Morgunblaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLA ÐSINS
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRUAR 1995
| BRAIMPARAR \
Heimilisfang:
MYNDASÖGUR
MOGGANS
Morgunblaðinu
Kringlunni 1
103 Reykjavík
D|
BLAÐ
Lengsta
indíánafjöðrin
Indíáninn „Litla naut“ er búinn að standa sig vel. Hann má
því velja sér eina fjöður enn í hárið. Hann langar í lengstu
fjöðrina. Geturðu hjálpað honum að finna hana?
Lausn á baksíðu.
Kátar vinkonur
Kæra Myndablað Moggans!
Ég heiti Hildur Sunna
Pálmadóttir og þetta er besta
vinkona mín,^ Thelma Lind
Reynisdóttir. Á þessari mynd
erum við átta ára, en við
erum tíu
núna. Ég og Thelma kynnt-
umst þegar Thelma flutti á
planið í Flúðaseli. Þá vorum
við sjö ára. Við höfum því
verið bestu vinkonur í þrjú ár.
Bestu kveðjur,
Hildur Sunna Pálmadóttir.
eii n 9 0X0,
Söguhetjurnar í Aladdín
ær eru vinsælar sögu-
hetjurnar í ævintýrinu
um Aladdín.
Mamma og pabbi ykkar,
krakkar, hafa örugglega
lesið ævintýrið í sögubók,
þegar þau voru lítil. Þið fáið
að sjá Aladdín á kvikmynda-
tjaldinu.
Og nú er hægt að kaupa
brúður, sem heita Aladdín
og Jasmín.
Þessa ágætu mynd teikn-
ar Elín Magnúsdóttir, 9 ára,
Skólavegi 12, 800 Selfossi.
Elín sendir kæra kveðju til
allra krakkanna sem lesa
Barnablaðið.
Hve margir
sælgætis-
molar?
Vinirnir Vala og Villi voru að
koma úr búðarferð. Þau
höfðu bæði keypt sér nokkra
sælgætismola, en ekki jafn-
marga. Við skulum athuga hvað
þau segja:
Villi: „Ef þú gefur mér einn
af þínum molum, þá á ég tvisv-
ar sinnum fleiri en þú!
Vala: „Nei, ef þú gefur mér
einn af þínum, þá eigum við
jafnmarga!
- Hvað höfðu þau keypt
marga sælgætismola hvort?
Lausn á baksíðu.
Hvað segja myndirnar?
A" fyrstu myndinni er Óli í
boltaleik við Sigga. Síð-
an sjáum við Gunnu æfa sig
í jafnvægisgangi á grindverk-
inu. Á þriðju myndinni liggur
Snati hijótandi á gólfinu inn-
an um allt dótið. A þeirri síð-
ustu eru krakkarnir farnir
heim að borða hádegismat,
leikvöllurinn yfirgefínn.
- En hvaða þrír hlutir sjást
á öllum myndunum? — Og
hvað segja þeir okkur?
Lausn á baksíðu.