Alþýðublaðið - 20.11.1920, Blaðsíða 2
2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Brezka kolamálið.
(Nl.)
IV.
Hvað Asquith viðvikur, þá er
vitanlega fjarstæða að hann sé
með þjóðnýtingu námanna til þess
að afla sér lýðhylli, því það er
vafalaust rétt sem hr. H. H. seg-
ir i grein sinni í Mgbl., að mikill
meiri hluti brezku þjóðarinnar sé
á móti því að námurnar séu þjóð-
nýttar. Mundi það þá vera kæn-
legt bragð til lýðhylli að tjá sig
fylgjandi þjóðnýtinguf Hr. H. H.
.nefnir ekkl einu orði í Mgbl.grein
sinni hvers vegna námumennirnir
vilji að námurnar séu þjóðnýttar,
og má segja, að getsakir þær sem
hann gerir Asquith séu í fullu
samræmi við það, því honum
dettur auðsjáanlega ekki í hug, að
til séu nein skynsamleg rök með
þjóðnýtingu, m. ö. o , hefir aðeins
skoðað málið frá annari hliðinni.
Þar sem mál þetta verðar bráð-
lega rætt ítarlega hér í biaðinu,
skal ekki farið hér nánar inn á
rökin fyrir þjóðnýtingu brezku
námanna, en aðeins tekið fram,
að málsvarar þjóðnýtingarinnar
halda því fram, að reksíurinn verði
ódýrari og kolaframleiðslan meiri.
Sem stendur er tala brezku kola-
námanna 3300, reknar af samtals
1452 námuféíögum, sem hvert rek-
ur sínar námur eítir eigin geð-
þótta, án nokkurrar heildarstjórn-
ar, og fjöldi af þessum félögum
rekur námurnar eftir úreltu fyrir-
komulagi, sumpart af afturhalds
semi, en sumpart af því, að það
fer ekki altaf saman hagur þjóð-
arinnar, sem er að fá sem mest
kol, og hagur námueigendanna,
sem er að græða sem mest (og
það er langt frá því að námueig-
endur græði altaf því meira, sem
meiri kol eru framleidd).
V.
Hr. Helgi Hermann getur þess
réttilega, að námueigendur álíti að
það verði tekjumissir fyrir sig ef
námurnar verði þjóðnýttar. Það er
það sem er ástæða þeirra til þess
að vera á móti því. Hr. H. H.
talar um að margir hlutabréfaeig-
endur í kolanámum séu .tiltölu-
lega fátækir menn". En það minn-
ir heizt til mikið á það, að þegar
verið var að ræða um afnám þræla-
haldsins í Bandaríkjunum, þá var
talað um hvað óréttlátt væri að
afuema þrælaha'.d, þar eð það
væru margar fátækar ekkjur, sem
ekki hefðu annað að lifa á en
þrælana1
Annars má geta þess, að tekj-
ur námueigendanna hafa hækkað
um helming síðan fyrir stríð, og
eru nú um 26 milj. sterlingspunda
(473 milj. kr. með venjulegu ster-
lingsverði). Það má því segja að
gróði námueigendanna sé vægast
talað gifurlegur.
Hinsvegar hefir kaup námu-
manna aðeins stigið um 125%,
en vörur stigið eftir því sem stjórn-
in hefir gefið upp um 162%. Þeir
hefðu því ekki náð raunverulega
sama kaupi og þeir höfðu fyrir
stríð, þó þeir hefðu fengið 2 shil-
lings daghækkun þá sem þeir fóru
fram á, því kauphækkun hefði
með þeirri viðbót ekki komist
nema í 155%.
ijverjum má trða?
(Kafli úr bréfi)
— Altaf er Moggi að básúna
það, hve afskaplegt ástand rfki í
Rússlandi, og nú er stóri Moggi
búinn að fá Þorvald litla Árnason
frá ísafirði í lið með sér. Moggi
verður feginn að fá Þorvald fyrir
heimildarmann, en Þorvaldur hefir
svo tvo ónafngreinda verkfræðinga
fyrir sínar heimildir, sem líklega
má gera ráð fyrir að séu til, cn
eflaust eru einhverjir spekúlantar
eða fjárbrallsmenn, sem mist hafa
spón úr askinum sínum við það,
að alþýðan og andansmennirnir
náðu völdunum úr höndum maura-
púkanna.
Svona auðvaldshrafnar eru í
öllum löndurn, þar sem eitthvert
æti er að fá, en krunka auðvitað
og bera sig aumlega, þegar þeir
ekki fá að kroppa feitu bitana í
næði og eru reknir burtu.
í sumar sem leið kom Jón
Helgason fþróttamaður, sem kvænt-
ur er rússneskri konu og dvalið
hefir öll strfðsárin f Rússlandi, f
kynnisför til Akureyrar. Jón er
ekki bolsivíki og vildi ekkert um
Aígreidðla
blaðsíns er í Alþýðuhúsinu við'
Ingólfsstræti og Hverfisgötu.
Sími 088.
Auglýsingum sé skilað þangað
eða í Gutenberg í sfðasta lagi kl.
10 árdegis, þann dag, sem þær
eiga að kotna í blaðið.
Áskriftargjald ein lir*. á
\
mánuði.
Auglýsingaverð kr. 1,50 cm„-
eindálkuð.
Utsölumenn beðnir að gera skii
til afgreiðslunnar, að minsta kosti
ársfjórðungslega.
Alþbl. er blað allrar alþýðu!
Rússland tala, en ekki leizt honum
það betur á sig hér á íslandi, e«
f Rússlandi, að hann kærði sig um
að flytja hingað heim búferlum,.
má þó gera ráð fyrir að enginn,
sem á annars úrkosta, dvelji lang-
dvölum f því víti, sém Moggi og
verkfr. hans Þorvaldar segja að sé
í Rússlandi.
Aðvitað hlýtur ástandið þar að5
vera slæmt. Hvernig væri nú hér
á landi, hefðum við íslendingar
engar samgöngur haft við útlönd
í mörg ár? Það þarf ekki að lýsa
þvf, og enginn neitar því, að þrátt
fyrir opin höf fyrir okkur íslend-
inga, er dýrtíðin mest hér á landi,,
af öllum nærliggjandi löndum, lfk-
lega Rússlandi meðtöldu. Ófriðar-
bölið, sem Rússland hefir átt við*
að striða, sfgur ekki eins þungt á
ógæfuhlið þjóðarinnar rússnesku,-
eins og afturhaldsstjórn Jóns-
Magnússonar pínir íslendinga og:
þjakar; má eflaust þakka þa&
verklýðsstjórninni rússnesku.
En hvað sem annnars má segjat
um Rússa, þá trúa liklega fleiri
því, sem reyndir og gætnir nafn-
greindir óvilhallir enskir aðals- og
stjórnmálamenn segja, eftir margra
ára veru þar, en því, sem ein-
hverjir ónafngreindir auðvalds-
hrafnar krunka, þó það krunk sé
bergmálað af manni, sem uppvís
hefir orðið um brot á skriflegri
drengskaparyfirlýsingu.
Vitar.