Morgunblaðið - 11.10.1994, Blaðsíða 8
KNATTSPYRNA
Iþrómr
ANDRÚMSLOFTIÐ í Víkinni var nánast rafmagnað á lokamínútun-
um í stórskemmtilegum leik Víkings og FH á sunnudaginn. Hark-
an og spennan jókst jafnt og þétt í leiknum og á síðustu mínútu
höfðu Hafnfirðingar möguleika á að jafna, eftir að Víkingar höfðu
leitt allan leikinn, en það gekk ekki upp og Víkingar sigruðu 26:25.
Flatar varnir beggja liða gerðu
það að verkum að mikið var
um snertingar þegar liðin reyndu
að keyra í gegnum
varnimar. Mikið var
Stefán um brot og frá upp-
Stefánsson hafi áttu dómaramir
s nar í mesta basli með
að halda tökum á leiknum. Margir
dómar þeirra orkuðu tvímælis og
oft gætti verulegs ósamræmis í
dómum. Brottrekstrar komu nokkr-
um sinnum á óvart og óhætt að
segja að hallað hafí á Víkinga.
Heimamönnum gekk samt betur
og misstu aldrei forystuna, náðu
mest þriggja marka forskoti en þá
fóru gestirnir að finna leiðir í gegn.
Undir lok fyrri hálfleiks gladdi Sig-
urður Sveinsson hjörtu áhorfenda,
fyrst með þrumufleyg utan teigs
og síðan með lúmsku gegnumbroti
en þijú mörk Hans Guðmundssonar
héldu forskoti heimamanna í einu
marki í leikhléi, 12:11.
Bjarki Sigurðsson gerði fyrstu
fímm mörk Víkinga eftir hlé, sem
jók forskotið -aftur í fjögur mörk,
18:14. En mikil barátta gestanna
minnkaði stöðugt bilið og eftir þijú
mörk í röð, þegar nokkrar mínútur
voru eftir, munaði einu marki. Liðin
skoruðu síðan sitthvort markið og
þegar hálf mínúta var eftir, fiskaði
Sigurður Sveinsson Víkingur víti
sem Magnús Ámasori varði frá
Bjarka og í miklum darraðadansi í
lokin tókst FH ekki að skora.
Víkingar náðu að halda haus
næstum því út allan leikinn og það
dugði. „Við reyndum ótímabær skot
og erum alltaf að missa niður unna
leiki, þó það hafi sloppið nú, og
FH-ingar eru sterkir og kunna sitt
fag. Annars munaði mestu að við
spiluðum nú með hjartanu, leikgleð-
in var mikil og leikmenn fögnuðu
mörkunum vel. Ef vörnin verður í
lagi og leikgleðin til staðar, held ég
að fátt geti stoppað okkur í vetur,“
sagði Magnús I. Stefánsson mark-
vörður sem varði skot í öllum regn-
bogans litum, flest úr opnum færum.
Bjarki fór einnig á kostum og var
illstöðvanlegur. Birgir Sigurðsson
vann vel á línunni og Rúnar Sig-
tryggsson var óragur við að bijótast
áfram en hann á samt greinilega
eftir að falla betur inní leik liðsins.
Lítið sást af Sigurði, sem náði samt
að sýna hvernig á að skora með stæl.
FH notaði átta útileikmenn og
skoruðu sjö af þeim mörk. Þessir
ná vel saman en spurning hvort það
dugar í allan vetur. „Það sem okkur
vantaði var húngur í sigur, þetta
var köflótt hjá okkur og ekki nógu
gott. Við erum ekki með síðra lið
en Víkingar og ætlum á toppinn
og halda okkur þar,“ sagði Guðjón
Árnason sem ásamt Hans Guð-
mundssyni hélt uppi leik liðsins en
Hans var mjög sterkur. Magnús
varði oft úr opnum færum en Gunn-
ar Beinteinsson og Sigurður Sveins-
son áttu ágæta kafla.
Altlaf súrt að tapa
- sagði Þorbjörn Jensson, þjálfari íslandsmeistara Vals
ÍSLANDSMEISTARAR Vals
töpuðu síðari leiknum gegn
danska liðinu Kolding 22:26 í
Evrópukeppni meistaraliða á
sunnudaginn og eru úr leik í
keppninni. Liðin skildu jöfn,
27:27, í fyrri viðureign liðanna
á föstudagskvöld. Báðir leikirn-
ir fóru fram f Danmörku.
Það blés ekki byrlega fyrir Vals-
mönnum í byijun leiks því
þeir skorðu ekki fyrstu 9 mínútur
leiksins á meðan danska liðið gerði
sex mörk. En síðan náðu Islands-
meistaramir góðum leikkafla og
gerðu næstu sjö mörk og komust í
7:6. í leikhléi var staðan 10:11 fyr-
ir Kolding.
Síðari hálfleikur byijaði álíka og
sá fyrri. Danirnir gerðu fyrstu þijú
mörkin og héldu þeirri forystu þar
til um miðjan hálfleikinn að Vals-
menn náðu að minnka muninn í tvö
mörk, 19:21. Þá fékk Dagur Sig-
urðsson rauða spjaldið fyrir þriðju
brottvísun sína og þá fór aftur að
halla undan fæti hjá Val. Danimir
tóku völdin á vellinum með aðstoð
dómaranna, sem voru þeim mjög
hliðhollir að mati Þorbjöms Jens-
sonar, þjálfara. Loktaölumar urðu
22:26.
Þorbjörn sagði að leikurinn hafí
verið mjög grófur og leyfðu sænsku
dómararnir mikla hörku. „Það er
alltaf súrt að tapa en þetta er alltaf
hættan þegar leikir eru seldir úr
landi. Við hefðum átt mun meiri
möguleika hefðum við kosið að spila
heima. Ég held að^þessi lið séu
svipuð að styrkleikÉf og því skipti
heimavöllurinn sköpum í þessum
leik,“ sagði Þorbjörn.
„Markmiðið fyrir tímabilið var
að ná skuldum Vals niður og því
var leikurinn seldur út. Þetta er
stundum keypt dýru verði og við
urðum að bíta í það súra epli að
falla úr keppni. Það hefur ekki ver-
Þorbjörn var ekkl ánægður með dómgæsluna, en sagðl að helmavöllurlnn hafi ráðlð úrslitum.
ið góð reynsla fjárhagslega fýrir
félagið að leika Evrópuleiki heima
á íslandi á haustin. Við höfum ver-
ið að bjóða upp á lið eins og Essen
og Barcelona en það koma allt of
fáir áhorfendur," sagði Þorbjöm.
Urslit / B6
5000. Evrópumarkið
Sigfús Sigurðsson skoraði þrettdánda mark Valsmanna í seinni leikn-
um gegn Kolding, sem var jafnframt 5000. markið hjá íslensku fé-
lagsliði í Evrópukeppni, eða síðan Fram lék fyrsta Evrópuleikinn
gegn Skovbakken í Danmörku 1962.
Rafmagnað í Víkinni
Þórður
meiddur
Þórður Guðjónsson leikur ekki
með 21 árs landsliðinu gegn
Tyrkjum í dag, hann meiddist lítil-
lega um helgina og fór ekki til
Tyrklands. Þórður lék með Bochum
gegn HSV um helgina og gerði eina
mark Bochum í 3:1 tapi liðsins.
„Þetta var ágætt mark og vel að
því staðið. Ahorfendur voru ekki
beint hrifnir að við skyldum skora,
en svo fengu þeir vítaspyrnu og
jöfnuðu og bættu svo við tveimur
mörkum," sagði Þórður í samtali
við Morgunblaðið í gær.
„Þetta eru meiðsli í öklanum sem
ég hef átt í síðan í apríl. Ég fékk
spark í hann um helgina og öklinn
er mikið bólginn núna en ég ætla
að reyna að hlaupa aðeins á morg-
un [í dag] og ef það verður í lagi
gæti ég allt eins leikið í botnslagn-
um gegn 1860 Múnchen á föstudag-
inn. Ég fór ekki til Tyrklands vegna
þess að ég hefði aldrei getið leikið
og því óþarfi að vera að fara þang-
að,“ sagði Þórður.
Þeir byrja
gegn
Tyrkjum
Asgeir Elíasson, landsliðs-
þjálfari, tilkynnti í gær-
kvöldi hvernig byijunarlið ís-
lands væri í 21 árs leiknum
gegn Tyrklandi í kvöld. Eggert
Sigmundsson er í markinu,
Pálmi Haraldsson hægri bak-
vörður og Hákon Sverrisson
vinstri bakvörður. Miðverðir
eru Pétur Marteinsson og Auð-
unn Helgason. Guðmundur
Benediktsson er á hægri kanti
og Tryggvi Guðmundsson á
vinstri kanti. Lárus Orri Sig-
urðsson og Kristinn
Hafliðason eru á miðjunni og
Eiður Smári Guðjohnsen fyrir
framan þá. Helgi Sigurðsson
er í fremstu víglínu.
Varamenn eru Atli Knúts-
son, Kári Steinn Reynisson,
Guðmuridur Gíslason og Ottó
Karl Ottósson.
Bjami með
Breiðablik
Bjarni Jóhannsson var um helg-
ina ráðinn þjálfari 1. deildar
liðs Breiðabliks í Kópavogi og var
samningur undirritaður í hinu nýja
og glæsilega íþróttahúsi sem verður
fljótlega fullbúið.
Bjarni sagði að sér litist vel á
alla umgjörð hjá Blikunum og sagð-
ist vonast til að sami mannskapur
yrði hjá félaginu næsta sumar.
Aðspurður um hvort einhveijir ættu
eftir að bætast í hópinn sagði
Bjarni: „Það veit maður aldrei, en
það er ekkert farið að tala um það.“
Ulfar þjálfar
KR-stúlkur
Ufar Daníelsson hefur verið ráð-
inn þjálfari meistaraflokks
kvenna hjá KR. Úlfar, sem er 35
ára, tekur við starfi Örnu Steinsen.
Hann hefur þjálfað yngri flokka hjá
FH undanfarin átta ár með góðum
árangri, síðasta keppnistímabil
þjálfaði hann kvennalið FH.
ENGLAND: 11X 1X1 1X1 21X1 ITALIA: 1X1 211 12X 1 X X X
HANDKNATTLEIKUR