Morgunblaðið - 04.02.1995, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 04.02.1995, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1995 C 3 REGNBOGIAF TILFINNINGUM Sigrún Hjálmtýsdóttir segir frá hlutverki Víólettu HLUTVERK hinnar heiliandi Víólettu Valery er sungið af Sigrúnu Hjálmtýsdóttur í upp- færslu Íslensku óperunnar að þessu sinni. Hlutverkið er skrifað fyrir lýrískan coloratur- sópran en er stundum sungið af röddum sem flokkast undir lyrico spinto sem Sigrún segir að hafi meiri fylling í röddinni. En hvað fleira þarf til? „Kannski fyrst og fremst gífurlega reynslu á sviði,“ segir hún hugsi, og bætir við: „Auk þess þarf töluverða raddlega breidd, því að tónlistin í hlutverki Víólettu spannar allan tilfinningaskalann. Maður þarf að hafa tölu- verða lífsreynslu til að skilja þessa konu. Þó er það nú svo að þessi ópera stendur manni nær en margar aðrar, því hún er byggð á sönnum atburðum. Svo er þetta vinsælasta ópera allra tíma og mikið til af efni um hana.“ Ég hjó eftir því í grein um tónlistina í La Traviata, sem Þorsteinn Gylfason skrifaði, að hann talar um að miklar andstæður séu í aríum Víólettu. Er það óvenjulegt? „Já, en þetta á við megnið af tónlistinni í La traviata. Verdi byggir hana mjög flott upp. Hann fléttar laglínumar sýo vel að ef maður syngur þær eins og hann skrifar og er ekkert að yfírleika, þá fínnur maður hvað allar tilfínningamar liggja vel skrifaðar í tónlistinni. Hún er regnbogi af tilfínningum. Víóletta er saklaus sveitastúlka sem flyst til borgarinnar ung að aldri og þarf að sjá fyrir sér. Hún hefði getað gert það sem saumakona, en hún var víst gífurlega falleg, skemmtiieg og greind og allir vildu þekkja hana. Hún sveif upp þjóðfélagsstigann og varð hástéttar vændiskona. Hún verður þó ekkert hortug við það eins og þær konur sem urðu bitrar yfír því að hafa lent í þessu. Svo kemur þessi ungi maður, Alfredo, sem um- gengst hana allt öðruvísi en allir aðrir. Hún er lengi að átta sig á honum því hún hefur aldrei áður kynnst sannri ást. Það hefur eng- inn elskað hana eins og hún er. Hann verður þó fljótlega það eina sem hún lifir fyrir. Hann er sá eini sem getur bjargað henni úr viðjum þessa gleðilífemis. En það er ekki svo auðvelt, vegna þess að hann á sér bakgmnn í heimi þar sem allt þarf að líta svo vel út. Þegar Víóletta kynnist sannri ást kemur í ljós að hún er gríðarleg tilfínningavera. Hún hafði bara alltaf breitt yfir það með glingri og gjálífí. Hún hafði verið í eilífum veislum. Hún hefur aldrei verið raunverulega elskuð en er ekki lengi að taka ákvörðun um að breyta um lífemi og flytja upp í sveit með Alfredo, þegar hún er viss um þessar tilfínningar. En hún hafði lifað um efni fram og nú voru karlamir hættir að borga fyrir hana, þannig að það fóm að kroppast utan af henni þær eignir sem vora á hennar nafni.“ Langur undirbúningur En hvernig bjóstu þig undir hlutverkið? „Ég hef aldrei sungið það áður og byrjaði á því að fara í ferðir til að ná tökum á því. Fór síðastliðið vor til Ítalíu og aftur í haust og dvaldi þar fram í desember. Ég var hjá Rina Malatrasi, sem ég leita alltaf til við undirbúning að stórum hlutverkum. Hún er gamli kennarinn minn. Ég las mér til um Víólettu og tíðarandann í París á hennar dögum. Ég á til dæmis bók um mjög fræg tehús í París á þessum tíma, sem er alveg frábær til að komast inn í and- rúmsloftið. Mér fannst þetta nauðsynlegt vegna þess að ég hef aldrei séð La Traviata á sviði. Ég geng því hér um bil að þessu hlutverki eins og söngkonurnar í gamla daga, sem höfðu enga hljómdiska og ekkert myndband eða neitt til að styðjast við. Raddlega þurfti ég góða þjálfun, því hlut- verk Víólettu liggur á mjög breiðu sviði. Það er ekki eins mikið flaututónahlutverk og ég hef fengist við hingað til, þótt vissulega séu þannig kaflar í því, sérstaklega framan af, heldur langir, fallegir kaflar sem maður verð- ur að syngja með mikilli dýnamik og mikilli mýkt. Nú verður að syngja þroskað; maður kemst ekki upp méð neitt múður. Það er sungið veikt og sterkt til skiptis, hendingam- ar þarf að lita og nota mjög mikil blæbrigði. í þessu hlutverki þarf að nota bijósttóna, bæði til að syngja og tala til að túlka geðs- hræringuna og tilfinningarótið sem Víóletta fer í gegnum. Lokaatriði verksins, dauðaatriðið, er líka ólíkt því sem ég hef tekist á við áður. Það er í senn sérkennilegt og raunsætt, því það er víst staðreynd að fólk sem er að deyja fær einhvern kraft í sig að lokin. Víóletta er allt- af að reyna að teygja lífíð í lokaþættinum, sérstaklega eftir að Alfredo kemur aftur til hennar. Þá leyfa þau sér bæði að lifa í von- inni - en sú von varir aðeins í augnablik.“ BERGÞÓR Pálsson í hlutverki Giorgios Germonts. SIGRÚN Hjálmtýsdóttir í hlutverki Víólettu. EIK KF MMIIM UPPÁHALBS ðFERUM Bergþór Pálsson um La traviata og hlutverk Germonts. BERGÞÓR Pálsson syngur hlutverk Giorgi- os Germonts, föður Alfredos, þess manns sem molar hamingju hans og Víólettu mél- inu smærra; ryðst inn í friðsælt ástarhreiður þeirra og ætlar að beita Víólettu þvingunum og hótunum. Hann sér þó fljótlega að hann er ekki í neinni stöðu til þess og verður að fara bónleiðina að henni. Samt sem áður virkar hann grimmur og kaldur þar sem hánn stendur og horfir á sorg hennar og þjáningu - án þess að blikna. Þetta er ekki þakklátt hlutverk og þegar Bergþór lýsir gleði sinni yfir því að syngja það, verður manni á að spyija hvernig það megi vera. „La traviata er ein af mínum uppáhaldsó- pemm alveg: frá því ég var unglingur," seg- ir hann. Hún er mér alveg sérstaklega kær. Hins vegar hefur mér alltaf þótt það íjarlæg- ur draumur að fá að syngja þetta hlutverk, aðallega aldursins vegna.“ Útlits- eða raddlega? „Aðallega útlitslega. Þetta er lýrískur bari- tón, sem hentar mér raddlega. Aftur á móti tekst ég ekki á við þessi þungu Verdi baritón- hlutverk. Ekki enn. En ég get ekki neitað því að þrátt fyrir að hafa langað til að syngja hlutverkið, hefur mér alltaf staðið stuggur af þessum manni, honum Giorgio Germont." Hvers vegna? „Hann er náttúrulega örlagavaldur í óper- unni. Hann veldur slæmum örlögum mann- eskjunnar sem maður hefur samúðina með frá byrjun. Hins vegar er ég ekkert óvanur því að vera vondur við hana Diddú á sviði,“ bætir Bergþór við og er fljótur að árétta að svo sé ekki utan sviðs. „Þar getum við hlegið og gert grín að þessum örlögum í samvinnu okkar.“ En hvers vegna er þessi ópera þér svona kær? „Vegna þess að La traviata er óperan sem ég hef grenjað mest yfir um ævina. Mér hefur alltaf þótt svo sorglegt hvemig Germ- ont fer með Víólettu. Það var því dálítið sérkennilegt að setjast hinum megin við borðið; vera sjálfur ljóti karlinn og þurfa að skilja hans sjónarmið. En einmitt vegna þess hversu ástkær þessi ópera er mér, finnst mér alveg synd að ekki sé hægt að bjóða öllum unglingum á sýningu. Hún er svo tilvalin til að kveikja óperuáhuga; tónlistin er svo falleg og að- gengileg," Ljóti karlinn segir þú. Germont missir nú fljótlega fótanna í þeirri stellingunni, ekki satt? „Það má segja að hann sé fljótur að meirna eftir að hann kynnist Víólettu. Hann sér að hann getur ekki komið og krafist, því hún er virðingarverð og glæsileg kona. Hann beitir hana því sálfræðilegu ofbeldi. Fyrsta lagið sem hann syngur er um unga, saklausa dóttur hans og verðandi eiginmann hennar. Þetta er eitt af fallegustu lögunum í óperanni, eri það er spurning hvort hann er að segja Víólettu þessa sögu af kvikindis- skap eða hvort hann er orðinn meir. Hins vegar rekur hann í rogastans þegar hann heyrir hvernig hún svarar og hvað hún er sívilíseruð.“ Nú segistu ekki hafa reiknað með að syngja þetta hlutverk strax. Hvemig varð þér við þegar þú varst beðinn um það? „Ætli það hafi ekki runnið á mig tvær grímur. Auðvitað hef ég stúderað hlutverkið lengi; alveg frá því ég var í skóla, og þetta var tilboð sem ekki var hægt að neita. Ég hef alltaf óskað mér þess að syngja þetta hlutverk en hélt ég hefði lengri tíma til að þróa það. Ég fór til Bandaríkjanna til að stúdera það hjá einni frægustu Travíötu allra tíma, Zeani, og eftir allan undirbúning- inn verð ég að segja að ég hlakka óskap- lega til að syngja það. Og ég vona að ég eigi eftir að syngja það aftur, til dæmis eftir 10-15 ár. Það sem mér fínnst sérlega gaman er að fá tækifæri til að syngja dúett- inn með Víólettu í 2. þætti. Hann þykir mér vera eitthvað það fallegasta sem til er.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.