Morgunblaðið - 11.10.1994, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1994 B 5
IÞROTTIR
m m Morgunblaðið/Þorkell
nvigi
ttu um knöttinn við einn ensk varnar-
kveðnari og öruggari í aðgerðum sínum.
NAN
KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILDIN
Góð skemmtun í Grindavík
HEIL umferð var í úrvalsdeildinni í körf uknattleik á sunnudags-
kvöldið. IMjarðvíkingar voru ekki ívandræðum með Hauka, Þór
sigraði Skallagrím, Keflvíkingar höfðu betur gegn Tindastóli fyrir
norðan, KR sigraði Val í Reykjavíkurslagnum og Akurnesingar
gerðu góða ferð á Stykkishólm þar sem þeir sigruðu Snæfeli. En
leikur helgarinnar var viðureign Grindvíkinga og ÍR í Grindavík á
sunnudagskvöld. Það var bráðskemmtilegur leikur og bæði lið
sýndu góð tilþrif. Eftir góða byrjun gestanna sem náðu 12 stiga
forskoti í byrjun bitu heimamenn í skjaldarrendurnar og sneru
leiknum sér f hag og unnu örugglega 109:94.
skrifar frá
Grindavík
Það var ánægjulegl að við skyld-
um ná að spila skemmtilegan
leik og að vinna, bæði fyrir liðið og
áhorfendur. Áhorf-
Frimann endur eiga hrós skil-
Ólafsson ið og sýndu okkur
góðan stuðning þeg-
ar á reyndi og fengu
væntanlega til baka það sem þeir
sóttust eftir, sagði Friðrik Rúnars-
son þjálfari eftir sigurinn á ÍR.
Leikmenn ÍR bytjuðu eins og
grenjandi ljón og náðu að komast í
24:12 um miðjan fyrri hálfleik. Jón
Örn Guðmundsson fór á kostum og
skoraði grimmt úr hraðaupphlaup-
um. Þá tóku heimamenn við sér og
náðu að jafna 26:26 og náðu síðan
yfirhöndinni í leiknum. Helgi Jónas
Guðfinnsson spilaði þar stórt hlut-
verk og kom vörn ÍR hvað eftir ann-
að í vandræði með hraða sínum og
góðum sendingum á samheija.
Grindvíkingar héidu forskoti sín-
um í seinni hálfleik og hefði góður
leikur Herberts Arnarsonar ekki
komið til hefði leikurinn verið léttari
fyrir þá. Hann gerði 6 þriggja stiga
körfur í röð og samtals 27 stig í
hálfleiknum. Félagar hans náðu ekki
að fylgja þessu eftir og sigur Grind-
víkinga var öruggur. Helgi Jónas lék
mjög vel í fyrri hálfleik en sneri sig
og hafði hægar um sig í seinni hálf-
leik. Pétur Guðmundsson sýndi að
hann á heima í byrjunarliðinu, barð-
ist eins og ljón allan leikinn og skor-
aði mikilvægar körfur. Marel, Guð-
mundur og Guðjón stóðu vel fyrir
sínu. Guðmundur gætti John Rhodes
og var mikil barátta þeirra á milli
allan leikinn. Gregory Bell lék sinn
besta leik fyrir Grindavík en gerði
astle skoraði
ðftu stundu
efli gegn Blackburn og er enn taplaust
en á sunnudaginn, en litlu munaði að
Forest tapaði fyrsta leiknum í vetur.
Liðið var undir allt þar til á lokasekúnd-
unum að Woan skoraði. Stan Collymore
kom Forest tvisvar yfir en Irinn Niall
Quinn jafnaði í bæði skiptin fyrir City
og lagði upp þriðja markið sem Steve
Lomas gerði á 70. mín
Þriðja tap meistaranna
Sheffield Wednesday bytjaði illa í
vetur en virðist nú að ná sér á strik.
Eric Cantona og Andrej Kanchelskis
voru hvorugur með United — voru báðir
að spila með landsliðum sínum — og það
veikti lið meistaranna. Heimamenn nýttu
sér það til fullnustu og fögnuðu fyrsta
sigrinum á heimavelli í vetur. Það var
David Hirst sem gerði eina markið.
Vandræði Tottenham halda áfram, en
liðið náði þó jafntefli gegn QPR á heima-
velli. Nicky Nicky Barmby tryggði Spurs
stig með marki á 89. mínútu. Einn úr
hvoru liði var rekinn af velli fyrir slags-
mál; Kevin Scott hjá Spurs og enski
landsliðsframhetjinn Les Ferdinand hjá
QPR. Tottenham, sem Ieikið hefur
ákveðinn sóknarleik í vetur, lagði nú
ríkari áherslu á varnarleikinn en áður.
Liðið var án Rúmenanna Ilie Dumitrescu
og Gica Popescu, sem voru að spila með
landsliðinu í Frakklandi, og enska lands-
I
mikið af klaufavillum.
Jón Örn, Herbert og Rhodes voru
allt í öllu hjá ÍR en breiddin var lítil
og kom það niður á liðinu þegar lykil-
menn þurftu að hvíla..
Njarðvíkingar sterkir
Islandsmeistarar Njarðvíkinga áttu
ekki í teljandi erifðleikum með
Hauka úr Hafnarftrði þegar liðin
mættust í Njarðvík.
Bjöm Haukarnir veittu
Blöndal heimamönnum þó
skrifar frá mótspyrnu framanaf
Njarðvík ; fyrr; hálfleik en
sprungu þá á limminu og Njarðvík-
ingar höfðu leikinn í hendi sér eftir
það. Lokatölur urð 96:67, eftir að
staðan í hálfleik hafði verið 42:30.
Njarðvíkingár hafa leikið vel í
fyrstu leikjum mótsins og þeir virð-
ast ekki árennilegir eins og þeir leika
nú. Haukaliðið sem leikur án erlends
leikmanns og teflir fram nokkrum
ungum og efnilegum leikmönnum
náði þó að hanga í heimamönnum
framan af í fyrri hálfleik. Þeir lentu
þó fljótleg í villuvandræðum og áður
en yfir lauk voru fjórir úr bytjunar-
liðinu komnir útaf með 5 villur.
„Við höfum leikið vel í fyrstu leikj-
unum í mótinu og okkur hefur geng-
ið sérlega vel í byijun í þessum leikj-
um þar sem við höfum fljótlega náð
afgerandi stöðu. Haukarnir börðust
þó af mikilli hörku í kvöld og það
tók okkur tíma að ná tökum á þeim,“
sagði Valur Ingimundarson þjálfari
og leikmaður Njarðvíkinga eftir leik-
inn. Bestir í liði Njarðvíkinga voru
þeir Teitur Örlygsson og Valur Ingi-
mundarson ásamt Rondey Robinson.
Bestir í liði Hauka voru þeir Sigfús
liðsmannsins Darren Anderton, sem er
meiddur. Andy Impey skoraði rétt fyrir
leikhlé en Barmby jafnaði í lokin sem
fyrr segir.
Bruce Grobbelaar, markvörður Sout-
hampton, fór af velli á upphafsmínútum
leiksins gegn Everton með brotið nef
og sprungið kinnbein eftir að hafa lent
í samstuði við andstæðing. Það kom
ekki á sök; David Beasant kom í mark-
ið og Southampton sigraði 2:0 með
mörkum Danans Ekelunds og enska
landsliðsmannsins Le Tissiers.
Neil Ruddock, varnarmaðurinn sterki,
kom Liverpool yfir gegn Aston Villa á
20. mín. og Robbie Fowler skoraði síðan
tvívegis fyrir þetta gamla stórveldi, sem
er greinileg að rétta úr kútnum. Sigur-
inn var öruggari en tölurnar, 3:2, gefa
til kynna. Steve Staunton, fyrrum liðs-
maður Liverpool, minnkaði muninn fyrir
gestina á síðustu mínúturini.
Arsenal sigraði Wimbledon 3:1 á úti-
velli og gerði Ian Wright fyrsta mark
leiksins; það var 101. mark hans fyrir
Arsenal.
Bremen eltir Dortmund
Werder Bremen heldur í við Dortmund
á toppi þýsku 1. deildarinnar. Bremen
sigraði 1860 Munchen á sunnudaginn
1:2 og hefur liðið ekki enn unnið leik í
Reuter
Guðmundur H.
Þorsteinsson
skrifar
Harl barist
Paul Warhurst leikaður Black-
burn og framherjinn Andy Cole,
Newcastle kljást um boltann.
deildinni. Múnchen byijaði þó vel og
skoraði fyrsta mark leiksins á 41.
mínútu en Bremen jafnaði mínútu
síðar og sigurmarkið kom snemma
í síðari hálfleik.
Bremen og Dortmurrd eru jöfn á
toppnum með 13 stig, stigi á undan
HSV sem vann Þórð Guðjónsson og
félaga í Bochum 1:3 á sunnudaginn.
Þórður kom heimamönnum á bragð-
ið með marki eftir að Bochum hafði
verið betra liðið. Markið virtist koma
Hamborgurum í gang og þeir skor-
Gizurarson og Pétur Ingvarsson.
Svart og hvítt á Nesinu
Lið KR vann Val 84:76 á Seljam-
amesi. KR-ingar voru mun
betri í fyrri hálfleik og höfðu fimmt-
án stiga forystu í
hálfleik, en Vals-
menn velgdu þeim
undir uggum í seinni
hálfleik.
Jafnræði var með liðunum til að
byija með, en stígandinn var meiri
í leik KR-inga og þeir gíruðu sig
jafnt og þétt upp á við. Þeir hittu
mun betur, röðuðu niður þriggja
stiga körfunum og Donovan Cas-
anave einokaði nánast sóknar- og
varnarfráköstin.
En það var um miðjan fyrri hálf-
leikinn að KR-ingar settu í yfirgír-
inn, er þeir hreinlega keyrðu yfir
Valsmenn sem ekki skoruðu í fimm
mínútur. Vörn KR-inga var sterk á
þessum kafla og Valsmenn tóku
mikið af þriggja stiga skotum sem
flest hver misstu marks, en staðan
var 45:30 fýrir KR í leikhléi.
í seinni hálfleik gekk „nýtt“ Vals-
lið til leiksins með Bárð Eyþórsson,
fremstan í flokki. Hann sást nánast
ekki í fyrri hálfleik en brilleraði í
þeim seinni og lagði grunninn að
því að Valur jafnaði um miðbik
seinni hálfleik, 61:61. En lengra
hleyptu KR-ingar ekki Valsmönnum,
þeir rifu sig upp úr meðalmennsk-
unni eftir að hafa hikstað aðeins,
og Falur Harðarson fyrirliði keyrði
sína menn í gang með hraðaupp-
hlaupunum á lokakaflanum án þess
að Valsmenn ættu svar.
Hjá KR var liðsheildin sterk og
flestir stóðu fyrir sínu, en Donovan
þarf að fínpússa skotin undir körf-
unni. Bárður Eyþórsson var dtjúgur
fyrir Valsmenn í seinni hálfleik, með
19 stig en hitti lítið í þeim fyrri.
Þriðji sigur Þórs í röð
Þórsarar unnu öruggan sigur á
Skallagrími, 91:70, er liðin
uðu þrívegis á 17 mínútna kafla.
Bayern Múnchen og Kaiserslautern,
sem gerðu jaftefli í síðustu viku, eru
með 11 stig.
Mestu vonbrigði Þjóðveija á HM,
Andy Möller gladdi stuðningsmenn
Dortmund á laugardaginn þegar
hann gerði sigurmarkið í 3:2 sigri
liðsins á Schalke. Þetta var ná-
grannaslagur eins og þeir gerast
bestir því uppselt var á leikinn og
liðin höfðu forystu hvort um sig um
tíma, en Dortmund þegar flautað
var til leiksloka. Möller varð síðan
að fara útaf meiddur og missir trú-
lega af vináttuleik Þjóðveija og
Ungveija á morgun. Karlheinz Ri-
edle mun trúlega líka missa af þeim
leik.
Morten Olsen, hinn danski þjálf-
ari Kölnar, verður líklega ekki mikið
lengur í því starfi. Liðið tapaði enn
einum leiknum á laugardaginn, að
þessu sinni fyrir Sigrfried Held og
lærisveinum hans hjá Dresden. Þetta
var fyrsti sigur Dresden á útivelli á
tímabilinu. Rútan sem flutti leikenn
Kölnar af vellinum ætlaði aldrei að
komast af stað því stuðningsmenn
liðsins vildu ræða við þjálfarann og
forráðamenn liðsins og var greinilegt
að fólkið vildi fá Christoph Daum
sem þjálfara á nýjan leik.
Romario með tvö í í lang-
þráðum sigri Barcelona
Brasilíumaðurinn Romario, sem
lék í fyrsta sinn í þijár vikur, gerði
tvö mörk fyrir meistara Barcelona
gegn Atletico Madrid á laugardag-
inn. Meistararnir, sem voru í níunda
sæti eftir fimm vikur í deildinni og
allt annað en ánægðir með það, sigr-
uðu 4:3 og það voru Josep Guardi-
ola og Hristo Stoichkov sem gerðu
hin mörkin.
fieynir
Eiríksson
skrifar
Maria
Guðnadóttir
skrifar frá
Stykkishólmi
mættust á Akureyri. Þetta er þriðji
sigur Þórsara í röð
og er óhætt að segja
að liðið hafi farið vel
af stað í úrvalsdeild-
inni eftir nokkurra
ára fjarveru þar.
Leikurinn var nokkuð kaflaskipt-
ur og voru það Þórsarar sem byijuðu
vel og náðu strax tíu stiga forskoti.
Undir lok fyrri hálfleiks voru það
hins vegar Borgnesingar sem áttu
góðan kafla og náðu að minnka'
muninn í tvö stig er skammt var til
hlés en Þór gerði síðustu sjö stigin
og leiddi 37:28 er gengið var til
búningsherbergja.
Þórsarar komu mjög ákveðnir til
síðari hálfleiks og tóku hreinlega öll
völd á vejlinum og um miðbik hálf-
leiksins var forskot þeirra orðið 29
stig. Eftir það var aldrei spurning
hvorum megin sigurinn félli, heldur
einungis hversu stór hann yrði. Þeg-
ar upp var staðið var staðan 91:70
Þórsurum í vil.
í heildina voru ágætir leikkaflar
hjá báðum liðum. Hjá Þór áttu þeir
Konráð og Kristinn mjög góðan leik
svo og Sandy Anderson sem er gríð-
arlega öflugur undir körfunni.
Hjá Borgnesingum var Ermolinski
sterkur svo og Tómas Holton sem
átti mjög góða spretti.
Öruggt hjá Skagamönnum
Skagamenn sigruðu Snæfell
nokkuð örugglega, 94:110, í
úrvalsdeildinni í Stykkishólmi á
sunnudaginn.
Hólmarar komu
ákveðnir til leiks og
sýndu oft góðan leik -
í fýrri hálfleik, höfðu
yfírhöndina framan af, en Skaga-
menn náðu að síga fram úr, og
höfðu yfir 49:42 í hálfleik.
í seinni hálfleik var jafnræði með
liðunum til að byija með, Hólmarar
lentu þó fljótlega í villuvandræðum
og áttu slæman kafla um miðjan
seinni hálfleik. Skoruðu Skagamenn
þá átján stig á móti fjórum á fjög-
urra mínútna kafla, og það var of
stór bita að kyngja fyrir lið Snæfells.
Bestur í.liði Snæfells var Þorkell
Þorkelsson,' einnig áttu Daði og
Veigur ágætan leik. í liði Skaga-
manna var Haraldur Leifsson best-
ur, Sullen og ívar tóku ágæta spretti
og skoruðu mikilvæg stig.
Hraði og fjör á Króknum
Keflvíkingar sigruðu Tindastól
110:97 fyrir norðan.
Fyrri hálfleikur var mjög
skemmtilegur, ör-
ugglega besti hálf-
leikur Tindastóls í
vetur. Keflvíkingar
áttu í mesta basli
með hið unga lið heimamanna, en
hjá gestunum mikið byggðist á
Burns, sem lék mjög vel, ásamt
Grissom. Ómar Sigmarsson og John
Torrey — sem gerði fjórar 3ja stiga
körfur í röð — léku best hjá Tinda-
stóli. Liðin skiptust á að hafa foryst-
una, og aldrei munaði meiri en fjór-
um stigum.
Mikil barátta var í síðari hálfleik
en fljótlega skildi þó á milli; Tinda-
stólsmenn komust fljótlega í villu-
vandræði, leikreynslan og breiddin
hjá Keflvíkingum sagði til sín og
þeir náðu fljótlega forystu sem þeir
juku jafnt og þétt við. Mestu mun-
aði um að Grissom kom gífurlega
ákveðinn í seinni hálfleik og lék
sérlega vel. Hann og Burns gerðu
17 stig hvor um sig í hálfleiknum.
Tindastóll missti Ómar Sigmars-
son út af með 5 villur er 5 mín.
voru eftir og í lokin voru Hinrik,
Arnar og Sigurvin allir komnir með
fjórar villur í heimaliðinu, þannig
að ekkert mátti út af bregða. Und-
ir lokin komu tveir 16 ára strákar,
Arnar Kárason og Atli Björn Þor-
björnsson, inná hjá Tindastóli og
stóðu vel fyrir sínu í erfiðri stöðu.
Frá Bimi
Bjömssyni á
Sauöárkróki