Morgunblaðið - 14.02.1995, Side 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Skærustu
Fjöldi leikja Kareem Abdul-Jabbar 18
Wilt Chamberlain 13
Bob Cousy 13
John Havlick 13
Elvin Hayes 12
Oscar Robertsson 12
Bill Russel 12
Jerry West 12
Sjö leikmenn með 11
Leiknar mínútur
Kareem Abdul-Jabbar 449
Wilt Chamberiain 388
Oscar Robertsson 380
Bob Cousy 368
Bob pettit 360
Bill Russel 343
Jerry West 341
Magic Johnson 331
Elgin Bayior 321
Isiah Thomas 318
All-Star-leikjanna
*
Stig
Kareem Abdul-Jabbar 251
Oscar Robertsson 246
Bob Pettit 224
Julius Erving 221
Elgin Bayior 218
Wilt Chamberlain 191
Isiah Thomas 185
John Havlicek 179
Michael Jordan 177
Magic Johnson 176
Meðalskor i leik*
Michal Jordan 22,1
Oscar Robertsson 20,5
Bob Pettit 20,4
Julius Erving 20,1
Elgin Bayior 19,8
George Mikan 19,5
Paul Westphal 19,4
Tom Chambers 19,3
David Thompson 18,8
Karl Malone 18,5
■ Skora þarf 60 stig til að meðaltal sé reiknað
■ GEORGE Graham, yfirþjálfari
Arsenal, neitaði fregnum í ensk-
um blöðum um helgina sem sögðu
að hann væri að hætta hjá félaginu.
■ PETER Schmeichel, mark-
vörður Manchester United, hefur
haldið hreinu i 14 af síðustu 23
leikjum, fagnað sigri 16 sinnum og
aðeins tvisvar orðið að sætta sig
við tap. „Vörnin lætur ekkert fara
í gegnum sig,“ sagði Daninn.
■ MORTEN Olsen gekk frá nýj-
um samningi við Köln fyrir helgi
og er hann til tveggja ára. Daninn
var talinn í „heitu“ sæti vegna slaks
árangurs Iiðsins í þýsku deildinni
en knattspymuþjálfarinn skrifaði
undir í æfingaferð í Portúgal.
■ ROY Keane hjá Manchester
United, Tommy Coyne hjá Mother-
well og John Aldridge hjá Tran-
mere geta ekki leikið með Irum
gegn Englendingum í æfinga-
landsleik á morgun vegna meiðsla.
Phil Babb verður heldur ekki með
vegna undanúrslitaleiks Liverpool
gegn Crystal Palace í deildarbik-
amum sem verður á sama tíma.
■ JONAS Thern, fyrirliði sænska
landsliðsins í knattspymu, er
óánægður með að fá ekki tækifæri
með Roma í ítölsku deildinni og
hefur áhuga á að skipta yfír í
Glasgow Rangers. „Ég hef heyrt
margt gott um félagið og það myndi
henta mér vel að Ijúka ferlinum í
Skotlandi," sagði hann. „Ástandið
hjá Roma er ekki gott. Ég vil spila
en ef ég er ekki valinn get ég eins
vel skipt um félag.“ Roma vill fá
sem samsvarar um 270 millj. kr.
fyrir Svíann.
■ ROMA fékk umdeild mörk á sig
gegn Juventus í ítölsku deildinni
ekki alls fyrir löngu og tapaði 3:0.
Félagið kærði og vildi láta liðin leika
aftur vegna mistaka dómarans en
aganefndin ákvað um helgina að
láta úrslitin standa.
■ STUART Pearce, fyrirliði
Nottingham Forest, hefur áhuga
á að taka tilboði frá japanska félag-
inu Kobe. Pearce leikur með enska
landsliðinu gegn Irum á morgun
en samningur hans við Forest renn-
ur út eftir tvö og hálft ár.
RANGLÆTI
Aganefnd Handknattleiks-
sambands íslands kemur
saman I dag og tekur m.a. fyrir
mál sem kom upp í 20. umferð
1. deildar karia þegar leikmaður
fékk rautt spjald fyrir að skjóta
í höfuð markvarðar úr _____
átti ekki að fá rauða spjaldið.
Það var einfaldlega rangur dóm-
ur en eftir á að hyggja má spyija
hvort markvörðurinn hefði ekki
átt að fá rautt spjald fyrir leik-
araskap, óíþróttamannslega
vítakasti. Sé slíkt brot
metið sem óíþrótta-
mannsleg framkoma
þýðir það tvö refsistig
en þrjú refsistig falli
það undir gróft leikbrot
eða grófa óíþrótta-
mannslega framkomu. Leikmað-
ur fer í eins leiks bann fyrir fímm
uppsöfnuð refsistig og þriggja
leikja bann fyrir 10 refsistig en
fleiri refsistig kalla á harðari
refsingu. Umræddur leikmaður
er með þijú refsistig fyrir og
fari nefndin eftir settum starfs-
reglum úrskurðar hún manninn
f eins leiks bann.
Háttvísi og heiðarleiki eru
grundvallaratriði f íþróttum.
Undir engum kringumstæðum á
fþróttamanni að líðast að hafa
rangt við og það verður að segja
íslensku íþróttafólki til hróss að
almennt fer það að settum regl-
um. Það er ljótt brot að skjóta í
höfuð markvarðar úr vítakasti
og við því liggur þung refsing
en sem betur fer hugsa leikmenn
ekki um að bijóta þessa reglu.
Ekki heldur leikmaðurinn sem á
bann yfír höfði sér fyrir meint
brot en hann skaut hvorki vllj-
andi né óviljandi í höfuð
markvarðarins heldur varði
markvörðurinn skotið með hendi.
Ailir gera mistök og enginn
verður minni fyrir það að viður-
kenna mistök sín. Dómarinn sem
gaf leikmanninum rauða spjaldið
gerði það í góðri trú en Bjónvarps-
mynd staðfestir að vítaskyttan
Ekki hægt að dæma
mann fyrir brot sem
varekkibrot
framkomu, það að hafa rangt við.
Aganefnd HSÍ hefur til þessa
ekki tekið myndbandsupptökur
gildar í málum sem hún ijallar
um. Úrskurði nefndarinnar sem
hefur leikbann f 12 mánuði eða
lengur í för með sér má áfrýja
til dómstóls HSÍ en öðrum úr-
skurði aganefndar verður ekki
áfrýjað. Hún fer eftir settum
reglum og samkvæmt skýrslu
dómara fékk umræddur leikmað-
ur rautt spjald fyrir að kasta í
andlit markvarðar úr vítakasti.
Dómarinn gerði mistök en það á
ekki að refsa leikmanni fyrir
annars manns sök. Leikmaðurinn
varð að fara af velli á 22. mín-
útu og það væri að bæta gráu
ofan á svart að bæta við óverð-
skuldaða refsingu.
Myndbandið sýnir að leikmað-
urinn er saklaus af meintu broti
og eftir því á að fara. Aganefnd
hefur farið eftir skýrslu dómara
en hún hefur það vald að geta
breytt úrskurði dómara og á að
nýta sér það. Hún hefur ekki
gert það en það gengur ekki að
menn séu hafðir fyrir rangri sök
og dæmdir fyrir það sem þeir
hafa ekki gert.
Steinþór
Guðbjartsson
Af hverju skorar Þórsarinn KRISTINN FRIÐRIKSSON svona geysilega grimmt?
Hitti þegar
égerheKur
KRISTINN Geir Friðriksson, körfuboltamaðurinn snjalli hjá
Þór, skoraði 51 stig í stjörnuleiknum á sunnudaginn. Hann
er ekki óvanur því að vera í stjörnuhlutverkinu, enda með hátt
f 30 stig að meðaltali i leik fyrir félagið sitt f úrvaldsdeildinni
í vetur. Kristinn er Keflvíkingur, fæddur 1971 og því enn barn-
ungur í íþróttinni. Hann gekk til liðs við Þórsara sl. haust og
hefur sannarlega blómstrað með liðinu, þótt ekki hafi hann
hlotið náð fyrir augum landsliðsþjálfarans, hvað sem síðar
verður. Kristinn er laus og liðugur og þegar hann er ekki að
æfa og spila körfubolta vinnur hann við húsvörslu í Hamri,
félagsheimili Þórs.
Kristinn var fyrst spurður þeirr-
ar tvíræðu spumingar hvort
hann væri ekki að komast í landsl-
iðsform í ljósi
frammistöðunnar í
Eftir
Stefán Þór
Sæmundsson
vetur, en hann var
kominn með annan
fótinn í landsliðið á
síðasta keppnistímabili.
„Jú, það má kannski segja það.
Ég er búinn að spila þokkalega vel
í vetur, en ég verð bara að sjá til
og bíða eftir kallinu."
Nú ert þú búinn að leika með
meistaraliði Keflavíkur síðustu ár.
Er ekki stemmningin í kringum
körfuboltann öðruvísi á Akureyri?
„Það er náttúrlega miklu meiri
körfuboltahefð i Keflavík og þar
þekkir maður 90% af áhorfendum.
Þetta er stór hópur sem fer á alla
leiki og sættir sig ekki við neitt
nema sigur. Þórsarar þekkja ekki
þessa hefð og ég held að enginn
hafi búist við svona góðum árangri
af liðinu. En körfuboltinn er á upp-
leið á Akureyri og þessi vetur er
kannski vendipunkturinn. Menn
eru komnir með meira sjálfstraust,
unglingastarfíð er farið að skila sér
og áhuginn hefur aukist rnikið."
Hefur þú breyst sem körfubolta-
maður hérna á Akureyri?
„Já, ætli það ekki Ég þarf að
axla mun meiri ábyrgð með Þór
en ég gerði með Keflavík. í jöfnum
leikjum er ég maðurinn sem á að
skora sigurkörfuna og það er nýtt
hlutverk hjá mér. í Keflavík var
ég að spila með margreyndum
landsliðsmönnum. Ég held að ég
hafi lært mikið hérna og vona að
reynslan komi mér að góðum not-
um.“
Morgunblaðið/Rúnar Þór
KRISTINN Geir FriArlksson er stlgahæstur í úrvalsdeildlnni
þegar 27. umferðir eru búnar. Hann bíður eftir kalll landsliðs-
þjálfarans og segist hafa lært mikið hjá Þór á Akureyri.
Ætlarðu þá ekki að vera áfram
hjá Þór og læra meira?
„Ja, nú get ég ekkert sagt.
Framhaldið er óráðið hjá mér. Þetta
er opið í báða enda.“
Sú var tíðin að einn til tveir
snjallir leikmenn báru liðin uppi en
það gengur ekki lengur. Byggist
lið Þórs ekki aðallega á þér, Sandy
og Konráð?
„Þú mátt ekki gleyma Bigga,
hann er mjög mikilvægur í vörn-
inni og fráköstunum. Svo eru ungu
strákarnir að koma sterkir upp,
eins og Hafsteinn og Einar, þannig
að breiddin er alveg þokkaleg."
Nú ert þú þekktur sem mikil
þriggja stiga skytta og það vekur
athygli þegar þú hleypur út úr
teignum, snýrð þér við og lætur
vaða í litlu jafnvægi. Telst það
ekki heppni þegar þú hittir úr slík-
um skotum?
„Nei, ekki endilega. Ég hef
sjálfstraust til að taka svona skot
og þegar ég er heitur hitti ég vel
og get tekið skot hvar sem er og
hvernig sem er. Allir skotmenn
kynnast þeirri tilfinningu að detta
í stuð og þá fer allt ofan í. Auðvit-
að koma líka kaflar þegar ekkert
gengur upp en mér finnst í lagi
að taka mörg þriggja stiga skot
ef nýtingin er nálægt 50%.“
Hvernig hafa svo Akureyringar
tekið þér? Eru þeir þurrir og lok-
aðir?
„Ég hef svo sem ekki eignast
neina vini fyrir utan strákana í lið-
inu og kannski eru Akureyringar
dálítið lokaðir. Þeir hafa engu að
síður tekið mér vel og jafnvel kom-
ið til mín og viljað ræða málin við
vissar kringumstæður. Ég er mjög
sáttur við bæinn. Það er gaman
hérna og fólkið skemmtilegt."