Morgunblaðið - 29.03.1994, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.03.1994, Blaðsíða 8
tPRBmR KNATTSPYRNA / UNGLINGALANDSLIÐIÐ Samræmdu prófin á íriandi ÍSLENSKA landsliðíð skipað leikmðnnum 16 ára og yngritek- ur þátt í úrslitakeppni Evrópumóts landsliða á írlandi í lok maí. Fyrsti leikur liðsins er sama dag og síðasta samræmda prófið í grunnskólanum og nú hefur verið ákveðið að prófdóm- ari frá menntamálaráðuneytinu fari með liðinu til írlands og drengirnir taki tvö samræmd próf þar. etta er búið að valda okkur nokkrum höfuðverk. Við er- um tveir kennarar sem förum með hópnum út og ræddum um að við fengjum að vera prófdómarar hjá strákunum," sagði Gústaf Björns- son aðstoðarlandsliðsþjálfari við Morgunblaðið í gær. Auk hans er landsliðsþjálfarinn Ásgeir El- íasson menntaður kennari. „Við settum einnig fram hinn möguleikann, að maður frá ráðu- neytinu kæmi út með hópnum og það varð niðurstaðan. KSÍ kostar ferð hans og hann kemur með prófin með sér út og síðan taka strákamir prófin á sama tíma og krakkamir hér heima. Það er enska þjá þeim mánudaginn 25. maí og danska þriðjudaginn 26. maí, en fýrsti leikurinn er við Tyrki eftir hádegi þann dag, en Tyrkir eru taldir sterkastir í þess- um riðli," sagði Gústaf. Strákarnir ná að taka próf í íslensku og stærðfræði á fimmtu- dag og föstudag áður en haldið er til írlands. „Við emm sáttir við niðurstöðuna því við vildum ekki að þetta verkefni á frlandi tefði strákana í námi. Við förum með strákana til Möltu í æfingaferð um páskana og samkvæmt dag- skránni hjá okkur verða þeir að læra f eina og hálfa klukkustund á dag þannig að við ætlum að sjá til þess að þeir læri. Við verðum þeim til aðstoðar við lærdóminn," sagði Gústaf en þess má geta að ellefu piltar úr tuttugu manna hópnum em í gmnnskóla. Stjaman í úrslrt þriðja ár- iðiröð - vann KR ífrarn- lengdum leik Stjarnan vann KR 23:17 í jöfn- um og spennandi leik í Laugar- dalshöilinni í gærkvöldi, þar sem þurfti framlengingu til að fá fram úrslit. Stjarnan leikur gegn Fram eða Víkingi um ís- landsmeistaratitilinn. KR-stúlkur ætluðu greinilega að selja sig dýrt og knýja fram þriðja leikinn í undanúrslitunum og tókst þeim að halda í við Stjörn- una ' sext>u mínút- ur. Þá var staðan KriSnsdóWr !6:16 °S þurfti því skrifar framlengingu til að fá úrslit. Stjaman gerði út um leikinn í framlenging- unni og skoraði sjö mörk á móti einu marki hjá KR og lokatölur urðu 23:17 Stjörnunni í hag. KR-stúlkur léku þennan leik mjög skynsamlega þar til í fram- lengingunni. Þær spiluðu langar sóknir og vom fljótar aftur í vörn- ina þannig að Stjarnan gat ekki nýtt sér hraðaupphlaupín, sem er þeirra aðalvopn, sem skyldi fyrr en í framlengingunni. Vöm KR- inga var líka mjög góð og Vigdís Finnsdóttir varði oft vel. Stjaman var mjög lengi í gang og virtist mótsstaða KR koma þeim á óvart og þær sýndu ekki sitt rétta andlit fyrr en í framlenging- unni. Liðsheild KR var mjög góð í þessum leik og atkvæðamestar hjá þeim voru Sigríður Pálsdóttir, Brynja og Anna Steinsen. Vigdís Finnsdóttir, markmaður varði einnig vel. Atkvæðamestar hjá Stjörnunni vom Una Steinsdóttir og Guðný Gunnsteinsdóttir. Nina Getsko varði einnig vel á mikilvægum augnablikum. Buðný Gunnstelnsdóttlr skoraði sex mörk gegn KR í gærkvöldi. Morgunblaðið/Þorkell Sigurvilji Framstúlkna bar Víkinga ofurliði „VIÐ erum búnar að stúdera vandlega leikkerfin þeirra og ein- staklingana,'* sagði Guðríður Guðjónsdóttir eftir 19:16 sigur Fram á Víkingi í gærkvöldi, þegar íslands- og bikarmeistararnir voru yfirspilaðir í Höllinni. Liðin þurfa því að eigast við að nýju því Víkingur vann fyrri leikinn en liðið sem sigrar í þriðja leiknum, leikur til úrslita við Stjörnuna. Það var greinilegt að liðin þekktu vel til hvors annars því fyrsta markið kom eftir tæpar fimm mín- útur og næstum all- Stefán ar sóknartilraunir Stefánsson voru brotnar á bak skrifar aftur fyrir utan punktalínu. Þó tókst Fram að hnoða aðeins betur og ná yfirhöndinni með stórkostlegri mar- kvörslu Kolbrúnar Jóhannesdóttur og Guðríður skoraði úr nánast eng- um fæmm. Víkingum tókst að stilla streng- ina strax eftir hlé og ná forystunni en féllu aftur í sama farið. Að vísu tókst þeim að jafna 15:15 og höfðu möguleika á að komast yfir en lukk- an var víðs ljarri þegar boltinn hitti trérammann þrívegis í sömu sókn. „Ég er rosalega ánægð því við höfum ekki unnið Víkinga í tvö ár. Það hafa margir haft mikla trú á Víkingi í vetur en í fyrri leiknum leiddum við lengst af og fundum þá að það er alveg hægt að sigra. En fyrst og fremst unnum við á góðri markvörslu og góðri vöm,“ sagði Guðríður sem var sterk í vörn- inni og úrræðagóð í sókninni ásamt Selku Tosic en þær gerðu 15 af 19 mörkum liðsins, sem hefði þó ekki dugað til án barátta og sigurvilja annarra leikmanna liðsins. Víkingsstelpurnar vom slappar, kerfin vom stöðvuð í fæðingu og svo liðið náði aldrei að komast inní leikinn. „Við spiluðum hreinlega illa, vörnin var í vandræðum -með Guðríði (Guðjónsdóttir) allan tím- ann, Kolbrún lokaði markinu og þær leyfðu okkur aldrei að klára færin. Að auki fóru 18 færi hjá okkur forgörðum,“ sagði Theódór Guðfinnsson, þjálfari Víkinga, eftir leikinn. HANDKNATTLEIKUR ■ DÍANA Guðjónsdóttir mun ekki leika meira með Fram á þessu tímabili. Hún rófubrotnaði í fyrri leik Fram gegn Víkingi. ■ ALBERT Guðmundsson, fyrr- um leikmaður franska liðsins Rac- ing Club París og enska liðsins Arsenal, fékk boð um að vera sér- stakur heiðursgestur á leik Párísarl- iðsins St. Germain í undanúrslitum Evrópukeppni bikarhafa í París í kvöld. ■ ALBERTsa.gdi við Morgunblað- ið að boðið væri til komið vegna þess að hann væri eini leikmaðurinn, sem hefði leikið með Arsenal gegn Parísarliði í París og með Parísarl- iðið gegn Arsenal í London. Hann sagðist vera ánægður með að haft hefði verið samband við .sig, en að- stæður væru þannig að hann ætti erfitt með að þiggja boðið að þessu sinni. ■ ARNAR Gunnlaugsson lék í fyrsta sinn með Feyenoord í fimm mánuði um helgina. Hann lék síðast í október í fyrra og kom þá inná sem varamaður. Um helgina var hann í byrjunarliðinu í 2:1 sigri gegn Ajax og lék vel. Hann átti þátt í jöfnunar- markinu — tók hornspyrnu sem John de Wolf skallaði í markið. Þetta var fyrsti sigur Feyenoord á Ajax í rúmlega tvö ár. Árnar kom inní liðið fyrir Blikner, sem tók út leikbann. Blinker verður hins vegar ekki í leikbanni í næsta leik gegn MVV á föstudag og því gerði Amar ráð fyrir að vera settur út úr liðinu aftur. ■ BJARKI og Arnar hafa leikið saman í fremstu víglínu síðustu þrjá leiki með varaliði Feyenoord. Bjarki segist loksins vera orðinn góður af meiðslunum sem hafa hijáð hann og vanti nú aðeins leikæfingu. „Okk- ur hefur gengið vel saman, ég hef skoraði í öllum þessum þremur leikj- um og Arnar gerði þrennu í fyrsta leiknum og eitt í þeim síðasta," sagði Bjarki. B IAN Ross, þjálfari 1. deildarliðs ÍBK í knattspyrnu, hefur verið hér á landi í mánuð. Enska blaðið Sunday Pepole sagði frá því um helgina, að Sunderland hafi sýnt áhuga á að fá hann til sín. Jóhann- es EUertsson, formaður knattspyrn- uráðs ÍBK sagði að Ross hafi sagt frá áhuga Sunderland þegar hann kom. „Ross er samningsbundinn okkur fram á haust, en eftir það er honum fijálst að ráða sig í annað starf,“ sagði Jóhannes. ■ INTER Milan, sem er í 8. sæti ítölsku deildarinnar, hefur ráðið Ottavio Bianchi þjálfara liðsins fyr- ir næsta keppnistímabil. Bianchi stjórnaði Napóli er liðið varð meist- ari árið 1987. Hann tekur við af Giampiero Marini, sem tók við lið- inu af Osvaldo Bagnoli sem var rekinn í febrúar. ■ OKSANA Gritschuk og Evg- eny Platov frá Rússlandi sigruðu í parakeppni í ísdansi á heimsmeist- aramótinu í Japan. ■ YUKA Sato frá Japan sigraði í listhlaupi kvenna á skautum eftir harða baráttu við Surya Bonaly frá Frakklandi. ■ BONALY var ósátt við niður- stöðuna og ætlaði ekki á verðlauna- pallinn en lét undan. „Hvað þarf ég að gera til að sigra,“ spurði hún, en atriði hennar þótti nær óaðfinnan- legt. ■ DAVIÐ Garðarsson gerði tvö mörk, þegar Valur vann skoska lið- ið Pollok 4:1 í æfingaleik ytra á sunnudag. Steinar Adolfsson og Böðvar Bergsson skoruðu einnig. ■ SIGURÐUR Ragnar Eyjólfs- son var með tvö mörk fyrir KR í æfingaleik gegn úrvalsliði Saarhér- aðs í Þýskalandi í gær. KR vann 4:0 og gerðu Rúnar Kristinsson og Tómas Ingi Tómasson hin mörkin. ITALIA: 2X1 11X X 2 X X X X 1 ENGLAND: 111 122 X X 1 2112

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.