Morgunblaðið - 17.02.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 17.02.1995, Qupperneq 1
 c 1995 FOSTUDAGUR 17. FEBRUAR BLAÐ KORFUKNATTLEIKUR KR fjorir nja KR-mgar tefldu fram fjórða Banda- ríkjamanninum, sem þeir hafa feng- ið til landsins í vet- ur — gegn Tinda- stóli í gærkvöldi. Það var Virginíu- maðurinn Milton Bell frá Richmond, sem er 24 ára blökkumaður, tveir metrar. ■Donavan Cas- anave var fyrstur í röðinni í herbúðum KR — hann kom til landsins í október, en í nóvember voru KR-ingar búnir að losa sig við hann. ■Antoine Jones var annar í röðinni — hann kom til lands- ins í desember, lék einn leik gegn Grindavík, en sást síðan ekki oftar í herbúðum KR. ■Mark Hadden var þriðji í röðinni — kom til landsins á dögunum, mætti á eina æfingu, en var ekki valinn í liðið. Hadden er nú leik- maður með Hauk- um. Morgunblaðið/Kristinn Kampakátir fyrir flugtak Axel Nlkulásson, þjálfarl KR, og nýllðinn Milton Bell brostu breltt áður en KR-liðið tók sig á flug f rá Reykjavíkurflugvelli í gær — er stefnan tekin að melstaratitilinn? Milton Bell kom, sá og sigraði „MILTON Bell er leikmaðurinn sem við höfum verið að bíða eftir og þurftum á að halda. Hann sterkur inni i teig, góður úti — einnig einn gegn einum og öflugur í vörn. Þetta var erfiður leikur, en mér líður vel og er geysilega ánægður með lífið,“ sagði Axel Nikulásson, þjálfari KR-inga, eftir sigur gegn Tindastól, 72:82. Bandaríkjaðurinn Milton Bell er sannkallaður gullmoli fyrir KR-inga — lék eins og hann sé fæddur í Frostaskjóli; féll inn í öll leikkerfi vesturbæjarliðsins og leyfði sér þann munað að skora stórkostlega „sirkuskörfu“ eftir að knötturinn var sendur inn í vítateig Tinda- stóls. Bell, sem skoraði 33 stig og tók 22 fráköst, las leikinn vel og var alltaf á ferðinni — hann lék allan leikinn og Björn Björnsson skrifar frá Sauðárkróki blés ekki úr nös, þegar flautað var til leiksloka. Það er hreint ótrúlegt að hann hafi aðeins verið á einni stuttri æfingu með KR-liðinu fyrir leikinn. Axel Nikulásson má svo sannarlega vera ánægð- ur að hafa fengið þennan snjalla leikmann til liðs við sig þegar stutt er í úrslitakeppnina. „Þetta var góður leikur hjá okkur, en við lifum ekki lengi á honum — baráttan heldur áfram,“ sagði Axel. Leikurinn var mjög skemmtilegur — bæði liðin léku góðan körfuknattleik og leikmenn lögðu hart að sér; gáfu allt í leikinn sem þeir áttu. Heima- menn voru yfir í leikhléi, 40:34, en KR-ingar gerðu út um leikinn í byrjun fyrri hálfleiksins þegar þeir skoruðu 32 stig gegn tíu stigum heima- manna og náðu öruggu forskoti, 50:66. Bell fór á kostum á þessum leikkafla og heimamenn urðu að játa sig sigraða. Úrsllt / C4 Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir. Tvíburamir ekki nægilega sterkir TVÍBURARNIR Arnar og Bjarki Gunnlaugssyn- ir eru komnir út í kuldann — verða ekki í byijun- arliði Niirnberg gegn Waldhof í kvöld, þrátt fyrir að þeir séu markahæstu menn liðsins. Giinter Sebert, nýi þjálfarinn hjá Niirnberg, segir í Kicker að þeir séu ekki nægilega sterkir til að leika í 2. deildarkeppninni. Fimm útlendingar eru í herbúðum Niirnberg, en liðið getur ekki teflt fram nema tveimur í leik. Það verður Argentínumaðurinn Bustos sem verður í fremstu víglínu í kvöld. Hjá liðinu er einnig Tékkinn Kubik, sem er í leikbanni, og Austurríkismaðurinn Hintermaier. Róðramaður heim- sækir ísland BANDARÍKJAMAÐURINN Matt Smith, út- breiðslustjóri alþjóðlega róðrasambandsins, kemur til Islands í dag til að ræða við forráða- menn Róðrasambands Islands og kanna aðstæð- ur til róðra hér á landi. Smith, sem hefur bæki- stöðvar í Kaupmannahöfn, mun funda með mönnum frá Róðrasambandinu og róðramönn- um í dag, en á morgun fundar hann með mönn- um frá Iþróttasambandi íslands, Ólympíunefnd- inni og róðramönnum. Smith hefur það starf að stuðla að uppbyggingu og útbreiðslu róðra- íþróttarinnar í heiminum. Ungur FH-ingur æfir með Ekeren ARNAR Viðarsson, ungur knattspyrnumaður úr FH, er farinn til Belgíu, þar sem honutn hefur verið boðið að æfa með Ekeren. Amar er sonur Viðars Halldórssonar, fyrrum landsliðsfyrirliða úr FH. Þess má geta að Guðmundur Benedikts- son, knattspyrnumaður frá Akureyri, lék með Ekeren. Setti sitt þriðja heimsmet á viku KÍNVERSKA stúlkan Sun Caiyun setti sittþriðja heimsmet í stangarstökki innanhús á viku, er hún stökk 4,15 m í Erfurt í Þýskalandi á miðviku- daginn. Hún hafði áður stokki 4,13 m á móti í Karlsruhe á sunnudaginn og þá sökk hún 4,12 m í Berlín sl. föstudag. Sun hefur sett fimm heims- met í Þýskalandi á þremur vikum, þar sem hún stökk 4,10 m 4,10 í Zweibriicken 28. janúar og 4,11 í Pulheim, fyrir utan Köln, 3. febrúar. Tomba ánægður með annað eða þriðja sætið í Japan SKÍÐAKAPPINN Alberto Tomba frá Ítalíu, sem hefur fagnað sigri í tíu heimsbikarmótum í vet- ur, segist verða ánægður ef hann hafni í öðru til þriðja sæti í tveimur mótum í Furano í Japan um helgina, þar sem hann er ekki heill heilsu. Tomba, sem er 28 ára, sagðist ekki ætla að hætta eftir þetta keppnistímabil, eins og orðróm- ur hefur verið um. Hann hefur fagnað sigri í sjö svigkeppnum og þremur stórsvigskeppnum í vetur og er stigahæstur í keppninni um heims- bikarinn, með 1.050 stig. Næstur á blaði er Sló- vaninn Jure Kosir með 570 stig og í þriðja sæti er Marc Girardelli frá Lúxemborg með 563 stig. SVARTIR DAGAR í KNATTSPYRNUSÖGU ENGLANDS / C2

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.