólunum en ýmis önnur fyrirtæki. Á síðasta ári vorum við t.d. með fjögur nem- endaverkefni úr Tækniskólanum og fimm úr Háskólanum, en þá fengum við prófessora úr verk- fræðideild HÍ til þess að vera með svokallaða fræðsludaga. Mér finnst þetta samstarf mjög já- kvætt og við fáum ekki síst oft góðar hugmyndir út úr slíku starfi. Og þetta nú með grunnskólanem- endum var tilraun af okkar hálfu. Það getur vel verið að við gerum meira af því, en þetta verkefni tókst mjög vel og var mjög skemmtilegt,“ segir forstjóri Vífil- fells að lokum. ■ ji Drykkja barnsins og ráðaleysi foreldranna FLESTIR foreldrar taka vímufíkn barnsins sín mun nær sér en vímu- fíkn makans. Oftar en ekki er tilfínningin um að hafa brugðist sem foreldri allsráðandi," segir í upphafi bókarinnar Barnið mitt, drekkur- hvað get ég gert?“ sem nýlega kom út í íslenskri þýðingu. Bókinni er að ætlað að styðja við bak foreldra barna sem eiga við vímuefnavanda að stríða og „óttast eigin tilfinningar í garð barna sinna,“ eins og höfundurinn, Toby Rice Drews kemst að orði. Bókinni er skipt í þtjá hluta og skiptist hver þeirra í smærri kafla. Fjallað er um alkóhólisma frá ýmsum hliðum og foreldrum bent á að þeir séu ekki ábyrgir fyrir drykkju eða vímufíkn barna sinna. Einkennum fíknar er lýst, enda er lykilatriði að foreldrar átti sig á fíkn barna sinna og horfíst í augu við hana. „Jafnvel þegar foreldrar gera sér grein fyrir því að alkóhól- ismi er sjúkdómur þá trúa þeir þeirri vitleysu að með því að krefjast upp- lýsinga um athafnir barna sinna séu þeir að „skipta sér af.“ Þeir draga sig í hlé, að hluta til, til að forðast sannleikann," segir í þessum kafla. Vekji listinn ótta hjá foreldrum, hvetur bókarhöfundur til að hann sé lagður á hilluna í bili og skoðaður síðar. Hér að aftan er hluti listans. Nokkur einkenni fíknar —Hefur barnið þitt verið úti alla nóttina án leyfis? —Hefur þú fundið hluti í herbergi hans/hennar, sem ekki eiga þar heima? —Er barnið undarlegt til augnanna þegar það kemur heim? —Hefur yfírkennari eða skólastjóri hringt til þín vegna sonar þíns eða dóttur? —Eru einkunnir barnsins verri en í fyrra? —Skrópar hann/hún? —Er barnið hætt að taka þátt í íþróttum eða skólastarfi sem það hafði ánægju af áður fyrr? Fer hann ekki á körfuboltaæfingar eins og áður? Er hún hætt í spilatímum —Hefur klæðnaður barnsins breyst, jafnvel þegar miðað er við klæða- burð felaganna. —Hittir barnið vini sína oft á skóla- lóðinni eftir skóla? Skólalóðir grunn- og framhaldsskóla eru kjörinn sölu- og neyslustaður á kvöldin og um helgar. Foreldrar eru að vonum ánægðir með að börnin séu á skóla- lóðinni með félögunum, en ekki á Hlemmi í óreglu. —Vill barnið gista oft hjá vinum sín- um? Er mömmu Siggu sama þó þær fái sér bjór? Var þér sagt að mamma Siggu yrði heima, en hún var það ekki? Aðgættu allar staðreyndir. —Hangir barnið þitt í verslunarmið- Hjónaklúbbar í allar kirkjur landsins? ÞAÐ þarf ekki að vera eitthvað að til að vilja hlú að hjónabandinu sínu og rækta sambandið við makann. Sumir halda að hjón sem leiti eftir fræðslu og ráðgjöf séu í skilnaðarhugleiðingum. Hinsvegar er nauðsyn- legt að viðhalda neista í hjónabandinu og leggja rækt við samband sitt við makann ef leggja á grunn að varanlegu og traustu hjónabandi. Eftir mislangan tíma í hjónabandi koma oft upp allskyns vandamál. Sum hjón búa yfir hæfileikum til að takast á við þann vanda sem þau kunna að mæta. Það eru þó líka mörg hjón sem vita ekki hvemig bregðast á við og lenda í ógöngum. Fræðsla áður en vandamálin koma kæmi því að góðum notum. Prestar vilja styðja við bakið áfjöl- skyldunni og undanfarið hafa nokkr- ir sóknarprestar boðið hjónum að koma í kirkjuna, fræðast um fjöl- skylduna, hittast, spjalla og drekka saman kaffi eða borða létt snarl. Þar sem hjónakvöld hafa verið haldin er vel af látið og kannski er þetta leið fyrir kirkjuna til að nálg- ast unga fólkið á annan hátt en í gegnum messugjörð, mömmu-, og pabbamorgna eða barnastarfið. Frá í haust hefur starfað hjóna- klúbbur í Laugarneskirkju. Uppá- stungan kom frá konum sem sótt hafa mömmu- og pabbamorgna. Þær stungu upp á fræðslukvöldi fyrir sig og maka. S.l. vor komu svo saman 30 manns í Laugarneskirkju þar sem Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson ræddi um hjónabandið og síðan var spjallað. Eftir það var stungið upp á að stofna bjónaklúbb kirkjunnar og síð- an hafa hjón komið saman í kirkj- unni 1 sinni í mánuði. Á fyrsta fundi voru þrenn hjón valin til að veita starfseminni forstöðu. Klúbburinn er opinn og mánaðarlega er boðið til samverustundar. Yfirleitt kemur gestur og flytur erindi um efni sem snýr að hjónum og fjölskyldunni en síðan er spjallað saman og drukkið kaffí. Endað er með helgistund. Auk samverustunda hafa fjölskyldurnar farið saman í gönguferðir og e.tv. verður farið út á land í sumar. í Neskirkju hefur svipað verið í gangi. í byijun síðasta árs kallaði Sr. Guðmundur Óskar ólafsson til sín hjón sem hann hafði verið að gifta og fékk í kirkjuna félagsráð- gjafa, sálfræðing, uppeldisfræðing og fleiri til að fræða um ýmis atriði sem snúa að fjölskyldunni. Eftir að hafa borðað saman létt snarl var spjallað og hjón sýndu því áhuga að fá að koma oftar saman í kirkjunni til samverustunda. Þessvegna er nú verið að skipuleggja hjónaklúbb á vegum Neskirkju sem mun taka til starfa innan skamms. Hjónaklúbbar geta verið starfandi í fleiri kirkjum landsins þó það komi ekki fram hér. Sóknarprestar og aðstoðarprestar í kirkjum geta gefið nánari upplýsingar um hvort slíkur klúbbur sé starfandi eða von á slíkri starfsemi í kirkjuna. ■

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.