Morgunblaðið - 28.07.1994, Síða 6
6 C FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1994
SUNNUDAGUR 31/7
MORGUNBLAÐIÐ
SJÓNVARPIÐ
9 00 RADIIAFFkll ►Mor9unsi°n-
Dlllllllicrni varp barnanna
Kynnir er Ratmveig Jóhannsdóttir.
Perrine Perrine fær gesti í heim-
sókn. Þýðandi: Jólianna Þráinsdóttir.
Leiki-addir: Sigvún Waage Dg Halkiór
Björnsson. (31:52)
Málið okkar Handrit: Helga Steff-
ensen. Vísur: Óskai- Ingimarsson.
Leikraddir: Arnar Jónsson og Edda
Heiðrún Backman. (Frá 1990) (5:5)
Nilli Hólmgeirsson Nilli gerir góð-
verk. Þýðandi: Jóhanna Þráinsdóttir.
Leikraddir: Aðalsteinn Bergdal og
Helga E. Jónsdóttir. (4:52)
Maja býfluga Vilii og vinir hans
stíga í vænginn við flugu í felubún-
ingi. Þýðandi: Ingi Karl Jóhannesson.
Leikraddir: Gunnar Gunnsteinsson
og Sigrún Edda Björnsdóttir. (48:52)
10.25 >-Hlé
18.20 ►Táknmálsfréttir
18.30 ►Okkar á milli (Ada badar: Oss
karlar emcllan) Sænskur barnaþátt-
ur. Þýðandi: Edda Kristjánsdóttir.
Sögumaður: Þorsteinn Ulfar Björns-
son. (3:5)
18.40 ►Leyndarmál Marteins (Maitin’s
Secret) Tékklensk barnamynd um
lítinn dreng sem fínnst að systur sinni
sé gert hærra undir höfði en honum.
Hann ákveður því að finna úlf sem
gleypir ömmu. Þýðandi: Edda Krist-
jánsdóttir. Lesari Þorsteinn Úlfar
Björnsson.
18.55 ►Fréttaskeyti
19.00 CDIPHQ| H ►Úr ríki náttúrunn-
rRICUdLA ar Þrautseigir
þakbúar (Survival: Rooftop Invad-
ers) Bresk heimildarmynd um dverg-
krákur og nábýli þeirra með mönn-
um. Þýðandi er Ingi Karl Jóhannes-
son og þulur er Þorsteinn Úlfar
Björnsson.
19.30 ►Fólkið í Forsælu (Evening Shade)
Bandarískur framhaldsmyndaflokk-
ur í léttum dúr með Burt Reynolds
og Marilu Henncr í aðalhlutverkum.
Þýðandi: Ólafur B. Guðnason. (4:25)
OO
20.00 ►Fréttir
20.25 ►Veður
20.30 hlCTTID ►„Athöfn var helguð
rlL I IIH hver ævinnar stund"
Þáttur um Guðmund Hannesson,
lækni og byggingarfrömuð. Rætt er
við samferðamenn Guðmundar o.fl.
um læknisstörf hans og vinnu að
skipulagsmálum. Umsjón: Sumarliði
Is/eifsson.
21.15 ►Falin fortíð (Angel Falls) Banda-
rískur framhaldsmyndaflokkur um
mannlíf og ástir í smábæ í Montana.
Aðalhlutverk: James Brolin, Kim
Cattrall, Chelsea Field, Brian Kerwin
og Peggy Lipton. Þýðandi: Guðni
Koibeinsson. (6:6)
22.05 ►Carmen á ísi (Carmen on Ice) Is-
ballett byggður á frægustu óperu
Bizets um sígaunastúikuna Carmen.
Ballettinn fylgir óperunni nákvæm-
lega og var færður upp í Sevilla.
23.25 ►Mynd í mótun Heimiidamynd um
uppfærslu ísballettsins Carmen á ísi.
23.50 ►Útvarpsfréttir í dagskrárlok
STÖÐ tvö
9 00 BARNAEFHI bananar
9.05 ►Dýrasögur
9.15 ►Tannmýslurnar
9.20 ►! vinaskógi
9.45 ►Þúsund og ein nótt
10.10 ►Sesam opnist þú
10.40 ►Ómar
11.00 ►Aftur til framtíðar Back to the
Future)
11.30 ►Krakkarnir við flóann Bay City)
12 00 ÍÞRÓTTIR ?Joir“",r s ■u"n“-
13.00 ►Ósýnilegi maðurinn Memoirs of
an Invisible Man) Nick Halloway
lendir í slysi á rannsóknarstofnun og
verður ósýnilegur. Nick kemst fljót-
lega að því að það er ekki jafn spenn-
andi að vera ósýnilegur og hann
hafði haldið sem gutti. Aðalhlutverk:
Chevy Chase, Daiyl Hannah og Sam
Neill. Leikstjóri: John Carpenter.
1992. Bönnuð börnum. Maltin gefur
★ ★
14.35 ►Homer og Eddie Gamanmynd um
tvo furðufugla sem tengjast vináttu-
böndum og flögra saman í ævintýra-
legt ferðalag. Whoopi Goldberg og
James Belushi eru í aðalhlutverkum.
1990. Maltin gefur enga stjörnu.
16.10 ►Loforðið A Promise to Keep) Ung
kona berst við krabbamein og- hefur
ekki haft kjark til að segja fjölskyld-
unni frá því. Þegar hún missir eigin-
mann sinn sviplega þarf hún að horf-
ast í augu við þá staðreynd að börn-
in hennar Qögur verði munaðarlaus
þegar hún deyr. Aðalhlutverk: Dana
Delany, William Russ og Adam Ark-
in. 1990. Maltin segir í meðallagi.
17.45 ►Saga Súsíar Suzy’s Story) Endur-
tekinn heimildarmynd um konu, móð-
ur og eiginkonu, sem berst við al-
næmi. Sjúkdómurinn uppgötvast
skömmu eftir að hún og maðurinn
hennar eignast sitt fyrsta barn sem
smitast af alnæmi í móðurkviði.
18.45 ►Sjónvarpsmarkaðurinn
19.19 ►19:19 Fréttir og veður.
20.00 ►Hjá Jack Jack’s Place) (9:19)
Örlagaþrungin sjónvarpsmynd um
konu sem gerist vændiskona þegar
hún kemst að því að maðurinn henn-
ar hefur haldið fram hjá henni. Þeg-
ar henni er misþyrmt af einum við-
skiptavina sinna ákveður hún að snúa
við blaðinu og leita sér hjálpar. Aðal-
hlutverk: Blair Brown og Arliss How-
ard. 1991.
22.25 ►Blóðhefnd Fools of Fortune) Ör-
lagaþrungin ástarsaga um ungan
mann sem er rekinn áfram af hefnd-
inni eftir að fjölskylda hans er myrt
í átökunum á Norður-írlandi. Blóð-
böndin eru sterk en hann verður að
gera upp á milli hefndarinnar og
ástarinnar. Með aðalhlutverk fara
Julie Christie, Iain Glen og Mary
Elizabeth Mastrantonio. Leikstjóri er
Pat O’Connor. 1990. Stranglega
bönnuð börnum.
0.10 ►New Jack City Nino Brown er
foringi glæpagengis sem færir út
kvíarnar með vopnaskaki og krakk-
sölu. Götustrákarnir komast brátt í
góðar álnir en lögreglumcnnirnir
Scotty Appleton og Nick Peretti eru
staðráðnir í að uppræta glæpagengið
og leggja sig í mikla hættu við að
knésetja það. Aðalhlutverk: Wesley
Snipes, Ice-T og Chris Rock. Leik-
stjóri: Mario Van Peebles. 1991
Stranglega bönnuð börnum. Maltin
gefur ★ ★
1.50 ►Dagskrárlok
Læknirinn - Guðmundur lét bæði heilbrigðis- og skipulags-
mál til sín taka.
Lífshlaup læknis
Frumkvöðull
var hann
varðandi
smitgát,
skurðlækning-
ar og skipulag
bæja og
sveitabýla
SJÓNVARPIÐ kl. 20.45 Þessi
heimildarþáttur um Guðmund
Hannesson læknaprófessor (1866-
1946) spannar allt lífshlaup hans.
Guðmundur beitti sér ekki einungis
í heilbrigðismálum því hann hafði
einnig mikinn áhuga á skipulags-
málum. Frumkvöðull var hann á
báðum sviðum hérlendis, einkum
varðandi smitgát og skurðlækning-
ar, skipulag bæja og sveitabýla.
Ennfremur er getið um afskipti
hans af stjórnmálum, t.a.m. deilum
hans við Jónas Jónasson frá Hriflu
er Helgi Tómasson úrskurðaði Jón-
as geðveikan, en Guðmundur var
formaður Læknafélagsins á þeim
tíma. Talað er við fjölda fólks í
þættinum.
Óperan og ísball
ettinn Carmen
Útkoman er
ekki einungis
ísballett á filmu
heldur leikrænt
tónlistarverk
fyrir augu og
eyru
SJÓNVARPIÐ kl. 22.05 Hér er á
ferðinni glæsileg og listræn upp-
færsla á frægustu óperu Bizets um
sígaunastúlkuna Carmen og var
ekkert til sparað. Við kvikmyndun-
ina var ekki bara stillt upp mynda-
vélum heldur var tekið tillit til hinn-
ar listrænu uppfærslu við upptökur
og útkoman er ekki aðeins kvik-
myndaður ísballett heldur leikrænt
tónlistarverk fyrir augu og eyru.
Strax á eftir sýningu ísballetsins
verðtir síðan sýnd heimildamyndin
Mynd í mótun um gerð kvikmyndar-
innar Carmen á ísi enda um mjög
óvenjulega kvikmyndagerð að
ræða. Myndir fyrir tónlistarunnend-
ur, dansunnendur og kvikmyn-
daunnendur.
Ævintýri
Mar-
teins
litla
Hann ákveður
að nota sér þau
ævintýri sem
hann hefur
heyrt og f inna
sér úlf til að éta
ömmu
SJÓNVARPIÐ kl. 18.40
Flest börn finna til afbrýðisemi
gagnvart systkinum sínum og
takast á við þá tilfinningu á
mismunandi hátt. Marteinn fer
frumlega leið að markinu því
hann ákveður að nota sér þau
ævintýri sem hann hefur heyrt
og finna sér úlf til að éta
ömmu. Hvort réttlætið sigrar
að lokum er svo önnur og
leyndardómsfyllri saga.
íbygginn -Marteinn grípur
til sinna ráða.
Fjölskylda dregst inn í blóð-
uga baráttu á eyjunni grænu
Þegar
vinnumaður á
Quinton-heim-
ilinu er myrtur
af fylgis-
mönnum Irska
lýðveldishers-
ins hefst mikill
hildarleikur
STOÐ 2 KL. 22.25
Kvikmyndin Blóðhefnd
gerist á fyrri hluta
þessarar aldar á ír-
landi og greinir frá
örlögum Quinton-fjöl-
skyldunnar sem dregst
inn í blóðuga baráttu
lýðveldissinna og
þeirra sem fylgja Bret-
um að málum. Meðlim-
ir ljölskyldunnar hafa
lítið gefið sig að þeim
pólitísku hræringum
sem setja svip á allt
mannlíf á eyjunni
grænu en þegar vinnu-
maður á Quinton-
heimilinu er myrtur af
fylgismönnum Irska
lýðveldishersins, hefst
mikill hildarleikur sem
vekur upp hefndar-
þorstann og blóðhefnd
rekur blóðhefnd. Þar mætir sakleysið hatrinu og ástin hefndinni. Leik-
stjóri myndarinnar er Pat O’Connor sem hefur áður gert myndir á borð
við Cal og The January Man. Með aðalhlutverk fara Julie Christie, Iain
Glen og Mary Elizabeth Mastrantonio. 1990. Stranglega bönnuð börnum.
HiiaarieiKur - Moro a vinnumanm tluiiHon-
hjónanna vekur hefndarþorstann.