Morgunblaðið - 15.02.1994, Síða 12
GOLF
FATLAÐIR
Sigrún setti
flögur
heimsmet
íslenskir íþróttamenn
fengu 20 gullverðlaun
Sigrún Huld Hrafnsdóttir úr Ösp
setti fjögur heimset í sundi á
móti fatlaðra og þroskeheftra í Sví-
þjóð um helgina. Einnig fékk Sigrún
Huld fern gullverðlaun og ein brons-
verðlaun. Bára B. Erlingsdóttir úr
Ösp setti eitt heimsmet í flokki
þroskaheftra og Ólafur Eiríksson
setti íslandsmet í flokki hreyfihaml-
aðra.
Sigrún Huld setti heimsmet sín í
200 metra skriðsundi, synti á 2.36,88
mínútum, 100 m bringusund synti
hún á 1.28,55, 100 m baksund synti
hún á 1.24,74 og 100 m skriðsund
fór hún á 1.10,79. Bára setti heims-
met í 50 m flugsundi þegar hún synti
á 38,80 sekúndum og Ólafur setti
Islandsmet í 50 metra fíugsundi en
hann synti á 29,70.
íslensku íþróttamennirnir sönkuðu
að sér verðlaunum á mótinu, fengu
20 gullverðlaun, 10 silfurverðlaun og
fímm sinnum urðu okkar keppendur
í þriðja sæti. Flest unnust verðlaunin
í sundkeppninni en í borðtennis fengu
keppendurinir eitt gull, Jón G. Haf-
steinsson, eitt silfur og fjóra brons-
peninga og í bogfimi tvö silfur og
eitt brons.
Sigrún Huld og Einar Þór Einars-
son úr IFR voru atkvæðamest kepp-
enda, fengu fern gullverðlaun, Karen
Friðriksdóttir, ÍFR, fékk þrenn gull-
verðlaun eins og María Jónsdóttir,
ÍFR. Ólafur fékk tvenn gullverðlaun
og ein fengu Bára, Gunnar Þór Gunn-
arsson. Kristján J. Aðalsteinsson og
Eva Þ. Ebenezerdóttir.
FRJALSAR
Heimsmet
Bretinn Colin Jackson setti heims-
met í 60 m grindahlaupi í lands-
keppni Bretlands og Bandaríkjanna
í fijálsíþróttum innanhúss í Glasgow
s.I. laugardag. Jackson, sem á heims-
metið í 110 m grindahlaupi utan-
húss, hljóp á 7,35 sekúndum, en met
Bandaríkjamannsins Gregs Fosters
frá því í janúar 1987, 7,36 sekúndur.
Landsmót
með sama
sniði
KORFUKNATTLEIKUR
Landsmótið í golfí verður haldið á
Akureyri í sumar og verður það
með sama sniði og í fyrra. Þetta var
samþykkt á- ársþingi Golfsambands
íslands sem fram fór í Reykjavík um
helgina. Þar kom meðal annars fram
að sex nýir golfklúbbar gengu í GSÍ
á síðasta tímabili og hefur klúbbum
aldrei fjölgað eins mikið á einu ári.
Þingfulltrúar samþykktu að hafa
landsmótið með sama sniði og var í
Leirunni í sumar. Mótið verður á
Akureyri 24. til 29. júlí, vikuna fyrir
verslunarmannahelgina.
Samtök atvinnukennara í golfi,
IPGA, tengist nú Golfsambandinu
með svipuðum hætti og Landssamtök
eldri kylfinga hafa gert undanfarin
ár og á næsta þingi er gert ráð fyrir
að samtök vallarstarfsmanna geri
slíkt hið sama. Vallarstarfsmenn'
funduðu í tengslum við þingið og
settu á laggirnar nefnd til að und-
irbúa stofnun félagsins.
Ályktað var um landsliðsmál og
stjórn GSÍ falið að koma á landsliðs-
nefnd sem hefði með öll landsliðin
að gera auk þess sem hún mun vinna
að stefnumótum í landsliðsmálum.
Ákveðið var að halda áfram þeirri
uppbyggingu sem verið hefur á ungl-
ingastarfi GSÍ og einnig að leggja
áherslu á að fjölga konum í íþrótt-
inni, en á síðasta ári bytjuðu um 200
konur að stunda golf.
Suðurnesjamennirnir Jón Pálmi
Skarphéðinsson og Júlíus Jónsson
skiptu um sæti í stjóminni. Júlíus
verður í aðalstjórn en Jón Pálmi í
varastjórn.
Reuter
Scottie Pippen í sérflokki
SCOTTIE Pippen, sem hefur verið í skugga Michaels Jordans allan feril sinn, naut sín sérstak-
lega vel í stjörnuleik NBA-deildarinnar um helgina. Pippen var útnefndur maður'teiksins, skoraði
29 stig og þaraf fimm þriggja stiga körfur fyrir lið Austurdeildar, sem vann 127:118, tók 11
fráköst og „stal“ boltanum fjórum sinnum. Á myndinni fyrir ofan eru Pippen og Karl Malone í
baráttu undir körfunni, en til hiiðar er hann með verðlaun sín, sem maður leiksins.
■ Umsögn / B9
BORÐTENNIS
Kjartan meðal þeirra
bestu í Danmörku
HANDKNATTLEIKUR / BIKARURSLIT
Mótanefnd fór að
ráðum stjómar HSÍ
Kjartan Briem, borðtennismað-
ur, náði því takmarki um helg-
ina að komast í hóp úrvalsleik-
manna í Danmörku þar sem hann
æfir og leikur auk þess sem hann
stundar þar nám.
Þetta er þriðja ár Kjartans í
Danmörku. „Þetta er ákveðinn
áfangi hjá mér. Ég hef aldrei átt
möguleika á að komast í „elítu-
flokkinn" fyrr en núna, en til að
komast í þennan flokk verða menn
að standa sig þokkalega vel á
nokkrum mótum,“ sagði Kjartan í
samtali við Morgunblaðið.
í úrvalshópnum eru 32 spilarar
í upphafi hvers keppnistímabils og
síðan vinna menn sér inn punkta á
sérstökum mótum og á slíku móti
um helgina náði Kjartan takmark-
inu. „Eg stóð mig raunar ekkert
allt of vel á þessu móti, en gekk
þó það sæmilega að ég náði nógu
mörgum puntktum til að færast upp
um flokk. Ég hef leikið með 1. flokki
og í meistaraflokki en héðan í frá
leik ég aðeins í elítuflokki og verð
því alltaf að keppa við þá bestu,“
sagði Kjartan.
Hann sagði að stefnan væri að
standa sig vel og halda sér í hópi
þeirra bestu en til þess þyrfti hann
að æfa vel og standa sig. ÞEss má
geta að þegar íslenskir borðtennis-
menn fara til Danmerkur hafa þeir
verið settir í 2. deildina og Kjartan
er sá fyrsti til að ná upp í úrvals-
flokk.
Á mótinu um helgina, sem er
eitt af þremur stærstu mótunum í
Danmörku, lék Kjartan til úrslita í
tvíliðaleik. „Við töpuðum naumlega
21:17 og 21:19, en þetta var samt
ágætt hjá okkur."
Mótanefnd HSÍ ákvað um helg-
ina að bikarúrslitaleikur ÍBV
og Víkings í kvennaflokki fari fram
í íþróttahúsinu við Austurberg laug-
ardaginn 19. febrúar, en karlaleikur
FH og KA verði í Laugardalshöll
5. mars. Stjórn HSÍ lagði til að leik-
irnir yrðu þessa daga til að hægt
væri að sýna þá í beinni útsendingu
Sjónvarpsins, en samkvæmt móta-
skrá áttu þeir að fara fram 20. febr-
úar.
Mótanefnd hafði beinar útsend-
ingar að leiðarljósi, sem gæfu félög-
unum og HSI. auknar tekjur, auk
þess sem þær gerðu öllum lands-
mönnum mögulegt að fylgjast með
leikjunum.
Éyjamenn og FH-ingar settu
breytingarnar ekki fyrir sig, en Vík-
ingar og KA-menn voru ekki sáttir
við gang mála. Sigurður Sigurðsson,
formaður handknattleiksdeildar
Víkings, sagði við Morgunblaðið að
kvennaliðin sætu ekki við sama
borð, því Víkingur ætti deildarleik
annaðkvöld, en IBV sæti hjá og
ekki hefði verið tekið í mál að fresta
deildarleiknum. Sigurður sagði enn-
fremur að verið væri að setja kven-
fólkið skör neðar með því að setja
úrslitaleikinn á í íþróttahúsið við
Austurberg, auk þess sem hluti af
Eyjaliðinu æfði þar með Ármanni.
Þá væru tekjumöguleikar vegna
beinnar útsendingar ofreiknaðir, því
fyrir vikið yrði aðsókn minni.
Sigurður Sigurðsson, formaður
handknattleiksdeildar KA, vildi fara
eftir mótabókinni, „en við verðum
að sætta okkur við þetta og það
þýðir ekkert að gráta. Nú setjum
við allt á fullt og mætum tilbúnir
með lið og stuðningsmenn á settum
degi.“
ITALIA: X X 1 111 111 1211
ENGLAND: 1 X X 1X2 11X 12X2