Morgunblaðið - 29.03.1994, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1994
JMttrgmtMAfeÍto
■ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ
BLAÐ
adidas
Arsenal
leikur í Adidas
FIMLEIKAR / NM I SVIÞJOÐ
KNATTSPYRIMA: SAMRÆMDU PRÓFIN TEKIN Á ÍRLANDI / B8
Kristinn
stóðsig
mjög vel
Arangurinn í fyrri umferð kom
sjálfum mér mest á óvart,“
sagði Kristinn Bjömsson, skíða-
maður frá Ólafsfirði, sem hafnaði
í 6. sæti í stórsvigi á norska meist-
aramótinu í Narvik í Noregi í
gær. Hann var með næst besta
tímann eftir fyrri umferð — 0,14
sek. á eftir Harald Cr. Strand
Nielsen og 0,01 sek. á undan
heimsbikarmeistaranum Kjetil
Andre Aamodt, sem sigraði.
Kristinn, sem hafði rásnúmer
27, sagði að það hafí allir verið
mjög undrandi þegar hann kom
niður á næsta besta tímanum eft-
ir fyrri umferð. „Áhorfendur
trúðu þessu varla. Mér gekk alveg
rosalega vel í fyrri umferðinni —
besta ferðin á ferlinum. Ég átti
síðan í smá erfíðleikum í síðari
umferðinni, en ég get ekki annað
en verið ánægður því þetta er
langbesti árangur minn til þessa,“
sagði Kristinn. Hann fékk tímann
2.15,26 mín. og var nákvæmlega
þremur sekúndum á eftir Aamodt
samanlagt og hlaut 21,00 (fis)
stig fyrir frammistöðuna, en átti
áður best 33,21 stig. Olympíu-
meistarinn í tvíkeppni, Lasse
Kjus, varð fjórði aðeins sekúndu
á undan Kristni. Arnór Gunnars-
son frá ísafirði hafnaði í 43. sæti
af 90 keppendum og var tæplega
8 sekúndum á eftir Kristni.
Þeir kepptu einnig í risasvigi á
sama stað á sunnudag og hafnaði
Kristinn þá í 18. sæti, um 5 sek-
úndum á eftir Atla Sárdal, sem
sigraði. Arnór varð í 35. sæti, 3
sek. á eftir Kristni.
Ásta Halldórsdóttir frá ísafirði
náði besta árangri sínum í risas-
vigi á norska meistaramótinu á
sunnudaginn er hún hafnaði í 9.
sæti og hlaut 49 (fís) stig sem
er hennar besti árangur. Hún
keppti síðan í stórsvigi í gær og
hafnaði í 14. sæti (49,97 sig),
rúmlega 6 sekúndum á eftir Anne
Berge, sem sigraði. Theodóra
Mathiesen úr Reykjavík fór útúr
í stórsviginu í gær en hafnaði í
20. sæti í risasviginu á sunnudag-
inn.
Þau keppa öll í svigi á norska
meistaramótinu í dag, en koma
síðan heima til íslands til að taka
þátt í Skíðamóti íslands sem verð-
ur sett á Siglufirði annað kvöld.
Elva Rut með verðlaunapeninginn frá Norðurlandamótinu.
Morgunblaðið/Þorkell
Elva Rut á verðlaunapall
Elva Rut Jónsdóttur úr fimleika-
félaginu Björk náði bestum
árangri íslensku keppendanna á
Norðurlandamótinu sem fram fór í
Vásturás í Svíþjóð um helgina. Hún
vann bronsverðlaun í keppni á jafn-
vægisslá, hlaut 8,90 í einkunn.
Elva Rut sagðist vera ánægð með
bronsverðlaunin á sínu fyrsta ári í
eldri aldursflokki, en hún vann einn-
ig brons á jafnvægisslá á NM í fyrra
en þá í yngri aldursflokki. „Ég
stefndi á að komast í úrslit og gerði
mér vonir um verðlaun og það tókst
og því er ég mjög ánægð," sagði hún.
Guðjón Guðmundsson komst í úr-
slit í gólfæfingum og hafnaði í 5.
sæti. Hann stóð sig einnig best í fjöl-
þraut karla — hafnaði í 15. sæti af
20, Jóhannes N. Sigurðsson í 16.
sæti og Gísli Garðarsson í 17. sæti.
Nína Björg Magnúsdóttir var best í
fjölþraut kvenna — í 14. sæti. Elva
Rut varð í 16. sæti, Sigurbjörg Ólafs-
dóttir í 18. sæti og Eva Bjömsdóttir
í 19. sæti. Bæði karla og kvennaliðið
höfnuðu í 5. og neðsta sæti í sveita-
keppninni.
KNATTSPYRNA / U-18 ARA LANDSLIÐIÐ
„ítalir með leikaraskap
„ÞAÐ hefði verið skemmtilegra að fara með sigur af hólmi, þar
sem við vorum búnir að halda ítölum svo lengi frá okkur,“ sagði
Bjarki Stefánsson, varnarleikmaður úr Val og fyrirliði piltalands-
liðsins, sem hefur staðið sig vel á móti á Ítalíu. Liðið varð að
sætta sig við jafntefli, 1:1, gegn Ítalíu í gærkvöldi. ítalir náðu
að jafna úr vítaspyrnu þegar tíu mín. voru til leiksloka. Strákarn-
ir lögðu Svisslendinga að velli, 1:0, á laugardaginn.
Við voram heppnir að fá ekki á
okkur mark í byijun leiks, en
náðum að komast yfir rétt fyrir leik-
hlé. Það var greinilegt að það fór í
taugarnar á leikmönnum Italíu að
vera undir. Þeir fóru að leika gróft
og vora með leikaraskap. Þeir höfðu
heppnina með sér og náðu að jafna
undir lokin. Þegar að er gáð er jafn-
tefli sanngjöm úrslit,“ sagði Bjarki.
Árangur íslenska 18 ára liðsins
er góður — jafntefli gegn Itölum á
þeirra heimavelli. Leikurinn í gær
var mikill baráttuleikur og oft á tíð-
um nokkuð grófur. Baráttan kom
niður á gæðum knattspyrnunnar.
Bjarnólfur Lárasson, ÍBV, skoraði
mark íslands á 44 mín., eftir send-
ingu frá Sigurbirni Hreiðarssyni. ís-
lenska liðið lék með aðeins einn leik-
mann í fremstu víglínu í seinni hálf-
leik. ítalir fengu fjögur gul spjöld,
en íslendingar þtjú. Næsti leikur ís-
lenska liðsins verður gegn Kínverjum
á morgun og sagði Bjarki að til að
komast í úrslitakeppnina yrðu þeir
að vinna stórt, en Italir unnu Kín-
verja 5:0.
Fyrsta mark Björgvins
Fyrsta mark Björgvins Magnús-
sonar fyrir ísland ti-yggði piltalands-
liðinu 1:0 sigur gegn Sviss s.l.
laugardag. Markið kom á 66. mín.
og hefði íslenska liðið hæglega getað
gert fleiri mörk. Ólafur Stígsson
braust í gegn hægra megin og gaf
inná markteiginn. Skot Sigui-vins
Ólafssonar var hálfvarið, en Björgvin
var á réttum stað og skoraði af stuttu
færi.
Islenska liðið hefur Ieikið vel mið-
að við að það hefur ekki leikið sam-
an síðan í október. Bjarki Stefáns-
son, fyrirliði, sem er rétt að jafna
sig eftir meiðsli, hefur leikið mjög
vel — stjórnað vöminni eins og her-
foringi.
SKIÐI