Morgunblaðið - 11.10.1994, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1994
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
4
KNATTSPYRNA / LANDSLEIKIR
íslensku stúlkumar flest-
ar langtfrá sínu besta
- og möguleikinn á að komast áfram í Evrópukeppninni erorðinn lítill
0B 4| Guðlaug Jónsdóttir
■ I var of sein að losa sig
við knöttinn og lenti í ógöngum
við eigin vítateig, þær ensku
höfðu betur í návígi við vítateigs-
hornið og knettinum var rennt
út þar sem fyrirliðinn, hin smáa
en knáa Giílian Coultard lét
vaða viðstöðulaust á markið;
knötturinn hafnaði efst í fjær-
hominu. Glæsilegt mark. Þetta
var strax á 5. mín.
1B Guðlaug náði knett-
■ I inum í vítateig ís-
lenska liðsins, lék fram á miðjuna
þar sem hún sendi á Margréti.
Hún gaf á Rögnu Lóu, fékk hann
strax aftur og skipti síðan út á
vinstri vænginn á Sigrúnu Ótt-
arsdóttur. Hún lék upp kantinn,
gaf svo fyrír markið, vamarmað-
ur náði ekki að hreinsa vel frá
þannig að knötturinn barst rétt
út fyrir teiginn þangað sem Mar-
grét Ólafsdóttir var komin og
hún skoraði með glæsiiegu skoti;
iyfti knettinum yfir markvörðinn
og efst i hægra homið á 27.
mínútu. Sérlega vel að verki stað-
ið; Margrét rak þarna glæsilegt
smiðshögg á fallega sókn.
1« ^fcMareanne Spacey
■ áCíisendi frá vinstri inn á
íslenska vitateiginn á 58. mín.,
Guðrúnu mistókst að skalla frá,
boltinn barst inn á markteiginn
þar sem varnarmenn voru iila
með á nótunum, Kerry Davis
skaust fram og renndi knettinum
iaust í netið.
ISLENSKA kvennalandsliðið náði sér ekki nægilega vel á strik
gegn því enska á Laugardalsvellinum á laugardaginn og úrslitin
voru vonbrigði; 1:2 tap, en miðað við gang leiksins var það sann-
gjarnt. Þetta var fyrri viðureign þjóðanna í átta liða úrslitum Evr-
ópukeppninnar og sú síðari í Brighton verður örugglega erfið.
Enska liðið er gott, en þó ekki ósigrandi og íslensku stúlkurnar
geta huggað sig við það að þær geta mun betur en þær gerðu
að þessu sinni.
Englendingar tóku forystu strax
á fimmtu mínútu er fyrirliði
liðsins og besti maður, Gillian Coult-
ard, skoraði með
Skanti glæsilegu skoti.
Hallgrímsson Reyndar eftir varn-
skrifar armistök, og markið
kom eins og köld
vatnsgusa framan í íslensku stúlk-
urnar. Þær voru greinilega mjög
taugastrekktar í upphafi, voru ragar
og markið kom sér því illa. En er
leið á hálfleik'inn fóru þær í gang,
Margrét lék stórvel á miðjunni og
Ragna Lóa gerði einnig góða hluti.
Margrét gerði jöfnunarmarkið eft-
ir tæplega hálftíma leik á glæsiiegan
hátt. og skömmu síðar áttu íslensku
stúlkurnar að fá vítaspyrnu, en
fínnski flautuleikarinn svartklæddi
fann ekki hinn rétta tón. Sóknin var
glæsileg; Ásthiidur sendi fyrir frá
vinstri yfír á markteig á móts við
fjærstöngina, Ásta B. skallaði til
baka og Olga var í dauðafæri á
markteignum: sveiflaði hægri fætin-
um með tilþrifum en einn ensku
varnarmannanna fór með báðar
hendur fyrir knöttinn. Hann stefndi
að marki og Olga hefði eflaust skor-
að þarna, þannig að dómarinn hefur
mikið á samviskunni. Aldrei er að
vita hvemig leikurinn hefði þróast
hefði íslenska liðið fengið vítaspyrn-
una sem réttmæt var og komist yfír.
Á þessum leikkafla var sjálfstraustið
í lagi hjá íslensku stúlkunum og allt
annað að sjá til þeirra en í upphafi.
Síðari hluti fyrri hálfleiksins gaf
því góð fyrirheit um þann seinni, en
þegar til kom var frammistaða ís-
lenska liðsins slök. Allar aðgerðir
ómarkvissar og tilviljanakenndar og
ensku stúlkurnar mun ákveðnari.
Gerðu enda eina mark hálfleiksins
og fögnuðu sigri.
íslenska liðið getur betur, en
hægt er að hugga sig við það og
Evrópudraumurinn er ekki úti, þó
vissulega hafi líkurnar minnkað á
því að Island komist áfram í keppn-
inni. Einungis tveir leikmanna ís-
lands léku af eðlilegri getu; Margrét
Ólafsdóttir og Ragna Lóa Stefáns-
dóttir. Vörnin var ekki góð, sérstak-
lega voru bakverðirnir óöruggir,
miðjumennirnir, aðrir en þær tvær
sem nefndar voru, ekki nógu ákveðn-
ar og Olga fékk ekki úr miklu að
moða frammi. Sem sagt; flestar geta
stúlkurnar mun betur og vonandi
gerá þær það í Brighton. Við ram-
man reip verður að draga, en þar
verða þær að reyna að fara afslapp-
aðri út á völlinn, og vera ekki hrædd-
ar við andstæðingana. Þó þær ensku
séu góðar er engin ástæða til að
bera virðingu fyrir þeim í þær 90
mínútur sem leikurinn stendur.
W
Attu að geta komið í veg fyrir mörkin
JW
Eg var ánægður með kafla í
leiknum, sérstaklega í fyrri
hálfleik þar sem stelpurnar voru
að gera ágæti hluti þó það hafí
ekki dugað til að skapa mörg færi,
sagði Logi Ólafsson, þjálfari.
„Enska liðið er gott en stelpum-
ar áttu samt að geta komið í veg
fyrir bæði mörkin; það átti að gera
hægt með smá heppni. Stelpurnar
vom taugaóstyrkar, mun óstyrkari
en ég átti von á og það var slæmt
að fá á sig mark svona snemma;
það fór mikill kraftur í að ná sér
eftir það og reyna að jafna.“ Logi
sagði möguleikann á að komast
áfram vissulega minni en fyrir
leikinn, en bætti við að ef „við
stelpurnar" — einsog hann orðaði
það — „hittum allar á góðan dag
í Brighton er aldrei að vita hvað
gerist. Við gefum möguleikann
ekki frá okkur.“ Hann sagði enska
liðið sterkara en það hollenska,
sem íslensku stúlkurnar sigruðu á
dögunum, og knattspymu þeirra
ensku árangursríkari.
Eii
OLGA Færseth hefur betur ■ barál
manninn. Oftast voru gestirnir þó ál
Stærsti
sigurinn
Björgvin og Andri báðir með
þrennu í 9:0 sigri gegn Lúxemborg
ÍSLENSKA landsliðinu, leikmanna 18 ára og yngri, hefur ekki
gengið vel að skora mörk í síðustu leikjum en það vandamál var
ekki til staðar gegn Luxemborg á sunnudag. íslenska liðið sigr-
aði 9:0 og er sigurinn sá stærsti sem íslenskt landslið vinnur í
Evrópukeppni.
Við lögðum upp í þennan leik með
það að markmiði að sigra og
hleypa Luxemborg ekki inn í leikinn.
Ég átti ekki von á
stórsigri,“ sagði
pr%st' Guðni Kjartansson,
skrífTr0 tóálfari ís!enska liðs-
ins sem fékk að sjá
drengina sína skora fimm mörk á
fyrsta hálftímanum.
Byrjuðu af krafti
Kjartan Antonsson skoraði fyrsta
markið eftir sjö mínútna leik með
skalla og mínútu síðar opnaði Björg-
vin Magnússon markareikning sinn.
Hann var aftur á ferðinni stuttu síð-
ar með giæsilegu skallamarki og
fjórða mark íslands kom þegar
Christian Steinhertz skallaði fyrir-
gjöf Þorbjarnar í eigið mark. Andri
Sigþórsson bætti fimmta markinu
við eftir laglega sendingu frá Grét-
ari Má Sveinssyni. Þrjú af mörkun-
um komu eftir fyrirgjafír Þorbjarnar
Sveinssonar og Vilhjálms Vilhjálms-
sonar frá hægri vængnum en þrátt
fyrir stóra og stæðilega varnarleik-
menn áttu gestirnir í miklum vand-
ræðum með fyrirgjafírnar.
Síðari háifleikur hafði ekki staðið
í nema þrjár mínútur þegar Andri
Sigþórsson skoraði sjötta markið
úr óbeinni aukspyrnu í vitateignum.
Björgvin skoraði sitt þriðja mark
og Andri fullkomnaði síðan þrennu
sína áður en fyrirliðinn Vilhjálmur
Vilhjálmsson skoraði níunda mark
liðsins með skoti fyrir utan vítateig,
tólf mínútum fyrir ieikslok. Auk
markanna voru þijú mörk dæmd
ólögleg vegna brota og rangstöðu.
EVROPUKNATTSPYR
Newcí
áelli
mmm . Morgunblaðið/Frosti
Tvær þrennur
BJÖRGVIN Magnússon, t.v., og Andri Sigþórsson skoruðu báðir
þrjú mörk í stórsigri íslands á Luxemborg í EM 18 ára og yngri.
í öðrum gír
Það er erfítt að gera upp á milli
einstakra leikmanna íslenska liðsins
sem voru í öðrum gír en andstæðing-
arnir nær allan leikinn, Þorbjörn
Sveinsson á þó skilið hrós fyrir hraða
sinn og yfirferð og þess má geta að
þrír leikmenn gestanna fengu gula
spjaldið þegar þeir sáu þann kost
vænstan að fella hann. Lið Luxem-
borgar lagðist ekki í vörn eins og
mörg önnur lið hefðu gert í jafn
vonlausri stöðu en liðið skapaði sér
4-5 marktækifæri í síðari hálfleikn-
um og Fjalar Þorgeirsson markvörð-
ur varði vel í tvígang.
Síðari leikur liðanna fer fram ytra
á morgun en Iokaleikur íslands verð-
ur í Frakklandi á föstudag. Mögu-
leikar íslands á að komast upp úr
riðlinum felast í að vinna Frakka
og treysta á að markahlutfall þeirra
verða hagstæðara, en Luxemborg
er ekki líklegt til að fá nein stig í
þessum riðli.
„Við eigum ennþá möguleika. Við
vorum betra liðið í tapleiknum gegn
Frökkum og við eigum vissulega
möguleika á að sigra þá í seinni
leiknum," sagði Vilhjálmur fyrirliði.
Náði þar með jafnt
NEWCASTLE er enn taplaust í
ensku úrvalsdeildinni, en tæpt
varð það um helgina — liðið fékk
Blackburn í heimsókn, og náði ekki
að jafna fyrr en á næst síðustu
mínútu leiksins, 1:1. Annars var
leikurinn, sem beðið var með mik-
illi eftirvæntingu, heldur slakur.
Meistarar Manchester United töp-
uðu þriðja leiknum á tímabilinu,
0:1, gegn Wednesday í Sheffield
en nýliðar Nottingham Forest eru
hins vegar taplausir; gerðu 3:3
jafntefli gegn Man. City.
Alan Shearer kom Blackburn yfir í
Newcastle með marki úr víta-
spyrnu á 58. mín. og allt leit út fyrir
að liðið yrði það fyrsta til að leggja
Newcastle að velli í vetur. Vörn Black-
burn var gríðarlega sterk og ekkert
benti til þess að heimamenn næði að
skora. Það var svo á 88. mín. að Steve
Howey náði að jafna; varnarmönnum
mistókst að hreinsa frá eftir að boltinn
barst inn í teig og Howey þrumaði að
marki, knötturinn þaut framhjá fjölda
varnarmanna og í netið.
Ian Woan bjargaði Forest gegn Man.
City á laugardag. Með sigri hefði For-
est komist upp fyrir Newcastle í efsta
sætið; þar sem Newcastle lék ekki fyrr