Morgunblaðið - 02.10.1994, Side 44
44 SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1994
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
„Víkingurínn,
víkingurínn..."
- hljómaði um Ruhr-leikvanginn í Bochum, eftirað Þórður Guðjónsson hafði gert
sigurmark Bochum gegn Duisburg í þýsku 1. deildinni á föstudagskvöldið
„Mikilvægasta
markið sem ég
hef skorað...“
ÞÓRÐUR Guðjónsson var að
vonum himinlifandi eftir að
hafa gert sigurmark Bochum
gegn Duisburg á föstudag-
inn. Liðinu hefur vegnað illa
og sigurinn var því gríðar-
lega mikilvægur. Markið var
glæsilegt; knötturinn barst
inn á markteiginn eftir horn-
spyrnu, þar skaust Þórður
fram eins og elding og skall-
aði hann af krafti upp í þak-
netið, óverjandi fyrir mark-
vörðinn. Á myndinni aö neð-
an fagna tveir samherjar
Þórðar honum eftir að hann
skoraði í einum af æfinga-
leikjunum áður en deildar-
keppnin hófst I Þýskalandi.
ÞÓRÐUR Guðjónsson, markakóngur 1. deildar íslands-
mótsins ífyrra, var f byrjunarliði Bochum f annað sinn á
keppnistímabilinu á föstudagskvöldið, er liðið fékk Duis-
burg í heimsókn í þýsku 1. deildinni. Hann nýtti tækifærið
til fullnustu; lék vel og gerði eina mark leiksins, með falleg-
um skalla þegar aðeins tæpar tvær mínútur voru til leiks-
loka. Þetta var fyrsta mark Þórðar í þýsku deildinni, en
hann gekk til liðs við félagið fyrir þetta keppnistímabil.
„Víkingurinn, víkingurinn" hljómaði um Ruhr-leikvanginn
eftir að flautað var til leiksloka og greinilegt var að áhang-
endur Bochum liðsins voru ánægðir með íslenska marka-
kónginn. „Þeir eiga svolítið erfitt með að bera nafnið
mitt fram hérna, þannig að þeir kalla mig bara vfking-
inn,“ sagði Þórður er Morgunblaðið sló á þráðinn til hans
eftir leikinn á föstudagskvöldið. „Stemmningin var rosaleg
eftir leikinn — ég verð að viðurkenna að ég fékk gæsahúð
þegar fólkið kallaði svona til mín,“ sagði hann.
Liði Bochum, sem er nýliði í
deildinni, hefur gengið illa
það sem af er. Liðið er í þriðja
neðsta sæti með 4 stig eftir sjö
leiki, Duisburg og 1860 Miinchen
er í neðstu sætunum með 2 stig.
Liðið tapaði stórt um síðustu helgi,
1:7 gegn Borussia Mönc-
hengladbach þannig að nú var að
duga eða drepast. Þórði gekk vel
í æfingaleikjunum fyrir deildina
en hefur ekki fengið mörg tæki-
færi með liðinu síðan. Hann spilaði
reyndar allan leikinn gegn Werder
Bremen á útivelli á dögunum en
lék síðan ekki aftur fyrr en á föstu-
dagskvöldið.
„Það var ótrúlega mikilvægt að
sigra. Þjálfarinn hefði hætt ef við
hefðum ekki unnið í dag. Hann
sagði fyrir tveimur leikjum að ef
við ynnum ekki annan hvorn af
. tveimur næstu leikjum myndi hann
hætta. Sá fyrri þessara leikja var
7:1 tap gegn Gladbach um síðustu
helgi, þannig að nú urðum við að
vinna.“
Stemmningin góð
En hvernig skyldi stemmningin
í hópnum hafa verið fyrir þennan
leik, eftir svo stórt tap í leiknum
þar á undan?
„Stemmningin var mjög góð í
hópnum. Við fórum strax á mið-
vikudag í íþróttaskóla hér nálægt
og vorum þar saman allan tímann
fram að leik og það sýndi sig vel í
leiknum hvað menn voru ákveðnir.
Það var mjög góð barátia í liðinu
og aldrei spurning hvort við mynd-
um vinna eða ekki; aðeins spuming
um hvenær markið kæmi,“ sagði
Þórður.
Lið Bochum byrjaði vel og sótti
af krafti í fyrri hálfleiknum. Þórður
átti þá glæsilegt þrumuskot að
marki Duisburg, af um 25 metra
færi, sem small í þverslánni. „Það
hefði verið gaman að sjá á eftir
boltanum inn þá,“ sagði hann. Þórð-
ur var svekktur þegar knötturinn
fór í slána, lagðist á hnén og gróf
andlitið í höndum sér. En hann átti
eftir að brosa, þegar á leið...
Sigurmarkið
Bochum fékk homspyrnu þegar
um tvær mínútur lifðu af leiknum,
knötturinn var sendur inn á mark-
teiginn þar sem einn samheija ís-
lendingsins framlengdi boltann
aftur fyrir sig, Þórður skaust inn
á markteiginn, henti sér fram og
stangaði boltann í netið. Skallinn
var fastur og óverjandi fyrir mark-
vörð gestanna. Akurnesingurinn
fagnaði með miklum tilþrifum og
ekki voru félagar hans heldur að
leyna gleði sinni. Hreinlega hrúg-
uðu sér ofan á Þórð þar sem hann
iá við endalínuna og brosti sínu
breiðasta.
„Þeir hanga alveg rosalega í
manni hérna, en þarna náði ég að
sleppa. Þetta var eiginlega í eina
skiptið í leiknum sem ég náði að
losa mig almennilega á þessu
svæði. Ég er yfirleitt við fjærstöng-
ina þegar við fáum horn,“ sagði
Þórður um aðdraganda marksins.
Það mikilvægasta
Þú hefur skorað mörg mörk um
dagana, en þetta hlýtur að vera
með þeim mikilvægari?
„Já, þetta er örugglega mikil-
vægasta markið sem ég hef skorað
— vegna þess hve rosalega mikil-
vægt það er fyrir klúbbinn."
Heldurðu að þetta breyti stöðu
þinni hjá liðinu; að þú skulir koma
inn, skora og að liðið sigri?
„Já, það hlýtur að gera það.
Þeir líta reyndar alltaf á mig sem
ungan leikmann hérna, það eru
ekki margir 21 árs leikmenn sem
eru að spila í deildinni, þó þeir séu
nokkrir, en þeir líta á mann efni-
legan alveg til 23 eða 24 ára ald-
urs, þannig að ég hef ágætan tíma
til að sanna mig. Og ég er ekkert
að stressa mig yfir þessu. En þetta
eykur vissulega sjálfstraustið —
það er einmitt eitt það mikilvæg-
asta í fótboltanum, að hafa sjálfs-
traustið í lagi.“
Eftir sjónvarpstútsendingunni
frá leiknum að dæma virtist þú
alveg vera. með sjálfstraustið í
lagi...
„Já; maður verður að reyna að
standa sig, annars verður maður
bara undir í baráttunni."
Þórður vissi kvöldið fyrir leik
að hann yrði í byijunarliðinu. „Ég
hafði því 24 tíma til að undirbúa
mig. Vanalega er iíðið ekki til-
kynnt fyrr en þremur tímum fyrir
leik og þá er maður stressaður
fram á síðustu stundu yfir því hvort
maður er í liðinu eða ekki, og ef
maður er í liðinu stressast maður
upp fram að leik. Nú var ég stress-
aður fyrst en var svo orðinn alveg
í lagi þegar að leiknum kom. Var
búinn að hafa nógan tíma til að
róa mig.“
Eins dauði...
Eins og áður segir hefur Boch-
um liðinu gengið illa að undan-
förnu. Þrátt fyrir það er mikil bar-
átta um sæti í liðinu og Þórður
hefur orðið að víkja. En eins dauði
er annars brauð í atvinnumennsk-
unni: „Holger Aden, sem skoraði
þijú mörk í fyrstu fjórum leikjun-
um okkar, meiddist mjög illa í vik-
unni. Hann eyðilagði allt í öðru
hnénu; fremra krossbandið slitn-
aði, líka liðböndin og liðþófinn er
ónýtur. Ef hann getur spilað aftur
verður það í fyrsta lagi eftir ár,“
sagði Þórður.
En að lokum; hvernig tilfinning
skyldi það vera fyrir ungan mann
sem er að byrja í atvinnumennsku
að skora fyrsta mark sitt í deild
sem þessari — mark sem er jafn-
framt svo geysilega mikilvægt?
„Alveg rosalegt — ég held það sé
varla hægt að lýsa því. Maður verð-
ur eiginlega bara að upplifa þetta
sjálfur til að skilja hvernig tilfinn-
ing það er,“ sagði Þórður. Hann
sajgðist þreyttur eftir leikinn, enda
mikil harka og „keyrsla" í leik sem
þessum. En hann hefur væntan-
lega lagst sæll og glaður til hvíld-
ar. „Já, ég held ég sofi mjög af-
slappað og rólega í nótt,“ sagði
Akurnesingurinn ungi að endingu
í símaspjallinu við Morgunblaðið á
föstudagskvöld.