Morgunblaðið - 25.02.1995, Side 7

Morgunblaðið - 25.02.1995, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1995 C 7 KRISTJÁN Steingrímur Jónsson: Andstöður. Ihugun á eðli myndlistarinnar IMIU UIMGIR LISTAMENIM SYIMA I GERÐARSAFIMI SÝNINGIN „Wollemi-furan“ verður opnuð í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni, í dag, laugardag. Þar sýna níu ungir listamenn seín flestir hófu feril sinn um það leyti sem gagnrýn- in á framúrstefnu nútímahyggj- unnar var orðin hávær og við blasti að finna þyrfti ný gildi í myndlist. Þeir sem sýna eru Eggert Pétursson, Hallgrímur Helgason, Húbert Nói Jóhanns- son, Inga Þórey Jóhannsdóttir, Kristinn G. Harðarson, Kristján Steingrímur Jónsson, Ráðhildur Ingadóttir, Sigurður Árni Sig- urðsson og Tumi Magnússon. Yfirskrift sýningarinnar vísar til furutegundar sem nýlega fannst í Wollemi-þjóðgarðinum í Ástralíu. Hún var talin útdauð fyrir um 150 milljónum ára. Þessi tré verða um 40 metra há, ummál stofnsins 2 metrar, börk- urinn brúnn og vaxkenndur, svo minnir helst á súkkulaði. Teg- undin hefur ekki enn fengið fræðilegt heiti en er kölluð Wollemi-fura eða ástralskt jóla- tré. Tumi Magnússon segir í inn- gangi sínum að sýningunni að svipað sé nú ástatt um málverk- ið í heiminum og um furuna. Það hafi verið útdautt frá því um 1960 en lifi þó góðu lífi, stundum líkist það súkkulaði, stundum jólatré og það geti vel orðið 40 metra hátt. „Hin mikla leit að nýjum miðlum í mynd- list, sem staðið hefur und- anfarna áratugi og hefur fyrir löngu (að því er sagt er) gengið af málverkinu dauðu, hefur nefnilega stóraukið möguleika þess.“ Segir Tumi að hugmyndin að sýningunni sé að velja sama hóp listamanna sem mála á þeim forsendum að hugmyndin, hugs- unin, sé undirstaða hins sjón- ræna eða efnislega þáttar. Mál- verkið sé ekki útgangspunktur heldur aðferðin. „Það þýðir eflaust að það er konseptlistin sem hefur sett mark sitt á flesta sýnendur, þótt hún sé að mörgu leyti andstæð málverki." Nokkur verkanna á sýning- unni eru rýmistengd. Með sum- um þeirra er reynt að auka að- ferðalega möguleika málverks- ins, önnur eru tiltölulega hefð- bundin í útliti og hugmyndaleg afstaða listamannsins kemur aðeins fram í viðfangsefninu. I aðfaraorðum Guðbjargar Kristjánsdóttur segir að lista- mennirnir níu hafi kynnst kons- eptlistinni á skólaárum sínum og þegar þau hafi farið að mála á 9. áratugnum hafi mátt greina áhrif frá þessari stefnu því að þau hafi lagt áherslu á hugsun og merkingu í list sinni. íhugun um eðli myndlistarinnar og at- huganir á ákveðnum þáttum hennar sé oft að finna í verkum þeirra. Þau líti á málverkið sem lifandi miðil sem nota megi til jafns við aðra miðla. Með því móti vísi þau á bug að kreppa rlki í málverkinu og nýti sér þess í stað þá möguleika sem konseptlistin hafi opnað til að gefa þessum aldagamla miðli nýja merkingu. Draugarnir í manninum SKUGGAVALDUR er rómuð sýning norska Samaleikhússins Beaiwás. Leikritið er eftir Inger Margrethe Olsen, en leikstjóri er leikhússtjórinn Haukur J. Gunn- arsson. Leikstjórinn byggir túlkun sína á sjón- rænu táknmáli þar sem samspilið milli texta, leikmyndar, ljóss og leikstjórnar á að gera verkið aðgengilegt fyrir áhorfendur sem ekki skilja samísku. Samísk leikaðferð Skuggavaldur hefur fengið mjög góðar undirtektir. í Nordlys, stærsta dagblaði Norður-Noregs, segir að Haukur J. Gunn- arsson sé á góðri leið með veigamikið verk- efni sem sé að skapa samíska svo að ekki sé sagt norræna leikaðferð sem byggi á samískri menningu, vestrænu nútímaleik- húsi og hefðbundinni japanskri leiklist sem hann þekki. „Við viljum bijótast gegnum tungu- málamúrinn með hinu sammannlega þema og stílfærða formi sem sjá má í Skugga- valdi. Sem samískt þjóðleikhús berum við einnig mikla ábyrgð gagvart áhorfendum af öðru þjóðerni en samísku", segir Haukur J. Gunnarsson. Draugurinn í okkur Skuggavaldur er þýðing á gömlu samísku orði Skoavdnji sem merkir eitthvað stórt, svart og óhugnanlegt á að líta eða eitthvað SKUGGAVALDUR verður sýndur einu sinni í Þjóðleikhúsinu. Á myndinni eru aðal- leikararnir Anitta Suikkari (Eliisa) og Svein B. Olsen (Piera). sem kemur þannig fyrir sjónir í myrkri. Leikritið gerist í litlum samískum fiskibæ við Norður-Ishafsströndina um 1920. Fólkið er háð náttúrunni og lífsbjörg hafsins. Aðalpersónan í Skuggavaldi, Piera, er sagður álíka óútreiknanlegur og hafið. Þeg- SAMALEIKHUSIÐ BEAIVVAS ar hann kvænist stúlkunni Eliisu fer hann að sýna á sér óvæntar hliðar. Hann breytist úr ástríkum eiginmanni í djöful. Eliisa elsk- ar eiginmann sinn þrátt fyrir að verstu hlið- ar hans bitni á henni og fyrirgefur honum andlega og líkamlega kúgun. Hún losnar ekki úr neti hans fyrr en hann banar henni í stjórnlausu reiði- og afbrýðikasti. En sál hennar yfirgefur hann ekki og fylgir honum friðlaus eftir. Ofbeldl Inger Margrethe Olsen, höfundur Skuggavalds, segir um Piera að hann sé geðveikur ofbeldismaður. „Út á við er hann bæði aðlaðandi og vingjarnlegur, en heima er hann hvorki góður né vinalegur," segir hún og bætir við: „Hann hefur aldrei lært tjáskipti í orðum og notar eingöngu líkam- ann. Hann er útfarinn í að ráðskast með meðbræður sína og bijóta þá niður til þess að fá vald yfir þeim“. Hún leggur áherslu á að draugarnir í okkur skjóti sífellt upp kollinum. Þá sé ekki unnt að kveða alveg niður, en bæta megi úr misgjörðum með því að horfast í augu við draugana. í Skuggavaldi er draugurinn írnynd samviskunnar. Áhorfendur eiga með verkinu að gera sér grein fyrir öllum Pierön- um í kringum okkur og hamla gegn þeim. Skuggavaldur verður sýndur í Þjóðleik- húsinu sunnudaginn 26. febrúar kl. 20 og er það eina sýningin hér á landi. J. H.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.