Morgunblaðið - 14.02.1995, Blaðsíða 4
T
4 B ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
HAIMDKINIATTLEIKUR
Viðureign Vals og Stjörnunnar í síðustu umferð verður úrslitaleikur um deildarmeistaratitil kark
Ámi og Reynir gerðu
gæfumuninn undir lokin
Steinþór
Guðbjartsson
skrífar
Arni Friðleifsson sá til þess að
spennan í 1. deild karla í
handknattleik heldur áfram fram í
síðustu umferð. Ein-
staklingsframtak
hans gerði það jafn-
framt að verkum að
Víkingur á mögu-
leika á efsta sæti deildarinnar. Vals-
menn voru á góðri leið með að
tryggja sér deildarmeistaratitilinn í
Víkinni í fyrrakvöld en Ami sá til
þess að úrslitin ráðast ekki fyrr en
um næstu helgi. Valsmenn byijuðu
vel og náðu fljótlega þriggja marka
forystu sem Víkingum virtist ekki
ætla að takast að brúa. Þegar 18
mínútur voru til leiksloka var stað-
an 18:14 en þá gerðist tvennt:
Reynir Þór Reynisson fór að veija
og Árni var óstöðvandi í sókninni
en hann gerði fimm af síðustu níu
mörkum Víkinga sem unnu 25:22.
Valsmenn ætluðu sér greinilega
að gulltryggja deildarmeistaratitil-
inn og í 40 mínútur benti allt til
þess að þeim ætláði að takast það.
Guðmundur var ömggur í markinu,
vörnin hélt Víkingum vel í skefjum
og sóknarleikurinn var markviss og
ömggur. Dagur og Jón voru
ákveðnir og Júlíus blómstraði en
þegar fimm mínútur vom liðnar af
seinni hálfleik var hann kominn
með átta mörk eftir þrumuskot sem
hann virtist ekkert hafa fyrir. En
óvænt mótspyma Víkinga setti
Valsmenn út af laginu og enn einu
sinni máttu þeir sætta sig við töpuð
stig.
Miklar sveiflur hafa verið i leikj-
um Víkinga að undanförnu og hafa
leikmennirnir ekki náð að vinna
nægilega vel saman. Sama var upp
á teningnum að þessu sinni. Vam-
arleikurinn var lengst af slakur og
markvarslan nær engin í fyrri hálf-
leik. Sóknarleikurinn var tilviljunar-
Ásmundur átti stór-
leik gegn Haukum
Ivar
Benediktsson
skrífar
Stórleikur Ásmundar Einarsson,
markvarðar Aftureldingar,
lagði öðram fremur grannin að
29:20, sigri Mosfell-
inga á Haukaum að
Varmá, á sunnu-
dagskvöldið. Hann
varði 24 skot, þaraf
15 í fyrri hálfleik.
Hvoragt liðið lék gæða hand-
knattleik í fyrri hálfleik. Mikið var
um mistök í sóknarleiknum og
mörg dauðafæri fóra forgörðum.
Hraðinn var meiri en leikmenn réðu
við. Um miðjan leikhlutan náðu leik-
menn Aftureldingar tveggja marka
forystu, 6:4 og þar með skildu leið-
ir. Allt gekk á afturlöppunum hjá
Haukum. Ef Ásmundur Einarsson
varði ekki skot þeirra þá skutu þeir
framhjá og yfir. Mosfellingar skor-
uðu fimm síðustu mörk hálfleiksins
og leiddu með sjö mörkum, 13:6, í
leikhléi.
Eins og í þeim fyrri þá var mik-
ill hraði í síðari hálfleik. Sérstaklega
var Mosfellingum mislagðar hendur
í sóknaraðgerðum sínum, framan
af. Haukum tókst að hressa upp á
varnar- og sóknarleikinn og minnka
forskot Aftureldingar niður í þijú
mörk, 17:14. En þá sögðu leikmenn
Aftureldingar hingað og ekki
lengra. Ásmundur tók að veija af
krafti að nýju og sóknarleikurinn
lagaðist. Síðustu mínútumar var
um hreina flugeldasýningu að ræða
af hálfu heimamanna.
„Við lékum sannfærandi vörn og
markvarslan var frábær hjá Ás-
mundi. Strákunum tókst að leysa
vel þær stöður sem komu upp því
Haukarnir léku fjögur afbrigði af
varnarleik," sagði Guðmundur Guð-
mundsson, þjálfari Aftureldingar,
að leikslokum.
„Ásmundur Einarsson var okkar
erfiðasti hjalli í fyrri hálfleik og við
mótlætið varð algjör uppgjöf hjá
Haukaliðinu," sagði Einar Þorvarð-
arson, liðsstjóri Hauka að leikslok-
um.
Lið Aftureldingar lék ekki stór-
leik, þrátt fyrir níu marka sigur.
Ásmundur Einarsson var bestur og
Ingimundur Helgason, Gunnar
Andrésson og Jason Ólafsson áttu
góða spretti og Róbert Sighvatsson
skilaði sínu í vörninni og hélt Hauk-
um við efnið í sókninni.
Bjarni Frostason, markvörður,
stóð upp úr í liði Hauka og bjarg-
aði sínum mönnum frá háðulegri
útreið. Aðrir voru jafnir og fremur
slakir.
Jafnræði en lítil
spenna í Kaplakrika
Skúli Unnar
Sveinsson
skrífar
J^A gerði góða ferð í Hafnar-
fjörðinn á sunnudaginn og
vann FH 25:27. Úrslitin breyta
engu um röð lið-
anna í stigatöfl-
unni, KA er í sjötta
sæti sem fyrr og
FH er enn í fjórða
sæti, en nú munar aðeins einu
stigi á liðinu og Aftureldingu en
fjórða sætið er síðasta sætið sem
gefur heimaleikjaréttinn.
Leikur liðanna var dálítið furðu-
legur. Jafnræði var allan tímann,
KA lengstum með frumkvæðið,
og hefði því getað orðið spenn-
andi, en varð það einhvern veginn
ekki. Sóknir liðanna voru fremur
rólegar og ekki mjög kerfisbundn-
ar. KA-menn klipptu talsvert á
vinstri væng FH liðsins en Hafn-
firðingar léku lengstum flata vörn.
Mikið var um mistök hjá leikmönn-
um og það var eins og vantaði
neistann hjá báðum liðum.
Hálfdán var bestur hjá FH en
hinum megin var Erlingur í stuði
og Atli Þór gerði mikilvæg mörk
með skemmtilegum gegnumbrot-
um.
Fyrirliðar
Morgunblaðið/Sverrir
kenndur fyrir hlé en kraftur Gunn-
ars þjálfara hélt liðinu á floti og
þáttur hans var stór þegar á heild-
ina er litið. Ekkert kom út úr horna-
mönnunum og Sigurður hvíldi allan
seinni hálfleikinn en Árni kom
sterkur inn sem fyrr sagði.
Valsliðið er sterkt og breiddin
mikil en það hélt ekki út. Liðið
vann samt nokkuð vel saman í vörn
og skytturnar vora öflugar en
homamennirnir ógnuðu lítið og
Geir fékk helst ekki sendingu á lín-
una. Þetta hlýtur að vera umhugs-
unarefni fyrir topplið deildarinnar.
ERLINGUR Krlstjánsson og félagar hans f KA slgruðu FH-lnga
um helglna og áttl fyrirliAI KA góðan leik. Hér er hann sloppinn
framhjá Guðjóni Árnasyni fyrirliða FH.
FOLK
DÓMARAR á leik KR og Sel-
foss í Höllinni á sunnudaginn,
Yalgeir Ómarsson og Sigurður
Ólafsson, vora að dæma sinn fyrsta
leik í 1. deild. Þeir vora kvaddir til
með stuttum fyrirvara og kváðust
hafa verið ákaflega taugaóstyrkir
fyrir leikinn.^
■ SIGURJÓN Bjarnason Sel-
fyssingur var allur í sprettunum
gegn KR. Hann gerði 6 mörk og
öll úr hraðaupphlaupum.
■ FYRIRTÆKI í Mosfellsbæ
sameinuðust um að kaupa leik
UMFA og Hauka og sendu boð-
smiða inn á hvert heimili í bænum.
Undirtektir bæjarbúa voru mjög
góðar og fylltu þeir íþróttahúsið að
Varmá.
■ JASON K. Ólafsson átti 23 ára
afmæli á sunnudaginn og sungu
áhorfendur afmælissönginn fyrir
leikinn gegn Haukum.
■ STUÐBANDIÐ 66 lék og söng
fyrir leik UMFA og Hauka. Þetta
hefur hljómsveitin gert nokkru
sinnum í vetur og hefur UMFA
ekki tapað þegar 66 hefur hitað
áhorfendur upp. ■ BERG-
SVEINN Bergsveinnsson er óðum
að jafna sig eftir meiðsli og upp-
skurð á hægri olboga. Bergsveinn
var á skýrslu hjá UMFA í leiknum
gegn Haukum og kom inn á eitt
vítakast, en tókst ekki að veija.
VÍKINGURINN Árni Friðleifsson 1
átti stóran þátt í því að Víkingur
en án árangurs. Júlíus var atkv
Liðin höfðu ekki
að neinu að keppa
Stefán
Stefánsson
skrífar
Þýðingarleysi leiks KR og Sel-
foss í Laugardalshöllinni á
sunnudaginn kom greinilega fram
í frammistöðu leik-
manna og 24:24
jafntefli við hæfi.
Bæði liðin sigla
lygnan sjó og eiga
ekki möguleika á að komast í úrsli-
takeppnina.
Góð markvarsla Gísla Felix
Bjarnasonar fyrir KR og Hallgríms
Jónassonar fyrir Selfoss var það
eina sem gladdi augað. Flesta ef
ekki alla útileikmenn vantaði allan
neista og tóku þeir slaka frammi-
stöðu sína mest út í kvarti og
kveini yfir dómurunum.
Eftir ákaflega tíðindalítinn fyrri
hálfleik náðu Vesturbæingar að
silast framúr og náðu mest fimm
marka forystu, 19:14 um miðjan
síðari hálfleik. Þá tóku Selfyssing-
ar við sér undir forystu Einars
Guðmundssonar og næstu fimm
mörk voru þeirra. Þeir gerðu gott
betur og komust yfir og KR-ingar
máttu þakka fyrir að ná í annað
stigið.
„Við hentum frá okkur unnum
leik og gáfum þeim annað stigið.
Við erum í tómarúmi í deildinni
og ætluðum bara að hafa gaman
af leiknum en fórum síðan að hafa
fullgaman af honum,“ sagði Einar
B. Árnason sem var bestur hjá
KR ásamt Gísla Felix.
„Það er erfitt að halda einbeit-
ingu í svona þýðingarlausum leik
en við reyndum að hafa gaman
af þessu,“ sagði Einar Guðmunds-
son eftir leikinn en hann var eini
leikmaður Selfoss sem þorði að
taka af skarið. Sem fyrr sagði var
Hallgrímur í miklu stuði og bjarg-
aði öðra stiginu.