Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1994
VETRAROLYMPIULEIKARNIR I LILLEHAMMER
Kerrigan
fær70
milljónir
Nancy Kerrigan, bandaríska
skautadrottningin sem
mikið hefur verið í fréttum að
undanförnu eftir að ráðist var
á hana á æfingu, hefur gert
samning við ABC sjónvarps-
stöðina, Disney fyrirtækið og
framleiðanda í Hollywoocj, sem
færir henni eina milljón dollara,
sem svarar til 72 milljóna ís-
lenskra króna — eftir því sem
tímaritið Newsweek greindi frá
í gær.
í blaðinu kom fram að
Kerrigan á að leika í sjónvarps-
kvikmynd, sem sýnd yrði í maí
í vor. Skv. samningnum verður
einnig skrifuð bók um hana,
hún mun koma fram í einhveij-
um skemmtigarða Disney sam-
steypunnar og hugsanlegt er
að hafin verði framleiðsla á
Nancy-brúðu. Greint var frá því
að Kerrigan hefði sjálf lagt
áherslu á að um fjölskyldumynd
yrði að ræða; ekki yrði ein-
göngu lögð áhersla á árásina
sem áður var nefnd.
m Reuter
Islendingarnir við setninguna
ÍSLENSKI hópurinn gengur inn við setningarathöfn leikanna í Lillehammer á laugardag. Ásta S. Halldórsdóttir er fánaberi.
Bandaríkjamaðurinn Moe
hreppti stóra vinninginn
og Bill, eiginmaður hennar og forseti Bandaríkjanna, hringdi í hann úr forsetabílnum frá Arkansas.
Fór erfiðu leiðina á toppinn
TOMMY Moe-frá Bandaríkjun-
um sigraði í bruni karla, fjórum
hundruðustu úr sekúnduá
undan norska „goðinu" Kjetil
Andre Aamodt, en Kanada-
maðurinn Ed Podivinsky varð í
þriðja sæti. Þetta var fyrsti sig-
ur Moes á stórmóti, en hann
fékk tímann 1.45,75. Aamodt
fór á 1.45,79 og Podivinsky á
1.45,87.
Illloe er annar Bandaríkjamað-
■■■* urinn til að sigra í bruni á
Ólympíuleikum, en Bill Johnson
fagnaði sigri fyrir 10 árum.
Austurríkismaðurinn Patrick Ortli-
eb, sem átti titil að veija, varð að
sætta sig við ijórða sætið og Marc
Girardelli, sem keppir fyrir Lúxem-
borg og hefur sigrað nánast alls-
staðar nema á Ólympíuleikum,
hafnaði í fimmta sæti.
Moe, sem er 23 ára íbúi í Alaska
frá Montana af norrænum ættum
var næstur í röðinni á eftir
Aamodt. Um 40.000 norskir áhorf-
endur voru enn að fagna, þegar
hann lagði af stað, en þeir þögn-
uðu, þegar Bandaríkjamaðurinn
kom í mark. „Spumingin var um
að vera rólegur," sagði bandaríska
hetjan. „Eftir æfinguna á laugar-
dag vissi ég að ég ætti rnöguleika
á að standa mig vel. Ég skíðaði
ekki nógu vel, gerði nokkur mi-
stök, en var ákveðinn. Þegar ég
fór yfir endalínuna og sá að ég var
með besta tímann vissi ég að þetta
yrði stór dagur. Það er frábært
að fagna fyrsta sigrinum í bruni á
Ólympíuleikum."
Moe fæddist í Montanaríki, en
á ættir að rekja til Norðurlanda.
„Ég á skyldmenni úr föðurætt í
Ósló, en móðurættin kemur frá
Svíþjóð."
Aamodt átti erfitt með að sætta
sig við annað sætið. „Ég ætlaði
að sigra og á eftir að skoða vel
hvar ég tapaði þessum fjórum
hundruðustu. Ég gerði nokkur
mistök, en samt var þetta mitt
besta í vikunni."
„AMERÍKA er stolt af þér,“
sagði Bill Clinton Bandaríkja-
forseti í símtali við Tommy
Moe eftir sigurinn í brunkeppn-
inni. Moe hefur náð hæsta
tindi, en hann hefur ekki ávallt
verið til fyrirmyndar og má
segja að hann hafi valið erfiðu
leiðina á toppinn.
Moe sagðist hafa sveigt af réttri
leið nokkrum sinnum á ungl-
ingsárunum, en hann hélt sínu striki
á laugardag. Tvisvar var hann rek-
inn úr skíðaliði fyrir að reykja mar-
íúana. „Ég var ekki fyrirmyndar-
unglingur, aðeins venjulegur banda-
rískur krakki. Ég hef lent í ýmsu
og var ekki í hópi bestu nemenda í
skóla. En ég hef fengið að finna
fyrir því. Ég rak mig á og lærði af
mistökunum, sem hefur styrkt mig.“
Moe sagðist eiga föður sínum
margt að þakka, því hann hefði
komið sér aftur á beinu brautina.
„Ég væri ekki í þessum sporum, ef
hann hefði ekki hjálpað mér. Hann
hélt mér ávallt við efnið og fékk
mig til að ná-áttum.“
Eftir að Moe hafði verið vikið úr
skíðaliði öðru sinni tók faðirinn til
sinna ráða og fór með strákinn frá
Montana til Alaska, þar sem hann
lét hann í byggingavinnu. Strákur
sá fljótt að mun skemmtilegra væri
að keppa á skíðum og hann snerti
ekki framar við eiturlyfjum.
Foreldrar hans rétt náðu til Lille-
hammer til að sjá soninn sigra og
faðirinn var hreykinn. „Þegar hann
var átta ára eða svo missti hann
annað skíðið í miðri keppni. En hann
hélt áfram og náði nærri því í mark
— og tlminn var heldur ekki slæm-
ur. Þá hugsaði ég með sjálfum mér:
„Þessi strákur hlypi niður brautina,
ef hann þyrfti þess.“ Hann hefur
lagt mikið á sig og á þetta skilið.
Ég efast um að nokkur skíðamaður
eigi eins margar mílur að baki og
hann.“
Moe fór óvenjulega leið til Lille-
hammer. „Eftir keppni í Chamonix
tók ég mér vikufrí og fór til Kanarí-
eyja. Ég var þreyttur eftir fimm
vikna töm á skíðunum, að skíða á
hverjum degi. Ég æfði mig lítillega,
spilaði golf og gekk um í heitum
sandinum.“
■ VEGARD Ulvang sór ólympíu-
eiðinn fyrir hönd íþróttafólksins og
sagðist hafa verið taugaóstyrkari
en fyrir nokkra keppni. Honum tókst
samt vel til og talaði blaðalaust, en
var með skrifaðan texta í vasanum.
■ HOLLENDINGAR mótmæltu
áformum um að leika tónlist meðan
á keppni í skautahlaupi stæði yfír
og voru mótmælin tekin til greina.
■ VERÐLA UNIN að þessu sinni
eru unnin úr grágrýti, skreytt með
gulli, silfri eða bronsi.
■ MANUELA Di Centa var nærri
búin að missa af skíðagöngunni.
Hún týndi keppnispassa sínum og
varð að fara í aðalstöðvarnar í Lille-
hammer til að fá nýjan skömmu
fyrir keppni, þar sem hún kom, sá
og sigraði.
■ AKSTUR einkabíla er bannaður
í Lillehammer frá klukkan sex á
morgnana til níu á kvöldin meðan
á leikunum stendur. Þetta hefur
skapað mikla vinnu fyrir leigubíla
og hefur verið rætt um að bæta 50
bílum við þá 120, sem eru fyrir, en
venjulega eru um 40 leigubílar í
borginni.
■ LAMINE Gueye frá Senegal
er eini keppandi Afríku í alpagrein-
um. Hann sleppti hliði í bruninu og
var dæmdur úr leik.
■ FRANZHeinzerírá Sviss, einn
fremsti brunkappi á árum áður,
missti annað skíðið, þegar hann var
að leggja af stað og þar með var
draumurinn úti.
■ CONNOR O’Brien, sem hefur
keppt fyrir Bretland og Kanada,
en er nú fulltrúi Eistlands, komst
aðeins lengra, en missti skíði í miðri
brautinni og fór útaf.
■ HUBERTUS von Hohenlohe
frá Mexíkó var ákaft fagnað, þegar
hann kom í mark, meira en sjö sek-
úndum á eftir sigurvegaranum.
Hann var með þriðja lakasta tímann.
■ SURYA Bonaly frá Frakk-
landi, sem sýndi listir sínar á
skautasvellinu í Laugardal fyrir
ÓL í Albertville, er sigurstrangleg
í listhlaupi á skautum. Evrópumeist-
arinn mætti á opnunarhátíðina, en
fór síðan til Pralognan í frönsku
ölpunum, þar sem hún ætlar að æfa
sig fyrir keppnina. „Þar get ég æft
eins og ég vil, en í Lillehammer
fæ ég minna en tvo tíma á dag.“
■ EDDIE „ Örn “ Edwards, skíða-
stökkvari frá Englandi, reyndi að
komast inná æfingasvæði stökkvar-
anna í fyrradag, en fékk ekki að-
gang, þar sem hann var ekki með
passa.
■ EDWARDS sagðist eiga að
keppa, en þegar honum var ekki
hleypt inn sagði hann að dómararn-
ir vildu koma í veg fyrir að hann
yrði' með, því þeir óttuðust að hann
stykkj# of langt.
■ „ÖRNINN“ sagðist vera tilbú-
inn í slaginn. „Ég er með þotuhreyf-
il í bindingunum,“ sagði maðurinn
með þykku gleraugun, sem vakti
athygli fyrir óvenjulegan „stökkstíl"
á OL í Calgary og fékk ekki að
vera með í Albertville. Breska
ólympíunefndin sagði kappann á
eigin vegum.
■ JOHNNY Albertsen er 16 ára
skíðamaður og yngsti keppandinn
áÓlympíuleikunum í Liileham-
mer. Honum brá við komuna, þegar
í ljós kom að hann var skráður í
brun, en ekki stórsvig. Mistökin
voru leiðrétt og strák létti, enda
aldrei keppt í bruni.
■ LILLEHAMMER hefur nánast
verið á kafi í snjó að undanfömu.
Bæjarstarfsmenn hafa varla undan
að losa sig við snjóinn úr bænum
og er gömul gijótnáma í grendinni
þegar orðinn yfirfull af snjó. Lille-
hammer hefur notað þessa náinu
undir snjó undanfarin ár, en þetta
er fyrsta sinn sem hún fyllist.