Morgunblaðið - 19.02.1995, Page 2
2 C SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Styttri
vinnutími
hjá
Toyota
TOYOTA Motor Corp. lýsti því
yfír í vikunni að það hygðist
stytta vinnutímann í verk-
smiðjurn sínum um 15 mínútur
á dag. Árlegum vinnustundum
mun því fækka úr 1.952 í
1.891. Styttingin á vinnutíma
er tilkomin vegna þrýstings frá
aimenningi og gagnrýni um að
vinnutíminn í Japan sé of lang-
ur miðað við önnur lönd. Þetta
mun ekki draga úr framleiðslu
Toyota því til móts við styttri
vinnutíma verður matarhlé
starfsmanna stytt um 15 mín-
útur.
Helmingi
meiri hagn-
aður hjá
Hyundai
HAGNAÐUR af rekstri Hy-
undai Motor Co. var helmingi
meiri á síðasta almanaksári en
árið 1993. Aukinn hagnaður
er ekki síst tilkominn vegna
þess að friður ríkti á vinnu-
markaðnum og segja sérfræð-
ingar að hlutabréf í fyrirtæk-
inu séu skráð á of lágu gengi.
Nettóhagnaður af rekstri Hy-
undai á síðasta ári varð 11.634
milljónir ÍSK samanborið við
4.909 milljónir ÍSK í hitteð-
fyrra. Góð sala á millistærðar-
bílnum Sonata átti stóran þátt
í auknum hagnaði á árinu.
Góð afkoma
Saab
HAGNAÐUR Saab á síðasta
ári var rúmir 6,3 milljarðar ÍSK
-en áður hafði fyrirtækið verið
rekið með tapi í fimm ár. í
hitteðfyrra nam tapið 1,23
milljörðum ÍSK. Söluaukningin
á síðasta ári varð 20%. GM
keypti helmingshlut í Saab árið
1990 og 1991 voru starfsmenn
fyrirtækisins 15 þúsund. í byrj-
un þessa árs_voru starfsmenn-
irnir 7.830. í lok níunda ára-
tugarins tók það verksmiðjurn-
arí Trollháttanmeira en 100
klst að smíða einn bíl en í fyrra
var framleiðslutíminn kominn
niður í 40 klst. Saab seldi
88.700 bíla á síðasta ári, þar
af var næstum fjórðungurinn
fluttur út til Bandaríkjanna en
17 þúsund bílar seldust í Sví-
þjóð.
VOLVO 940 með forþjöppu
sem staðalbúnað.
Forþjappa í
940-línuna
VERÐ á Volvo 940-línunni
hækkar um nálægt 100 þúsund
ÍSK frá verksmiðju en I staðinn
verður forþjappa staðalbúnað-
ur í bílunum. Þar með hækkar
hestaflatalan úr 116 í 135.
Þessi stóri afturhjóladrifni bíli
mun ná 190 km hámarkshraða
á klst og hámarkshröðun verð-
ur 10 sekúndur úr kyrrstöðu í
100 km hraða á klst. ■
Ný f jöðrun í
Chevrolet S-10
MIKIL þróun hefur verið í jeppa-
breytingum hérlendis síðustu ár.
Breytingar á fjöðrunarkerfum hafa
orðið sífellt algengari því akstur í
snjó við erfiðar aðstæður krefst
annarra eiginleika en akstur á veg-
um með bundnu slitlagi. íslenskir
jeppamenn vilja hafa jeppana sína
með mjúka, slaglanga og vel demp-
aða fjöðrun. Guðni Ingimarsson er
nýbúinn að breyta fjöðrunarkerfi í
Chevrolet S-10 jeppa sínum. Hann
er vélaverkfræðingur með rrteist-
aragráðu í hönnun með aðstoð
tölvu. Hér verður sagt nánar frá
þessum breytingum.
Fyrir rúmum þremur árum hóf
Guðni að breyta Chevrolet S-10
pallbíl sínum úr afturdrifs bíl í ís-
lenskan fjallajeppa. Þegar hann
setti framdrifið undir ákvað hann
að nota gormafjöðrun að framan
og notast áfram við upphaflegu
blaðfjaðrirnar að aftan. Að framan
notaði hann stífur úr Ford Bronco,
gorma úr Range Rover og dempara
úr Toyta Land Cruiser. Við notkun
kom í ljós að að bíllinn fjaðraði
mjög vel að framan en að aftan var
hann of hastur og vildi skvetta aft-
urendanum upp.
Gormafjöðrun smíðuö
Ekki reyndist unnt að koma í veg
fyrir þetta með stillingu á dempur-
um nema bíllinn yrði enn hastari.
Nú á dögunum réðst Guðni í að
íjarlægja blaðfjaðrirnar að aftan
og smíða gormafjöðrun í staðinn.
Hann ákvað að hafa svokallaða
„four link“ fjöðrun. Hún saman-
stendur af fjórum stífum, tveim
hvoru megin og hliðarstífu. Hann
notar gorma úr Toyota Land Cruis-
er og Koni dempara. Stífurnar
smíðaði Guðni sjálfur svo og allar
festingar. Stífufóðringar eru úr
Toyota.
Niðurstaðan
Við prófun á bílnum eftir breyt-
ingarnar kom í ljós mikill munur á
hegðun bílsins. Hvers kyns ójöfnur,
holur og stalla líður bíllinn átaka-
laust yfir án þess að hafa tilhneig-
ingu til að kastast til eða skvetta
til afturendanum. Fjöðrunin er mun
slaglengri en áður og eiginleikar
Koni demparanna nýtast mun betur
en með blaðfjöðrunum. Mjúk og
slaglöng fjöðrun reynir mun minna
á yfirbyggingu og grind bílanna,
eykur endingu og hætta á sprungu-
myndun minnkar. Að sama skapi
Morgunblaðið/Hjalti Magnússon
MEÐ gormafjöðrun að framan og aftan hefur bíllinn
mikið fjöðrunarsvið.
HÁSINGIN undir bílnum
ásamt stífum og festingum
fer mun betur um ökumann og far-
þega við akstur á ójöfnum.
Við hönnun þessarar fjöðrunar
teiknaði Guðni fjöðrunarkerfið í
tölvu og reiknaði út styrkleika og
BÚIÐ er að koma fyrir stífu-
festingum og gormaskálum á
afturhásinguna.
burðarþol útfrá þyngd og hleðslu
bílsins. Síðan valdi hann saman þá
hluti sem hægt er að kaupa hér og
pössuðu best inn í heildarmyndina.
Hjalti Magnússon *
Topp tíu listi Car
BRESKA bílablaðið Car setur á hverju ári saman lista yfir tíu fal-
legustu bíla ársins, tíu ljótustu bílana auk átta annarra flokka þar
sem það flokkast annaðhvort undir heiður eða vonbrigði að vera á
lista. Við skulum sjá hvemig listinn lítur út:
Bestu vélarnar
1. Ferrari F355.
2. Ferrari 456GT.
3. Honda NSX.
4. Porsehe 911.
5. Volkswagen VR6.
6. Alfa 3.0 V6.
7. Honda VTEC 1.6.
8. BMW 2.0, sex strokka línuvél.
9. Vauxhall 2.0, 16 ventla.
10. Fiat Tipo 16 ventla.
Mestu akstursþægindln
1. Citroén XM.
2. Jaguar XJ6.
3. Citroén Xantia.
4. Mercedes S-línan.
5. Rolls-Royce Silver Spirit.
6. BMW 7-línan.
7. Renault Laguna.
8. Peugeot 405.
9. Renault Safrane.
10. Peugeot 306.
Bestu aksturselginleikarnir
1. Porsche 968 Clubsport.
2. Honda NSX.
3. Mercedes C36 AMG.
4. Ferrari 456GT.
5. Lotus Elan S2.
6. Volkswagen Corrado.
7. Peugeot 306 XSi.
8. Renault Clio Williams.
9. BMW 318iS Coupé.
10. Honda Prelude 4ws.
Bestu Grand Prix
kappakstursmennirnir
1. Michael Schumacher.
2. Gerhard Berger.
3. Damon Hill.
4. Mika Hakkinen.
5. Jean Alesi.
6. David Coultard.
7. Olivier Panis.
8. Rubens Barrichello.
9. Heinz-Harald Frentzen.
10. Martin Brundle.
Best byggðu bílarnir
1. Mercedes E-línan.
2. Porsche 911.
3. Mercedes S-línan.
4. Lexus LS400.
5. Mazda Xedos 6.
6. Honda Legend.
7. Audi A6.
8. BMW 5-línan.
9. Toyota Corolla.
10. Nissan Micra.
Bestu bílahönnuðirnir
1. Pininfarina (Ferrari 456GT,
nýr Alfa Spider).
2. Giorgetto Giugiaro (Fiat Punto,
Uno, VW Golf Mkl).
3. Patrick le Quement (sýningarbíl-
ar Renault, Twingo).
4. Tom Gale (Chrysler LH, Viper,
Neon).
5. Chris Bangle (Fiat Coupé, Alfa
Romeo 145).
6. Hideo Kodama (Vauxhall
Corsa, Tigra).
7. Harm Lagaay (Porsche Boxter,
nýr 911).
8. Marceilo Gandini (Lamborghini
Diablo, Citroén BX).
9. Ian Callum (Aston Martin DB7).
10. Moray Callum (Lagonda
Vignale sýningarbíll).
Fallegustu smáatrlðin
1. Ferrari F355 (stýrið).
2. Ferrari F355 (gírstöng
og -plata úr krómi).
3. Rolls-Royce (leðuráklæði).
4. Volvo 400 (barnastóll
í aftursæti).
5. Mercedes (lok fyrir öskubakka).
6. Audi A8 (platan í sjálfskipting-
unni).
7. Maserati (klukkan).
8. TVR Chimaera (hurðarhúnn að
innan).
9. Ferrari 355 (lok á olíu-
og eldsneytistank).
10. Rolls-Royce (hnappur í
loftræsikerfi).
Fallegasti bílllnn
1. Audi A8.
2. Vauxhall Corsa.
3. Mazda Xedos 6.
4. Aston DB7.
5. Ferrari 456GT.
6. Citroén Xantia.
7. BMW 3-línan coupé.
8. Ferrari F355.
9. Vauxhall Tigra.
10. Alfa Romeo 145.
Ljótasti bíllinn
1. Ford Scorpio.
2. Bristol Blenheim.
3. Mercedes S-línan coupé.
4. Vauxhall Monterey/
Isuzu Trooper.
5. Ford Maveriek/
Nissan Terrano II.
6. Rolls-Royce Silver Spirit.
7. Bugatti EB 110.
8. Mercedes S-Iínan saloon.
9. Hyundai Accent.
10. Volkswagen Passat.
Mestu vonbrigðln
1. Alfa Romeo 145.
2. Vauxhall Corsa.
3. Aston Martin Vantage.
4. Alfa Romeo 155.
5. Saab 900.
6. BMW 7-línan.
7. Volkswagen Golf.
8. Honda Accord.
9. Rover 400 Tourer.
10. Chrysler Viper.