Morgunblaðið - 14.02.1995, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
FIBA velur Kristinn til að
dæma í Portúgal
ptngttttÞIafrUk
1995
SIGLINGAR
Ari skipað-
ur í nefnd
hjá IYRU
STJÓRN Alþjóðasiglinga-
sambandsins (IYRU) hefur
skipað Ara Bergmann Einars-
son ritara Ólympíunefndar
Islands og fyrrverandi for-
mann Siglingasambandsins, i
sérstaka sjö manna nefnd til
þess að samræma reglur um
siglingakeppni á svæðisleikj-
um. Paul Henderson, nýkjör-
inn formaður IYRU, tilkynnti
þessa ákvörðun í heimsókn
til Islands um helgina. Er það
vilji sambandsins að keppt
verði á sömu skútutegundum
á hvers kyns svæðaleikjum
sem fram fara í heiminum,
þar á meðal Smáþjóðaleikjun-
um sem Islendingar taka þátt
í. Mót af svipuðum toga fara
víða fram í heiminum. Hefur
sambandið óskað eftir þvi við
Alþjóðaólympíunefndina að
svæðisleikamir verði úrtöku-
mót fyrir ólympíuleika í
framtíðinni.
Ari er eini Evrópubúinn
sem skipaður hefur verið í
nefndina en formaður hennar
verður frá Singapore og er
einn af varaforsetum alþjóða-
sambandsins.
Er þetta önnur nefndin sem
Ari Bergmann Einarsson
starfar í þjá IYRU því fyrir
situr hann í unglinganefnd
sambandsins sem hann var
endurkjörinn í til Qögurra
ára á þingi sambandsins sl.
haust.
Ari Bergmann Einarsson
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR
HANDKNATTLEIKUR
BLAÐ
Morgunblaðið/Svemr
KRISTINNAlbertsson hefur verið vaiinn af
alþjóðakörfuknattleikssambandinu til að vera
einn fjögurra hlutlausra dómara á úrslita-
keppni Evrópukeppni drengjalandsliða sem
fram fer í Portúgal 23. til 30. júlí. Þetta er í
fyrsta sinn sem íslenskur dómari er valinn af
FIBA til slíks verks og því er þetta rnikill heið-
ur fyrir Kristinn.
Helgi Bragason mun dæma í Evrópukeppni
landsliða í Sviss og fylgir hann íslenska karla-
landsliðinu þangað og Leifur Garðarsson mun
dæma í Evrópukeppni unglingalandsliða í Skot-
landi.
Sigurjón Arnarsson lék
vel í Orlando
SIGURJÓN Arnarsson úr GR og Úlfar Jónsson
úr Keili kepptu á golfmóti á laugardaginn á
Wedgefield vellinum í Orlando og gekk bara
bærilega. Sigurjón lék á einu yfir pari, 73
höggum, og varð i 14. til 19. sæti af 78 keppend-
um, en sigurvegarinn lék á 70 höggum. Ulfa
lék hringinn á 76 höggum.
Spennandi lokaslagur
VALDIMAR Grímsson skorar mark gegn FH-ingum, þegar KA fór slgurferft til
Hafnarfjarðar, 25:27. Mikil spenna er f 1. deildarkeppninni þegar ein umferð er
eftir — þrjú lið geta orðlð delldarmeistarl; Valur, Stjarnan og Víkingur. Sjá nánar
um lelkl helgarlnnar / B4
SÆNSKA RALLIÐ
Sigurvegarinn
ákveðinn fyrirfram
Örebro gefur guðna
afturfrest
FORRÁÐAMENN sænska félagsins
Örebro hafa gefið Guðna Bergssyni enn
einn frestinn, til að reyna að ganga frá
sínum málum hjá Tottenham, þannig að hann
fái að leika með Örebro. Tottenahm hafur hafn-
að leigutilboði frá Örebro, vill frekar se(ja Guðna
til liðs innan Bretlands. Nokkur félög hafa haft
Guðna undir smásjánni, eins og Bolton, West
Ham og Sheffield United. Guðni hefur mikinn
áhuga að ganga til liðs við sænska liðið og leika
við hlið Arnórs Guðjohnsen og Hlyns Stefánsson-
ar. Forráðamenn Örebro vijja fá ákveðið svar
frá Guðna í dag. Ef Guðni losnar ekki frá Totten-
ham er Hlynur Birgisson tilbúinn í slaginn — fer
flótlega til Svíþjóðar og gengur frá tveggja ára
samningi við liðið.
Thomas Fogdö keppir
ekki framar
SÆNSKIR Iæknar gerðu opinbert í gær, að
sænski skíðakappinn Thomas Fogdö keppir
ekki framar á skíðum. Fogdö slasaðist alvar-
lega þegar hann féll á bakið í Áre, þar sem
hann var að æfa með sænska landsliðinu, sl.
þriðjudag. Tilkynnt var í gær að hann hafi
hlotið alvarlegan mæðuskaða og bendir allt
til að hann verði lamaður fyrir lífstfð —
geti ekki gengið framar óstuddur. Fogdö,
sem er 24 ára, var einn besti svigmað-
ur heims og sterkasti skíðamaður Svia
í alpagreinum. Hann hann hefur sigrað í fimm
heimsbikarmótum í svigi frá því 1991 og hefur
tvívegis komist á verðlaunapall i svigi í vetur.
Sænskir fjölmiðlar og almenning-
ur þar í landi eru langt frá því
að vera sáttir við'framgang mála á
lokadegi sænska rallsins, en því lauk
á sunnudaginn. Eftir að hafa náð
43 sekúndna forystu fyrir síðustu
sérleiðina gerði Finninn Tommi
Mákinen sér lítið fyrir og ók út í
vegarkant og beið þar í rúma mín-
útu, til þess að félagi hans hjá
Mitsubishi liðinu, Svíinn Kenneth
Eriksson, gæti sigrað eins og foringi
liðsins, Andrew Kowman hafði fyrir-
skipað kvöldið áður.
Kowman vildi ekki taka neina
áhættu því fyrir síðasta daginn voru
þeir félagar í tveimur efstu sætunum
og Toyota bíll í því þriðja. Til að
Mitsubishi liðið færi ekki að taka
óþarfa áhættu sagði hann félögun-
um að halda sætum sínum. Á sunnu-
dagsmorgunin skaust Mákinen fram
úr Eriksson og var 43 sekúndum á
undan fyrir síðustu sérleiðina. Hann
ók vel þar en eþgar hann átti 500
metra eftir í mark, lagði hann út
við vegarkant og lét Eriksson fara
framúr sér.
Finninn er ekki sérlega ánægður
heldur því hann var talinn eiga meiri
möguleika á heimsmeistaratitlinum
en Svíinn og segir að þessi stig geti
vegið þungt þegar upp verði staðið.
Þess má að lokum geta að í
klukkustundar löngum íþróttaþætti
í sænska sjónvarpinu var mikið fjall-
að um þetta atvik, en síðan sagði
íþróttafréttamaðurinn; „Næst skul-
um við snúa okkur að íþróttum!“
Geirlaug
með mel
íOsló
Geirlaug B. Geirlaugsdóttir,
spretthlaupari úr Armanni,
setti íslandsmet í 60 m hlaupi inn-
anhúss á norska meistaramótinu í
Ósló á laugardaginn — hljóp vega-
lengdina á 7,63 sek. Þetta er þriðja
metið sem hún setur á vegalengd-
inni á viku, þar sem hún hljóp á
7,64 og 7,65 sek. á móti í Gauta-
borg fyrir rúmri viku. Geirlaug B.
varð í sjötta sæti í úrslitahlaupinu,
en sigurvegari varð Monica Gref-
stad frá Noregi, sem kom í mark
á 7,43 sek.
KIMATTSPYRIMA: OTTO REHHAGEL TEKUR VIÐ BAYERN MUNCHEN / B8