Morgunblaðið - 24.11.1994, Page 2
2 C FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYIMDIR VIKUNIMAR
Sjónvarpið
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER
VI QO 1 C ►Leynivopnið (Secret
1*1. 44. 19 Weapon) Banda-
rísk/áströlsk sakamálamynd. ísraelsk-
ur vísindamaður, sem býr yfir þekk-
ingu um kjarnorkuáætlun ísraela, flýr
til Ástralíu og Mossad, ísraelsku leyni-
þjónustunni, er falið að ná honum til
baka.
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER
Kl. 21.35
og aurar
ey Talks) Bresk
bíómynd frá 1990
byggð á sögu eftir Graham Greene
um hjón sem eyða hveitibrauðsdögun-
um í Monte Carlo. Eiginmaðurinn
reynir fyrir sér í spilavíti og stefnir
hjónabandinu í voða.
VI 00 nc ►Vegferðin (Voyager)
III. 4u.Ull Þýsk/frönsk/gnsk
bíómynd frá 1991 byggð á skáldsög-
unni Homo Faber eftir Max Frisch.
Hér segir frá kynnum bandarísks
verkfræðings af ungri konu og minn-
ingum sem vakna með honum um
óútkljáð mál úr fortíðinni.
SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER
VI 00 J[n ►Skuggar í paradís
III. 44.4U (Varjoja paratiisissa)
Finnsk kvikmynd eftir Aki Kaurismáki
um ástir öskubílstjóra.
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER
Kl. 21.20^1,,,,
feðranna
Hrafns
Gunnlaugssonar frá 1980. Eftir andlát
föður sfns ákveður Helgi að halda á
eftir bróður sínum Stefáni til Reykja-
víkur í framhaldsnám. Hvorugur
bræðranna hefur áhuga á búskap og
þeir ákveða að telja móður sína á að
bregða búi.
Stöð tvö
FÖSTUDAGUR 25. NOVEMBER
MOO 0(1 ►Fram í sviðsljósið
■ LL.lU (Being There) Ein-
feldningur sem hefur alla tíð unnið
við garðyrkjustörf í algjörri einangrun
og ekki kynnst umheiminum nema í
gegnum sjónvarp, lendir dag einn í
hringiðu mannlífsins með stórfurðu-
legum afleiðingum.
n QC ►Dýragrafreiturinn 2
U.UU (Pet Semetary 2)
Sjálfstætt framhald fyrri myndarinnar
sem var gerð eftir sögu Stephens King.
Feðgarnir Chase og Jeff flytjast til
smábæjarins Ludlow eftir að hafa orð-
Kl.
STÖÐ tvö
ið fyrir miklu áfalli í Los Angeles.
Jeff er lagður í einelti af skólafantin-
um Clyde en eignast nýjan vin sem
heitir Drew. Stjúpfaðir Drews er
hrottafenginn náungi sem drepur
hundinn hans og drengirnir ákveða
að grafa hvutta í hinum illræmda
dýragrafreit. En þeir vita ekki hvaða
hörmungar það getur haft í för með
sér.
VI Q |l|►Hart á móti hörðu
III. L.IU (Marked for Death)
Harðjaxlinn Steven Seagal er í hlut-
verki fíkniefnalöggunnar Johns
Hatcher sem snýr heim til Bandaríkj-
anna eftir að hafa starfað á erlendri
grundu. Hann kemst að því sér til
mikillar skelfingar að dópsalinn
Screwface heldur gamla hverfinu hans
í heljargreipum og sér að við svo búið
má ekki standa.
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER
VI 04 CC ►Hinir vægðarlausu
III. L I.UU (Unforgiven) Stór-
mynd sem hlaut fern Öskarsverðlaun
árið 1992 og var meðal annars kjörin
besta mynd ársins. Hér greinir frá
Bill Munny sem var alræmdur byssu-
bófí en dró sig í hlé fyrir ellefu árum
og hokrar nú við þröngan kost ásamt
bömum sínum. Dag einn ríður The
Schofield Kid í hlað og biður Munny
að hjálpa sér að hafa uppi á eftirlýst-
um kúrekum en fé hefur verið lagt
til höfuðs þeim. Munny fellst á þetta
enda er hann í miklum Ijárhagskrögg-
um. Stranglega bönnuð börnum.
VI II |n►Klárir í slaginn 3
III. U. I U (Grand Slam 3) Vinir
okkar Hardball og Gomez eru mættir
til leiks þriðja sinni og við fylgjumst
með þeim vinna að tveimur ólíkum
málum sem reyna mjög á taugamar.
Hardball hefur verið sektaður um
12.000 dali fyrir að tuska til vand-
ræðagemling nokkum en er fljótur að
gleyma því þegar þeir félagar fá nýtt
og krefjandi mál í hendur.
Bönnuð börnum.
VI 1 y|C ►Konunglega ótuktin
III. 1.40 (Graffíti Bridge)
Prince tekur upp þráðinn þar sem frá
var horfið í Purple Rain og leiðir okk-
ur um dularheima næturlífsins þar
sem trúin, tónlistin og ástin eru alls-
ráðandi.
Mq 1 C ►Hildarleikur (Salute
■ U.lll 0f the Jugger) Spenn-
andi og óhugnanleg mynd með Rutger
Hauer í aðalhlutverki. Hér segir af
þeim sem lifa af kjarnorkustyijöld og
heyja harða baráttu fyrir lífi sínu.
Söguhetjumar ná mikilli leikni í frum-
legum en hættulegum leik og nota það
sér til framdráttar.
SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER
VI 0 4 níl ►Aðkomumaðurinn
III. L I.UU (A Perfect Stranger)
Hjónin Raphaella Phillips og John
Henry hafa lengi verið hamingjusöm
í hjónabandi. Hann er 40 árum eldri
en hún og þegar hann veikist og ligg-
ur banaleguna hlúir hún að honum
og helgar honum alla sína krafta. Um
þær mundir kynnist hún myndarlegum
og aðlaðandi manni að nafni Alex
Hale og hann veitir henni huggun í
raunum hennar.
VI QQ qn ►Ferðin til Vestur-
III. 4u.uU heims (Far and
Away) Joseph Donelly er eignalaus
leiguliði á írlandi sem gerir uppreisn
gegn ofríki landeigandans Daniels
Christie en fellur flatur fyrir dóttur
hans, Shannon, og saman ákveða þau
að láta drauma sína rætast í Vestur-
heimi.
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER
VI II 4n ►Hundaheppni (Pure
III. U. IU Luck) Dóttir milljóna-
mæringsins George Hammersmiths
hverfur sporlaust á ferðalagi í Mexíkó
og faðirinn veit að aðeins sá sem er
jafn seinheppinn og dóttirin getur
fundið hana. Hann ræður því Eugene
til að leita vandræðabarnið uppi og
sendir með honum harðsnúinn einka-
spæjara.
ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER
VI oq Jin ► Á hálum ís (Cutting
III. 4Ú.4U Edge) Rómantísk
gamanmynd um tvo gjörólíka og
þijóska íþróttamenn, karl og konu,
sem stefna að því að fá gullverðlaun
fyrir listhlaup á skautum á Ólympíu-.
leikunum.
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER
VI Oq nc ►Kennarinn (To Sir
III. LU.Ull With Love) Jjidney
Poitier leikur kennara sem tekur að
sér kennslu í skóla í London. Orðspor-
ið, sem fer af skólanum, er fjarri því
að vera gott eins og hann fær að
kynnast en með óvenjulegum aðferð-
um ávinnur hann sér traust og virð-
ingu krakkanna.
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER
VI qq yan ► Banvæn kynni (Fat-
Ul. 44.4U a/ Love) Alison Gertz
hefur ekki getað jafnað sig af flensu
og fer í rannsókn á sjúkrahúsi í New
York. Niðurstöðurnar eru reiðarslag
fyrir hana, foreldra hennar og unn-
usta: Hún er með alnæmi.
BÍÓIN í BORGINNI
Arnaldur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson
BIÓBORGIN
Sérfræðingurinn -k'h
Afleit dramatík og ástarleikir í andar-
slitrunum í flottum umbúðum. Leik-
stjórinn, Stallone og Stone hefðu mátt
stúdera Síðasta tangó í París fyrir
tökurnar. Örfá góð átakaatriði bjarga
myndinni frá núllinu.
/ biíðu og stríðu k -k
Áfengisböl húsmóðurinnar Meg Ryan
setur heimilislífið á annan endann.
Meiningin er góð en útkoman sætsúpa
með örfáum piparkornum.
Fæddir morðingjar k * *
Áhrifamikil háðsádeila Olivers Stones
á ofbeldisdýrkun og fjölmiðlafár í
Bandaríkjunum byggist á stöðugu
áreiti í frábærlega hugvitsamlegrí
myndgerð. Ofbeldis- og öfgafull, djörf
og mjög vel leikin.
BÍÓHÖLLIN
Sérfræðingurinn (sjá Bíóborgina)
Risaeðlurnar k k
Heldur tilþrifalítil teiknimynd frá
Spielberg um uppáhalds gæludýrin
hans. Einungis fyrir smáfólkið.
Leifturhraði k * k'/i
Æsispennandi frá upphafi til enda,
fyndin og ótrúlega vel gerð. Hasar-
mynd eins og þær gerast bestar.
Sannar lygar * * k'/z
Leikstjórinn, James Cameron, slær öll
fyrri met í brellugerð og Arnold
Schwarzenegger endurheimtir nafn-
bótina konungur hasarmyndanna í
bæði spennandi og skemmtilegri topp-
afþreyingarmynd sem líður eilítið fyrir
rómantískan millikafla.
Forrest Gump kirk'/i
Tom Hanks fer á kostum í frábærri
mynd um einfelding sem ferðast um
sögu Bandaríkjanna síðustu þijá ára-
tugina og lendir í ýmsu. Ljúfsár,
skemmtileg, fyndin, gerð með ríkri
saknaðarkennd og einstaka sinnum
ber fyrir sönnum kvikmyndalegum
töfrum.
HÁSKÓLABÍÓ
/ loft upp * k
Það er flest alit uppíloft í hálf misiukk-
aðri spennumynd þar sem ekkert
stendur uppúr annað en góðar brellur
og magnaðar sprengingar. Jeff
Bridges tekur hlutverkið of alvarlega
miðað við innihald myndarinnar.
Hvítur kkk
Blár var góð, Hvítur enn betri í þrennu
Kieslovskis um undirstöðuatriði lýð-
ræðis. Meinfyndin söguskoðun um
ástandið í Póllandi en fyrst og fremst
snýst hún um mannlegar tilfínningar.
Bein ógnun k k k
Harrison Ford í essinu sínu i mjög
góðri spennumynd um ólöglegar leyni-
aðgerðir gegn kókaínbarónum Kól-
umbíu. Ford má ekki vamm sitt vita
og lendir upp á kant við sjálfan forset-
ann. Fínasta mál.
Forrest Gump * * *'A
Tom Hanks fer á kostum í frábærri
mynd um einfelding sem ferðast 'um
sögu Bandaríkjanna síðustu þijá ára-
tugina og lendir í ýmsu. Ljúfsár,
skemmtileg, fyndin, gerð með ríkri
saknaðarkennd og einstaka sinnum
ber fyrir sönnum kvikmyndalegum
töfrum.
Næturvörðurinn kkk
Verulega góður danskur tryllir sem
gerist í líkhúsi. Ekta spenna og óhugn-
aður í bland við danskan húmor gerir
myndina að hinni bestu skemmtun.
Fjögur brúðkaup og jarðarför
kkk
Mjög góð rómantísk gamanmynd um
alít það sem getur gerst við fjögur
brúðkaup og eina jarðarför. Hugh
Grant fer á kostum.
LAUGARÁSBÍÓ
Gríman * k'A
Skemmtileg og fjörug mynd í hasar-
blaðastíl um mannleysu sem verður
ofurmenni þegar hann finnur dular-
fulla grímu. Jim Carrey fer með titil-
hlutverkið og er ekkert að spara sig.
Dauðaleikur k *
Ice T er mennsk bráð sem á fótum
sínum og ráðsnilld fjör að launa undan
forríkum, hálfóðum veiðimönnum.
Fyrirsjáanleg og kraftlítil.
REGNBOGINN
Reyfari ***'/%
Frábær verðlaunamynd eftir Tarant-
ino um líf og örlög bófa í Los Angeles.
Einkar safaríkt leikaralið fer á kostum
í vel mótuðum og skrifuðum hlutverk-
um og hér endurfæðist John Travolta.
Tarantino er maður framtíðarinnar.
Lilli er týndur k k
Brandaramynd um þijá þjófa og raun-
irnar sem þeir lenda í þegar þeir ræna
níu mánaða milljónaerfingja. Virkar
eins og leikin teiknimynd.
Allir heimsins morgnar kkk
Listræn frönsk stórmynd sem er seint
á ferð og slitin en hvalreki fyrir unn-
endur góðra mynda engu að síður og
fjallar um lífið andspænis listinni.
SAGABÍÓ
/ loft upp * * Það er flest allt uppí-
loft í hálf mislukkaðri spennumynd
þar sem ekkert stendur uppúr annað
en góðar brellur og magnaðar spreng-
ingar. Jeff Bridges tekur hlutverkið
of alvarlega miðað við innihald mynd-
arinnar.
Villtar stelpur *'A
Reynt að hressa upp á vestraklisjur
með því að hafa kvenfólk í aðalhlut-
verki. Það gengur ekki upp frekar en
annað.
STJÖRNUBÍÓ
„Threesome“ **'A
Rómantísk gamanmynd úr ameríska
háskólalífinu þar sem tveir strákar og
ein stelpa mynda skondinn þríhyrning.
Margt skemmtilegt og klúrt en mynd-
in ristir grunnt.
Það gæti hent þig * *'h
Lottóvinningur setur lífið úr skorðum
hjá þremur persónum. Ágæt gaman-
mynd sem á sína góðu spretti en dal-
ar heldur er á líður. Nicolas Cage og
Rosie Perez í toppformi.
Úlfur ***
Úlfmaðurinn endurvakinn og settur í
fyrsta flokks umbúðir Hollywoodsnill-
inga. Sjálfsagt stendur varúlfsgoð-
sögnin í mörgum, þar fyrir utan er
Úlfur afar vönduð í alla staði og Nich-
olson í toppformi.
Bíódagar **'/%
Friðriki Þór tekst frábærlega að end-
urskapa horfinn tíma sjöunda áratug-
arins í sveit og borg en myndin líður
fyrir stefnuleysi í síðasta hlutanum.
Góður leikur, sérstaklega þeirra í
sveitinni.