Morgunblaðið - 27.09.1994, Side 1
64 SÍÐUR B
219. TBL. 82.ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1994, PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Tvö íslensk skip tekin á Svalbarðasvæðinu og færð til hafnar
Farbann sett á skípin
við komu til Tromsö
Aðeins refsað fyrir afla af Svalbarðasvæðinu en ekki það sem fékkst í Smugimni
Tromsö. Morgunblaðið.
TOGARARNIR Björgúlfur EA og Óttar Birting, sem teknir voru við
meintar ólöglegar veiðar við Svalbarða á laugardag, komu til hafnar í
Tromsö í fylgd norska strandgæsluskipsins Senja á miðnætti að íslensk-
um tíma í nótt. Héraðsdeild Norges Fiskarlag, heildarsamtaka hagsmuna-
aðila í norskum sjávarútvegi, hafði boðað að efnt yrði til mótmælastöðu
við höfnina strax við komu skipanna en á bryggjunni í Tromsö voru
einungis fulltrúar íslenskra og norskra fjölmiðla, fjórir íslenskir náms-
menn í Tromsö og þrír félagar í norsku mótorhjólagengi, auk lögreglu.
Áhafnir togaranna stóðu á dekki
en svöruðu ekki spurningum blaða-
manna. Togararnir lögðust utan á
strandgæsluskipið og var aðeins full-
trúum útgerðanna, Elmu Þórarins-
dóttur, framkvæmdastjóra Óttars
Birtings, Ögmundi Friðrikssyni frá
Útgerðarfélagi Dalvíkinga, og Frið-
rik J. Arngrímssyni hdl., hleypt um
borð í fylgd norskra lögfræðinga.
Skipstjórar til yfirheyrslu
Við komu til hafnar lagði lögregla
farbann á skipin, sem gildir þar til
rannsókn lögreglunnar í Tromsö er
lokið og framhald málsins liggur
fyrir. Ekki er líklegt að skipin fái
að fara fyrr en í fyrsta lagi á fimmtu-
dag. Skipstjórarnir, Sigurður Har-
aldsson á Björgúlfi og Jón Olsen á
Óttari Birting, verða væntanlega
kallaðir til yfirheyrslu hjá lögreglu
snemma í dag. Þeir og útgerðir skip-
anna eiga yfir höfði sér háar sektir
og gjöld vegna aflaupptöku.
Matsmenn munu meta verðmæti
skipa og afla og verða sektir ákveðn-
ar út frá því. Þeir þurfa meðal ann-
ars að meta hversu mikið af aflanum
er úr Smugunni og hvað af verndar-
svæðinu við Svalbarða. Aðeins verð-
ur refsað fyrir aflann af Svalbarða-
svæðinu. Óttar Birting er með 200
tonn af þorski, en Björgólfur var
nýkominn til veiða í Barentshafi og
með tiltölulega lítinn afla.
Ríkisstjórn íslands mótmælti töku
Björgúlfs EA formlega við norsk
stjórnvöld í gær. Eftir því, sem næst
verður komist, er þetta í fyrsta sinn
sem ísland afhendir öðru norrænu
ríki formleg, diplómatísk mótmæli.
í orðsendingunni er taka skipsins
kölluð ólögmæt aðgerð og réttur
Norðmanna á Svalbarðasvæðinu
dreginn í efa. Hins vegar er tekið
fram að íslenskum skipum hafi verið
haldið að veiðum á svæðinu án at-
beina eða hvatningar íslenskra
stjórnvalda og því á ábyrgð skip-
stjóra og útgerðarmanna.
í orðsendingunni er samkomu-
lagsvilji íslendinga ítrekaður, en því
lýst yfir að ísland muni nú undirbúa
að fá úr því skorið fyrir alþjóðadómi
hver sé réttarstaða samningsríkja
Svalbarðasamningsins. Mótmælin
taka ekki til töku Óttars Birtings,
þar sem hann siglir undir Panama-
fána.
Veiðarnar óheppilegar
Davíð Oddsson forsætisráðherra,
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis-
ráðherra og Þorsteinn Pálsson sjáv-
arútvegsráðherra létu á fundi með
útvegsmönnum í gær í ljós þá skoð-
un að veiðar skipanna tveggja á
Svalbarðasvæðinu hefðu verið
óheppilegar, með hliðsjón af þeim
embættismannaviðræðum við Norð-
menn, sem standa fyrir dyrum í
næstu viku.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins kom fram á fundinum
að skipstjórar togaranna hefðu tekið
ákvörðun sína um veiðar á svæðinu
án samráðs við útgerðir skipanna.
■ Svalbarðadeilan/4-7
íNuruiys
NORSKUR strandgæslumaður bindur Óttar Birting utan á
strandgæsluskipið Senja í Tromsö í nótt. Áhöfn skipsins stendur
í stafni.
Ottast að
Haítíbúar
hefni sín
á hernum
Cap-Haitien. Reuter.
STUÐNINGSMENN herfor-
ingjastjórnarinnar á Haítí ótt-
uðust í gær að almenningur
og fylgismenn Jean-Bertrands
Aristide, útlægs forseta lands-
ins, réðust á her- og lögreglu-
sveitir og bandamenn stjórnar-
innar eftir að bandarískir land-
gönguliðar urðu tíu haítískum
herlögreglumönnum að bana í
skotbardaga á laugardag. Bill
Clinton Bandaríkjaforseti
kvaðst í gær ætla að aflétta
refsiaðgerðum gegn Haítí.
„Mikil spenna hefur skapast
hérna,“ sagði Emmanuel
Constant, leiðtogi hreyfingar
vopnaðra stuðningsmanna
Raouls Cedras, leiðtoga her-
foringjastjórnarinnar. „Ha-
ítíbúum finnst þeir hafi verið
auðmýktir... það eru of
margir hermenn hérna,“ sagði
Constant. „Okkur stendur ógn
af rnúgnum."
Tom Jones ofursti, yfirmað-
ur bandaríska landgönguliðs-
ins á Haítí, sagði að Haítíher
hefði fulla ástæðu til að óttast
hefndaraðgerðir af hálfu fólks
sem hefði orðið fyrir barðinu
á hernum og bandamönnum
hans. Hann sagði að um 3.000
manns hefðu verið drepin í
Cap-Haitien, næst stærstu
borg landsins, og nágrenni frá
því herforingjastjórnin steypti
Aristide árið 1990.
Ráðist á lögreglustöðvar
Venjulegir Haítíbúar, sem
hafa lifað í stöðugum ótta við
herinn og bandamenn hans,
notfærðu sér vernd bandaríska
herliðsins um helgina til að
láta í ljós reiði sína í garð
harðstjóranna. Hundruð
manna réðust á lögreglustöðv-
ar, báru á brott húsgögn og
veifuðu skilríkjum sem lög-
reglumenn höfðu skilið eftir.
■ Knúið áum /18
Plágan breiðist enn út um Vestur-Indland
Viðbúnaður erlendis
Nýju Dclhí. Rcutcr.
PLÁGAN, sem hetjar í Indlandi, breiðist út um vesturhluta landsins og
hefur leit að hugsanlegum smitberum verið stórhert. Hefur viðbúnaður
verið aukinn í öðrum ríkjum og er vel fylgst með indversku ferðafólki.
Meira en 300.000 manns hafa flúið frá borginni Surat í Gujarat-ríki af
ótta við að sýkjast en hætta er á, að það verði aðeins til að faraldurinn
komi upp miklu víðar en ella.
í Bandaríkjunum, Rússlandi og
Japan og í fleiri ríkjum í Austur-
og Suðaustur-Asíu hefur eftirlit
með indversku ferðafólki verið hert
og í Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum verða allir Indveijar,
sem koma til landsins, að fara í
læknisskoðun. Er verið að grípa til
svipaðra ráðstafana víðar og í
Þýskalandi hefur fólki verið ráðið
frá því að ferðast til Indlands. Hafa
indverskir ferðamálafrömuðir mikl-
ar áhyggjur af áhrifum pestarinnar
á ferðir til landsins.
Um er að ræða tvo sjúkdóma,
annars vegar eitlabólgu, svarta
dauða, og hins vegar lungnabólgu.
Berst sú fyrri með flóm, sem bíta
sýktar rottur og mýs. Ekki hefur
verið skýrt frá láti nema um 100
manns en talið er, að fjöldinn sé í
raun miklu meiri.
Um helgina flýðu meira en 100
sjúklingar af sjúkrahúsinu í Surat
og voru hermenn sendir til að hafa
uppi á þeim. Nágrannaríki Gujarats
á Indlandi hafa hert eftirlit með
fólki þaðan og bannað innflutning
matvæla frá ríkinu um stundarsak-
ir. í höfuðborg Indlands, Nýju
Delhí, hefur einnig verið komið upp
sóttkvíum og stjórnstöðvum ef veik-
in skyldi koma upp þar.
FÓLK í borginni Surat er inargt með klút fyrir vituin sér til
að smitast síður og meira en 300.000 manns hafa flúið borgina.
Hér er beðið eftir að komast burt með lestinni en yfii-völd ótt-
ast, að um leið sé verið að breiða pestina út um landið.