Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1994
IDAG
MORGUNBLAÐIÐ
HRABLESTRARNÁHISKEIÐ
Viltu auka afköst í starfi um alla framtíð?
Viltu margfalda afköst í námi um alla framtíð?
Viltu lesa meira af góðum bókum?
Viltu lesa góðar bækur með meiri ánægju?
Ef svar þitt er jákvætt, skaltu skrá þig strax á næsta hraðlestrar-
námskeið sem hefst fimmtudaginn 13. október nk.
HHAt)IJESnW^SKÓIJNN
Hvíld og hressing
við hringveginn
Hótel Vík
er nýtt hótel í Vík í Mýrdal - 3ja klst. akstur
frá Reykjavík. "Rúmgóð og einkar þœgileg
2ja manna herbergi með sturtu og salerni.
Morgunverðarsalur erfyrir 50 manns.
Aðrar veitingar eru í Víkurskála, rétt hjá.
Stóifínt hótel ífallegu umhverfi.
Látið fara vel um ykkur í Hótel Vík!
Víkurskáli, 870 VIK
ÍSLAND/ICELAND
SÍMI/PHONE: 354-(9)8-71480
FAX/TELEFAX: 354-(9)8-71418
TILBOÐ!
27. sept. - 8. okt.
BONUS!
Viðskiptavinir sem
versla fyrir kr.10.000-
eða meira fá körfu af
BABY NATURALS
kremi, húðmjólk og
sjampói fyrir börn.
Nova barnavagn, kerra og burðarrúm
Bjóðum Sobrinca
rimlarúm með
30% afslætti
Húfur og parketsokkar
20(í afsláttur af
pelum, snuðum og
öðrum Tommee Tippee
smávörum
IQqOQ
Barnavöruverslun, Rauðarárstíg 16, sími 610120
Regnhlífarkerra með 6 bakstillingum
og hlífðarplasti
COSPER
Farsi
VELVAKANDI
Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Gæludýr
Týndur köttur
LÍTIL grá angórublönduð læða með hvítt trýni,
bringu og loppur hvarf frá Breiðvangi 16 sl. mánu-
dag. Þegar hún fór var hún með rauða hálsól. Hafí
einhver orðið ferða hennar var er hann vinsamlega
beðinn að hringja í síma 653319.
Týndur páfagaukur
GRÁR dísarpáfagaukur tapaðist frá Engihjalla fyrir
rúmri viku. Viti einhver um gauksa er hann vinsam-
lega beðinn að hringja í síma 46584.
HÖGNIHREKKVÍSI
SKAK
II m s j 6 n Margeir
Pétursson
ÞETTA skemmtilega enda-
tafl með mislitum biskupum
kom upp á kvennameistara-
móti Bandaríkjanna í ár. Ir-
ina Levitina (2.425) hafði
hvítt en Beatrize Marinello
(2.220) var með svart og
átti leik. Levitina, sem er
stórmeistari í kvennaflokki,
var að enda við að gleypa
baneitrað peð, lék 34.
Bf4xh6?? og gaf kost á stór-
kostlegum vinningsleik:
sjá stöðumynd
Marinello lék 34. - Kf7?
og eftir 35. e4 - f5 átti svart-
ur að geta haldið jafntefli,
en hún gerði sig seka um
fleiri mistök og endaði með
því að tapa skákinni. í stað-
inn gat hún leikið 34. -
Be4l! og hvítur getur gefist
upp, því svarta b-peðið verð-
ur óumflýjanlega að drottn-
ingu, jafnvel þótt það eigi
flóra reiti eftir upp í borð.
Það er súrt í brotið að leika
af sér vinningi og ennþá
verra að missa af leik sem
gæti sómt sér vel í kennslu-
bókum um endatöfl.
Víkveiji skrifar...
að er ánægjulegt að fara um
sjávarþorpin þijú á Suður-
landi, Þorlákshöfn, Eyrarbakka og
Stokkseyri. Sérstaka athygli vekur,
hvað þessi litlu byggðarlög eru orð-
in snyrtileg á allan hátt. Þar er
mikið um gömul hús, sum eru frá
því í upphafi aldarinnar, sem hafa
bersýnilega verið endurnýjuð eða
endurbyggð og njóta sín vel þrátt
fyrir háan aldur.
Þessi byggðarlög eru svo skammt
frá höfuðborgarsvæðinu, að auðvelt
er að sækja vinnu í höfuðborginni
daglega, þótt búið sé fyrir austan.
Fjarlægðin er ekki meiri en svo, að
erlendis þykir sjálfsagt mál að
sækja vinnu daglega ekki lengri
leið. En jafnframt eru þessi þijú
þorp og þá sérstaklega Stokkseyri
og Eyrarbakki þannig í sveit sett
að þau eru ekki í alfaraleið. Þar
má því búast við sæmilegum friði
og ró. Víkveiji spáir því, að á næstu
árum komist það í tízku að búa á
þessum stöðum, þótt starfsvett-
vangur sé á höfuðborgarsvæðinu.
Framboð Péturs Blöndals í próf-
kjöri Sjálfstæðismanna í
Reykjavík, sem fram fer í október-
mánuði, vekur athygli. Yfirleitt eiga
þátttakendur í próflcjörum að baki
langt starf innan viðkomandi
flokka. Við og við koma óvæntir
frambjóðendur fram á sjónarsviðið.
Pétur Blöndal er einr. þeirra. Hann
hefur vakið eftirtekt á undanförn-
um árum fyrir óhefðbundnar skoð-
anir. Framboð hans til bankaráðs
Islandsbanka sl. vor markaði tíma-
mót. Þá var í fyrsta sinn beitt nú-
tímalegum aðferðum til þess að
safna atkvæðum fyrir aðalfund í
stórfyrirtæki. Á þeim aðalfundi
hlaut Pétur Blöndal afgerandi kosn-
ingu.
Fróðlegt verður að sjá, hver
árangur hans verður í prófkjöri
Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Þess
eru dæmi að þeir, sem koma utan
frá, ef svo má að orði komast, nái
miklum árangri og skjótum frama,
en það er ekki hlaupið að því að
ná kosningu við þær aðstæður.
Alþýðuflokkurinn er í sérkenni-
legri stöðu um þessar mund-
ir. Fyrir einum og hálfum áratug
vann flokkurinn einn mesta kosn-
ingasigur í sögu sinni, í þingkosn-
ingunum 1978 með því að beijast
m.a. fyrir siðbót í íslenzkum stjórn-
málum. Nú liggur flokkurinn eða
öllu heldur einn ráðherra hans und-
ir ásökunum um hæpnari stjórnar-
athafnir en áður hafa þekkzt hér,
a.m.k. um langt skeið. Það hlýtur
að vera áleitið umhugsunarefni fyr-
ir Alþýðuflokksmenn, hvort siðbóta-
rumræðan frá árinu 1978 hafí lítið
skilið eftir innan flokksins sjálfs.
Á hinn bóginn er vert að minn-
ast þess, að Alþýðuflokkurinn var
á hinum fyrri viðreisnarárum sak-
aður um að hygla eigin flokksmönn-
um óhóflega mikið í embættaveit-
ingum. Þær ásakanir voru gleymdar
sjö árum eftir lok Viðreisnartíma-
bilsins, þegar Alþýðuflokkurinn
kom fram á sjónarsviðið, sem helzti
málsvari siðbótar í íslenzkum þjóð-
málum.