Morgunblaðið - 18.01.1995, Blaðsíða 1
1 BRANPARARj
| ÞRAUTIR~j
Heimilisfang:
MYIMDASÖGUR
MOGGANS
Morgunblaðinu
Kringlunni 1
103 Reykjavík
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSIIMS MIÐVIKUDAGUR 18. JANUAR 1995
Algjört sullumall!
Kæra Morgunblað;
Ég heiti Hrafnhildur Jó-
hannesdóttir, kölluð Habbý. Við
á myndinni erum núna 12 ára,
en vorum 10 ára þegar hún var
tekin. Ég er lengst til vinstri á
myndinni, í miðjunni er Nanna
Björg og íris Þöll lengst til
hægri.
Hrafnhildur á heima í Greni-
byggð 28, 270 Mosfellsbæ.
Þú segir ekki, Hrafnhildur, í
hvaða leik eruð þið vinkonurnar
á myndinni, og á hvaða árstíma
er myndin tekin? — Eruð þið
kannski svona kátar og glaðar
af því að hlákan er komin —
frostið og snjórinn er að fara?
Gettu nú!
1. Þvottur gerir það
óhreinna. Það er hreinna ef
það hefur ekki verið í þvotti.
- Hvað er það?
2. Þegar þú notar það,
kastarðu því. Þegar þú hætt-
ir að nota það, tekurðu það
til þín aftur. - Hvað er það?
3. Það fer yfir hafíð, en
ekki á 'skipi. Það kyssir hvert
annað, en fínnur það ekki.
Það giftist hvert öðru, en
býr ekki saman. Það deyr,
en er þó eftir sem áður lif-
andi. - Hvað er það?
Lausn í næsta blaði.
Skrípapabbi 1 göngutúr með börnin
Þessi skrípakarlamynd er um teiknar þessa frábæru mynd. horfa? - Skyldi strákurinn vera
pabbann sem er úti að Það er engu líkara en hárið að vaða í rigningarpolli, og það
ganga með börnin sín, “ segir á skrípapabbanum sé grasi gró- er eins og rigni eingöngu á
Margrét Vilhjálmsdóttir, 11 ára, inn völlur uppi í skýjunum! - Á hann. - Hvað fínnst ykkur,
Háhæð 8, 210 Garðabæ, sem hvað skyldi pabbinn vera að krakkar?
LITA- OG SOGU SAMKEPPNIN
Froskakóngurinn
Einu sinni var konungsfroskur.
■■ Hann sat í hásæti sínu, þegar
gíraffínn, ráðgjafi hans, kom og
sagði við hann: „Það er kominn
nýr api í landið og vill fá að tala
við þig.“
Froskakóngurinn sagði: „Vísaðu
honum inn!“
Apinn kom inn og froska-
kóngurinn sagði við hann:
„Hvað vilt þú mér, herra api?“
Apinn svaraði: „Kalla þú mig
bara ALLA, yðar hátign. Ég ætl-
aði bara að spyrja þig, hvort að
ég megi verða aðalráðgjafi þinn?“
Þá svaraði froskakonungurinn:
„Allir sem vilja verða aðalráð-
gjafar hjá mér, verða að leysa
þrjár þrautir. Fyrsta þrautin er
að veiða heimsins stærstu flugu
handa mér að éta. Önnur þrautin
er að temja tryllt ljón og sú þriðja
er að baka heimsins stærsta köku-
hús.“
Þá sagði apinn: „Ég gjöri þess-
ar þrautir þtjár.“
Konungurinn kallaði á ráðgjafa
sinn til að fylgja apanum út.
Apinn fór út í Flugumýri og
veiddi stærstu fluguna sem hann
sá. Svo fór hann út í skóg til að
frnna tryllt ljón. Svo hófst hann
handa við að finna það sem þurfti
í kökuhúsið. Hann bakaði risa-
stórt kökuhús og skreytti það
mjög fallega. Síðan fór hann til
froskakóngsins og sagði:
„Ég hef leyst allar þrautimar
þrjár. Nú fæ ég að verða aðalráð-
gjafí þinn eins og þú lofaðir."
Þá varð konungsfroskurinn
vandræðalegur í framan og sagði:
„En ég á ráðgjafa."
Þá sagði apinn: „Þú lofaðirþví.“
Konungurinn kallaði aftur á gír-
affann, aðalráðgjafa sinn og
sagði:
„Er í lagi að þú verðir þjónn?“
Þá gíraffinn sagði: „Eins og
yður þóknast.”
Apinn varð aðalráðgjafi froska-
konungsins og svo lifðu þeir allir
hamingjusamir alla ævi.
Katrín Björgvinsdóttir skrifar
þessa góðu sögu. Katrín á heima
á Kópavogsbraut 49, 200 Kópa-
vogi.
Að teikna
skrípakarl
Þegar við horfum á frábæru
skrípakarlateikninguna hennar
Margrétar, er ekki úr vegi, að fleiri
krakkar spreyti sig á að teikna
skrípakarla. — Finnst ykkur það
ekki góð hugmynd, krakkar?