Morgunblaðið - 15.04.1994, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 15.04.1994, Qupperneq 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994 Vildarklúbbar flugfélaga fyrir bá sem ferðast oft FYRIR þá sem ferðast mikið með flugi getur borg- að sig að huga að hagkvæmni svokallaðra vildar- klúbba flugfélaganna. í gegnum þá er farþegum umbunað á ýmsan hátt fyrir að ferðast oft með viðkomandi félagi. Meðlimir safna punktum fyrir hverja ferð og þegar ákveðnum punktafjölda er náð geta þeir valið ferð til einhvers af þeim áfanga- stöðum, sem í boði eru, gist frítt á hótelum eða ekið um á bílaleigubílum án endurgjalds svo dæmi séu tekin. Hugmyndir eru uppi um samstarf SAS og Flugleiða í þessu efni sem miðar að því að farþegar geti samnýtt punktana hjá hvoru félag- inu sem er. Flugleiðlr Vildarkort Flugleiða er ætlað þeim, sem ferðast að meðaltali 2svar til 3svar á ári fram og til baka milli landa eða fljúga tíu ferðir fram og til baka innan- lands. Yfir 4 þús. manns eru nú meðlimir í Vildar- klúbbi Flugleiða, en korthafar, sem ferðast allra mest með félaginu eygja möguleika á rauða kortinu og inngöngu í „Icelandair Business Club“, en meðlim- ir hans, um 700 talsins, njóta margvíslegra fríðinda s.s. forgangs á biðlistum, aðgangs að betri stofum, 30 kg farangurs í stað 20, afsláttar á hótelum og bílaleigubílum víða um heim og afsláttar í Saga Bo- utique. Öll áætlunarflug Flugleiða, innanlands og utan, gefa punkta. Einnig leiga á bíl hjá Bílaleigu Flug- leiða og Hertz og gisting á Flugleiðahótelum. Punkta- fjöldi fer eftir lengd flugs og farrými. Gætt skal að því að eftir 2 ár frá ferð fellur helmingur punkta niður og eftir 3 ár fymast þeir. Korthafi getur þó nýtt unna punkta fyrir maka og börn. Ákvörðunarstöðum Flugleiða er skipt í þijá hópa eftir því hvað þeir gefa marga punkta. Þeir staðir, sem gefa 1.500 punkta á almennu farrými og 3.800 punkta á Saga Class, eru Amsterdam, Gautaborg, Glasgow, Hamborg, Kaupmannahöfn, London, Lúx- emborg, Ósló, París og Stokkhólmur. í öðmm hópi, sem gefur 1.800 punkta á almennu farrými og 4.500 punkta á Saga Class, era Barcelona, Frankfurt, Mílanó, Palma, Salzburg, Vín og Zurich. Ákvörðun- arstaðir Flugleiða í Bandaríkjunum eru í 3. hópnum, sem gefur 2.100 punkta á almennu farrými og 5.300 á Saga Class. Innanlandsflug veitir 500 punkta ef keyptur er miði á afsláttargjaldi og 2.000 punkta miðað við fullt fargjald. Leiga á fólksbíl veitir 1.000 punkta og gisting sömuleiðis. Til að fá ferð fría fram og til baka þarf korthafi að hafa safnað 50 þús. punktum á almennu farrými eða 100 þús. punktum á Saga Class í Evrópuflokki 1, sem í era þau lönd sem fyrst era talin upp hér að framan. í Evrópuflokki 2 þarf korthafi að hafa í farteskinu 60 þús. punkta á almennu farrými eða 120 þús. á Saga Class og til Bandaríkjanna þarf 70 þús. eða 140 þús. punkta til að fá fría ferð. Til að fá fría gistingu á Flugleiðahótelunum, þarf 10 þús. punkta fyrir eins manns herbergi og 14 þús. punkta fyrir 2ja manna. Fyrir leigu á fólksbíl í einn dag þarf 12 þús. punkta og er 80 km akstur innifalinn. SAS SAS býður einnig upp á víðtækt punktakerfi, kall- að„Euro-bonus“, sem nær til allra flugleiða þeirra sem eru vissulega mun fleiri en Flugleiða. Þegar flogið er um langfa vegu, t.d. til Asíu, era punktarnir fljótir að safnast saman. Korthafar SAS geta einnig unnið sér inn punkta ef flogið er með British Midland, Austrian Airlines og Swissair, en þessi félög hafa með sér samning um sameiginlegt bónuskerfi. Hjá Austrian Airlines og Swissair er þó ekld hægt að fá punkta á flugleiðum til Bandaríkjanna og Austur- Bæklinp um Reykjavík FYRIR nokkru kom út bækling- urinn „What’s on in Reykjavík" og segir þar frá öll- um helstu við- burðum í höfuð- borginni á næst- unni. Þá eru greinargóðar uþplýsingar um söfn, íþróttir, búðaráp, listagallerí og margt fleira. Birtar era ýmsar upplýsingar sem ferðamönnum kemur vel að vita, upplýsingar um matsölustaði, hótel og gistiheimili, sagt frá íslenska hest- inum, hvað megi gera á kvöldin og margt fleira. Utgefandi er íslands- kort og ritstjóri er Áskell Þórisson. Bæklingurinn kemur út níu sinniM á ári. ICEWUOAtn FHeOUENT FLYEn phogiiam 99 6283 00 «ítfwrfrt*- Q9 -j Q99 fR AHNARSON | UM HELGINA | UTIVIST HELGARFERÐ 15.-17.apríl og er það skíðaferð á Fimm- vörðuháls. Verður lagt af stað síðla föstudags og ekið austur að Skógum. Þaðan verður gengið um kvöldið á skíðum upp í Fimmvörðuskála og gist næstu tvær nætur. Laugardegi verður eytt í göngu á Eyja- fjallajökul og á sunnudag er haldið aftur að skógum. Sunnud. 17. apríl verður geng- in gamla þjóðleiðin yfir Hellis- heiði og hefst ferðin kl. 10.30. Gengið verður frá Kambabrún yfir Hellisheiði að Kolviðarhóli. Reikna má með 4 klst. göngu. Brottfór frá BSÍ, bensínsölu og frítt fyrir böm 15 ára og yngri í fylgd með fullorðnum. ■ landa fjær. Punktakerfið gildir ef gist er á SAS-hótel- um eða leigðir bílar hjá Avis eða Hertz. Eins og hjá Flugleiðum aukast fríðindin eftir því sem viðskipti era meiri. Er gerður greinarmunur hvað fríðindi snert- ir á bláa kortinu, silfurkortinu og gullkortinu og helm- ingi fleiri punktar fást ef ferðast er á Euro Class en á almennu farrými. Meðlimir byija með bláa kortið. Silfurkort fæst ef viðkomandi vinnur sér inn 20 þús. punkta á einu ári og gullkortið eftir 50 þús. punkta á sama tímabili. Eftir að silfurstigi er náð, fær kort- hafi úttektarávísanir, sem gilda í 2 ár. Korthafar SAS hérlendis era rúmlega 900, geta nýtt punkta í þágu annarra fjölskyldumeðlima, t.d. eiginkonu og bama undir 26 ára aldri. Einnig má yfirfæra punkta á vini og félaga ef korthafi er með í för. Fyrir hveija gistinótt á einhveiju þeirra 33 SAS-hótela, sem era víðsvegar um heim, fást 500 punktar og hægt er að fá fría gistinótt fyrir tvo í 2ja manna herbergi yfir helgi fyrir 5.000 punkta og á virkum dögum fyrir helmingi fleiri punkta. Það sama gildir á Hilton-hótelum utan Bandaríkjanna og á öllum Swiss- og Inter-Continental hótelum. Þá hef- ur SAS samninga við hótel í um 30 borgum sem ekki tilheyra framangreindum hótelkeðjum og á þeim er hægt að fá gistinóttina fyrir tvo í tveggja manna herbergi fyrir 5.000 punkta bæði um helgar og á virkum dögum. Hvað flugi viðvíkur fer fjöldi punkta eftir fjarlægð- um, en þeir era aldrei færri en 2.400 á Euro Class báðar leiðir eða 1.200 á almennu farrými, t.d. á flug- leiðunum_ Kaupmannahöfn - Amsterdam, Berlín eða Brassel. Á hinn bóginn fást 21.600 punktar frá Kaup- mannahöfn til Bangkok í Tailandi báðar leiðir á Euro Class og 10.800 punktar á almennu farrými. Til Los Angeles era punktar 22.800 eða 11.400 eftir því hvar setið er og flug til Rio de Janeiro gefur 26.000 eða 13.000 punkta. Þá mega silfurkorthafar hafa 30 kg af farangri í stað 20 og gullkorthafar fá að burð- ast með 40 kg. ■ Jóhanna Ingvarsdóttir Samvinnuferðir-Landsýn hefja ferðir til Madeira FYRIR skömmu hófu Samvinnu- ferðir-Landsýn að feija íslendinga til eyjarinnar Madeira sem tilheyr- ir Portúgal. Flogið er um London til Lissabon og þaðan flogið með innanlandsflugi til Madeira. Af þessu tilefni komu hingað hót- elstjóri Savoy hótelsins á Madeira Joao Manuel de Sousa og sölustjórinn Graca Guimaráes. De Sousa sagði að Madeirabúar ættu það sameiginlegt með íslendingum að íbúafjöldi er svip- aður, á Madeira búa um 280.000 manns og um helmingur býr í höfuð- borginni Funchal. Madeira er u.þ.b. fjórtán sinnum minni en ísland, mesta lengd er 57 km og mesta breidd 22 km. Eyjan er skógi vaxin milli fjalls og fjöra og undirlendi lítið. Það var því töluverður höfuðverkur að finna stað fyrir flug- völl hvað þá heldur þá tvo golfvelli sem búið er að koma upp núna. Madeira er þekkt fyrir snyrti- mennsku og að sögn de Sousa hefur Funchal 3 síðustu árin verið valin snyrtilegasta borg S-Evrópu. Lofts- lagið er milt allan ársins hring, og hiti á bilinu 17-28 stig. Heitasti tíminn er ágúst-október. Um hálf milljón ferðamanna heim- sækir eyjuna ár hvert og era flestir ferðamanna frá Bretlandi og Skand- inavíu. Mjög margir hafa atvinnu af því að sinna ferðamönnum en einnig er eyjan þekkt fyrir heimilisiðnað, dúkasaum, Madeiravínið, körfugerð Gróður er ipjög fjölskrúðugur á Madeira. og tréútskurð. Samvinnuferðir-Landsýn bjóða fram á haust 11 daga ferðir til Ma- deira og staðgreiðsluverðið er 75.905 kr. ef gist er á Savoy en á Vila Ram- os er staðgreiðsluverðið 68.115 kr. Savoy er 5 stjömu hótel og allt í enskum stíl. Auður Björnsdóttir sölu- stjóri hjá Samvinnuferðum-Landsýn sagði aðaláherslan væri lögð á tvö hótel, Savoy og Vila Ramos en sömu eigendur eiga þau. Vilji fólk lengja dvölina kostar aukanótt á Savoy lið- lega 3 þús. kr. á mann. Innifalið í verði ellefu daga ferðar- innar er flug og gisting í tíu nætur, með morgunverði og akstur til og frá flugvelli. Þá verður boðið upp á ferð fyrir roskna borgara í haust og verð- ur sú ferð með fararstjóm. Það er Ásthildur Pétursdóttir sem mun leiða hópinn. ■ m Verðlækkun á Mexíkóferðum FERÐASKRIFSTOFAN Heims- ferðir hefur gert samning við mexíkóska leiguflugfélagið TA- ESA sem leiðir til um 20 þúsund króna lækkunar á verði fyrir flug og hótel í Cancun. Andri Már Ingólfsson forstjóri sagði að Boing 757 vél TAESA kæmi hingað hálfsmánaðarlega frá Vínarborg á leið til Cancun. I stað þess að millilenda í Gander eða Halifax lendir hún á Keflavíkur- flugvelli og tekur 35 farþega héðan. Fyrsta ferðin er 20. maí og alls era 200 sæti í boði. Verð er frá 69.800 en var auglýst í bæklingi frá 89 þús. því áformað var flug um Orlando með gistingu. Flugtími asser "m siti °í Feritaáætlun FJI komin GÖNGUFERÐIR á SÚIur, Tindastól, fjöruferðir, ferð fyrir Skaga, helgarferð- ir í Herðubreiðarlindir og á Hraunþúfu- klaustur, gönguferð á Búrfellsheiði og fleira og fleira er á áætlun Ferðafélags Akureyrar sem ferðablaði hefur borist. I bæklingnum er ferðalýsing á ýmsum ferðanna, myndir af skálum þar sem gist er og ýmis annar fróðleikur. Ferðafélag Akureyrar var stofnað 1936 og er sjálfstæð deild innan Ferðafélags ís- lands. Skrifstofa félagsins á Akureyri er á Strandgötu 23 og þar er að fá allar upplýs- ingar um ferðir. Allir mega taka þátt í ferð- unum þó þeir séu ekki félagar en félags- menn fá afslátt af fargjöidum og gistingu -í.4ik4la.allpa-íélagsdoil<la 4<'L——— ■ FEflÐHflfETLUN '94 ,5?/ S7raoel<Scasi£&/uwM/ Ferðamannaíbúðir íKaupmannahöfn Þægilegar ný uppgerðar íbúðir í hjarta Kaupmannahafnar. Verð á mann frá dkr. 143* á dag. Allar íbúðirnar eru búnar nýjum og þægilegum húsgögnum. Hafið samband við ferðaskrif- stofunaykkar eða ln Travel Scandinavia, Sími 90 45 3312 3330. Fax. 9045 3312 3103. *Verö á mann miðað við 4 í íbúð í viku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.