Morgunblaðið - 27.09.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1994 19
ERLEIMT
. _
Reuter
EDMUND Stoiber, forsætisráðherra Bæjaralands, fyrir framan
kosningaspjald með mynd af honum og Theo Waigel, fjármála-
ráðherra Þýskalands. Flokkur þeirra, Kristilega sósíalsamband-
ið, vann sigur í kosningunum í Bæjaralandi á sunnudag og
hefur haft meirihluta þar í 32 ár.
CSU sigrar í Bæjaralandi en Frjálsir
demókratar tapa enn einu sinni
Kosningarnar túlk-
aðar sem blendin
skilaboð til Kohls
Bonn. Reuter.
KOSNINGARNAR til þings Bæjaralands á sunnudag eru bæði sigur og
ósigur fyrir stjórn Helmuts Kohls, kanslara Þýskalands, og enn er óvíst
hvort stjórnin haldi velli í kosningunum til sambandsþingsins 16. næsta
mánaðar. Kristilega sósíalsambandið (CSU), systurflokkur Kristilegra
demókrata (CDU) Kohls, vann sigur í Bæjaralandi en hinn stjórnarflokkur-
inn, Fijálsir demókratar, fékk aðeins 2,8% atkvæða og engan mann kjör-
inn. Þetta er sjöundi ósigur Fijálsra demókrata í röð í kosningum til fylk-
isþinga og Evrópuþingsins frá því Klaus Kinkel utanríkisráðherra tók við
formennsku í flokknum í fyrra.
Kristilega sósíalsambandið fékk
52,8% atkvæða í kosningunum, en
var með 54,9% í síðustu kosningum
árið 1990. Flokkurinn hafði 10 pró-
sentustiga minna fylgi í fyrra, ef
marka 'má skoðanakannanir, og hef-
ur því sótt í sig veðrið að undanförnu
eins og Kristilegir demókratar.
Enn er óvíst hvort Fijálsir demó-
kratar fái nógu mörg sæti á þinginu
í Bonn 16. október til að stjórn Kohls
haldi velli. Haldi stjórnarflokkarnir
ekki meirihluta sínum þykir líklegt
að Kristilegir demókratar myndi
„stóra samsteypustjóm" með Jafnað-
armannaflokknum, þótt báðir flokk-
arnir hafni þeim möguleika fyrir
kosningarnar.
„Helmut Kohl getur vissulega túlk-
að síðasta prófsteininn fyrir kosning-
amar 16. október sem stuðning við
stefnu sína. En það er ekki mikils
virði ef samstarfsflokkurinn tapar,“
sagði í forystugrein Berliner Zeitung
í gær.
Það eykur enn óvissuna að ný skoð-
anakönnun bendir til þess að fylgi
Ftjálsra demókrata hafí aukist um
eitt prósentustig frá samskonar könn-
un fyrir viku og sé nú komið í 7%.
Fylgi Kristilegra demókrata hafi hins
vegar minnkað um tvö prósent, í 41%.
CDU aðstoði jafnaðarmenn
Frankfurter Allgemeine Zeitung
sagði í forystugrein í gær að Kristi-
legir demókratar ættu að hvetja
stuðningsmenn sína í Austur-Berlín
til að styðja jafnaðarmenn í kosning-
unum til að koma í veg fyrir að
Flokkur lýðræðislegs sósíalisma,
flokkur fyrrverandi kommúnista,
fengi sæti á þinginu í Bonn. Slíkt
myndi áuka mjög líkurnar á því að
stjórn Kohls héldi velli. Flestir telja
þó að flokkurinn fái nokkra þing-
menn kjörna.
Jafnaðarmannaflokkurinn ' fékk
30% atkvæða í kosningunum í Bæj-
aralandi, hafði 26%. Repúblikana-
flokkurinn, sem var með allt að 8%
fylgi á landsvísu samkvæmt skoð-
anakönnunum fyrir tveimur árum,
fékk aðeins 3,9%.
Kona sænska njósnarans Stigs Berglings lýsir flótta þeirra
V erðir vildu ekki
ónáða þau á ná-
inni samverustund
Stig Bergling
Elisabeth Sandberg
Stokkhólmi. Reuter.
ELISABETH Sandberg,' kona njósnarans Stigs Berglings, kom fram
í sjónvarpi á sunnudag og skýrði þar frá því hvernig hún aðstoðaði
mann sinn við að flýja. Þótti frásögnin gefa bestu reyfurum í engu
eftir. Bergling var dæmdur í lífstíðar fangelsi fyrir njósnir í þágu
Sovétríkjanna meðan hann var starfsmaður sænsku öryggislögreglunn-
ar. Hann var sakaður um að hafa látið Rússum í té nær allar varnará-
ætlanir Svía.
Berglind hafði afplán-
að um 10 ár af refsivist-
inni er honum tókst að
flýja úr landi. Notaði
hann heimsókn til konu
sinnar í Stokkhólmi árið
1987 til þess en Sand-
berg lýsti flóttanum og
undirbúningi hans í
klukkustundar löngu
sjónvarpsviðtalinu.
Sandberg og Bergling
höfðu verið gift í um það
bil ár er hann flýði.
Aætlunin um flóttann,
sem þótti meiriháttar
áfall fyrir sænsku stjórn-
ina, var einföld. „Við fór-
um úr íbúðinni, settumst
út í bíl og ókum á brott,“, sagði
hún. í ljós hefur komið að verðir
fylgdust ekki grannt með íbúðar-
húsinu því þeir vildu ekki ónáða
Sandberg og Bergling á náinni
samverustund þeirra. „Það er ein-
falt að flýja ef undirbúningurinn
er góður,“ sagði Sandberg en bætti
við að flóttinn hefði farið út um
þúfur ef öryggisverðir hefðu séð
til þeirra er þau yfirgáfu íbúðina.
Sandberg lýsti því hvernig hún
hefði 16 ára gömul orðið ástfangin
í Bergling og tekið síðar upp sam-
band við hann eftir að hann hafði
verið dæmdur fyrir njósnir. „Hvern
dreymir ekki að komast undan?
Þetta var svolítið ævintýri og gam-
an,“ sagði hún um flóttatilraunina.
Sandberg sagðist hafa búist við
nokkrum spennandi dögum með
njósnara en vera svo komin til tölu-
lega fljótt aftur til barna sinna. í
staðinn beið hennar sjö ára barn-
ingur á flótta undan réttvísinni.
„Eg var auðtrúa, of barnaleg,
og hefði aldrei farið út í þetta
hefði ég gert mér grein fyrir afleið-
ingunum. Ég hélt ég gæti sent
póstkort til baka eftir viku,“ sagði
hún. Fljótlega kárnaði gamanið og
hún komst fyrr en varði að því að
líf eiginkonu gagnnjósnara er ekki
dans á rósum eða kampavíns- og
kavíarveislur.
Tortryggni GRU
Frá íbúð Sandberg héldu þau
Bergling með ferju til Álandseyja
og knúðu fyrirvaraiaust að ’dyrum
á heimili rússneska ræðismanns-
ins. Þaðan lá leiðin til rússneska
sendiráðsins í Helsinki og loks til
Moskvu þar sem þau gáfu sig fram
við leyniþjónustu sovéska hersins,
GRU.
„Lengi vel taldi GRU að við
sigldum undir fölsku flaggi, að við
hefðum verið send af sænsku leyni-
þjónustunni, Sápo. Þeir trúðu því
ekki að njósnari hefði átt svo auð-
velt með að komast úr landi,“ sagði
Sandberg.
Hún sagði að fulltrúi GRU hefði
tekið frá sér myndir af börnum
hennar og sagt að henni væri fyr-
ir bestu að gleyma þeim því hún
ætti aldrei eftir að sjá þau aftur.
Ári eftir flóttann fluttust Berg-
ling og frú til Búdapest, þar sem
þau þóttust vera rússneskir gyð-
ingar, og þaðan til Líban-
ons. „Það er þægilegt að
losa sig við njósnara og
nöldursama konu hans
þangað því margir týna
lífi þar sem stríð geisar,"
sagði Elisabeth Sandberg
í sjónvarpsviðtalinu.
Hjá Jumblatt
í Líbanon dvöldust þau
hjá Wgjid Jumblatt, leið-
toga Drúsa, sem átti góð
samskipti við yfirvöld í
Sovétríkjunum sálugu.
Hann hefur látið svo um
mælt að hann hafi talið
sig vera að gera vinum
sínum í sovéska komm-
únistaflokknum greiða með því að
skjóta skjólshúsi yfir breskan bún-
aðarfræðing, sem síðar reyndist
vera sænskur njósnari.
Eftir nokkurra ára vist í Líbanon
fengu þau vísbendingar um að þar
yrði þeim tæpast vært. Töldu þau
betra að vera í sænsku fangelsi en
í stöðugri lífshættu, ákváðu því að
flýja og komust vandræðalaust um
borð í feiju sem flutti þau úr iandi.
Neitaði Sandberg að segja frá því
hvernig þau voru aðstoðuð við að
flýja. Sjö árum eftir flóttann frá
Svíþjóð voru þau aftur komin til
Stokkhólms.
„Ég hélt að ég yrði handtekin
er ég kæmi út úr flugvélinni og
færð í fangelsi. Síðan yrði ég leidd
fyrir rétt og dæmd,“ sagði hún.
„Mér til mikillar undrunar varð
reyndin önnur.“ Var Sandberg lát-
in óáreitt en eiginmanni hennar
var hins vegar stungið aftur á bak
við lás og slá þar sem hann mun
afplána það sem eftir er af lífst-
íðarrefsingunni.
ELFA VORTICE I
VIFTUR
TIL ALLRA NOTA!
margar gerðir inn- og útblástur
lönaðarviftur
Ótrúlegt úrval
Þakviftur
Einar Farestveit & Co.hf.
Borgartúni 28 — S 622901 og 622900,
| jBog
Vi/Isl/Isl/Isl