Morgunblaðið - 15.05.1994, Side 4

Morgunblaðið - 15.05.1994, Side 4
4 C SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Við eigum ávalit á lager hellur, þrep, kant- og hleöslusteina í ýmsum stærð- um og gerðum. Hellur I gangstéttir, bílastæði, innkeyrslur, leiksvæði, úti- vistarsvæði o.fl. Hleðsluefni í úrvali til ýmissa nota. Þrepin og kantsteinninn henta hvar sem er. ■ ÞEIR sem hug hafa á að gera beð þar sem einhveijir lit- ir eru allt sumarið, það er að segja að alltaf sé einhveijar jurtir í blóma, ættu að leita til sér- fræðinga hjá gróðrarstöðvunum og fá upplýsingar um hvaða jurtir eru hentugar. ■ EKKI er ráðlegt að setja áburð alveg að rótum jurta þegar gróðursett er, en gott er að blanda lífræn- um áburði, til dæmis hrossataði, saman við moldina. ■ JARÐ- VEGSDÚKAR hafa sífellt orðið vinsælli á síðari árum og eru hentugir þegar leggja á hellur og einnig við gerð beða og tjama. Menn verða þó að hafa í huga að þrátt fyrir jarð- vegsdúkinn kemur alltaf einhver óæskilegur gróður af því fijókom fjúka í beð og á milli hellna. ■ MIKIÐ úrval er í ár af blómum sem hægt er að hafa inni í gróðurskála á ve- turna og setja síðan út á sumrin. Hentugt fyrir þá sem hafa gróðurskála því þannig má lengja sumarið hér á landi. RAFMAGNSÞILOFNAR EP-50 500 W 6.890,- EP-100 1000W 7.250,- EP-150 1500 W 8.090,- EP-200 2000 W 9.140,- 2000 W m/blæstri 11.380,- Bjóðum einnig nýjar gerðir oliufylltra rafmagnsofna 61221 1200 W 9.310,- 71521 1500 W 10.160,- 92021 2000 W 11.780,- Einnig gasofnar á afar hagstæðu verði /FOnix HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI (91)24420 Eigum á lager mikið úrval af leirvörum fyrir garðinn, svalirnar, sólstofuna og pallinn. \(/ Fleira væntanlegt. Helgi Fillppusson hf. Tunguhálsi 7, 110 Reykjavík, síml: 671210 MOSINN gerir mönnum oft lífið leitt. Mosinn leiðigjam MOSI er langt frá því að vera aufúsugestur í görðum og marg- ur hefur staðið í ströngu við að reyna að losna við hann. Aðferð- irnar eru margar og hafa reynst mönnum misvel. að em nokkur atriði í sambandi við mosa sem menn verða að hafa í huga. Mosi kemur alltaf und- an hlýjum og rökum vetri. Hann kemur helst í skuggsælar lóðir og illa hirtar lóðir þar sem ekki hefur verið borið á reglulega," segir Steinunn Stefánsdóttir, garðyrkju- fræðingur hjá Blómavali. „Til að losna við mosann em til nokkrar aðferðir sem gefist hafa misjafnlega vel. Ég segi alltaf við fólk sem leitar til mín, að í fyrsta lagi þurfi að losna við mosann og það er gert með því að eitra fyrir hann eða með því að tæta hann upp úr grasfletinum með hrífu. Ef eitrað er fyrir hann verður hann svartur og deyr. í annan stað er að setja kalk í jarðveginn því þannig þrífst mosinn verr og í þriðja lagi er að setja grasfræ og góðan túnáburð á flötina. Það er einnig hægt að bera kalk- ammon á grasflötina og þá tekur grasið vel við sér og vex yfir mos- ann þannig að hann verður undir. Ég get ekki mælt með þeirri aðferð að láta slegið gras liggja til þess að endurnýja efsta moldarlagið. Þá held ég sé betra að vera með safn- þrær og fá þannig góðan jarðveg. Ef kalk er borið á árlega, annað- hvort hreint eða í skeljasandi, verð- ur jarðvegurinn góður með tíman- um. í nýjum hverfum er hættara við súrri mold en annars staðar, en súra mold má þekkja af því að hún er rauðleit. Mold úr grunnum ættu menn ekki að nota beint í garða því best er að moldin hafi brotið sig, fengið að standa í ein tvö ár, áður en hún er notuð sem gróður- mold. Eitt af bestu ráðunum til að losna við mosa er að fá krakkana í hverf- inu til að leika sér á blettinum. Sandur er einnig góður, sérstaklega ef hann er kalkríkur. Þú sérð aldrei mosa á umferðareyjum í Reykjavík vegna þess að þangað berst svo mikill sandur. Það er því reynandi að þekja lóðina með sandi á vorin. Það er einnig ágætis ráð til að slétta lóðina ef hún er óslétt,“ segir Stein- unn. Lúsin ekkert vandamál ÞAÐ er að ýmsu að hyggja þegar koma á upp fallegu limgerði. Hvernig plöntur á að velja? Eiga þær að vaxa hratt, vera harð- gerðar og er ekki alltaf hætta á að brekkuvíðirinn til dæmis verði lúsugur og því erfitt að hirða um hann? Við leituðum ráða hjá Blómavali og fyrir svörum varð einn af garðyrkjufræðingum verslunarinn- ar, Steinunn Stefánsdóttir. „Það er bara smekksatriði hvers og eins hvernig limgerði menn vilja hafa og lúsin er ekkert vandamál. Nú eru komin svo góð efni á markað þannig að menn geta haldið lúsinni niðri og það er í rauninni synd hvernig útreið brekkuvíðirinn hefur fengið hjá fólki. Honum hefur hrein- lega verið hent úr mörgum görðum, en það er algjör óþarfi. Menn þurfa ekki að setja lúsina fyrir sig.“ Þegar plantað er í hekk er þumal- puttareglan sú að hafa um sjö plönt- ur á hveija tvo lengdarmetra og best er að kaupa plönturnar tveggja tií þriggja ára gamlar en þá eru þær orðnar vel greinóttar og þétt- ar. „Það er ágætt að gera um 40 sentimetra holu fyrir plöntuna og hafa góða gróðurmold. Ég bendi fólki venjulega á að fá sér mold hjá Gæðamold, sem er hjá Sorpu í Gufunesi. Þar er hægt að fá mold- ina alla vega blandaða þannig að henti í alla garða." En hvenær á að klippa tré og runna? Má gera það hvenær sem er ársins? „Það er best að klippa tré og runna snemma á vorin og það má í rauninni einnig gera það á vetuma, en fyrst þurfa plönturnar að vísu að komast upp úr snjónum. Tíminn frá febrúar til apríl hefur oft verið talinn henntugasti tíminn en það má í rauninni klippa allt sumarið þó ekki sé hægt að mæla með því. Það fer dálítið eftir veður- fari hvenær best er að klippa, best er að gera það áður en plantan fer af stað á vorin, áður en hún byijar að vaxa. Það gerist þó ekkert þó klippt sé eftir það og það er til dæmis allt í lagi að klippa víðihekk ennþá. Ef fólk er með birki eða hlyn þá HÆGT er að klippa runna ó ýmsa vegu þó svo nashyrningar séu ekki algengir í göróum. verður að klippa snemma á vorin, því báðum tegundunum blæðir mik- ið og því þarf að klippa áður en þær taka við sér á vorin, eða þá að bíða þar til plönturnar eru full- laufgaðar og klippa þá, það er líka í lagi. Þegar hekk er klippt á að reyna að klippa þannig að hekkið sé breiðast neðst og mjóst efst, eins og A laginu. Þannig tryggir maður að sólin nái til allrar plöntunnar en efri hlutinn skyggi ekki á þann neðri. Mælt er með því að klippa um 2/3 af ársvextinum," segir Steinunn í Blómavali. Nú sér maður stundum að tré eða runnar eru klippt þannig að mynduð er kúla eða eitthvað þaðan af fallegra og flóknara. Er hægt að klippa þetta eins og maður vill? „Nei, ekki er það nú alveg. En blátoppur er til dæmis þeim eigin- leika gæddur að hann vex í kúlu og svo eru aðrar tegundir sem hægt er að klippa dálítið fijálslega eins og til dæmis birkikvistur,“ seg- ir Steinunn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.