Morgunblaðið - 25.02.1995, Blaðsíða 8
9 *
8 C LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
CnN ERUM við stödd í Kaffileikhúsinu.
“ Verið að búa allt undir æfingu á nokkr-
um atriðum úr Sápu tvö; Sex við sama borð
og enginn lýgur. „Hver verður að hugsa um
sitt props (leikmuni),“ segir leikstjórinn, Sig-
ríður Margrét Guðmundsdsóttir. Leikararnir
halda áfram að laga sig til.
„Er of mikið að hann sé í hvítri skyrtu,"
segir Margrét Guðmundsdóttir, einn leik-
enda, um eiginmann sinn, Bessa Bjarnason,
en þau leika hjón í þessu nýja leikriti, sem
fjallar um framhjáhald. Ég bíð spennt eftir
að sjá við hverja þau hjón halda af hinum
tveimur pörunum sem eru persónur í þessu
verki.
Margrét Guðmundsdóttir er komin með
rúllur í hárið og er að troða sundhettu yfir
það. Bessi sprangar um með litinn hatt,
Margrét Ákadóttir er í svartri kápu með
stóra slæðu sem hún stillir sig um að hafa
á ljósmynd: „Svo fagurskapaður hálsinn fái
að njóta sín,“ segir hún og glottir til mín.
Valgeir Skagfjörð fer inn á sviðið og sest
við píanó, hann er kominn í rauðan jakka
og tilbúinn í slaginn. Utan sviðs, ekki langt
frá, bíða þau Edda Björgvinsdóttir og Egg-
ert Þorleifsson eftir að það komi að þeim.
Það er dregið úr styrk ljósanna um leið og
æfingin hefst. Bessi og Margrét Ákadóttir
koma inn og Valgeir tekur að spila sjarmer-
andi lag sem er eftir hann sjálfan. Margrét
neitar að fara úr kápu og hatti. „Ég ræð
sjálf hvort ég fækka fötum eða ekki,“ segir
hún fastmælt. Svo mýkist hún á manninn
og segist þiggja heitt súkkulaði og ístertu.
„Og mig langar í þig,“ segir Bessi ísmeygi-
lega við ástmey sína. Litlu seinna taka þau
að dansa og syngja um súkkulaðiöskju og
Svisslandsferð. Þau eru eitt parið í hinum
þrefalda þríhyrningi framhjáhaldsins sem
þarna er á dagskrá.
Ábyrgð á þessu verki, Sex við sama borð
og enginn lýgur, bera þær Hugleikskonur
Ingibjörg Hjartardóttir og Sigrún Óskars-
dóttir.
— Ljúga þau ekki öll, spyr ég.
„Jú, en upp komast svik um síður, þau
ljúga á víxl,“ segir Sigrún.
„Þetta er óður til hjónabandsins frekar
en hitt,“ segir Ingibjörg.
„Óður til hins hversdagsléga hjónabands
en ekki til ævintýramennskunnar og hinna
rósrauðu skýja,“ segir Sigrún.
— Hafið þið einhveija sérstaka fyrirmynd
í þessum skrifum, spyr ég.
„Þetta er auðvitað byggt á sönnum atburð-
um — eða þannig. Án gamans er þetta
þjóðfélagið í hnotskurn," segir Ingibjörg.
„Það má segja að áhorefndur séu að kíkja
í gegnum skráargat, þeir verða óvart vitni
að þessu öllu saman,“ segir Sigrún.
— Er framhjáhald svo algengt að hægt
sé að kalla það þjóðaríþrótt eins og gert er
í kynningu á þessu verki, spyr ég.
LEIKARAR í Sex við sama borð
Ljjósmynd: Morgunblaðið/Kristinn
lýgur.
Miðvikudagskvöldið fyrsta
mars nk. verður tíunda verk
leikársins í Kaffíleikhúsinu
frumsýnt. Það er Sápa tvö:
Sex við sama borð og enginn
lýgur eftir Ingibjörgu Hjartar-
dóttur og Sigrúnu Óskarsdótt-
ur. Guðrún Guðlaugsdóttir-
leit inn á æfingu hjá Kaffileik-
húsinu og ræddi við höfunda
og leikstjóra Sápu tvö.
„Það verður hver að líta í eigin barm og
svara því, það er spurning hvort þetta sé
svona eða ekki,“ svara þær skrifstöllur.
HÖFUNDAR Sápu tvö: Ingibjörg Hjart-
ardóttir og Sigrún Óskarsdóttir.
Þær segja mér ennfremur að þær hafi
ákveðið að láta þessa hugmynd í ljósi þegar
auglýst var eftir verkefnum fyrir Kaffileik-
húsið í framhaldi af Sápu eitt eftir Auði
Haralds. Hugmynd þeirra var keypt og verk-
ið síðan skrifað í janúar á þessu ári. „Við
veltum vöngum yfir hvað fólk talaði um í
þessum efnum og hvað veldur öllum þeim
vandræðagangi sem í kringum svoha mál
er. Við leyfum áhorfendum að sjá einn
klukkutíma í lífi þrennra hjóna sem öll halda
hvert við annað á víxl. Leiðir þeirra allra
liggja saman í kaffihúsinu Hlaðvarpanum.
Þetta er sem sé skrifað fyrir Hlaðvarpann
og með þessa leikara sex í huga og þessa
parablöndu,“ upplýsa höfundarnir tveir, Ingi-
björg og Sigrún. Þær hafa áður skrifáð sam-
an, m.a. Fólkið í Þingholtunum, sem útvarp-
ið flutti fyrir nokkru.
„Fólki er vinsamlega bent á að íjölmenna
í Hlaðvarpann og sjá þetta verk okkar og
athuga um leið hvort það sjái ekki eitthvað
að umhverfi sínu á sviðinu þar,“ segir Sigrún,
„Síðast en ekki síst er lögð áhersla á þett4
er óður til hjónabandsins," endurtekur Ingi-
björg.
Leikstjóri verksins, Sigríður Margrét Guð-
mundsdóttir, situr líka fyrir svörum hjá
blaðgmanni Morgunblaðsins. „Æfingar á
þessu verki hófust í byrjun febrúar og textj
inn hefur kryddast töluvert á æfingum með
hópnum. Svo mjög hafa höfundar verið til-i
búnir til að taka ábendingum hópsins að.
fólk hefur haft á orði að það megi ekki mis-;
mæla sig þá sé það komið inn í handritið,"';
segir leikstjórinn og hlær við. Hún bætir við
að Ingibjörg Hjartardóttir hafi gjarnan setið
með tölvuna í kjöltunni á æfíngum, það sé
allténd til í þessum ummælum.
„Fyrir utan hinn ágæta texta þeirra Ingi-
bjargar og Sigrúnar hefur Valgeir Skagfjörð
lagt heldur betur í púkkið, hann er alger
snillingur; hefur samið bæði lög og texta í
sýninguna," segir Sigríður Margrét.
Hún bætir við að verkið sé farsi, það sé
t.d. skondin tilviljun að allt þetta fólk skuli
hittast á þessum sama stað, en sú tilviljun
á sér auðvitað þær rætur að þetta verk er'
skrifað með Hlaðvarpann íhuga.„Við þurfum|
því ekki að hafa neinar áhyggjur af leik- \
mynd. Því má bæta við að það er búið að;1
vera algerlega áreynslulaust að vinna með ;
þessu ágæta fólki,“ segir Sigríður Margrét.!
„Þetta er hugmyndaríkur hópur. Aðalatriðið
fyrir okkur öll er að búa til skemmtilega
sýningu."
Ása Richardsdóttur framkvæmdastjóri
Hlaðvarpans á síðasta orðið í þessari saman- •
tekt: „Þetta er fimmtíu mínútna sýning á
skemmtilegu verki með lifandi tónlist, sem
hvort tveggja er frumsamið fyrir þessa sýn-
ingu. Leikararnir eru einvala lið atvinnu-
manna í leiklist og leikgleðin er mikil. Fólk
fær því sannarlega mikið fyrir pepingana
sína sem sér þessa sýningu," segir Ása með
þungum sannfæringarkrafti.
Svo mikið er víst, eitthvað skemmtilegt
liggur í loftinu í Hlaðvarpanum núna, eitt-
hvað iðandi og eftirvæntingarfullt í bland
við skelmislegan og rammíslenskan veru-
leika. Á því gat blaðamaður næstum þreif-
að, þá stund sem hann stóð við í Kaffileikhús-
inu að þessu sinni.
KAMMERKÓR Erics Ericsons hefur skipað öndvegissess í sænsku og alþjóðlegu tónlistarlífi.
Fiá endiirreisnartónlisl
til framúrstefnu
VERÐLAUIMAHAFI TOIMLISTARVERÐLAUIMA IMORÐURLAIMDARAÐS
SVÍINN Eric Ericson (f. 1918)
. tekur á móti Tónlistarverð-
launum Norðurlandaráðs í Reykja-
vík 28. febrúar.
Viðurkenningar eru honum ekki
framandi. Sumarið 1991 voru hon-
um veitt Sonningverðlaunin dönsku.
Hann er félagi í Konunglegu sænsku
tónlistarakademíunni og heiðúrsfor-
seti Alþjóða-
samtaka kór-
tónlistar.
Mikll áhrif á kórsöng
Eric Ericson er sagður hafa haft
afgerandi áhrif á meirihluta kór-
söngvara í Svíþjóð og annars staðar
í heiminum. Hann hefur varið
starfsævi sinni í þágu kórstjórnar
og hefur starf hans hafið kórsöng
til vegs og virðingar sem listform.
Sem prófessor við Tónlistarháskól-
ann í Stokkhólmi hefur hann mennt-
að heila kynslóð af kórstjórum, sam-
tímis því að hafa staðið fyrir fjölda
námskeiða í Evrópu og Bandaríkj-
unum.
Kirkjutónlistarmaður í fyrstu
Upphaflega er Eric Ericson
menntaður sem kirkjutónlistarmað-
ur við Tónlistarakademíuna í Stokk-
hólmi og nam einnig í Basel. Að
loknu námi 1946 stofnaði hann
Kammerkórinn sem nú heitir
Kammerkór Erics Ericsons. Sænski
útvarpskórinn var stofnaður 1951
að frumkvæði hans og stjórnaði
hann honum til 1982. Síðan 1951
hefur hann einnig verið kórstjóri og
listrænn stjórnandi Orphei-drengj-
anna.
Starf Ericsons hefur orðið æ
umfangsmeira á alþjóðlegum vett-
vangi með árunum og hefur hann
verið gestastjórnandi fjölda merkra
kóra víða um heim.
Öndvegissess
Kammerkór Erics-
sons hefur skipað önd-
vegissess í sænsku og
alþjóðlegu tónlistarlífi.
Sá mikli áhugi sem
kórinn og stjórnandi
hans hefur á að leita
uppi nýja tónlist og ný
starfssvið gerir það að
verkum að efnisskrá
kórsins er mjög víðf-
eðm: Frá endurreisnar-
tónlist til nýjustu fram-
úrstefnutónlistar. í
augum sænskra tón-
skálda hefur Kammer-
kórinn verið fyrir-
myndarkór með dæmigerðan nor-
rænan hljóm.
í alþjóðlegu tilliti skipar Kammer-
kór Eric Ericsons sér í fremstu röð
blandaðra kóra og hef-
ur kórinn sungið inn á
fjölda hljómplatna.
Eric Ericsson stjórn-
aði tónlistarflutningi í
víðfrægri sjónvarps-
uppfærslu Ingmars
Bergmans á Töfra-
flautunni eftir Mozart.
Norræn efnisskrá í
Langholtskirkju
Sunnudaginn 26.
febrúar kl. 17 verða
tónleikar í Langholts-
kirkju þar sem Kam-
merkór Erics Ericsons
flytur norræna efnis-
skrá. Tónleikarnir eru
haldnir á vegum Nor-
rænu menningarhátíðarinnar — Sól-
stafa og Ríkisútvarpsins. Stjómandi
er Eric Ericson.
Eric Ericson
kórstjóri