Morgunblaðið - 25.02.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.02.1995, Blaðsíða 2
2 C LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ ASVIÐINU takast hákarlarnir og þoturnar á um völdin. Á „hlutlausu svæði“ snýst leikurinn um að ögra, að halda sínu og það er gert í gegnum dansinn. Þegar út fyrir svæðið er komið tekur al- varan við. Mitt í þessari ólgu kynn- ast ungur maður og ung kona og rétt eins og í öðrum harmleikjum er þeim ekki ætlað að eigast. Þetta er sögusvið söngleiksins Sögu úr Vesturbænum, sem verður frum- sýndur á stóra sviði Þjóðleikhússins næstkomandi föstudag. Saga úr Vesturbænum hefur ekki áður verið sýnd hérlendis en lögin úr söngleiknum eru löngu sí- gild og fjölmargir hafa séð sam- nefnda kvikmynd. Viðfangsefnið er og sígilt, elskendumir ungu sem fá ekki að njótast. Efniviðurinn er fenginn úr Rómeó og Júlíu en ill örlög elskendanna ráðast ekki leng- ur af ættardeilum, heldur innbyrðis baráttu fátækra innflytjenda í suðu- pottinum New York á sjötta ára- tugnum. Tónlistin er eftir Leonard Bemstein, söngtextar eftir Stephen Sondheim, en söngleikurinn er byggður á hugmynd Jerome Robb- ins. Sagt er að hugmyndin að Sögu úr Vesturbænum hafi kviknað hjá Robbins árið 1949 er til hans leit- aði um ráðleggingar leikari sem átti að fara með hlutverk Rómeós. Leikaranum, ungum New Yörk- búa, gekk illa að finna flöt á verk- inu. Robbins fékk þá hugmyndina að harmleik sem ætti sér stað í New York. í stað ættanna sem deildu, skyldu það vera gyðingar og kaþól- ikkar og kynnti hann Bernstein hugmyndina. Hortum leist vel á en vegna anna þeirra beggja var hún lögð til hliðar í sex ár en þá tóku þeir upp þráð- inn að nýju. Bernstein og Robbins Morgunblaðið/Ámi Sæberg DANSSALURINN er „hlutlaust svæði“ og þar sýna klíkurnar mátt sinn og megin í dansinum. FORINGJAR klíkanna eigast við; Hilmir Snær Guðnason fer fyrir þotunum og Baltasar Kormákur fyrir hákörlunum. nokkrum söngleikjum; m.a. í Gauragangi, Tjútti og trega og Blóðbræðrum, þar sem hann fór með aðalhlutverkið. „Það má vel segja að Tony og María séu hið staðlaða unga ást- fangna par. í þeim er þó heilmikil dýpt. María er stúlka sem reynir að bijótast undan foreldravaldinu. Hún er dóttir innflytjenda frá Pu- erto Rico, óð og uppvæg að upplifa Bandaríkin. Henni finnast allir veg- ir færir en annað kemur á daginn," segir Marta. Tony er af öðru tagi. Sonur pólskra innflytjenda, fæddur í Bandaríkjunum. „Hann er töffari, var foringi í klíku en er að reyna að draga sig út úr henni til að hefja nýtt líf. Hann brýtur odd af oflæti SVALAATRIÐIÐ úr Rómeó og Júlíu á sér hliðstæðu í brunastigan- um á hrörlegum húskofa sem María býr f. Þar leitar Tony hana uppi. Marta Halldórsdóttir og Felix Bergson í hlutverkum sínum. urðu sammála um að hugmyndin um stúlku af gyðingaættum og unga kaþólikkann gengi ekki upp og andstæðu fylkingarnar breyttust í innflytjendur frá Puerto Rico og Evrójiu. „Skyndilega öðlast verkið líf. Eg heyri hrynjandi og þungan söngleikurinn", byggður á óvenju- legu efni á þessum tíma, glæpaklík- um ungmenna og misrétti. Sklptast á um aðalhlutverkin Karl Ágúst Úlfsson þýddi verkið og leikstýrði en Ken Oldfield er Fjórir leikarar og söngvarar fara með aðalhlutverkin. Marta Hall- dórsdóttir og Felix Bergson skiptast á við þau Garðar Thór Cortes og Valgerði G. Guðnadóttur um að fara með hlutverk ungu elskend- anna Tonys og Maríu. Fjöldi annarra leikara kemur fram í sýningunni, m.a. Sigrún Waage, Baltasar Kormákur, Hilmir Snær Guðnason, Gunnar Helgason, Vigdís Gunnarsdóttir og Rúrik Har- aldsson. Spennan er smám saman farin að magnast hjá leikurunum enda viðamikill söngleikur á ferð og ekk- ert áhlaupaverk að syngja lögin úr Sögu úr Vesturbænum, sem kölluð hefur verið fyrsta bandaríska óp- eran. Marta og Felix munu syngja á frumsýningunni. Marta er sópran- SAGA UR VESTURBÆNDAUM FRUMSYND I ÞJOÐMLISLEIKHUSIIMU slátt og framar öllu, ég get næstum því fundið fyrir forminu," segir Bemstein í minnispunktum sínum um verkið. Saga úr Vesturbænum var frum- sýnd í New York árið 1957 og hlaut þegar gríðarlegar vinsældir. Þrátt fyrir það er ekki um að ræða hrein- ræktaðan söngleik, hér var miklu fremur á ferðinni fyrsti „harmræni danshöfundur og kom einnig að leikstjórninni er leið á æfingatím- ann. Aðstoðarleikstjóri er Randver Þorláksson, Finnur Arnar Arnars- son hannaði leikmynd og María Ólafsdóttir búninga. Björn Berg- steinn Guðmundsson sá um lýsingu, Sveinn Kjartansson annast hljóð- stjórn og tónlistarstjórn er í höndum Jóhanns G. Jóhannssonar. söngkona og á að baki fimm ára söngnám í Miinchen. Hún söng aðalhlutverkið í Óperudraugnum hjá Leikfélagi Akureyrar á síðasta leikári og söng einnig í óperunni Sónötu, sem sýnd var í haust í ís- lensku óperunni. Auk þessa hefur Marta sungið á einsöngstónleikum bæði ný verk og eldri. Felix lærði leiklist í Edinborg og hefur leikið í I Helstu straumar hðggmyndalist ÞRlR punktar, 1986, eftir GunnarTorvund. Frá prímití- visma til póstmódemisma, samstarfsverkefni Lista- safns Siguijóns Ólafsson- og Hafnarborgar, menningar- og lista- stofnunar Hafnarfjarð- ar, verður opnuð í dag. Sýningin er liður í Norrænu menningar- hátíðinni - Sólstöfum sem haldin er í tengsl- um við þing Norður- landaráðs í Reykja- vík. Sýningin hefur meðal annars hlotið styrki frá mennta- málaráðuneytinu og frá Norræna menningarsjóðn- um. Forseti ís- iands, frú Vigdís Finnbogadóttir, er verndari sýningarinn- ar. Með sýningunni er ætlunin að draga fram helstu strauma í höggmyndalist aldarinnar eins og þeir birtast í verkum fimm norrænna listamanna sem hafa verið stefnu- mótandi, hver með sínum hætti. Bror HJorth Sænski listamaðurinn Bror Hjorth (1894-1968) er hér í eins konar önd- vegi. Hann nam í París á þriðja ára- tugnum og sótti meðal annars tíma hjá myndhöggvaranum Antoine Bo- urdelle og bytjaði þar jafnframt að mála. Einn nemenda var Alberto Giacometti. Á Parísarárunum hreifst Hjorth af afrískri list og tengdi hana tréskurðarlist sænskra bænda. Hann kaus að kalla sig prímitívista og vildi með list sinni tjá sterkar og einfaldar tilfinningar. Bror Hjorth gerði engan greinar- mun á málaralist og höggmyndalist. Hann málaði oft lágmyndir sínar og skúlptúra og með því að skera sjálf- ur í furu og skreyta fijálslega ram- mana utan um málverk sín gæddi hann þau eiginleikum skúlptúrs. Það telst viburður að verk þessa listamanns eru nú sýnd í fyrsta sinn MAÐUR og kona eftir Sigurjón Ólafsson. hér á landi. í tilefni aldarafmælis listamannsins í fyrra voru haldnar margar sýningar á verkum hans í Svíþjóð. Flest verk á sýningunni eru í eigu Bror Hjorth safnsins í Uppsöl- um. Sigurjón Ólafsson Siguijón Ólafsson (1908-1982) er meðal frumheija afstraktlistar á Norðurlöndum og vöktu myndir hans mikla athygli og stundum hneykslun. Meðal verka á sýningunni er tíma- mótaverkið Maður og kona sem hann gerði í Danmörku 1938-39 og er í eigu listasafnsins í Álaborg. Að sögn ekkju Siguijóns, Birgittu Spur, steig hann hér skrefið til fulls og vann afstraktverk þar sem flestar beinar skírskotanir til mannslíkamans voru horfnar, þess í stað er efnið, eik og linditré, notað á táknrænan hátt í hreinni formsköpun og telst verkið meðal merkustu höggmynda sem gerðar voru í Danmörku undir merkjum módemis- mans. Á sýningunni er verk sem hefur verið í einkaeign í Danmörku í 50 ár og aldrei áður verið sýnt. Þetta er Þrá sem sýnir tvær verur mótað- ar í gifs og festar á plötu á vegg. Siguijón hafði eins og fleiri framúrstefnumenn fjórða áratugarins í Dan- mörku áhuga á fmmstæðri list sem tengdist leit þeirra HEILAGT tré, 1978, eftir Mauno Hartmann. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.