Morgunblaðið - 04.02.1994, Side 1

Morgunblaðið - 04.02.1994, Side 1
b Herbergió kostar 10 |iúsiiii(l a mánuói ÆT IBÚÐAREIGEMDUR sem eru alvarlega að hugsa um að skipta um íbúð, ættu að hafa í huga þumalputtareglu sem seg- ir, að það kosti u.þ.b. eina millj- ón króna að stækka við sig um eitt herbergi, t.d. við að fara úr 2ja herbergja íbúð í 3ja, eða úr 3ja herbergja í 4ra. Það eru að sjálfsögðu engin vfsindi að baki þessari reglu, en hún getur gef- ið góða vísbendingu, segir Grét- ar Guðmundsson í pistli sínum í dag. Hann segir einnig að þeir sem þurfa að fá eina milljón króna að láni vegna ibúðar- skipta, t.d. í húsbréfakerfinu, geti reiknað með að greiðslu- byrði þess láns sé um 6 þúsund krónur á mánuði, miðað við núverandi forsendur. Að með- töldum rekstrarkostnaði sé ekki óvarlegt að ætla að það geti kostað um 10 þúsund krónur á mánuði, að stækka við sig um eitt herbergi, ef fjármagna þarf íbúðarskiptjn með lánum. FjölbýHshúsa- ibúóir Stóóugl verólug en samdratt- III' ■ vió- sldptum VERÐLAG íbúða ífjölbýlis- húsum í Reykjavík hélst nokkuð stöðugt á síðasta ári, samkvæmt nýjum útreikning- um Fasteignamats ríkisins. Ef bornar eru saman bráða- birgðatölur úr 4. ársfjórðungi 1993 við sama tímabil árið áður virðist raunverð á þessum tímabilum standa svo til alveg í stað, þ.e. verðlagið fylgir hreyfingu lánskjaravísitölunn- ar, að því er segir í f réttabréfi stofnunarinnar. Veruleg fækk- un varð á kaupsamningum sem bárust Fasteignamati ríkisins úr fyrstu 9 mánuðum ársins 1993. Þannig fækkaði samn- ingum um fbúðir í fjölbýli um 200 eða um 10% og samning- um um einbýlishús fækkaði um 80 eða um 30% miðað við fyrra ár. Tölur um skil á samningum eru ekki algildur mælikvarði á veltuna en þykja engu að síður gefa vísbendingu um samdrátt á markaðnum á umræddu tímabili. Samkvæmt tölum fasteignamatsins yfir einbýlis- hús hefur verðlækkunin orðið 4-6% á sl. ári. Fermetpaverft í fjölbýlishúsum í Reykjavík frá 1984 til þriðja ársfjórftungs 1993, fast verðlag þriðja ársfjóðungs 1993 þús9^r 85 80 75 70 65 60 55 50 Aó stæklca vió sig Deilískipn- lag Borga- hverfís samþykkt Nú sér brátt fyrir endann á frágangi skipulags í Borg ■ arholti II í Reykjavík en þar hafa verið skipulögð fjögur ibúða- hverfi með alls um 10 þúsund manna byggð. Búið er að ganga frá Rimahverfi og hluta Engja- hverfis, deiliskipulag fyrir Borgahverfi var nýlega sam- þykkt hjá Skipulagsnefnd borg- arinnar og frágangur á Víkur- hverfi er á lokastigi. Hluti hverf- isins er skipulagður af arkitekt- unum Þorsteini Helgasyni og Herði Harðarsyni sem unnu samkeppni Húsnæðisnefndar Reykjavíkur um félagslegar eignaríbúðir á sfðasta ári. Hinn hluti hverfisins er skipulagður af Gesti Ólafssyni arkitekt og skipulagsfræðingi og greinir hann nánar frá því ásamt Ólafi Hall- dórssyni hjá Borgar- skipulagi. 12 FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR1994 HEIMILI JMófgtmftfttfeli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.