Morgunblaðið - 31.05.1994, Blaðsíða 5
4 C ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1994
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
-tt
ínémR
FOLK
■ MAN. Utd. keypti varnarleik-
manninn David May frá Blackburn
í gær á tvær millj. sterlingspunda.
Hann er 23 ára.
■ LUC Nilis, leikmaður And-
erlecht og belgíska landsliðsins,
hefur skrifað undir þriggja ára
samning við hollenska félagið PSV
Eindhoven. Nilis er 27 ára fram-
heiji og er í HM-liði Belga. Kaup-
verðið var ekki uppgefið.
■ JOHN Barnes, leikmaður Li-
verpool, fékk draum sinn uppfylltan
um helgina er hann fékk að hitta
nýkjörinn forseta Suður-Afríku,
Nelson Mandela. Liverpool lék í
æfingamóti í Jóhannesarborg um
helgina.
■ ARCHIE GemmiII, fyrrum
landsliðsmaður Skota, sem verið
hefureinn af þjálfurum Nottingham
Forest sl. sjö ár, var látinn fara frá
félaginu um helgina.
■ CHELSEA keypti um helgina
Scott Minto frá Charlton Athletic
fyrir 775 þúsund pund. Minto er 22
ára varnarmaður og hefur leikið með
U-21s árs liði Englands.
■ AGOSTINO Di Bartolomei,
fyrrum miðvallarleikmaður Roma
og AC Milan, framdi sjálfsmorð í
gær. Har.n skaut sig á heimili sínu
á suður Ítalíu. Hann var 39 ára og
var atvinnumaður í knattspyrnu í
15 ár, en hætti að leika 1987.
■ JACK Charlton, landsliðsþjálf-
ari Ira, sagði að Þjóðveijar verði
að teljast líklegir til að verja heims-
meistaratitilinn þrátt fyrir að hafa
tapað fyrri írum 2:0 í vináttuleik á
sunnudag. „Þetta eru frábær úrslit
fyrir þjéð eins og íra, en ég er enn
á þeirri skoðun að Þjóðverjar verði
heimsmeistarar. Þessi úrslit breyta
því ekki,“ sagði Charlton.
■ ÍRAR urðu fyrstir til að leggja
Þjóðverja að veili í Þýskalandi síð-
an að Þjóðverjar töpuðu fyrir Hol-
lendingpim í EM 1988.
H GUIDO Buchwald, varnarmað-
ur hjá_Stuttgart, meiddist í leiknum
gegn Irlandi — vöðvaþræðir í læri
slitnuðu. Hann verður frá keppni í
tíu daga.
■ RUDI VöIIer kom inná sem
varamaður hjá Þjóðverjum og fögn-
uðu áhorfendur honum geysilega.
Miklar líkur eru á að hann leiki við
hlið Jiirgens Klinsmanns í HM,
eins og hann gerði á Ítalíu 1990.
■ JÍJRGEN Klinsmann segir að
það komi vel til greina að hann gangi
til liðs við Bayern Munchen, ef
hann fer ekki til liðs á Spáni.
■ STUTTGART hefur selt Sviss-
lendinginn Knup til Karlsruhe.
Félagið hefur keypt Franko Foda
frá Bayer Leverkusen.
■ BOCHUM tryggði sér um helg-
ina rétt til að leika í úrvalsdeildinni
í Þýskalandi næsta keppnistímabil.
Þórður Guðjónsson leikur með lið-
inu.
H BOAVISTA og Maritimo
tryggðu sér sæti í UEFA-keppninni
næsta tímabil með því að gera jafn-
tefli í leikjum sínum í portúgölsku
deildarkeppninni á sunnudaginn.
Aðeins 9 mörk voru gerð í deildinni
um helgina. Benfica, sem tryggði
sér titilinn í 30. sinn í síðustu viku,
gerði markalaust jafntefli við Gu-
imaraes.
KAPPROÐUR
Keppa í Noregi
Sex ræðarar halda á morgun tij
Noregs, þar sem þeir tata
þátt í opna Norðurlandamótinu í
kappróðri, sem fer fram um næstu
helgi. „Strákarnir hafa undirbúið
sig vel og við höfum verið heppnir
með veður að undanförnu," sagði
ítalinn Leone Tinganelli, þjálfari
strákanna. Leone sagði að hann
vissi að þrjú lið frá Noregi myndu
keppa á mótinu og tvö frá Svíþjóð,
en ekki væri vitað hvað mörg lið
kæmu frá Finnlandi og Danmörku.
TORFÆRUAKSTUR
Stórkostleg
tilþrrf á Norður
landamótinu
ÍSLENSKIR ökumenn héldu merki landsins á lofti í Norðurlanda-
mótinu í torfæru á laugardaginn. Ekin var önnur umferð af fjór-
um, sem gilda til Norðurlandameistara, tvær hinar síðari verða
hér á landi í haust. Akureyringurinn Einar Gunnlaugsson vann í
flokki sérútbúinna jeppa á Norðdekk-Drekanum, en Svíinn Lars
Jonsson á Sleipni varð annar. íslandsmeistarinn Gísli G. Jónsson
á Kókómjólkinni frá Þorlákshöfn varð þriðji. í flokki götujeppa
vann Grindvíkingurinn Þorsteinn Einarsson, Ragnar Skúlason frá
Keflavík varð annar og Svíinn Henrik Vesa þriðji.
er samt gífurlegur í Svíþjóð og til
marks um það keppa oft yfir tvö
hundruð rallbílar í tugum móta á
hveiju ári. Telja Svíar að með auk-
inni kynningu geti torfæran orðið
mjög vinsæl íþrótt í landinu. Á
hvetju ári eru haldin um þtjú hundr-
uð bílkrossmót í landinu, þannig að
akstur í keppni er vinsæl tóm-
stundaiðja. Þá hafa Svíar átt fjöl-
marga rallökumenn á heimsmæli-
kvarða og heimsmeistara í Formula
1 kappakstri. Markaðurinn fyrir
torfæruna er því fyrir hendi, en
kynninguna vantar enn sem komið
er. Norðurlandamótið er fyrsta
skrefið.
Yfirvegun skilaði árangri
„Ég hef mikla trú á torfærunni
á Norðurlöndum, það eru ekki nema
fjögur ár síðan við kynntumst henni
fyrst og buðum síðan íslendingum
til Svíþjóðar. Það er búið að smíða
marga jeppa og áhuginn vex,“ sagði
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Ragnar Skúlason varð annar í flokki götujeppa um helgina. Hér hefur jeppi Ragnars oltið
á hliðina, og starfsmenn mótsins reyna að koma honunt á réttan kjöl á ný.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Einar Gunnlaugsson frá Akureyri sigraði t flokki sérútbúinna jeppa í annarri umferð
Norðurlandamótsins. Hann fagnaði einnig sigri í fyrstu umferð um fyrri helgi.
Tilþrifin í keppninni í Gautaborg
voru með ólíkindum, stökk og
veltur skiptu tugum. Keppt vat' í
sex þrautum í hvor-
Gunnlaugur um flokki j mular-
Rögnvaldsson og sandgryf|um
skrifar skammt frá Gauta-
borg. Keppendur frá
íslandi, Svíþjóð og Noregi tóku
þátt í þessari Norðuriandakeppni,
en fyrsta umferð hennar fór fram
í Stokkhólmi í fyrri viku. Þar vann
Einar í flokki sérútbúinna jeppa og
Þorsteinn í flokki götujeppa. Mikill
áhugi hefur skapast á þessari íþrótt
á Norðurlöndum, sem hefur verið
stunduð hérlendis í 25 ár. Svíar
skoðuðu keppni hérlendis fyrir fjór-
um árum og ákváðu eftir það að
smíða keppnistæki. Þeir heimsóttu
síðan landið fyrir tilstilli Jeppa-
klúbbs Reykjavíkur og Bílabúðar
Benna og unnu m.a. sigur í einni
keppni í flokki sérútbúinna jeppa.
Síðan þá hafa nokkrir jeppar verið
smíðaðir og Svíar hafa sitt eigið
meistaramót. Þeir áttu sinn skerf
af tilþrifum í keppni helgarinnar,
ökumenn tókust á af fullri hörku
og hátt í tuttugu veltur litu dagsins
ljós. Menn gáfust ekki upp fyrr en
í fulla hnefana, eða þeir gerðu sig
seka um mistök í akstri, sem kost-
uðu veltur.
Svíinn náði forystu
í sérútbúna flokknum náði Svíinn
Lars Jonsson forystu í fyrstu þraut,
en hann ók keppnistæki, sem vann
sigur í móti hérlendis fyrir tveimur
árum. En Einar Gunnlaugsson, sem
hefur verið ósigrandi í ár náði for-
ystu eftir tvær þrautir og lét hana
ekki af hendi allt til loka. íslands-
meistaranum Gísla G. Jónssyni mis-
tókst í annarri þraut; jeppinn sat
fastur á kviðnum í upphafi þrautar
og hann fékk engin stig á meðan
Einar fékk 280 og Lars 270. Það
reið baggamuninn fyrir hann hvað
toppbaráttuna varðar. En Gísli
gafst ekki upp, hægt og bítandi
saxaði hann á forskot annarra
keppenda, sýndi oft skemmtileg til-
þrif, en velti þó í einni þraut. í Ioka-
þrautinni náði hann framúr Glsla
G. Sigurðssyni á Kjúklingnum á
stigum og nældi í þriðja sætið.
Egilsstaðabúinn og tannlæknirinn
Þórir Schiöth á fjórhjólastýrðum
Jaxli sínum vakti lukku Svía, sem
kölluðu hann tannlækninn fljúg-
andi.
Þórir sveif oft torfærurnar á
skemmtilegan hátt, endaði m.a.
einu sinni á tré í lok þrautar. Hann
missti af sigurmöguleikanum í ann-
ari þraut, þegar hann bakkaði of
langt og fékk aðeins 40 stig af 300
mögulegum. í annarri þraut reyndi
Þórir að forða veltu í hliðarhalla.
Jaxlinn fór engu að síður á hliðina,
upp á framendann, snarsnerist
þannig um sjálfan sig og endaði á
hjólunum. Áhorfendur vildu meina
að Þórir hefði verið að pússa víg-
tennur Jaxlsins uppúr sandi, en
framan á jeppanum eru járntennur
hluti af skreytingu hans. Þessi
uppákoma var bara ein margra í
keppninni, hver veltan af öðrum
skemmti áhorfendum, sem voru í
færra lagi. Áhugi á akstursíþróttum
Svínn Lars Jonsson í samtali við Morgun-
blaðið eftir keppnina, „ég er mjög ánægð-
ur með annað sætið, ég hagnaðist á því
að margir toppökumanna íslenska liðsins
tóku áhættu og urðu fyrir skakkaföllum.
Það er ekki alltaf best að stíga bensíngjöf-
ina í botn og láta slag standa. Yfirvegun
skilar stundum betri árangri," sagði Lars,
en hann ók jeppa með nýrri vél sem skil-
ar 500 hestöflum án nitró-búnaðar.
Yfirvegun var einmitt það sem gaf
Einari fyrsta sætið í þriðju keppninni í
röð. Hann er enn ósigraður á árinu og
hefur forystu í sérútbúna flokknum til
Norðurlandameistara. „Mér fannst braut-
irnar í Stokkhólmi skemmtilegri, þær
voru lengri og reyndu meira á aksturs-
hæfni keppenda. Jarðvegurinn í brautun-
um er öðruvísi en við þekkjum, mun
mýkri og kom sífellt á óvartl Stundum
höfðu dekkinn fullt grip, þar sem
reyndist vonlaust að labba í braut-
arskoðuninni," sagði Einar Gunn-
laugsson. Hann varð 90 stigum á
undan Lars með 1.560 stig á móti
1.470. Gísli G. Jónsson fékk 1.380
stig, nafni hans Gísli G. Sigurðsson
1.365 og Haraldur Pétursson 1.320
stig. „Við erum ennþá fremri Svíum
í akstri, en þeir eru allir að koma
til og hafa smíðað ágæta jeppa.
Eg er kominn í góða stöðu til Norð-
urlandameistara og læt hana ekki
af hendi baráttulaust. Svíarnir fá
allavega ekki að komast í titilinn.
Islandsmótið er framundan og sig-
urinn í síðustu mótum hefur gefið
mér aukið sjálfstraust. Helstu
keppinautarnir í íslandsmótinu
verða líklega Gísli G. Jónsson og
Þórir Schiöth, þá breiddin sé alltaf
að aukast. Helgi Shiöth verður líka
sterkur. Ég hef oft byijað keppnis-
tímabil vel, en endað illa. Núna
vonast ég til að halda þetta út, er
með sterkari jeppa og aukið sjálfs-
traust," sagði Einar.
í flokki götujeppa náði Ragnar
Skúlason forystu í fyrstu þraut
ásamt Norðmanninum Thorgeir Jo-
hanson, en Ragnar og Þorsteinn
Einarsson áttust síðan við um fyrsta
sætið eftir það. Hann fór of utar-
lega í þraut og fékk engin stig.
Svínn Henrik Vesa náði flestum
stigum í þrautinni og var kominn
í fyrsta sætið, þegar tveimur þraut-
um var ólokið. Vesa var 10 stigum
á undan Þorsteini og 110 á undan
Ragnari. Þorsteinn náði í 285 stig-
um í fimmtu þraut, Ragnar 265 og
Vesa 250. í síðustu þraut fékk
Vesa aðeins 150 stig, Ragnar 285
stig og Þorsteinn 220. Þessi stig
nægðu Þorsteini til sigurs, en Ragn-
ar varð annar og Vesa þi’iðji. „í
flokki götujeppa eru Svíar nokkuð
langt á eftir hvað varðar lengd,
breidd og útbúnað jeppanna. I Is-
landsmótinu mun ég keppa í flokki
sérútbúinna jeppa. Það verður fróð-
legt að sjá hvort ég hafi hugrekki
til að takast á við þá bestu af full-
um styrk. Svo tek ég aftur vel á
móti Svíunum 1 haust ásamt öðrum
keppendum í flokki götujeppa,"
sagði Þorsteinn.
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1994 C 5"
IÞROTTIR
GOLF / STIGAMOT
Hugsaði um það eitt
að slá góð högg
- segir Björn Knútsson eftir sigur í karlaflokki í Leirunni
Frosti
Eiðsson
skrifar
BJORN Knútsson úr Golfklúbbn-
um Keili varð öruggur sigurveg-
ari á öðru stigamóti ársins,
Opna Maxfli-mótinu sem haldið
var á Hólmsvelli í Leiru um helg-
ina. Björn var einn þriggja kepp-
enda sem lék á pari fyrri daginn
og hann fylgdi því eftir síðari
daginn með þvf að leika á tveim-
ur höggum yfir pari síðari dag-
inn við mjög erfiðar aðstæður.
Sex höggum munaði á Birni og
næstu mönnum. Kylfingar
fengu ágætt veður á laugardeg-
inum en á sunnudaginn gerði
rok og úrhellisrigningu sem
gerði keppendum mjög erfitt
fyrir enda var mikill munur á
spilamennsku flestra á milli
daga.
jr
Eg hugsaði um það eitt síðari
daginn að slá góð golfhögg en
velti ekki fyrir mér stöðunni né hvað
möguleika ég ætti á
sigri. Ég er búinn að
leika keppnisgolf í
Bandaríkjunum í all-
an vetur og ætti því að vera í góðri
æfingu. Samt hef ég ekki verið að
leika vel undanfarnar vikur og ár-
angurinn á þessu móti kemur mér
á óvart,“ sagði Björn í spjalli við
Morgunblaðið eftir keppnina. Björn
var kominn þremur höggum yfir
parið eftir fyrstu níu holurnar síðari
daginn. Síðari níu lék hann því á
einu höggi undir pari en hann náði
„fuglum,“ á fjórtándu, fimmtándu
og átjándu holu.
Þetta er í annað sinn sem Björn
sigrar á stigamóti, fyrra skiptið var
fyrir tveimur árum, einnig á Leir-
unni.
ÉíéMR
FOLK
■ EINAR Guðberg Gunnarsson,
sem er framkvæmdastjóri Golf-
klúbbs Suðurnesja fór holu í höggi
á þrettándu brautinni sem er 176
metrar. Einar notaði járnkylfu
númer fimm og boltinn fór í holuna
á flugi. Þetta er í fyrsta skipti sem
Einar fer holu í höggi.
■ KYLFINGAR sem heyrðu af
atvikinu á eftir að inn í hús var
komið á laugardag tóku fréttunum
fálega og sögðu við Einar að hann
hefði átt að vera búinn að þessu
fyrr. Verðlaunin fyrir að fara holu
í höggi á þriðju brautinni í ein-
hvetju af opnu mótunum á Leirunni
eru nefnilega bifreið af Hyundai
gerð sem metinn er á 1,4 milljónir.
■ JÓN ÓLAFUR Jónsson úr GS
hefur verið næstur holu á Bergvík-
inni í upphafshöggi á báðum opnu
mótunum til þessa. Jón var 3,19
metra frá holunni á Bústoðarmót-
inu og hann gerði enn betur á laug-
ardag þegar bolti hans hafnaði 1,04
metra frá holunni. Haft var á orði
að Jón Ólafur væri að færa sig
nær holunni og hann yrði til alls
vís á næsta móti; Opna Cobra-mót-
inu sem fram fer á Leirunni eftir
tæpan mánuð.
■ EF einhver kylfingur hreppir
bílinn í sumar þá verður hann að
fórna áhugamannaréttindum sínum
í íþróttinni í tvö ár þar sem kylfing-
ar mega ekki taka við hærri verð-
launum en sem nemur andvirði
40.000 krónd.
Morgunblaðið/Frosti
Björn Knútsson úr Keili sýndi mikið öryggi á Hólmsvelli í Leiru og lék sex
höggum betur en næsti maður. Á stærri myndinni sést hann í glompu. Helgi
Dan Steinsson (neðri mynd) kom á óvart með að ná öðru sætinu. Hér slær hann
á létta strengi við félaga sinn úr Leyni; Birgi Leif Hafþórsson.
Helgi kom á óvart
Helgi Dan Steinsson úr Leyni á
Akranesi náði öðru sæti og sínum
langbesta árangri á stigamóti en
hann er með fimm í forgjöf og því
í fyrsta flokki. Helgi var einn þriggja
sem lék á pari vallarins fyrri daginn
og þann síðari var hann átta höggum
yfir parinu. Hann kom því inn á 152
höggum ásamt þeim Einari Long
Þórissyni GR og Þórði Emil Ólafs-
syni úr Leyni. Bráðabana þurfti því
til að knýja fram um annað og þriðja
sætið. Einar helltist úr lestinni þegar
á fyrstu holu í bráðabananum þegar
bolti hans hafnaði í tjörninni fyrir
framan 16. flöt en Skagamennimir
voru báðir á pari. Úrslitin réðust
síðan á átjándu holunni þegar pútt
Helga fyrir „fugli,“ hafnaði í hol-
unni.
„Ég er búinn að æfa vel í vetur
og fór í ferð út með landsliðinu í
mars sem skilaði miklu. Það var
erfitt að fara út síðari daginn og ég
var orðinn rennandi blautur strax
eftir eina holu og ég er ánægður
með að spila átta höggum yfir við
þessar aðstæður," sagði Helgi.
Árangur á mótinu gaf stig í stiga-
keppni kylfinga en gaf ekki stig til
landsliðs. Ástæðan efsú að aðeins
eitt verkefni er framundan hjá
landsliðinu og það ekki fyrr en í
september. Það er Eisenhower-bik-
arinn; heimsmeistarakeppni áhuga-
manna sem fram fer í Frakklandi.
Karen Sævarsdóttir varð sigur-
vegari í Stigamótinu á Leir-
unni í kvennaflokki. Keppnin í
kvennaflokki var einvígi Karenar
og Herborgar Arnarsdóttir. Karen
hafði þijú högg á Herborgu eftir
fyrri daginn og fjórum höggum
munaði á þeim eftir síðari daginn.
Völlurinn var í ágætis standi
en það var veðrið ekki. Við vorum
að gantast með að hæfileikarnir
mundu ekki skína í gegn hjá okk-
ur í þessu veðri og það kom á
daginn,“ sagði Karen sem keppti
á sínu fyrsta móti í sumar en hún
er nýlega komin til landsins frá
Bandaríkjunum þar sem hún var
við nám í vetur.
„Ég var ekki ánægð með gær-
daginn og var staðráðinn í að
bæta mig í dag en því miður voru
ekki tök á því í þessu veðri. Veðr-
ið hefur verið mjög gott undan-
farna daga og svekkjandi að þurfa
að leika síðari hringinn við þessar
aðstæður," sagði Karen.
Aðeins þijár stúlkur af þeim
sex sem skráð voru í mótið luku
keppni. Hinar þijár hættu eftir
níu holur síðari daginn. Óhætt er
að segja að veðrið hafi því haft
yfirhöndina í þessum flokki en
mikill munur var á skori þeirra
þriggja sem kláruðu, á milli daga.
Þrettán högga sveifla var hjá
Karenu sem lék á 76 höggum
fyrri daginn en 89 þann síðari og
ellefu höggum munaði á skori
þeirra Herborgar Amarsdóttur og
Ólafar Maríu Jónsdóttur milli
daga.
Úlfar keppti í Helsingborg
I llfar Jónsson, kylfingur úr Hafn-
arfirði, tók þátt í fyrsta mótinu
í sænsku mótaröðinni í Helsingborg
um siðustu helgi. Hann hafnaði í 35.
sæti af 150 keppendum sem hófu
keppnina. „Ég er mjög sáttur við
þennan árangur. Það var gott að
komast í gegnum niðurskurðinn eft-
ir tvo daga, en þá fengu aðeins 50
af 150 keppendum að halda áfram,“
sagði Úlfar.
Úlfar sagðist hafa byijað frekar
illa fyrsta daginn, lék á 76 höggum
og var í 100. sæti og útlitið ekki
of gott á að komast áfram. Annan
daginn gekk allt upp hjá honum, lék
á 68 höggum og færðist upp í 25.
sæti og fékk því að halda áfram.
Þriðja daginn lék hann á 75 höggum
og 73 þann fjórða og hafnaði í 35.
sæti. Siguiwegarinn í mótinu lék á
277 höggum, eða 7 undir pari vallar-
ins og fékk fyrir það hálfa milljón
íslenskra króna. Ulfar lék á 292
höggum og fékk að eigin sögn „ein-
hveija smáaura."
„Eg get ekki annað en verið sátt-
ur því þetta var fyrsta mótið hjá
mér í tvær vikur. Mér gekk yfirleitt
vel inná flatirnar, en púttin voru
misjöfn. Það eru nokkrir hlutir sem
ég þarf að laga og nú er ég að vinna
í því,“ sagði Ulfar. Næsta mót hefst
á fimmtudag rétt utan við Helsing-
borg, en síðan verður farið yfir til
Danmerkur og leikið í Álaborg,
ítRÓrn
FOLK
■ ÞORSTEINN Hallgrímsson,
íslands- og Stigameistarinn frá því
í fyrra hyggst taka sér nokkurra
vikna frí frá keppni vegna meiðsla.
Þorsteinn er meiddur í baki og
hann sagði að eina ástæðan fyrir
því að hann keppti í mótinu á Leir-
unni vera þá að hann væri í höfuð-
borginni vegna nálastungumeð-
ferðar
■ MÓTSHALDARAR voru
hræddir um að þeir þyrftu jafnvel
að grípa til þess að fresta mótinu
eftir mikið úrhelli síðari daginn.
Vatnspollar mynduðust víða á
brautum og var fært frá þeim sam-
kvæmt reglum. Ekki má færa frá
á flötum og því hefði þurft að fresta
keppninni ef að pollar hefðu mynd-
ast þar.
M KEPPENDUR voru margir
daufir í dálkinn yfir veðrinu seinni
daginn og óhætt að segja að þeir
hafi ekki verið spenntir að fara út.
Sigurður Pétursson, kennarinn
hjá GR var þó fljótur að koma,
auga á tvo ljósa punkta. Veðrið
væri ágæt afsökun fyrir að koma
inn á lélegu skori og svo væri óþarfi
að hafa svaladrykk með í golf-
pokanum; nóg væri að horfa til
hirnins og opna munninn.
■ BJÖRN Knútsson úr GK fékk
fyrstu verðlaun án forgjafar og
Kristinn Oskarsson úr GS fékk
önnur verðlaun með forgjöf. Þeir
duttu báðir í lukkupottinn þegar
dregið var úr skorkortum kepp-
enda. Björn hreppti ferðavinning
frá Samvinnuferðum-Landsýn og
Kristinn úttekt úr verslun Phil
Hunter í Golfskála GS.
■ ARNAR MÁR Ólafsson golf-
kennari úr Keili stóð sig best í
keppni atvinnumanna á mótinu.
Arnar lék á 155 höggum, höggi
minna en Sigurður Pétursson,
GR. Jón Karlsson, kennari í Golf-
klúbbnum Oddi lék á 157 höggum
og varð_ í þriðja sæti.
■ BJÖRG VIN Sigurbergsson ú r
Keili á lægsta meðalskor meistara-
flokksmanna eftir tvö fyrstu stiga-
mótin. Björgvin sem lék frábæit
golf á fyrsta mótinu á Hvaleyrinni
er með 73,25 högg að meðaltali
eftir hringina fjóra. Sigurjón Arn-
arsson úr GR hefur hitt flestar
flatir að meðaltali (60,62%), Örn
Ævar Hjartarson úr GS hefur
notað fæstu púttin; 30,25 á hring
og Leynismaðurinn Þórður Emil
Ólafsson hefur farið flestar holur
undir pari eða að meðaltali 2,75 á
hring.
■ EINAR Long Þórisson úr GR
hefur oftast verið á braut eftir
upphafshögg eða í 67% tilfella eft-
ir mótin tvö. Þess má geta að Þor-
steinn Hallgrímsson hitti þrettán
brautir af fjórtán síðari daginn sem
er 93% Þessar upplýsingar eru
fengnar úr tölfræðispjöldum en
Guðbrandi Sigurbergssyni kylf-
ingi úr Keili hefur verið falið að
sjá um að tölfræðin verði rétt hjá
meistaraflokkskylfingum í sumar.
■ BRIDS-OPEN er nafn á nýst-
árlegu móti sem fram fer í Grafar-
holti nk. föstudag. Brids-spilarar
og kylfingar munu leika á 18 holna
golfmóti og grípa síðan í spilin um
kvöldið. Þegar hafa átján pör verið
bókuð í mótið þar á meðal munu
fyrrum heimsmeistarar í brids
mæta. Leikið verður með punkta-
fyrirkomulagi eins og tíðkast hefur
í Opna GR mótinu sem notið hef-
ur mikilla vinsælda undanfarin ár
og verður vægi greinanna jafn
mikið.
■ SIGURÐUR Pétursson golf-
kennari og Aðalsteinn Jörgensen
fyrrum heimsmeistari í brids verða
til að mynda paraðir saman. Litlum
sögum fer af kunnátt u Sigurðar í
brids en sömu sögu er reyndar
hægt að segja af kunnáttu A'ðaJ-
steins í golfíþróttinni.