Alþýðublaðið - 23.11.1920, Page 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
ilkynnm
Hér eftir verður kirkjugarðurinn lokaður |á
hverjum degi, þegar skuggsýnt er orðið, og opnaður
þegar orðið er bjart, en aðeins tvö hlið verða opin
á daginn, hlið á norðausturhorni og hlið á norð-
vesturhorni. — Fólk aðvarast um að vera ekki í
garðinum eftir að fer að skyggja, og fólki er al-
gerlega bannað að klifra yíir garðinn og
verður hlífðarlaust kært til sektar. ef ekki er hlýtt.
Reykjavík, 23. Nóv. 1920.
Felix Guðmundsson.
ur og þjóðfélagsfræðingur, Bert
rand Russell, dvelur nú í Austur-
löndum, á fyrirlestraferð. Verður
hann i ár í fevðinni og heldur nú
sem stendur fyrirlestra í Shanghai.
Hillerand gefnr fönganx
npp sakir.
Þegar Millerand tók við forseta-
embættinu, gaf hann 2X00 föngum
upp sakir. Ftestir þeirra sátu f
fangelsi fyrir yfirsjónir í hernaðar-
þjónustunni.
Viðgangur þýzku verklýðs-
félaganna.
Vorwárts skýrir frá því, að við
árslokin 1919 hafi 52 verklýðs
sambönd verið i allsherjarsambandi
þýzku verklýðsfélaganna, er sam-
tals hafi nú 7 milj 338 þús. með-
limi. Segir blaðið að félagatalan
hafi vaxið um 4V2 milj. á árinu
og er það gífurlegur vöxtur. Alls
eru 8 miljónir í verklýðsfélögunum
þýzku.
Ðm ðapn 09 veginn.
Yfirlit yfir hag landsbankans
í Reykjavík 30. júní 1920 er í
síðasta Lögbirting. Reikningslán
2V2 milj. kr„ víxlar og ávísanir
rúmar 17 milj. kr, inneign hjá
öðrum bönkum um ein milj. Inn-
stæða á hlaupareikniogi 50 milj
800 þús. kr., innstæðufé í spari
sjóði og gegn viðtökuskírteinum
tæpar 1SV2 milj. kr., skuld við
að a banka 5 milj. 398 þús. kr.,
v«rasjóður 2 milj, og 700 þús.
kr. og 1 mílj. kr. tekjur ólagðar
við varasjóð. Veðdeild bankans
átti veðskuldabréf fyrir lánum 61/2
milj. kr.
líötnvörpungarnir: Vínland,
Ingólfur Arnarson og Egíll Skalla-
grfmsson komu frá Englandi í
gær, allir með kol, einnig Ethel.
í morgun fór Leifur heppni til
Englands.
Hjónaefni. Ungfrú Borghildur
Sigurðardóttir, Hvg. 76 b, og Jón
Sigurðsson sjómaður, Hvg. 125,
hafa opinberað trúlofun sína.
ísland. Burtför þess frá Dan-
mörku er frestað til 10. des,
vegna þess að desemberferð Botníu
fellur niður.
— Ssel og blessuö!
Hvaðan kemur þú með alla þessa
böggla og pfnkla.
— Eg kem frá bonum Tlieó-
dór á Óðin8götu 30.
— Selur hann ekki voða dýrt,
eins og þeir hinir.
— Ójæja, sutnt eins, en líka
sumt ódýrt, eins og til dæmis:
Þetta indæla kaffi, brent og malað,
á kr. 2 70 V2 kg. Svo hefir hann
kandís á kr. 1,90 V2 kg., og margt
er það fleira sem gott er að kaupa
hjá honum. Þú getur líka hrigt í
hann í síina 951 (B stöð)> þá hugsa
eg hann sendi þér það heim. Nei,
eg var líka rétt búinn að gleyma
að hann hefir brauðasölu frá Al-
þýðubrauðgerðinni.
Ætli hann sé þá alþýðu-
maður.
— Já, eg held nú það.
— Jæja, vertu nú sæl, eg held
eg gangi þá til hans.
Tvær livenbápur,
klæðispeisuföt, dömuhattur, tveir
karlmannsfrakkar og þrjú langsjöl
til sýnis og sölu á Bergstaðast. 44.
Harmoníum til sölu. —
Upplýsingar á afgreiðslu Alþbl.
Verzlunin Hlíí á Hverfisgötu
56 A selur meðal annars: Úr
aluminium'. Matskeiðar á 0,70,
theskeiðar á 0,40 og gaffla á 0,70.
Borðhnífa, vasahnífa og starfs-
hnífa frá 0,75—3,00 Vasaspegla,
strákústa (ekta), hárkústa, glasa-
hreinsara 0,50, fatabursta og
naglabursta. Kerti, stór og sraá,
saumavélaolíu, diska, djúpa og
grunna og hinar þektu ódýru
emailleruðu fötur; og svo eru ör-
fá stykki eftir af góðu og v'cmduðú
baktöskunum, fyrir skólsbörnin.
Verzlunin „Von“ hefir
fengið birgðir af allskonar vör-
um. Melís, Kandís, Strausykur,
Súkkulaði, Kaffi, Export, Kökur,
Ostar, Harðfiskur, Lax, Smjör ís-
lenzkt, Kæfa, Hangikjöt, Korn-
vörur og Hreinlætisvörur. —
Spaðsaltað fyrsta flokks dilkakjöt
að norðan er nýkomið.
Virðingarfylst.
Gunuar Sigurðsson.
Sími 448. Sími 448.
K aupið
Alþýðublaðið!
Alþbl. kostar I kr. á mánstói.
Alþbl. er blað allrar alþýðu!