Morgunblaðið - 22.07.1994, Side 8
8 C FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALOG
* Morgunblaðið/Gísli
BÁTUR Villa Magg sem annast ferðirnar.
Sjávarsýn út af
Stokkseyri
Stokkseyri- í ört vaxandi fjöl-
breytni afþreyingar fyrir ferða-
menn á Stokkseyri er nú boðið
upp á þann möguleika að bregða
sér í skoðunarferð um hinn fagra
skeijagarð á þar til gerðum bát
svo menn geta skoðað sjávarbotn-
inn og þann gróður og það dýra-
líf sem þar þrífst. Þetta er gert
með því að horfa í gegnum botn-
sjá.
Þessar ferðir annast Vilhjálmur
Magnússon og má panta ferðir
bæði um helgar og á kvöldin.
LITBRIGÐIN neðansjávar
UM HELGINA
Fl
Laugard. 23. júlí er ferð kl. 9
Þrífjöll-Hestur í Snæfellsnesfjall-
garði og sama dag er ferð um
Löngufjörur á Snæfellsnesi.
Sunnud. 24. júlí kl. 8 er dagsferð
í Þórsmörk sem kostar 2.700 kr.
og kl. 13 erfjölskylduganga í
Reykjanesfólkvang. Helgarferðir
eru ijórar; hringferð að Fjallabaki,
önnur í Þórsmörk og gist í Skag-
fjörðsskála og loks farið yfir Fimm-
vörðuháls og gengið frá Skógum.
Þá er fjórða ferðinLandmannalaug-
ar-Eldgjá og gist í saduhúsi í Laug-
um.
Sumarleyfisferðir á næstunni eru
22. júlí 7 daga ferð í Lónsöræfi og
dvöl í Múlaskála. Fararstjóri er Karl
Ingólfsson. 22. júlí er þriggja daga
ferð Hreðavatn-Langavatn-
Hnappadalur og er gist í tjöldum.
Fararstjóri er Árni Tryggvason. 23.
júlí er fímm daga ferð Húsavík-
Þeistareykir-Mývatn. Gönguferð
frá Húsavík, um Þeistareyki, Gæsad-
al að Mývatni. Gist í húsum og tjöld-
um. Farangur fluttur milli staða.
Fararstjóri er Hjalti Kristgeirsson.
23. júlí er fimm daga ferð um
Norðurland. Öku- og skoðunarferð
um Jökutsárgljúfur, Sléttu, Langa-
Nyjar
ferðahandbækur
um ísland
NYJAR ferðahandbækur um ís-
land komu út fyrir skömmu hjá
Máli og menningu. Annarsvegar
er um að ræða nýja tólf bóka
syrpu af ferðahandbókum eftir
Björn Hróarsson jarðfræðing;
„Á ferð um landið“, og hinsveg-
ar „Gönguleiðir“ eftir Pál Ás-
geir Ásgeirsson blaðamann og
fjallagarp. Bækurnar „Á ferð
um landið“ fjalla um eitt land-
svæði eða eina sýslu hver og
greina frá hvað markvert er að
VAR FLUGIÐ?
Reykjavík - Færeylar - Reykjavík
ÉG VAR mættur í flugstöðina kl.
9 en bröttför var áætluð kl. 10.
Það var engin spenna í ioftinu
eins og ég er vanur við utanlands-
ferðir enda ekki um langan veg
að fara, flugið til Vogs aðeins um
770 km.
Flestir farþeganna voru Islending-
ar en þeirra á meðal voru færeyskir
og grænlenzkir blaðamenn auk Kára
og Maritu Petersen lögmanns sem
var gestur hér vegna lýðveldisafmæl-
isins.
Við fórum í loftið tæpum 20 mín-
útum á eftir áætlun. Mér kom það
á óvart því Flugleiðir hafa í ár gert
mikið í því að vera á áætlun og í
flugstöðinni hafði allt gengið með
hraða snígilsins.
Við flugum yfir Kársnesið og Arn-
ames og þegar við komum yfir hring-
bygginguna í Garðabænum beint á
móti gamla Silfurtúni var beygt hart
í bak. Við flugum yfir Elliðavatn og
ég gat fylgt Elliðaánum allt til sjáv-
ar. Elliðavatn var spegilslétt og mér
datt í hug eitt augnablik hvort ég
gæti séð hvar fiskurinn héldi sig.
Skömmu síðar flugum við inn í skýja-
þykknið.
Sætisfélagi minn var um fimm-
tugt, rauðhærður og alþýðlegur. Ég
var viss um að hann var Færeyingur
en við vorum báðir hálffeimnir hvor
við annan og gekk svo til fyrstu þrjú
korterin. Loks var þögnin orðin yfír-
þyrmandi og hann ávarpaði mig og
eftir það samkjöftuðum við ekki.
Hann var færeyskur en hafði búið á
íslandi í 29 ár, og starfaði við tré-
smíðar.
Á leiðinni var boðið upp á morg-
unverð. Ég verð að játa, að ég hefí
fengið betri mat en einhvern veginn
er það nú svo að alltaf borðar maður
það sem fram er borið. Þetta var
beikon og eggjahræra og svo þetta
;ar fólk í fjöllunum
r veislu- og sérréttamatseðill
Opið öll kvöld
ðaskálinn(
í Hveradölum
Sími 672020, fax 872337
nes, Vopnafjörð, Jökuldalsheiði. Gist
í svefnpokaplássi. Fararstjóri er Sig-
urður Kristinsson. 30. júlí er 7 daga
ferð Borgarfjörður eystri-Loð-
mundarfjörður. Flogið til Egils-
staða og ekið til Borgarfjarðar eystri.
Göngur um slóðir álfa og trölla. Siglt
til Loðmundarfjarðar. Fararstjóri er
Árni Björnsson.
ÚTIVIST
Laugardag 23. júlí kl. 8 er 4.
áfangi í háfjallasyrpu Útivistar á
Skriðu, sem er tilkomumikill mó-
bergsstapi 1.005 metrar yfir sjáv-
armáli suðaustur af Skjaldbreið. Út-
sýni þaðan er mjög gott. Sunnud.
24. júlí kl. 10.30 er dagsferðin
Nesjar-Skinnhúfuhöfði. Ganga í
Grafningi með strönd Þingvalla-
vatns, úr Þorsteinsvík, um Nesja- og
Hagavíkurhraun, Ölfusvík og eftir
Björgunum að Soginu. Áætlaður tími
er>5 klst.
Helgarferð 22.-24. júlí er í Bása
við Þórsmörk og skipulagðar göngur
um Goðalandið. Gist í skála eða tjöld-
um. Brottför kl. 20 á föstudagskvöld.
23.-24. júlí er Fimmvörðuháls.
Gengið með Skógá upp á hálsinn og
gist þar. Síðan gengið yfir jökul og
niður Bröttufönn í Bása. B
Morgunblaðið/árni Sæberg
sjá á hveijum stað, söguágrip
staða og ýmsar aðrar ábending-
ar. Þijár bækur verða gefnar út á
ári í fjögur ár og fyrstu bækurnar
litu dagsins ljós í sumar. Þær bæk-
ur sem komnar eru út eru um Þin-
geyjarrsýslur, Borgarfjörð og Mýr-
ar, og Árnes- og Rangárvallasýsl-
ur. Bækurnar eru hugsaðar sem
Hvar má
veiða
ökeypis?
Á VEIÐISVÆÐI Holtamannaaf-
réttar er á nokkrum stöðum
leyfð ókeypis silungsveiði í sum-
ar.
I fréttatilkynningu Ferða-
málafulltrúa Suðurlands og At-
vinnuþróunarsjóðs eru upplýs-
ingar um þessa staði.
Þar er nefnd Kaldakvísl, norð-
an Hrauneyjarfossvirkjunar.
Veiðisvæði frá ármótum Tungnár
og að fossinum Nefja. Ókeypis
dagar eru 26. júlí og 16. ágúst.
Þórisvatn og veiðisvæðið er svo-
kallaður Austurbotn.
Þar er hús með svefnpokaað-
stoðu fyrir 21 gest. Ókeypis veiði-
dagar 2. og 23. ágúst.
Kvíslaveitur, ókeypis veiði 9.
og 30. ágúst. Gistingu og veiting-
ar má fá í Versölum, en þarf að
panta. ■
þægilegar handbækur sem hægt
er að hafa í hanskahólfi bíls, í
bakpoka og þar sem gott er að
grípa til þeirra á ferðalögum" Bent
er aðalega á staði sem skammt eru
frá þjóðveginum og þar sem hægt
er að komast á bíl.
„Gönguleiðir“ éftir Pál Ásgeir
Ásgeirsson lýsir fjórum gönguleið-
um; frá Landmannalaugum til
Þórsmerkur, frá Herðubreiðarlind-
um til Svartárkots, frá Snæfelli til
Lónsöræfa og frá Hvítárnesi til
Hveravalla. Bókin er hugsuð sem
fyrirferðalítil leiðsögubók í bak-
poka, en er annars eðlis en syrpan
„Á ferð um landið“ þar sem um
gönguleiðir er að ræða og mun
erfiðari ferðir.
Bækurnar eru skreyttar fjölda
litmynda, og forlagið mælir með
að notað sé kort Landmælinga ís-
lands til hliðsjónar. ■
hefðbundna - brauð, djús, kaffi og
svo kaka í eftirrétt.
Mjög rólegt var í vélinni. Flug-
freyjurnar, Iris Dungal og Sólveig
Brynjólfsdóttir, buðu okkur að verzla
en salan var frekar dræm. Farþegar
sötruðu bjór eða Remi Martin sem
seldur er í 5 cl flöskum. Verðið á
koníakinu var 150 kr., en svo varð
hækkun í hafi eins og það var kallað
hér um árið, þegar þeir voru að flytja
súrálið til landsins,_og hækkaði flask-
an í 200 krónur. Ástæðan var sú að
það var nýbúið að hækka verðið en
það hafði gleymst faþegunum í vil.
Þegar byijað var að lækka flugið
við Færeyjar var sætisfélagi minn
betri en enginn. Við flugum yfir
Mykineshólm meðfram Mykineseyj-
unni, Gáshólma og Tindhólma og
loks meðfram strönd Voga. Flogið
er meðfram háum klettum og er
bergið mjög fallegt. „Bráðum sjáum
við fossinn,“ sagði sessunautur minn,
en þá beygði vélin og ég sá aðeins
Sörvágsvatn og skömmu síðar lent-
um við þungri_ lendingu á Vogum.
Flugstjórinn, Árni Sigurðsson, og
samhetji hans, Jóhann Jóhannesson,
höfðu skilað okkur til Færeyja á
nákvæmlega tveimur klukkustund-
um.
í heild var ég ánægður með þessa
flugferð. Fokkerarnir eru reyndar
mjög þröngir en í ekki lengri ferð
en til Voga lætur maður sig hafa
það án athugasemda.
, .. Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
UR FLUGSTÖÐINNI í Færeyjum. Flugáhöfnin fær sér hressingu
með farþegunum áður en lagt; er í’ann til Reykjavíkur.
Heimferðin
Eftir stuttan stanz í Færeyjum var
ég aftur á heimleið. í flugstöðinni
voru mættir margir af þeim sem
voru mér samferða á útleið. Að þessu
sinni voru Flugleiðamenn stundvísir
og við vorum komin af stað nánast
á tíma og stefnan tekin á Ingólfs-
höfða. Flugstjórinn, Skúli Magnús-
son, tilkynnti að flogið yrði í 24 þús-
und feta hæð og flugskilyrði voru
hin ákjósanlegustu.
Um borð voru 35 manns og var
því vel rúmt. Flugfreyjurnar, Ingi-
björg Nanna Norðfjörð og Ingibjörg
Norðdahl, dreifðu Mogganum og
langflestir farþega Iásu hann spjald-
anna á milli. Matur var þrem korter-
um eftir flugtak og fengum við ýsu,
sem mig grunar að sé framleidd hjá
fyrirtækinu Víði í Garðinum. Ýsan
var ostafyllt og ágæt á bragðið eftir
að búið var að krydda.
Ég skrapg frammí til Skúla flug-
stjóra og Ágústs Arnbjörnssonar.
Það má segja að það séu sömu
þrengslin í flugstjórnarklefanum og
hjá farþegunum. Hæðarmælirinn
stóð í nákvæmlega 24 þúsund fetum
og flughraðinn var 500 km á klst.
Tal okkar barst fljótt að efnahags-
lífi Færeyinga. Skúli hélt því m.a.
fram, að færeyska flugfélagið tapaði
miklum fjárhæðum ár hvert, 8-900
milljónum sl. ár, en félagið flýgur
eina ferð á dag til Danmerkur. Þetta
passaði ekki við það sem ferðamála-
ráðherrann Sigmar A. Brunne hafði
sagt okkur daginn áður, þar sem
hann hélt því fram að rekstur Atl-
antsflugs gengi vel.
Fyrr en varði vorum við farin að
lækka flugið. Nú komum við yfir
Mosfellssveitina og Grafarvoginn og
lentum mjúklega á fóstuijörðinni.
Fimm mínútum síðar var ég kominn
í gegnum litlu fríhöfnina og beið
tollskoðunar. Tollararnir vour í ess-
inu sínu þennan daginn og hefi ég
hvorki fyrr né síðar Ient í slíkri gegn-
umlýsingu. ■
Arnór Ragnarsson
íttí£