Morgunblaðið - 29.03.1994, Síða 4

Morgunblaðið - 29.03.1994, Síða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994 H KÖRFUKNATTLEIKUR Keflvíkingar og KR-ingar í úrslit í 1. deild kvenna Tveir leikir dugðu hjá konunum STÚLKURNAR í KR spila til úr- slita um íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik eftir sigur þeirra á liði Grindvíkinga í Grindavík á laugardaginn. Þær sigruðu 72:62 eða sama mun og í fyrri leiknum. Mótherjar þeirra verða íslands- og bikar- meistarar Keflavikur, en þessi lið léku einnig til úrslita í fyrra. ÍBK vann Tindastól 76:86. Mér líður alveg ótrúlega vel, þetta var frábært," sagði Guðbjörg Norðfjörð sem spilaði mjög vel í liði KR á ^. laugardaginn. „Það Ólafsson Þy(Jdl ekkert annað skrifar en að taka þetta í tveimur leikjum og fá gott frí fyrir úrslitaleikina. Við vorum undir í hálfleik en svo kom þetta í seinni hálfleik. Við fórum að taka fráköst, stelpumar komu allar með og áhorfendur studdu vel við bakið á okkur. Þetta var eins og að vera á heimavelli því áhorf- endur sögðu bara áfram KR. Mér líst vel á úrslitaleikina við ÍBK, við eigum sterkan heimavöll og emm reynslunni ríkari síðan í fyrra og ætlum okkur alla leið núna.“ Leikurinn fór vel af stað og mik- ill hraði var í honum. KR byrjaði betur en Grindavík jafnaði leikinn strax og jafnræði var með liðunum. Það var síðan góð byijun KR í seinni hálfleik sem gerði útslagið í leiknum öfugt við það sem var í fyrri leikn- um. Nú pressuðu KR stúlkurnar fram allan völl og heimamenn áttu í mestu erfiðleikum með að komast áfram. Leikkerfin gengu upp hjá KR meðan ekkert gekk upp hjá Grindavík og þær náðu forystu sem dugði til sigurs. „Stelpurnar náðu ekki að fylgja góðum fyrri hálfleik eftir og misstu einbeitinguna og hittnin var léleg. KR spilaði reyndar mjög góða vörn og því fór sem fór,“ sagði Nökkvi Már Jónsson þjálfari Grindvíkingar. Guðbjörg spilaði vel í liði KR og var dijúg á lokasprettinum en ann- ars var liðið jafnt og mikil barátta í því. Hjá Grindavík átti María Jó- hannesdóttir góðan leik í fyrri hálf- leik en leikur liðsins datt niður í seinni hálfleik. Anna Dís var í mjög strangri gæslu allan leikinn og gat sig lítið hreyft. Stefanía stóð vel fyrir sínu. „Okkur tókst að úrfæra sóknar- leikinn og varnarleikinn vel en ekki annaðhvort eins og oft áður. Þá gengu kerfin vel upp. Grindavíkurl- iðið er mjög gott, mesta baráttulið deildarinnar þannig að það er mjög erfitt að vinna þær,“ sagði Stefán Arnarson þjálfari KR en bætti við að þetta væri bara hálfur sigur, úrslitaleikurinn væri eftir. Barátta á Króknum eikur Tindastóls og Keflavíkur hófst þegar á fyrstu mínútu með mjög mikilli baráttu og léku bæði lið góðan Björn körfubolta. Hjá Björnsson Tindastóli var Petr- skrifar frá ana mjög góð, bæði Sauöárkróki j gö^jj 0g vorn! en þar tók hún 17 fráköst. Einnig léku Bima, Inga Dóra, Sigrún og Kristín vel. Hjá Keflavík var Olga mjög sterk en einnig áttu Björg og Anna María ágætan dag. Tindastólsstúlkur höfðu lengstum fmmkvæðið og náðu mest 10 stiga forskoti, en Keflvíkingar naðu jafn harðan að saxa það niður. í leikhléi skildu liðin 6 stig. í síðari hálfleik hélt baráttan áfram, en nú náðu Keflavíkurstúlk- urnar að nýta sér meiri breidd í iið- inu og meiri reynslu og eftir 7 mín- útna leik náðu þær að jafna og síð- an sygu þær hægt en örugglega framúr. Þrátt fyrir mikla baráttu Tindastólsstúlkna náðist ekki að halda í við þær keflvísku sem loks sigruðu með 10 stiga mun. „Ég er býsna ánægður þrátt fyr- ir þennan ósigur," sagði Kári Marís- son þjálfari Tindastóls. „Ég er með jafngóða leikmenn og jafnvel betri en Keflavík, en reynslan og breiddin í liðinu gerði útslagið. Augnabliks einbeitingarleysi í síðari hálfleik, þegar maður þarf að keyra á fimm til sex leikmönnum, sem eru orðnir þreyttir, gerði gæfumuninn. Við emm búin að spila tvo leiki og tapa báðum naumlega fyrir þessu sterka liði og það er bara ágætt í fyrsta sinn sem við komumst í úrslit- in. Olga Færseth er mjög sterkur leikmaður og við réðum illa við hana í þessum leik. Það hefur ekki borið mikið á henni í vetur en núna er hún að koma upp og gera góða hluti fyrir ÍBK, á mjög heppilegum tíma,“ sagði Kári. Leikur kattarins að músinni HLUTVERKIN snerust heldur betur við er ÍR vann Þór í öðr- um leik liðanna um sigur í 1. deild. Nú var Þór í hlutverki músarinnar og ÍR-inga kattar- ins. ÍR vann með 22 stiga mun, 105:83, en Þór vann í fyrri íeiknum með 23 stiga mun, 105:82. Það þarf því hreinan úrslitaleik á Akureyri á miðvikudaginn um sigur í l.deild. Lipurð og einbeitni einkenndi leik Breiðhyltinga og stefnan var greinilega sett beint á sigur og norðanmenn áttu ekkert svar ■■■i við því. Mikið mun- Stefán aði um frábæran Stefánsson varnarleik Brodda sknar Sigurðssonar sem hélt Sandy Anderson alveg niðri svo hann gerði „aðeins" 9 stig fyr- ir hlé. I síðari hálfleik náðu gestirnir með ærinni fyrirhöfn að minnka forskot heimamanna niður í 9 stig. ÍR átti þó nóg eftir og tóku leikinn aftur í sínar hendur. „Við leituðum að opnum skot- um, hittum vel, lékum góða vöm og liðsheildin sigraði. Nú er bara að gera sitt besta á Akureyri á miðvikudaginn," sagði Eiríkur Ön- undarson, sem ásamt Brodda, átti mjög góðan leik í mjög samstilltu liði ÍR og þó Chris Brandt spili ekki fallega körfuknattleik, skilar hann fyllilega sínu. „Ég held að það sé einhver draugur í húsinu og erfítt að halda Morgunblaðið/Kristinn Eiríkur Önundarson leikstjórnandi ÍR kemst hér framhjá Konráð Óskarssyni fyrirliða Þórsara. einbeitingunni hér. Við vomm heldur ekki nógu grimmir í vörn- inni og þeir hittu alltaf og ekkert hægt að gera í því,“ sagði Konráð Óskarsson fyrirliði Þórsara eftir leikinn. Tókst það sem við ætluðum Þetta er einn besti og um leið baráttumesti körfuboltaleikur sem ég hef leikið og okkur tókst það sem við ætluð- Björn um okkur,“ sagði Blöndal Valur Ingimundar- skrifar frá son þjálfari og leik- Keflavik maður Njarðvíkinga sem var að vonum ánægður með sigurinn á Kefivíkingum. „Okkur hefur gengið illa að leika undir þeim aðstæðum þegar liðið hefur náð upp forskoti og menn hafa einfaldlega farið á taugum og ekki haldið haus. Þessu var ekki til að dreifa núna, við sýndum að það er vel hægt að vinna Keflvíkinga. Við munum leggja allt í sölumar í þriðja leiknum sem verður hreinn úrslitaleikur og ég helt að hann verði ekki síðri en þeir tveir sem við höfum nú leikið.“ „Varnarleikurinn hjá okkur gerði gæfumuninn að þessu sinni, mér fannst Ástþór Ingason leika frá- bærlega vel í vörninni og honum tókst vel upp við að gæta Jóns Kr. Gíslasonar leikstjórnanda,“ sagði Teitur Örlygsson leikmaður Njarð- víkinga. „Þetta var ofboðsleg bar- átta frá upphafi til enda. Við tókum á móti þeim framarlega til að gefa 3ja stiga skyttunum þeim Kristni og Guðjóni engan frið og það tókst vonum framar. Þetta mátti samt ekki tæpara standa og ég hafði þó trú á að „gamli“ maðurinn, hann Isak myndi ekki bregðast í vítaskot- unum á síðustu sekúndunum og það gekk eftir,“ sagði Teitur Örlygsson. „Ég er að vonum vonsvikinn yfir að hafa tapað og mér fannst dómar- amir leyfa alltof mikla hörku því Njarðvíkingarnir fengu að beija á okkur í orðsins fyllstu merkingu. Ef þetta er það sem þeir vilja þá skal ekki standa á okkur að taka á móti þeim í þriðja leiknum, “ sagði Jón Kr. Gíslason leikmaður og þjálf- ari Keflvíkinga. „Ekki hjálpaði það til að heppnin var ekki okkar meg- in að þessu sinni því að svo naumur var sigur Njarðvíkinga að úrsltin hefðu getað orðið á hvorn veginn sem var. En við munum koma tví- efldir til þriðja leiksins og þá mun- um við standa uppi sem sigurvegar- ar,“ sagði Jón Kr. Gíslason. Hæst STEVE Grayer gnæfir hér yfir Grindvíkin son. Grayer var eins og kóngur í ríki síni kunnu engin ráð til að stöðva hann. Keflavík og Njarðvíl Mikill hæ Njarðvíl NJARÐVÍKINGAR jöfnuðu metin í baráttunni við Keflvíkinga um að komast í úrslitaleik úrvals- deildarinnar. UMFN hafði betur, 84:81, er þeir tóku á móti ná- grönnum sínum úr Keflavík á laugardaginn. Það var allt annað að sjá til leik- manna UMFN frá því í fyrsta leiknum. Ein breyting var gerð á byrjunarliðinu, Ástþór Skúii Unnar Ingason byrjaði sem Sveinsson annar bakvörður og skrifar hafði það greinilega mjög góð áhrif. Ástþór dreif félaga sína áfram í vörninni eins og sannur fyrirliði. Varnarleikur- inn einkenndist af gríðarlegri baráttu og ákveðni enda voru liðin komin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.