Morgunblaðið - 11.10.1994, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1994
ÞRIDJUDAGUR 11. OKTÓBER
BLAÐ
adidos
Handknattleikslið Hauka
, leikur í Adidas
KNATTSPYRNA
Fatih Saribas/Reuter
Framhevjamir
fögnuðu mörkum
*
Islendingar mæta Tyrkjum í Istanbul á morgun í EM
FRAMHERJARNIR í íslenska landsliðshópnum í knattspyrnu,
sem kom til Istanbul ífyrrinótt vegna Evrópuleiks Tyrklands
og íslands annaðkvöld, skoruðu með félagsliðum sínum um
helgina. Eyjólfur Sverrisson innsiglaði 2:0 sigur Besiktas
gegn Ankara ítyrknesku deildinni, en tvíburarnir Arnar og
Bjarki Gunnlaugssynir lögðu upp sitt markið hvorfyrir hvorn
annan í 6:3 tapi Niirnbergs gegn Hannover í 2. deild í Þýska-
Gunnar Odds-
son til Leifturs
GUNNAR Oddsson, miðvallarleikmað-
ur og fyrirliði Keflvíkinga, hefur
ákveðið að ganga til liðs við nýliðanna
í 1. deild, Leiftur frá Ólafsfírði. í síð-
ustu viku gekk Ragnar Gíslason, fyrir-
liði Stjömunnar, einnig til liðs við fé-
lagið. Gunnar sagði að það legðist vel
í sig að fara norður á Óíafsfjörð. „Mér
líst vel á mannskapinn hjá Leiftri og
hef trú á liðinu. Það er gott að breyta
til og kynnast nýju fólki. Maður er
ekki í íþróttunum til eilífðar og því sló
ég til er þetta tækifæri gafst. Eg fer
þó ekki í neinu fússi frá Keflavík,"
sagði Gunnar við Morgunblaðið.
- En hvers Vegna valdir þú Leiftur?
„Okkur langar að prófa að búa út
á landi. Ég er að klára félagsfræðinám.
í vor og svo eigum við hjónin von á
öðru barni okkar. Þetta er því góður
tími til að breyta til — minnsta röskun-
in fýrir fjölskylduna.“
Gunnar og fjölskylda hans flytjast
til Ólafsfjarðar í vor. Flestir leikmanna
Leifturs verða á Reykjavíkursvæðinu
í vetur og mun Óskar Ingimundarson
þjálfari stjóma æfíngunum.
Þór réði Nóa til
tveggja ára
NÓI Björnsson var í gær ráðinn þjálf-
ari Þórsliðsins í knattspymu til tveggja
ára. Þórsarar féllu í 2. deild í haust,
en „við ætlum okkur ekki að vera þar
nema eitt sumar. Við erum að vinna
í að halda okkar mannskap og ég veit
ekki til þess að neinn fari nema Lárus
Orri [Sigurðsson],“ sagði Kristján
Kristjánsson, formaður knattspymu-
deildar Þórs.
Nói stjómaði Þórsliðinu í tveimur
síðustu leikjum 1. deildarinnar i haust,
eftir að Sigurði Lárussyni var sagt upp
störfum. Nói lék um árabil með Þór
og er leikjahæsti maður félagsins.
Undanfarin ár hefur hann þjálfað
Magna á Grenivík.
Helgi og Þórður
með Stjömuna
HELGI Þórðarson og Þórður Lárusson
voru í gær ráðnir þjálfarar meistara-
flokks Stjörnunnar í knattspyrnu. Þeir
taka við af Sigurlási Þorleifssyni sem
stjómaði liðinu í 1. deild sl. sumar.
Kjartan áfram
meðVíkinga
KJARTAN Másson var um helgina
endurráðinn þjálfari meistaraflokks
Víkings, sem leikur í 2. deild karla á
næsta keppnistímabili eins og Stjaman.
landi.
Landsliðshópurinn tók létta
æfingu í Amsterdam í fyrra-
dag á meðan beðið var eftir flugi
til Istanbul. Tvær
Steinþór æfingar voru í
Guðbjartsson gær, ein verður
skrifar seinni partinn á
frá Istanbul morgun og sú síð.
asta í fyrramálið. Hefðbundinn
undirbúningur rétt eins og hjá
mótherjunum og veðráttan í ís-
lenskara lagi, en í gær kólnaði
skyndilega, hitinn fór niður fyrir
20 stig og það rigndi - fyrsta
rigningin hér um slóðir í sjö
mánuði og því kærkomin.
Eyjólfur hefur gert fimm
rnörk í tyrknesku deildinni og
er í hópi markahæstu manna.
Um helgina skoraði hann með
skoti frá vítateigslínu, boltinn í
mótheija og inn. Þá gerði hann
annað mark með skalla eftir
hornspyrnu, en það var dæmt
af eins og annað mark Besiktas.
„Þetta vom lögleg mörk,“ sagði
Eyjólfur.
Amar er með fjögur mörk og
er markahæstur ásamt fjóram
öðram leikmönnum í 2. deild í
Þýskalandi, en Bjarki hefur gert
tvö mörk. „Liðið hefur gert 13
mörk og við eigum níu þeirra á
einn eða annan hátt,“ sagði
Bjarki, sem jafnaði 1:1 um helg-
ina.
Tyrkir bjartsýnir
Mikill áhugi er á leiknum
landshluta á milli í Tyrklandi og
er á heimamönnum að heyra að
nú sé komið að fyrsta sigri Tyrk-
lands gegn íslandi. „Við sigrum
ísland,“ sagði Fatih Terim þjálf-
ari Tyrkja í gær. „íslendingar eru
líkamlega sterkir en við höfum
áhorfendurna á okkar bandi og
sjálfstraust leikmanna minna er
sérstaklega gott eftir að við náð-
um að vinna upp tveggja marka
mun gegn Ungveijalandi. Við
erum með marksækna fram-
heija, höfum undirbúið okkur
með sigur í huga og annað kem-
ur ekki til greina." Hann sagði
ennfremur varðandi fyrri leiki
þjóðanna að fortíðin væri að baki
og líta bæri til framtíðar. „Það
er ekkert öruggt í riðlinum. Svíar
hafa ákveðið forskot, Sviss á
möguleika og Tyrkland líka, ekki
síst ef við fáum þijú stig gegn
íslandi."
Upp með hendur
Það var engln uppgjöf í herbúð-
um íslenska llðsins, þó svo að
þeir hafi verið uppi með hendur
á æfingu í gærkvöldf. íslend-
ingar hafa aldrel tapað leik
gegn Tyrkjum í fimm vlðurelgn-
um.
BR
Reynir
kjörinn
formaður
Reynir Ragnarsson var í
gærkvöldi kjörinn for-
maður íþróttabandalags
Reykjavíkur á þingi bandalags-
ins. Hann hlaut 88 atkvæði í
formannskjörinu, en Jón Zo-
éga, fyrram formaður Vals,
sem einnig gaf kost á sér til
formennsku hlaut 50 atkvæði.
Reynir tekur við af Ara Guð-
mundssyni sem hefur verið for-
maður IBR síðan 1988, en gaf
ekki kost á sér til endurkjörs.
Aðrir í stjórn eru Sigurður
Hall, Asgeir Guðlaugsson, Örn
Andrésson, Haukur Tómasson,
Sölvi Óskarsson og Kristján
Örn Ingibergsson.
LANDSLIÐSKONAN RAGNA LÓA STEFÁNSDÓTTIR í VIÐTALI / B2