Morgunblaðið - 17.02.1995, Page 1
c
1995
FOSTUDAGUR 17. FEBRUAR
BLAÐ
KORFUKNATTLEIKUR
KR
fjorir nja
KR-mgar tefldu
fram fjórða Banda-
ríkjamanninum,
sem þeir hafa feng-
ið til landsins í vet-
ur — gegn Tinda-
stóli í gærkvöldi.
Það var Virginíu-
maðurinn Milton
Bell frá Richmond,
sem er 24 ára
blökkumaður, tveir
metrar.
■Donavan Cas-
anave var fyrstur í
röðinni í herbúðum
KR — hann kom til
landsins í október,
en í nóvember voru
KR-ingar búnir að
losa sig við hann.
■Antoine Jones var
annar í röðinni —
hann kom til lands-
ins í desember, lék
einn leik gegn
Grindavík, en sást
síðan ekki oftar í
herbúðum KR.
■Mark Hadden var
þriðji í röðinni —
kom til landsins á
dögunum, mætti á
eina æfingu, en var
ekki valinn í liðið.
Hadden er nú leik-
maður með Hauk-
um.
Morgunblaðið/Kristinn
Kampakátir fyrir flugtak
Axel Nlkulásson, þjálfarl KR, og nýllðinn Milton Bell brostu breltt áður en KR-liðið tók sig
á flug f rá Reykjavíkurflugvelli í gær — er stefnan tekin að melstaratitilinn?
Milton Bell kom,
sá og sigraði
„MILTON Bell er leikmaðurinn sem við
höfum verið að bíða eftir og þurftum á að
halda. Hann sterkur inni i teig, góður úti
— einnig einn gegn einum og öflugur í
vörn. Þetta var erfiður leikur, en mér líður
vel og er geysilega ánægður með lífið,“
sagði Axel Nikulásson, þjálfari KR-inga,
eftir sigur gegn Tindastól, 72:82.
Bandaríkjaðurinn Milton Bell er sannkallaður
gullmoli fyrir KR-inga — lék eins og hann
sé fæddur í Frostaskjóli; féll inn í öll leikkerfi
vesturbæjarliðsins og leyfði sér
þann munað að skora stórkostlega
„sirkuskörfu“ eftir að knötturinn
var sendur inn í vítateig Tinda-
stóls. Bell, sem skoraði 33 stig og
tók 22 fráköst, las leikinn vel og
var alltaf á ferðinni — hann lék allan leikinn og
Björn
Björnsson
skrifar frá
Sauðárkróki
blés ekki úr nös, þegar flautað var til leiksloka.
Það er hreint ótrúlegt að hann hafi aðeins verið
á einni stuttri æfingu með KR-liðinu fyrir leikinn.
Axel Nikulásson má svo sannarlega vera ánægð-
ur að hafa fengið þennan snjalla leikmann til liðs
við sig þegar stutt er í úrslitakeppnina. „Þetta
var góður leikur hjá okkur, en við lifum ekki lengi
á honum — baráttan heldur áfram,“ sagði Axel.
Leikurinn var mjög skemmtilegur — bæði liðin
léku góðan körfuknattleik og leikmenn lögðu hart
að sér; gáfu allt í leikinn sem þeir áttu. Heima-
menn voru yfir í leikhléi, 40:34, en KR-ingar
gerðu út um leikinn í byrjun fyrri hálfleiksins
þegar þeir skoruðu 32 stig gegn tíu stigum heima-
manna og náðu öruggu forskoti, 50:66. Bell fór
á kostum á þessum leikkafla og heimamenn urðu
að játa sig sigraða.
Úrsllt / C4
Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir.
Tvíburamir ekki
nægilega sterkir
TVÍBURARNIR Arnar og Bjarki Gunnlaugssyn-
ir eru komnir út í kuldann — verða ekki í byijun-
arliði Niirnberg gegn Waldhof í kvöld, þrátt
fyrir að þeir séu markahæstu menn liðsins.
Giinter Sebert, nýi þjálfarinn hjá Niirnberg,
segir í Kicker að þeir séu ekki nægilega sterkir
til að leika í 2. deildarkeppninni.
Fimm útlendingar eru í herbúðum Niirnberg,
en liðið getur ekki teflt fram nema tveimur í
leik. Það verður Argentínumaðurinn Bustos sem
verður í fremstu víglínu í kvöld. Hjá liðinu er
einnig Tékkinn Kubik, sem er í leikbanni, og
Austurríkismaðurinn Hintermaier.
Róðramaður heim-
sækir ísland
BANDARÍKJAMAÐURINN Matt Smith, út-
breiðslustjóri alþjóðlega róðrasambandsins,
kemur til Islands í dag til að ræða við forráða-
menn Róðrasambands Islands og kanna aðstæð-
ur til róðra hér á landi. Smith, sem hefur bæki-
stöðvar í Kaupmannahöfn, mun funda með
mönnum frá Róðrasambandinu og róðramönn-
um í dag, en á morgun fundar hann með mönn-
um frá Iþróttasambandi íslands, Ólympíunefnd-
inni og róðramönnum. Smith hefur það starf
að stuðla að uppbyggingu og útbreiðslu róðra-
íþróttarinnar í heiminum.
Ungur FH-ingur æfir
með Ekeren
ARNAR Viðarsson, ungur knattspyrnumaður úr
FH, er farinn til Belgíu, þar sem honutn hefur
verið boðið að æfa með Ekeren. Amar er sonur
Viðars Halldórssonar, fyrrum landsliðsfyrirliða
úr FH. Þess má geta að Guðmundur Benedikts-
son, knattspyrnumaður frá Akureyri, lék með
Ekeren.
Setti sitt þriðja
heimsmet á viku
KÍNVERSKA stúlkan Sun Caiyun setti sittþriðja
heimsmet í stangarstökki innanhús á viku, er
hún stökk 4,15 m í Erfurt í Þýskalandi á miðviku-
daginn. Hún hafði áður stokki 4,13 m á móti í
Karlsruhe á sunnudaginn og þá sökk hún 4,12 m
í Berlín sl. föstudag. Sun hefur sett fimm heims-
met í Þýskalandi á þremur vikum, þar sem hún
stökk 4,10 m 4,10 í Zweibriicken 28. janúar og
4,11 í Pulheim, fyrir utan Köln, 3. febrúar.
Tomba ánægður
með annað eða
þriðja sætið í Japan
SKÍÐAKAPPINN Alberto Tomba frá Ítalíu, sem
hefur fagnað sigri í tíu heimsbikarmótum í vet-
ur, segist verða ánægður ef hann hafni í öðru
til þriðja sæti í tveimur mótum í Furano í Japan
um helgina, þar sem hann er ekki heill heilsu.
Tomba, sem er 28 ára, sagðist ekki ætla að
hætta eftir þetta keppnistímabil, eins og orðróm-
ur hefur verið um. Hann hefur fagnað sigri í
sjö svigkeppnum og þremur stórsvigskeppnum
í vetur og er stigahæstur í keppninni um heims-
bikarinn, með 1.050 stig. Næstur á blaði er Sló-
vaninn Jure Kosir með 570 stig og í þriðja sæti
er Marc Girardelli frá Lúxemborg með 563 stig.
SVARTIR DAGAR í KNATTSPYRNUSÖGU ENGLANDS / C2