Morgunblaðið - 24.02.1995, Síða 4
Eyjólfur Sverrisson
iiíliC!0ilwMa(JÍiÖ
Graham fékk
um 50 millj. frá
umboðsmann-
inum Hauge
George Graham, fyrrum þjálf-
ari Arsenal sem var reirinn
s.l. mánudag, fékk 425.500 pund
(um 44,7 millj. kr.) frá Interclub
Limited, fyrirtæki norska umboðs-
mannsins Rune Hauge, vegna
kaupa á John Jensen frá Bröndby
í Danmörku og Pal Lydersen frá
Start í Noregi. 1. desember s.l.
lagði Graham upphæðina inn á
reikning Arsenal auk 40.000
punda vaxtagreiðslna. Rannsókn-
amefnd ensku úrvalsdeildarinnar
greindi frá þessu í gær en kvað
ekki upp neinn dóm. Hins vegar
sagði Rick Parry, formaður nefnd-
arinnar, að hann hefði afhent
Knattspymusambandi Englands
skýrslu um málið enda væri það
þess að taka ákvörðun um fram-
haldið. í skýrslunni er haft eftir
Graham að hvorki hefði verið beð-
ið um greiðslurnar né gert ráð
fyrir þeim og hann hefði aldrei
hagnast á á félagaskiptum.
Parry sagði að rannsóknin hefði
sýnt að aukin þörf væri á skýrari
reglum um hlutverk umboðs-
manna, einkum hvað varðaði
hugsanlega hagsmunaárekstra
milli umbðsmanna og þjálfara, eft-
irlit á störfum umboðsmanna og
skriflega samninga við umboðs-
menn. Þörf væri á skýrari, ábyrg-
ari og raunhæfari reglum um þessi
atriði sem og reglum um viðurlög
ef ekki væri farið eftir settum
reglum. í skýrslunni er lagt til að
umboðsmenn verði að hafa ákveð-
in réttindi og að þeir verði að fylgja
ákveðnum siðareglum, að allir
samningar verði skráðir og nýjar
reglur verði settar inn í samninga
við þjálfara.
neuier
GEORGE Graham, þáverandi þjálfari Arsenal, ásamt fyrlrllAanum
David O’Leary, er IIAIA varA blkarmeistarl á Wembley 1991.
Cantona getur veríð
dæmdur í lífstíðarbann
Jean-Jacques Bertrand, lög-
fræðingur franska knatt-
spymumannsins Erics Cantona,
sagði í viðtali við franska íþrótta-
dagblaðið L’Equipe í gær að Can-
tona gæti alveg eins átt von á
því að Knattspymusamband
Englands dæmdi hann í lífstíðar-
bann frá knattspymu vegna
árásarinnar á áhorfanda á leik á
dögunum, en málið verður tekið
fyrir í dag.
Lögfræðingurinn sagði að
helsta hlutverk sitt væri að reyna
að koma í veg fyrir að Cantona
yrði beittur órétti. Hann hefði
sætt sig við bann Manchester
United en ef Knattspymusam-
bandið tæki of hart á brotinu
yrði það honum um megn. Allir
hefðu séð myndimar og enginn
neitaði staðreyndum en reynt
yrði að minna dómarana á sam-
hengið. „Viðreynum ekki að rétt-
læta það sem Eric gerði en viljum
skýra málið,“ sagði hann.
Bertrand sagði að Cantona
væri vinalegur í einkalífinu en
hann væri undir mjög miklu álagi
vegna þeirrar slæmu ímyndar
sem stöðugt væri otað að honum.
„Við tölum aðeins um Eric þegar
hann sleppir sér en gleymum
sjónvarpsvélunum sem tifa stöð-
ugt við glugga hans og gleymum
bresku fjölmiðlunum sem borga
fólki fyrir að mynda hann þegar
hann er í fríi,“ sagði lögfræðing-
urinn.
Eyjólfur og samherj-
ar halda settu marki
Veisla fyrir
þá „gömlu“
„ÞAÐ hefur lengi staðið til að
kalla saman gamalkunna knatt-
spyrnukappa; alla þá leikmenn
sem leikið hafa i 1. deildarkeppn-
inni í knattspyrnu," sagði Hall-
dór Einarsson (HENSON) þegar
hann var spurður um „Knatt-
spymuveislu aldarinnar — í þá
gömlu góðu daga“ sem haldin
verður á Hótel Islandi laugar-
dagskvöldið 29. apríl.
Halldór sagði að, eins og á
árum áður, yrði ekkert til spar-
að, þegar flautað verður til leiks
— boðið verður upp á fjölbreytta
dagskrá og skemmtiatriði.
„Knattspyrnuveislan er fyrir
alla, sem hafa tekið þátt í fyrstu
deildarkeppninni frá því að
deildarkeppnin var tekin upp
[1955], og alla aðra knattspyrnu-
vini,“ sagði Halldór.
Dagskrá kvöldsins verður afar
glæsileg, að sögn Halldórs. Gaml-
ir kappar verða heiðraðir fyrir
unnin afrek. Á árum áður þekkt-
ist það ekki að leikmenn ársins
væru útnefndir, jsins og gert hef-
ur verið frá 1970. Úr því verður
bætt og leikmenn ársins 1955 til
1969 útnefndir. Þá verða ára-
tuga-úrvalslið valin og kynnt.
Veislustjóri er Hermann Gunn-
arsson, fyrrum markvarðahreilir
úr Val, og Rúnar Júlíusson, sókn-
arleikmaður frá Keflavík, sér um
hljóðfæraleik og kallar til liðs
við sig gamalkunna sólóleikara
úr röðum knattspyrnumanna, til
að leika með og taka lagið.
Eyjólfur Sverrisson ákveður ekki
fyrr en í lok tímabilsins hvort
hann verður áfram hjá Besiktas í
Tyrklandi. Félagið leigði hann frá
Stuttgart til árs en hefur rétt á að
kaupa hann fyrir ákveðna upphæð
Eyjólfur sagði við Morgunblaðið
að hann ætlaði að sjá til í vor með
framhaldið og sömu sögu væri að
segja af Christoph Daum, þjálfara.
Baum hefur verið orðaður við And-
erlecht í Belgíu og jafnvel fleiri lið
en Eyjólfur sagði að hann væri
gjaman nefndur þegar þjálfara
vantaði, einkum í Þýskalandi, þar
sem hann hefði verið sterklega
nefndur að undanfömu sem næsti
þjálfari Werder Bremen.
Eyjólfur og samherjar í Besiktas
settu stefnuna á tyrkneska meist-
aratitilinn í byijun tímabilsins og
þeir eru með fjögurra stiga forystu
á toppnum eftir 4:0 sigur gegn
Trapzonspor um síðustu helgi. Eyj-
ólfur, sem hefur leikið sem varnar-
tengiliður að undanförnu, gerði þá
eftt mark og er markahæstur leik-
manna liðsins með átta mörk. Be-
siktas mætir Bursa á morgun og
Galatasaray um aðra helgi en Gal-
atasaray er í öðru sæti og á leik
inni. Galatasaray vann Fenerbaehe
9:8 eftir vítakeppni í undanúrslitum
bikarkeppninnar en staðan fyrir ví-
takeppnina var 1:1. Galatasaray
leikur til úrslita gegn Trapzonspor.
KNATTSPYRNA
HANDBOLTI
Svfinn
Magnus
Andersson
meiddur
Sænski landsliðsmaðurinn
Magnus Andersson meiddist á
læri í æfingalandsleik gegn Dönum
í Danmörku í fyrrakvöld og er ljóst
að hann verður frá á næstunni en
ekki er talið að meiðslin séu alvar-
leg. Svíar unnu 22:18 og svo aftur
í Svíþjóð f gærkvöldi, 24:19, eftir
að hafa verið marki undir í hléi.
Svíar tefldu fram sínu sterkasta liði
í fyrrakvöld en í gærkvöldi hvíldu
lykilmenn. Andersson var að sjálf-
sögðu ekki með en auk hans voru
Eric Hajas, Magnus Wislander og
Staffan Olsson fjarri góðu gamni
og Mats Olsson, markvörður, sat
allan tímann á bekknum. Markvörð-
urinn Jesper Hansson var valinn
maður leiksins en frammistaða
Dana vakti athygli vegna þess að
þeir eru „þungir“ eftir strangar
æfingar að undanförnu.
SJONVARP
Tveir körfu-
boltaleikir
sýndir beint
Körfuknattleiksmenn ættu að
kætast um helgina þvf á
morgun verða tveir leikir í úrvals-
deildinni sýndir í beinni útsendingu.
Stöð 2 sýnir leik ÍR og Grindavík-
ur, sem hefst kl. 14.30 í Seljaskóla
og tveimur klukkustundum síðar,
kl. 16.30 hefst leikur Vals og KR
að Hlíðarenda og verður hann sýnd-
ur beint í íþróttaþætti RÚV.
KNATTSPYRNA
Met hjá INIantes
NANTES setti í gærkvöldi met í
frönsku knattspyrnunni, er liðið lék
27. leikinn í röð án taps — er því
enn taplaust í deildarkeppninni í
vetur. Nantes gerði í gærkvöldi
jafntefli, 1:1, gegn St. Etienne á
útivelli. Núverandi meistaralið, Par-
ís SG, átti metið, en PSG var tap-
laust í fyrstu 26 leikjum 1. deildar-
keppninnar veturinn 1986-1987.
Blikartil
Hannover
1. DEILDARLIÐ Breiðabliks í
knattspymu fer í æfingabúðir til
Hannover í Þýskalandi um páskana.