Morgunblaðið - 15.01.1994, Blaðsíða 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANUAR 1994
*
4L
Öperuklúbburinn sýnir óperur Wagners
ÓPERUKLÚBBUR Styrktarfélags íslensku óperunnar mun sýna
upptökur af óperum Richards Wagners í vetur. Sýndar verða allar
óperur Wagners sem settar eru á svið á Wagner-hátíðinni í Bayere-
uth og eru upptökurnar frá sviði óperuhúss hátíðarinnar. Sýnt
verður af mynddiskum (laserdiskum) og verða því hámarksgæði
bæði á hljóði og mynd auk þess sem enskir skjátextar auðvelda
skilning söngtextans.
Fyrsta sýning klúbbsins verð-
ur nk. sunnudag kl. 15, en
þá verður sýnd uppfærsla Harry
Kupfers af Hollendingnum fljúg-
andi. Þessi uppfærsla var sett á
svið í Bayreeuth árið 1978 og
vakti þá mikið umtal og deilur
vegna nýstárlegrar túlkunar, en
verkið er látið gerast í hugar-
heimi Sentu, sem danska sópr-
ansöngkonan Lisbeth Balslev
leikur. Aðrir söngvarar í aðalhlut-
verkum eru Simon Estes í hlut-
verki , Hollendingsins og Matti
Salminen í hlutverki Dalands
skipstjóra.
Sýningarnar verða haldnar á
Vesturgötu 36b. Vegna takmark-
aðs sætafjölda eru þeir sem
Richard Wagner
hyggjast sækja sýningarnar
beðnir um að láta vita á skrif-
stofu íslensku óperunnar.
Aðgangur að sýningunum er
ókeypis. Sýningar Óperuklúbbs-
ins í vetur verða sem hér segir:
Sunnudag 16. janúar kl. 15: Hol-
lendingurinn fljúgandi. Sunnudag
30. janúar kl. 14: Tannháuser.
Sunnudag 6. febrúar kl. 14: Lo-
hengrin. Sunnudag 13. febrúar
kl. 14: Tristan og Isolde. Nifl-
ungahringurinn: Laugardag 26.
febrúar kl. 15: Rínargullið.
Sunnudag 27. febrúar kl. 14:
Valkyrjan. Þriðjudag 1. mars kl.
19 : Siegfried. Fimmtudag 3.
mars kl. 19: Ragnarök. Sunnudag
20. mars kl. 14: Meistarasöngv-
ararnir. Föstudag 1. apríl kl. 14:
Parsifal (ath. föstudagurinn
langi). Niflungahringurinn: Laug-
ardag 23. apríl kl. 15: Rínargullið
og kynning. Sunnudag 24. apríl
kl. 14: Valkyrjan. Þriðjudag 26.
apríl kl. 19: Siegfried. Fimmtudag
28. apríl kl. 19: Ragnarök.
Sinfomutonleikar
Verk Hafliða
Innnllutt á OL
NORSKA Ólympíunefndin hefur
óskað eftir því við Hafliða Hall-
grímsson tónskáld að hann semji
verk, sérstaklega ætlað fyrir
sópransöngkonuna Ragnhild Sör-
ensen og Norsku kammersveit-
ina, til flutnings í Lille Hammer
meðan leikarnir standa yfir.
Að sögn Hafliða óskaði Ólymp-
íunefndin eftir að valið væri
Ijóð eftir heimsþekkt stórskáld og
nefndi í því sambandi skáld eins
og Goethe, Schiller og Shakespe-
are. „Eftir mikla leit fann ég hins
vegar mjög fallega sonnettu eftir
Michelangelo," sagði Hafliði, „Hún
fjallar um nóttina og hina miklu
náðargjöf, svefninn „sem þerrar öll
tár og afmáir um stund þjáningu
og minningar hins liðna“, eins og
segir í sonnettunni."
Verkið nefnist Ríma og er sótt í
titil bókarinnar Rími di Michelang-
elo Buonarroti. Ríma verður flutt
þrisvar sinnum í Noregi í febrúar
nk., meðal annars í Ósló. Hafliði
Hallgrímsson verður viðstaddur
frumflutning verksins í Lille Hamm-
er 20. febrúar í boði Norsku kamm-
ersveitarinnar.
Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
riðju „rauðu" áskriftartónleik-
ar Sinfónfuhljómsveitar ís-
lands voru haldnir í Háskólabíói
sl. fimmtudag. Á efnisskránni
vour verk eftir Þorkel Sigurbjörns-
son, Bruch, Stravinskíj,
Tsjajkovskíj og Sibelíus. Einleikari
var Jan Erik Gustavsson en stjórn-
andi Osmo Vánská.
Tónleikarnir hófust á hljóm-
sveitarverkinu Ys og þys, eftir
Þorkel Sigurbjörnsson, sem frum-
flutt var á fyrstu Listahátíðinni í
Reykjavík, árið 1970. Ritháttur
verksins er mjög skýr og var það
sérlega vel flutt. Hljómsveitar-
stjórinn lagði mikla áherslu á
styrkleikabreytingar og er það
reyndar eitt af því sem einkennir
stjórn hans sérstaklega, allt frá
að leggja áherslu á mjög veikan
leik og vinna sig upp í fullan styrk,
án þess þó að yfirkeyra nokkurn
tíma.
Veikur leikur býr oft
yfir mikillí dramatík og
jafnvel bældri spennu,
sem fær sérstakt inn-
tak þegar þessi átök
brjótast fram í fullum
styrk. Þessar and-
stæður náði Vánská
að draga fram í öllum
viðfangsefnum tón-
leikanna.
Jan Erik Gustavs-
son er frábær sellisti
og lék hann Kol Nidrei
eftir Bruch með mikl-
um glæsibrag, bæði
hvað snertir andstæð-
ur í styrk og hendinga-
mótun. Það er með
ólíkindum hvað þessi ungi sellisti
er þroskaður í túlkun, auk þess
að hafa gott vald á hljóðfærinu. í
seinna einleiksverkinu, Rókokkot-
ilbrigðunum eftir Tsjajkovskíj, var
leikur hans ekki síður glæsilegur
og þrunginn af „músík“.
Leikur spilanna er balletttónlist
eftir Stravinskíj og eftir svolítið
óvissa byrjun náði hljómsveitin
sér á strik með prýðilegum leik
og eins og fyrr segir var það skýr-
leiki, bæði hvað varðar mótun
tónhendinga og hryn, ásamt vel
mótuðum styrkleikaandstæðum,
sem einkenndi leik hljómsveitar-
innar.
Meginverk tónleikanna var sú
sjöunda, í C-dúr, eftir Sibelíus. í
efnisskrá eru tilteknar nokkrar
frægar sinfóníur í C-dúr og sér-
staklega nefnd sú „níunda" eftir
Beethoven en hún er í d-moll og
Pathetique-sinfónían eftir
Tsjajkovskíj, sem er í h-moll, svo
að þarna skakkar nokkru. Sú sjö-
unda eftir Sibelíus er fallegt verk
og þar fóru hljómsveit
og hljómsveitarstjóri á
kostum og það er at-
hyglisvert að mótun
Vánská á styrkleika-
andstæðum gerir form
verkanna sérlega
skýrt, auk þess sem
honum tókst að
magna upp sterkar
stemmningar í flæð-
andi tónbálki Sibelíus-
ar. Stjórnandi, hljóm-
sveit og einleikari
stóðu fyrir frábærum
tónleikum, sem áheyr-
endur kunnu svo
sannarlega að meta.
Jan Erlk Qustavsson
„Leika í höndum harðir malmar"
BJÖRGVIN Frederiksen
sýnir í Geysishúsinu um 20
smíðisgripi sem hann hefur
gert á síðari árum, einkum
kertastjaka fyrir kirkjur og
einstaklinga, en einnig
nokkur óhlutbundin mynd-
verk, fánastengur, verkfæri
sem hann hefur fundið upp
og fleira. Sýningin stendur
til 23. febrúar.
Björgvin er fæddur í
Reykjavík 1914. Hann
nam ungur vélsmíði hér heima og
fór að svo búnu í eins árs tækninám
í Danmörku. Sjálfstæðan rekstur í
faginu hóf hann 23 ára gamall.
Á styrjaldarár-
unum dvaldi Björg-
vin um tíma í
Bandaríkjunum og
kynnti sér hrað-
frystivélar en í
Danmörku aflaði
hann sér vitneskju
um kæliklefa og
flutti hana til lands-
ins fyrstur manna.
Síðan vann hann á
þessu sviði í yfir
tvo áratugi. Hann
tók mikinn þátt í
félagsmálum, var m.a. forseti
Landssambands iðnaðarmanna og
lengi í skólanefnd Iðnskólans og í
borgarstjórn.
Þannig hefur vettvangur Björg-
vins verið margbreytilegur. Um
hann var sagt fyrir nokkrum árum:
„Leika í höndum harðir málmar,
honum lítið elli tálmar." Það ætti
því ekki að koma mjög á óvart að
hann skyldi hafa snúið sér að smíð-
um listaverka á efri árum. Viðfangs-
efnin eru fjölbreytileg líka; sum verk
Björgvins fylgja stranglega ákveðn-
um fyrirmyndum meðan önnur
fylgja engum öðrum fyrirmælum en
þeim sem búa í brjósti hagleiks-
mannsins. Öll eiga verk Björgvins
það sameiginlegt að vera nákvæm-
lega og alúðlega unnin og bera því
vitni „hugvits og hagleiks höldi
slyngum".
Bjorgvin
Edda Jónsdóttir
Edda Jönsdðttir
hlýtur norræn
vatnslitaverðlaun
NÝLEGA var tilkynnt að Edda
Jónsdóttir hljóti vatnslitaverðlaun
Nordiska AkvarellSállskapet og
verður hún fyrsti verðlaunahafi
félagsins. Verðlaunin eru kennd
við hið þekkta breska fyrirtæki
Winsor & Newton sem framleiðir
olíu- og vatnsliti.
Verðlaunaveitingin fer fram í
Listasafninu í Malmö í febrú-
arbyrjun þegar AkvarellSállskapet
heldur aðalfund sinn. Verðlaunin
eru tíu þúsund sænskar krónur.
í greinargerð dómnefndar segir:
„Vatnslitamyndir Eddu Jónsdóttur
eru kraftmiklar en engu að síður
viðkvæmar og dæmi um hvernig
þróa má vatnslitatæknina. Hinar
stóru myndir hennar geta í senn
verið samanþjappaðar og dimmar
en um leið búa þær yfir sérkenni-
legri og flöktandi birtu. Þær eru
formsterkar og áleitnar og sýna
næma tilfinningu fyrir efninu. í
vatnslitamyndum Eddu er samspil
andstæðna sem gerir þær heil-
steyptar og' forvitnilegar."
Verðlaunin eru veitt í tengslum
við farandsýninguna Norrænar
vatnslitamyndir sem hófst í Nor-
ræna húsinu í Reykjavík í júní í fyrra
og lauk í Kaupmannahöfn í nóvem-
ber síðastliðnum. AkvarellSállskap-
et í Svíþjóð átti frumkvæði að sýn-
ingunni, en á henni áttu verk 27
norrænir listamenn frá 5 löndum.
Fulltrúar íslands auk Eddu Jóns-
dóttur voru Eiríkur Smith, Guð-
munda Andrésdóttir, ' Hafsteinn
Austmann og Karólína Lárusdóttir.
Guðríður Hrafnhildur
Tónleikar í
Borgarneskirkju
SÖNGTÓNLEIKAR verða í Borgar-
neskirkju á morgun sunnudag
klukkan 16. Þar koma fram Hrafn-
hildur Guðmundsdóttir mezzó-
sópran og Guðríður St. Sigurðar-
dóttir píanóleikari.
ÆT
Aefnisskránni eru íslensk þjóð-
lög, lagaflokkurinn Frauenli-
ebe und leben eftir Schumann, lög
eftir spænska tónskáldið Granados
og Frakkana Satie og Hahn. Einnig
óperuaríur eftir Gounod og W.A.
Mozart.
Hrafnhildur lauk einsöngvaraprófi
frá Tónlistarskólanum í Reykjavík.
Hún hefur sungið einsöngshlutverk
í (slensku óperunni, komið fram sem
einsöngvari með íslensku hljóm-
sveitinni og á Listahátíð í Reykjavík.
Guðríður lauk einleikaraprófi frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hún
hefur haldið tónleika bæði hér á
landi og erlendis, ýmist sem einleik-
ari eða með öðrum tónlistarmönn-
um. Hún hélt einleikstónleika í Borg-
arneskirkju í febrúar 1991.
MENNING/LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Norræna húsið
Þór Ludwig Stiefel sýnir til 23. jan.
Kjarvalsstaðir
Geoffrey Hendricks og Magnús
Kjartansson sýna til 13. feb.
Gallerí Sólon Islandus
Vignir Jóhannsson sýnir til 18. jan.
Gallerí Úmbra
Ingibjörg Jóhannsd. sýnir til 26. jan.
Nýlistasafnið
Magnús Pálsson sýnir til 23. jan.
Gerðuberg
Norræn barnasýning og samsýn.
12 karlkyns listamanna til 13. feb.
Gallerí Greip
Magnús Sigurðars., Margrét H.
Blöndal og Asmundur Ásmundss.
sýna til 2. feb.
Gallerí Sævars Karls
ívar Brynjólfss. sýnir til 2. feb.
Mokka kaffi
Hringur Jóhannesson sýnir.
Onnur hæð
Sýning á verkum Stanley Brown.
Götugrillið
Guðm. R. Lúðvíkss. sýnirtil 10. feb.
Tilveran Hafnarfirði
Gunnar Jóhannsson sýnir til 8. feb.
Café 17
Agatha Kristjánsd. sýnir.
Veitingahúsið 22
Ljósmyndasýn. Sigfúsar Pétursson-
ar til 7. feb.
Stöðlakot
Dröfn Guðmund. sýnir til 23. jan.
Gallerí Listinn
10 listamenn sýna til 15. jan.
Geysishús
Björgvin Fredriksen og 49 lista-
menn sýna til 16. jan.
Sundlaugin Laugardal
Þorsteinn Joð. Vilhjálmsson sýnir
Ijóðið Djúpt til 15. feb.
TONLIST
Laugardagur 15.janúar
Tónl. Sinfóníuhl. æskunnar í Há-
skólabíói kl. 14. Píanótónl. David
Enns í Norræna húsinu kl. 16. Mich-
ael Jón Clarke með ljóðatónl. í
Gerðubergi kl. 17.
Sunnudagur 16. janúar
Hrafnhildur Guðmundsd. mezzó-
sópran og Guðríður St. Sigurðard.
píanól. með tónl. í Borgarneskirkju
sun. 16. jan. kl. 16.
Mánudagur 17. janúar
Tríó Ólafs Stephensen á Sólon ís-
landus kl. 22.
LEIKLIST
Borgarleikhúsið.
Eva Luna; sun. 16. jan., fim., fös.
Ronja ræningjadóttir; sun. 16. jan.
kl. 14.
Spanskflugan; lau. 15. jan.
Elín Helena kl. 20; lau. 15. jan.
Þjóðleikhúsið
Blóðbrullaup kl. 20.30; frums. fös.
21. jan.
Seiður skugganna kl. 20; frums.
lau. 15. jan., sun., fös.
Mávurinn kl. 20; lau. 15. jan.
Aliir synir mínir kl. 20; fím. 20.
jan., fös.
Kjaftagangur kl. 20; lau. 22. jan.
Skilaboðaskjóðan kl. 14; lau. 15.
jan., sun.
íslenska óperan
Évgení Ónegín kl. 20; lau. 15. jan.,
lau. 22. jan.
Leikfélag Akureyrar
Góðverkin kalla kl. 20.30; lau. 15.
jan.
Frú Emilía leikhús
Nemendaleikhúsið: Konur og stríð
kl. 20; sun. 16. jan., sun., þri., fim.
íslenska leikhúsið
Býr íslendingur hér kl. 20; lau. 15.
jan., lau. 22. jan.
Leikfélag Hafnarfjarðar
Bugsy Malone; lau. kl. 20., sun. kl.
16.
Leikfélag FEB
Margt býr í þokunni; alla mið. og
lau. kl. 16 og sun. kl. 20.30.
Leikfélag Þorlákshafnar
Týnda teskeiðin í Félagsheimili
Kópavogs sun. 16. jan. kl. 20.30.
KVIKMYNDIR
MIR
Ófullgert verk fyrir sjálfspilandi
píanó, sun. 16. jan. kl. 16.
UMSJÓNARMENN LISTA-
STOFNANA OG SÝNINGAR-
SALA!
Upplýsingar um listviðburði sem
óskað er eftir að birtar verði í þess-
um dálki verða að hafa borist bréf-
lega fyrir kl. 16 á miðvikudögum
merktar: Morgunblaðið, menn-
ing/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík.
Myndsendir: 91-691181.