Morgunblaðið - 13.01.1995, Side 4
ÍÞRÚmR
SMffrjpittliIafcft
HANDKNATTLEIKUR / EM
Guðjón Árnason bjartsýnn fyrir Evrópuleik FH gegn GOG
Við förum í
undanúrslit
með toppleik
^jikarmeistarar FH í handknatt-
leik hefja árið með Evrópuleik
í Kaplakrika á morgun þegar þeir
taka á móti danska liðinu GOG í
átta liða úrslitum Evrópukeppni
bikarhafa. „Með toppleik eigum við
möguleika á að sigra með fjórum
til sex mörkum sem á að nægja
til að komast í undanúrslit," sagði
Guðjón Arnason, fyrirliði FH, við
Morgunblaðið i gær.
Erum á uppleið
FH-ingar hafa ekki leikið í tæp-
an mánuð, gerðu jafntefli við Aft-
ureldingu 17. desember sem er
eina jafntefli þeirra í deildinni en
þeir hafa sigrað í 10 leikjum og
tapað fimm. „Það var þreyta í
þessu hjá okkur fyrir jól, en æfing-
arnar að undanförnu sýna að við
erum á uppleið og við erum í fínu
formi,“ sagði Guðmundur Karls-
son, þjálfari FH. „Samt má segja
að við séum að fara á blint stefnu-
mót en danska liðið er léttleikandi
og ég á von á að við fylgjum því
eftir og spilum skemmtilega."
73. Evrópuleikurinn
FH tók fyrst þátt í Evrópu-
keppni fyrir 30 árum og verða leik-
mennimir frá 1965 heiðursgestir á
morgun. Fyrir 20 árum komst FH
í átta liða úrslit og í undanúrslit
fyrir 10 árum. Leikurinn á morgun
verður 73. leikur félagsins í Evr-
Haukar hefja sig til flugs
LEIKMENN Hauka hefja sig til flugs i dag, þegar
þeir halda til Portúgal til að leika gegn Braga í
8-liða úrslitum í Evrópukeppni félagsliða í hand-
knattleik. Haukar fara til Portúgals með leiguvél,
ásamt 150 manna stuðningsmannahópi. Þetta er
ekki í fyrsta skipti sem Haukar fara með leigu-
flugi í leik í Evrópukeppni. Leikmenn Hauka fóru
með tveimur litlum leiguflugvélum til Færeyja
1980, þar sem þeir léku sína fyrstu Evrópuleiki —
gegn Kyndil í Evrópukeppni bikarhafa, eða Europa
cup fyri steypavinnarar, eins og Færeyingar segja.
Þá unnu þeir báða leiki sína — fyrst 30:15 í Vági
og síðan 23:19 í Nabba. Nú er stóra spurningin
hvort þeim tekst að endurtaka leikinnn i Portúgal?
ópukeppni og sá fyrsti gegn
dönsku liði en eftir 31 sigurleik,
sex jafntefli og 35 töp er markatal-
an hagstæð, 1.597:1.596. „Við
ætlum að bæta markatöluna í þess-
ari umferð,“ sagði Guðjón en ljóst
er að FH-ingar verða að hafa fyrir
hlutunum. GOG er í efsta sæti
dönsku deildarinnar og síðan
1989/90 hefur liðið ávallt komist
í átta liða úrslit Evrópukeppni og
í undanúrslit fyrir þremur árum.
Með liðinu leika m.a. dönsku
landsliðsmennirnir Nikolaj Jakobs-
en, sem gerði sjö mörk gegn ís-
landi á Alþjóða Reykjavíkurmótinu
í nóvember, og Claus Jacob Jens-
en, sem var með sex mörk í sama
leik og fimm í viðureign þjóðanna
á norræna mótinu í byrjun mánað-
arins.
Forsala á leikinn verður í Sjónar-
hóli kl. 16 til 22 í dag og frá kl.
10 og fram að leik á morgun en
viðureignin hefst kl. 16.30.
GUNNAR Beinteinsson hornamaður, eini landsliðsmaður FH-inga
um þessar mundir, verður í sviðsljðslnu þegar Hafnarfjarðarllðið
tekur á móti dönsku bikarmeisturunum GOG á morgun.
■ ENZO Scifo, belgíski landsliðs-
maðurinn í knattspyrnu hjá Mónakó,
verður frá keppni næstu fimm vik-
umar vegna sýkingar í ökkla. Belg-
íska sjónvarpið greindi frá þessu í
gær. Scifo lék með Mónakó á ný í
frönsku bikarkeppninni í síðustu
viku, eftir nokkurra mánaða fjar-
veru, vegna ökklameiðsla.
■ ANTHONY Yeboah, framheij-
inn snjalli frá Ghana, verður ekki
með Leeds í ensku úrvalsdeildinni
gegn Southampton um helgina eins
og vonast hafði verið til. Leikmaður-
inn, sem Leeds leigir frá þýska fé-
laginu Eintracht Frankfurt, hefur
ekki enn fengið atvinnuleyfi og því
verður einhver bið á að hann geti
leikið.
■ LAUFEY Sigvaldadóttir lék
ekki með Stjörnunni gegn Armanni
í 1. deild kvenna í fyrrakvöld. Lauf-
ey hefur verið mikið frá vegna
meiðsia í baki, sem virðast vera að
taka sig upp aftur.
■ KR-stúlkur hafa misst fjóra leik-
menn úr byijunarliðinu sínu í 1. deild
handboltans. Því varð að fara í yngri
flokkana og gegn FH í fyrrakvöld
spiluðu fimm stúlkur úr 3. flokki og
tvær úr 2. flokki.
• MATTHEW Bullard, fyrrum
leikmaður með Houston Roekets,
hefur skrifað undir fimm mánaða
samning við gríska liðið PAOK frá
Saloníku. Bullard á að taka stöðu
landa síns, Gerrod Moustaf, sem
verður frá vegna meiðsla út þetta
keppnistíambil. Hann spilar fyrsta
leik sinn í Grikklandi um næstu helgi.
■ OSAKA, þriðja stærsta borg Jap-
ans, sækist eftir að fá að halda
Ólympíuleikana árið 2008. Sumar-
leikar voru síðast haldnir í Japan
árið 1964, þá í Tókíó.
■ ALAN Smith, framhetji hjá
enska knattspyrnuliðinu Arsenal er
meiddur á hné og verður ekki með
næstu sex vikurnar.
■ ALAN Evans, sem var aðstoð-
armaður Brians Little hjá Leicest-
er, var í gær ráðinn aðstoðarmaður
þessa sama Littles hjá Aston Villa.
Little hætti hjá Leicester fyrir
skömmu og réði sig fljótlega til úr-
valsdeildarliðsins. Þess má geta að
þeir Evans og Little léku saman í
liði Aston Villa á sínum tíma.
■ STEVE McCalI hefur verið ráð-
inn yfirþjálfari enska 2. deildarliðsins
Plymouth í stað Peters Shiltons,
sem sagði upp. McCall tók fyrst við
til bráðabirgða eftir að Shilton var
leystur frá störfum, tímabundið, í
síðustu viku.
ÞOLFIMI
Samvinna Fimleika-
sambandsins og IAF
Að undanförnu hafa Fimleika-
sambandið og umboðsmaður
Alþjóða þolfimisambandsins á ís-
landi kannað möguleika á sam-
eiginlegu mótshaldi í þolfimi en
eins og kom fram í blaðinu í gær
náðist ekki samkomulag um það
að þessu sinni. Hins vegar er það
stefnan í framtíðinni og af því til-
efni sendu Guðmundur Haralds-
son, formaður Fimleikasambands
íslands, og Bjöm Kr. Leifsson,
umboðsmaður Alþjóða þolfimisam-
bandsins, IAF, á íslandi Morgun-
blaðinu eftirfarandi yfirlýsingu:
„í ljósi þess að IAF alþjóða þol-
fimisambandið og Alþjóða fim-
leikasambandið hafa ritað undir
viljayfirlýsingu um samvinnu í
framtíðinni er það ásetningur FSÍ
og IAF á íslandi að vinna í samein-
ingu að uppbyggingu þolfimiíþrótt-
arinnar á komandi árum. Árið
1997 er stefnt að því að bæði al-
þjóðasamböndin hafi sameiginleg-
ar reglur til að dæma eftir sem
gera mun alla samvinnu mun auð-
veldari.
í framhaldi af viðræðum milli
FSÍ og IAF á íslandi hafa þessir
aðilar komist að samkomulagi um
að stuðla að sameiginlegri upp-
byggingu þolfimiíþróttarinnar hér
á landi. Þessir aðilar munu, líkt
og alþjóðasamböndin, virða sjálf-
stæði og rétt hvors annars og mun
Fimleikasambandið halda sitt mót
þann 14. janúar n.k. eins og fyrir-
hugað var, en IAF á íslandi mun
flytja sitt mót til mars n.k., en
þannig geta keppendur átt mögu-
leika á því að keppa á báðum
mótunum."
GETRAUNIR
ENGLAND Spá sænskra fjölmiðla Spá Morgunbl.
Nr. Leikur 1 X 2 1 X 2
1 Blackburn - Nott, Forest 10 0 0 1 X
2 Arsenal - Everton 7 3 0 1
3 West Ham - Tottenham 0 0 10 2
4 Chelsea - Sheff. Wedn. 3 5 2 1 X 2
5 Norwich - Wimbledon 7 2 1 1 X
6 Aston Villa - QPR 7 3 0 1 X 2
7 Man. City - Coventry 10 0 0 X
8 Cr. Palace - Leicester 9 1 0 1
9 Charlton - Derby 6 3 1 1
10 Watford - Bolton 5 5 0 X 2
11 Oldham - Sunderland 10 0 0 1
12 Notts County - Burnley 3 4 3 1
13 Barnsley - Luton 8 2 0 1 X
Blackbum - l\Iott. Forest
BLACKBURN er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið
hefur aðeins tapað einum leik á heimavelli í vetur, og
þeir félagar í framlínunni Alan Shearer og Chris Sutton
gert samtals 41 mark á keppnistímabilinu. Sjónvarpsleik-
ur RUV á morgun verður því efiaust erfiður fyrir and-
stæðingana, en þess er þó skemmst að minnast að leik-
menn Forest eru einu gestirnir sem sigrað hafa Manc-
hester United á Old Trafford í vetur.
ÍTALÍA Spá sænskra fjölmiðla Spá Morgunbl.
Nr. Leikur 1 X 2 1 X 2
1 Fiorentina - Parma 3 6 1 X 2
2 Juventus - Roma 9 1 0 1 X 2
3 Inter - Sampdoria 4 5 1 1 X 2
4 Lazio - Foggia 10 0 0 1
5 Napoli - Cagliari 8 2 0 1
6 Reggiana - Torino 0 10 0 1 X
7 Genúa - Padova 10 0 0 1
8 Cremonese - Brescia 10 0 0 1
9 Verona - Piacenza 1 7 2 1
10 Lucchese - Salernitan 5 5 0 1 X
11 Ancona - Cesena 8 2 0 X 2
12 Venezia - Fid. Andria 6 3 1 X
13 Atalanta - Cosenza 6 4 0 1
Juventus - Roma
GAMLA stórveldið Juventus er á toppi ítölsku 1. deild-
arinnar á ný, hefur leikið stórvel og virðist jafnvel lík-
legt til að endurheimta meistaratitilinn á keppnistímabil-
inu. Juve mætir öðru gömlu stórveldi, AS Roma, í sjón-
varpsleik Stöðvar 2 á sunnudaginn og verður eflaust um
hörkuviðureign að ræða. Roma er í þriðja sæti deiidarinn-
ar, fimm stigum á eftir Juve og má ekki tapa ef liðið
ætlar sér að eiga möguleika á titlinum.