Morgunblaðið - 13.11.1994, Blaðsíða 22
22 B SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER1994
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUA UGL YSINGAR
„Au pair“ - Svíþjóð
íslensk hjón óska eftir reyklausri „au pair“
(20 ára eða eldri) til að gæta tvegga ára
barns og sinna heimilisstörfum frá
áramótum.
Upplýsingar í síma 654155, Margrét.
Rekstrarstjóri
Gistiheimili á stór-Reykjavíkursvæðinu er að
leita að rekstrarstjóra.
Aðeins ábyggileg manneskja með reynslu
af slíkum rekstri kemur til greina.
Þeir, sem áhuga hafa, leggi umsóknir inn á af-
greiðslu Mbl., merktar: „GS- 911 “, fyrir 20. nóv.
Skiltagerð
óskar eftir vönum starfsmanni í fast starf
við að líma merkingar á skilti, glugga, bíla
og fleira.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl., merktar:
„Skilti - 3298“, sem fyrst.
Kvenfataverslun
í miðbænum óskar eftir starfskrafti, á aldrin-
um 35-55 ára, strax. Vinnutími er frá kl. 12-17
á reyklausum vinnustað.
Umsóknir, er greini aldur og fyrri störf, sendist
afgreiðslu Mbl. fyrir 18. nóvember,
merktar: „Hlutastarf - 16019“.
Hlutastarf
Óskum að ráða starfsmann í afgreiðslustörf.
Viðkomandi þarf að hafa góða þjónustulund,
vera eldri en 25 ára og hafa áhuga á listmunum.
Áhugasamir skili skriflegum umsóknum til
afgreiðslu Mbl., merktar: „Listmunir-7603",
fyrir 17. nóvember.
c^míðar & c^kart
Suðurlandsbraut 52,
bláu húsin við Fákafen.
ÍSGÁTT
Tæknifólk
SKÍMA hf. rekur tölvupóstmiðstöðina ÍSGÁTT. Fjölmörg innlend fyrirtæki
tengja tölvu^óstkerfi sín saman um ÍSGÁTT. Þá er ÍSGÁTT tengd öðrum
X.400-landskerfum og Internet.
Leitað er að tölvunarfræðingi, tæknifræðingi
eða verkfræðingi til að hafa umsjón með
Unix-stýrikerfi og ýmsum tengingum í því
umhverfi, t.d. tengingum við Internet og X.25.
Viðkomandi þarf að kunna ensku og hafa
þjónustulund sem hæfir í framsæknu þjón-
ustufyrirtæki.
Umsóknir sendist til SKÍMU hf., Lágmúla 8,
108 Reykjavík, fyrir 19. nóvember nk.
Nánari upplýsingar veitir Dagný Halldórs-
dóttir í síma 88 33 38.
Skrifstofustarf
Óskum að ráða starfskraft í fullt starf.
Starfssvið: Merking, færsla og afstemming
á bókhaldi, umsjón með launum og almenn
skrifstofustörf.
Góð þekking eða reynsla í bókhaldi nauðsyn-
leg og enskukunnátta.
Umsóknir er greini frá aldri, menntun og fyrri
störfum, sendist til Strýtu hf. v/Laufásgötu,
600 Akureyri, fyrir 18. nóvember,
merktar: „Bókari - 7605“.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
Auglýsingahönnuður
Hönnunarfyrirtæki í London hyggst opna
litla skrifstofu í Reykjavík.
Leitað er að góðum hönnuði sem þekkir vel
Freehand, Quark og Photoshop. Menntun
í hönnun eða skildum greinum og/eða reynsla
á sviði auglýsingagerðar er nauðsynleg.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu okkar.
Umsóknarfrestur er til 20. nóvember nk.
Gudni Tónssqn
RÁÐCJÖF & RÁÐNll NCARÞjÓN USTA
TIARNARGÖTU H. 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Bakarí
Okkur vantar nú þegar starfsfólk
í eftirtalin störf:
Pökkun, vinnutími kl. 6-12 f.h.
Afgreiðsla, vinnutími kl. 7.30-13.30
og 13.30-19.00.
Okkar kröfur eru samviskusemi, snyrti-
mennska, stundvísi og glaðlegt viðmót.
Umsóknum óskast skilað til afgreiðslu Mbl.
ekki síðar en 17/11, merktar: „Bakarí- 7609.
Öllum umsóknum verður svarað.
Kviksýn
Óskum eftir góðum sölumanni til að selja
auglýsingar á Ijósaskilti á Lækjartorgi og við
Kringluna. Um er að ræða fullt starf við
spennandi verkefni, sem getur gefið réttum
aðila góðar tekjur. Reynsla af markaðsmálum
æskileg og eigin bifreið skilyrði.
Áhugasamir hafið samband við Kviksýn
í síma 689938.
KViKSÝN
auglýsingamiðlun.
Nuddarar-
snyrtif ræðingar -
fótaaðgerðafræðingar
Höfum til leigu góða aðstöðu í miðbæ
Hafnarfjarðar.
Upplýsingar frá kl. 13—17 í síma 653085.
Sól og sæla,
Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði.
Spennandi starf
fyrir duglegt
sölufólk
Við leitum að kraftmiklu og metnaðarfullu
sölufólki á aldrinum 25-45 ára, sem vill taka
að sér heimakynningar á vegum Sjónvarps-
markaðarins. Um er að ræða vörur frá
þekktu, bresku tískufyrirtæki.
Góð framkoma og snyrtimennska nauðsynleg.
Skemmtilegt starf og góð sölulaun í boði.
Áhugasamir sendi umsóknir sínar til af-
greiðslu Mbl., merktar: „X - 6511 “, í sfðasta
lagi mánudaginn 21. nóvember.
Sjónvarps
markaðurinn
Áskriftarsala
TÍmaritið Nýir tímar óskar eftir fólki til sölu
áskrifta. Um símsölu er að ræða.
Aðeins vant fólk kemur til greina.
Upplýsingar á skrifstofu Nýrra tíma
í Ármúla 15 eða í síma 813595.
Afgreiðslustarf
Opnum 1. des. nýja verslun á Laugavegi 81.
Leitum að hressu og áhugasömu starfsfólki.
Hafirðu áhuga, þá hafðu samband við Reyni
í verslun okkar í Kringlunni.
Matreiðslumaður
Óskum eftir að ráða matreiðslumann til
starfa frá og með 1. janúar 1995. Starfið
felst m.a. í daglegri umsjón með eldhúsi og
eldamennsku, innkaupum á hráefni o.fl.
Skriflegar umsóknir berist til skrifstofu dval-
arheimilisins Áss/Ásbyrgi, Hverahlíð 23b,
810 Hveragerði, fyrir 1. desember.
Nánari upplýsingar veittar í síma 98-34289
milli kl. 10 og 12 alla virka daga.
Dvalarheimilið Ás/Ásbyrgi.
Stúdentar eru vanir
að vinna!
8.000 nemendur með margskonar reynslu
og menntun vantar vinnu í jólafríinu.
Tökum öll störf á skrá, jafnt heilsdagsstörf
sem hlutastörf og ígrip.
Ókeypis skráning.
Atvinnumiðlun SHÍ og BÍSN,
Stúdentaheimilinu við Hringbraut,
sími 621080, fax. 621040.
Traustfyrirtæki
Óskum eftir dugmiklu og skemmtilegu fólki
til sölustarfa á kvöldin og um helgar. Góð
aðstaða og vinnuandi. Frábær verkefni og
miklir tekjumöguleikar hjá traustu fyrirtæki.
Upplýsingar í'síma 887611 í dag, sunnudag,
kl. 14-16 og mánudag kl. 10-12 og 14-16.
Mál
og menning
FAGURBÓKMENNTIR1Q QA
OG FRÓÐLEIKUR