Morgunblaðið - 22.07.1994, Qupperneq 1
íslensk / 2
teiknimynd
Morgunblaðið/Árni Sæberg
MIKIL náttúrufegurð er á Hornströndum og fjölbreytni í landslagi. í kynningarmynd Flugleiða verður væntanlega tyllt niður tá á fallegum stöðum
Kynningarmynilir um Island
sýndar í Bandaiíkiallugi
í ÁGÚST nk. munu kynningarmyndir
um ísland verða sýndar í vélum Flug-
leiða frá Bandaríkjunum til íslands að
því er Pétur J. Eiríksson framkvæmda-
stjóri markaðssviðs Flugleiða hefur
tjáð Ferðablaðinu. Kynningarmyndin
er um 7-12 mínútna löng og auk þess
að segja frá landi og þjóð og veita
hagnýtar upplýsingar er ýmsum þjón-
ustuþáttum og fræðslu um Flugleiðir
fléttað inn í.
Mörg flugfélög sýna slíkar myndir
á leið til viðkomandi lands og mælist
það jafnan vel fyrir hjá farþegum og
er í senn landkynning og gagnlegt
þeim þegar komið er á staðinn. Pétur
J. Eiríksson sagði að samið hefði verið
við Sagafilm um að framleiða mynd-
ina. Hann sagðist reikna með að hún
yrði einkum sýnd á Ameríkuleiðinni,
því aðrar væru fullstuttar til að koma
fyrir kvikmynd og síðan kynningar-
mynd.
Hugmynd um kynningarmynd um
Island var sett fram í grein í Ferðablað-
inu eftir bandarískan mann, Mike
Handley. Hann tjáði og þá skoðun sína
að senda ætti öllum þeim Bandaríkja-
mönnum sem pöntuðu íslandsferð stutt
myndband um ísland áður en þeir
kæmu. Pétur J. Eiríksson sagði að slíkt
væri að sinni ekki framkvæmanlegt.
Reiknað var út að það kostaði 3,8
millj.kr. að gera 10 þús. eintök. ■
Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson
Fjórar f lugvélar
á Stykkishólmsvelli
ÞESSI mynd var tekin fyrir
skemmstu á flugvellinum í Stykk-
ishólmi er fjórar flugvélar með
ferðamenn voru þar samtímis og
er það sjaldgæf sjón. Fjöldi ferða-
manna hefur komið í Stykkishólm
í sumar, gestir hafa dvalið í Hólm-
inum og skoðað sig um í grennd-
inni og einnig farið út í Breiða-
fjarðareyjar eða tekið Baldur yfir á
Barðaströnd og haldið síðan áfram
um Vestfirðina.
Skordýr
fleiri en áður
og kvartað undan mýi
MEIRA ER um hvers kyns skor-
dýr í sumar en undanfarin ár og
virðast trjágeitungar fjörmeiri nú
en áður. „Eg hef fjarlægt fleiri
geitungabú núna en síðustu sum-
ur og fyrir miðjan júlí voru þegar
komnar nýjar drottningar þrem-
ur vikum fyrr en vanalegt er,“
segir Erling Ólafsson skordýra-
fræðingur hjá Náttúrufræði-
stofnun Islands.
Ástæðu aukins fjölda skordýra
segir Erling vera stillur og hlý-
indi í sumar. „Skordýrin virðast
ekki hafa slæm áhrif á gróður,
sem um allt land er mjög falleg-
ur og blómlegur." Spurður hvort
heppilegt sé að eitra núna fyrir
FLEIRI trjágeitungabú nú en áður.
Mikið er af blaðlús á birki
núna að sögn Erlings, sem segir
að gróðurinn líði þó ekki fyrir
það. Ásgeir Svanbergsson hjá
Skógræktarfélagi Reykjavíkur
tekur í sama streng og segir að
menn losni að mestu leyti við lús
á brekkuvíði og öðrum víðiteg-
undum sem notaðar eru í lim-
gerði ef þijár reglur séu virtar.
„Það þarf að klippa þrjá fjórðu
hluta af ársvextinum á hveiju
vori, í mars eða apríl. Þá þarf
að halda auðu beði í kringum lim-
gerðið til að þar verði ekki upp-
eldisstöð fyrir fiðrildalirfur. Áð
lokum þarf að bera árlega á víð-
inn.“ ■
sníkjudýrum, segist Erling telja
að það sé oft seint, enda séu fiðr-
ildalirfur nú orðnar fullvaxnar
og hættar að éta. „Nú geta menn
gert ráð fyrir að tré og runnar
taki vaxtakipp."
Erling segir að sumarbú-
staðareigendur hafi mikið kvart-
að undan bitmýi í sumar. „Við
því er ekkert að gera því mý
verður fjörmeira og aðgangs-
harðara eftir því sem hlýrra er í
veðri.“ Sveifflugur eru meira
áberandi nú en áður, en Erling
segir að margir rugli þeim saman
við geitunga þótt þær fyrrnefndu
séu miklu minni en geitungar og
alsaklausar.
Nýtt ferðaheildsölutyrir-
tæki Flugleiða í Maryland
FLUGLEIÐIR eru að koma upp
nýju ferðaheildsölufyrirtæki sem
hefur aðsetur á aðalskrifstofu
Flugleiða í Columbia í Maryland.
Fyrirtækið heitir Ieelandair Europ-
ian Vacations og leggur áherslu á
að auka sölu ferða til íslands. í
fyrstu verður IEV rekið sem deild
í Flugleiðum en til greina kemur
að stofna sér fyrirtæki síðar. Sex
til sjö starfsmenn vinna nú við IEV
og forstöðumaður er Steinn Logi
Björnsson.
Þá hafa Flugleiðir yfirtekið
ferðaheildsöluna Europak, sem
Kewellfyrirtækið og Flugleiðir hafa
rekið saman. Europak mun hafa
aðsetur hjá Flugleiðum í Columbia
og miðlar óseldum flugsætum til
ferðaheildsala víðsvegar um
Bandaríkin.
Icelandair Europian Vacations
er ætlað að setja saman- ferðir og
selja síðan áfram til ferðaskrifstofa
sem annast smásölu. Úrval ferða
verður nú aukið, ekki síst vetrar-
ferða. Gert er ráð fyrir að hefja
íslandssöluherferð nú í haust. g
FORI
HNATTREISU
fyrir eina
HAPPAÞRENNU
* * \ *
HAPPAÞRENNAN
hcfjttí rinmnjft/w!