Morgunblaðið - 11.03.1995, Qupperneq 1
JM*t$tut(fafrUk
F
1995
LAUGARDAGUR 11. MARZ
BLAD
Guðni ræðir
við Bolton
GUÐNI Bergsson, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu,
hefur verið í Bolton síðan á miðvikudag og átt í
viðræðum við Bruce Rioch, framkvæmdastjóra
enska 1. deildarliðsins Bolton Wanderers. „Það
er ekkert frágengið. Ég ræði við forráðamenn
félagsins áfram yfir helgina," sagði Guðni við
Morgunblaðið í gær, en hann fylgist með liðinu
í toppslag deildarinnar gegn Middlesbrough í dag
á heimavelli. Guðni hefur verið í London síðustu
vikurnar, þar sem hann hefur æft með Totten-
ham, sem hann lék með um tíma og er bundinn,
vilji hann snúa á ný í atvinnumennsku. West Ham
og Bolton hafa bæði sýnt honum áhuga — West
Ham er i botnbaráttu úrvalsdeildarinnar en Bolt-
on í 3. sæti 1. deildar, auk þess sem liðið er komið
í úrslit deildarbikarkeppninnar; mætir Liverpool
á Wembley sunnudaginn 2. apríl nk.
HANDKNATTLEIKUR
Franc Booker látinn fara
Bryndís ætlar sér
að keppa á Smá-
þjóðaleikunum
KR-INGAR urðu fyrir miklu áfalli á fimmtudags-
kvöldið er Falur Harðarson, aðalbakvörður og
leikstjórnandi liðsins snéri sig illa á æfingu. „Ég
var í vörn og var að reyna að „stela“ boltanum
þegar ég steig ofan á fótin á sóknarmanninum
og snéri mig svona ferlega illa á vinstri ökklan-
um,“ sagði Falur í samtali við Morgunblaðið í
gær. „Það er ekki einu sinni fræðilegur mögu-
leiki á að ég leiki með gegn Njarðvík og alveg
ljóst að þaðverður enginn körfubolti hjá mér á
næstunni. Ökklinn er mikið bólginn og ég finn
mikið til í honum, en það á að bíða með að at-
huga hann fram yfir helgi, þá kemur í ljós hvort
eitthvað er slitið," sagði Falur.
Falur lék alla leikina með KR í deildarkeppn-
inni nema einn. Hann var stigahæstur leikmanna
með 562 stig og bætti síðan við 19 stigum gegn
Njarðvík í fyrsta/fyrri leik liðanna í 8-liða úrslit-
unum, þannig að sjá má að missir KR-inga er
mikill.
BRYNDÍS Ólafsdóttir sundkona úr Ægi hefur
ákveðið að hefja æfingar á nýjan leik, að minnsta
kosti að því marki að hún komist á Smáþjóðaleik-
ana sem fram fara í Lúxemborg í sumar. „Mark-
miðið er að komast á Smáþjóðaleikana. Ég hef
verið með á þeim frá uphafi og þetta verður þá
í fimmta sinn. Það er svo gaman á þessum leikum
og öll umgjörðin er skemmtileg að mig langar
að vera með,“ sagði Bryndís í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
En þú varst hætt, er það ekki?
„Jú, ég sagði fyrir ári að ég ætlaði að hætta
í landsliðinu. Svo fékk ég svo góða tíma á bikar-
mótinu um daginn að ég gat ekki látið þetta
tækifæri fram þjá mér fara, þannig að ég stefni
á Smáþjóðaleikana, “ sagði Bryndís.
Birna Björnsdóttir úr Sundfélagi Hafnarfjarð-
ar hefur einnig sett stefnuna á leikana, en hún
veiktist illa á leikunum á Möltu fyrir tveimur
árum, fékk salmonellu. Birna hefur meira og
minna verið frá æfingum síðan en er nú að ná
sér á strik eftir veikindin og stefnir á leikana í
Lúxemborg.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
KA tryggði sér oddaleik
KA-menn sigruðu Víkinga í öðrum lelk liðanna í undanúrslitum íslandsmóts-
ins í handknattlelk á Akureyri í gærkvöldi, 22:19, og liðin mætast því þriðja
sinni — í Víkinnl á mánudagskvöld — tii að fá úr því skorið hvort mætir Val
um meistaratitilinn. Erlingur Kristjánsson skorar hér eitt marka í gær.
■ Súrsæt hefnd / F2
KORFUKNATTLEIKUR
KORFUBOLTI
Jordan
aftur
með
Chicago
Bulls?
MICHAEL Jordan lýsti því yfir í
gær að hann væri hættur í hafna-
boltanum og telja menn það
merki um að hann sé að hugsa
um að snúa sér að körfuknatt-
Ieiknum á nýjan leik en Jordan
hefur æft með sínum fyrri félög-
um í Chicago að undanförnu.
Jordan hefur hins vegar verið
þögull sem gröfin um möguleik-
ana á því að hann taki upp þráð-
inn hjá. Chicago Bulls en það sama
verður ekki sagt um fjölmiðla
vestanhafs.
Dagblaðið Chicago Tribune
segist til að mynda vita til þess
að Jordan hafi undanfarið sagt
við vini sína, fyrrum liðsmenn og
sljórnendur hjá Chicago að hann
hafi áhuga á að hætta í hafna-
bolta og taka fram körfubolta-
skóna að nýju. Blaðið sagði að
ákvörðun Jordan kynni að velta
á því hvort hann fengi stjórnend-
ur til að semja að nýju við Scottie
Pippen sem er óánægður hjá
Chicago og óskaði fyrir skömmu
eftir að verða seldur frá félaginu.
Chicago hefur ekki náð sér á
strik eftir að Jordan hætti, eftir
að hafa orðið meistari með liðinu .
tvö ár í röð. Vinningshlutfallið í
vetur er til að mynda 30 - 30,
þrjátíu sigrar og jafnmörg töp.
Möguleikar liðsins á meistaratitli
voru taldir 1:18 hjá veðmála-
stofum í Las Vegas en fljótlega
eftir yfirlýsingar Jordan voru lík-
urnar á því komnar niður í einn
I
á móti sex.
Jordan hefur undanfarið leikið
hafnabolta með liði White Sox en
segir langvinnar deilur í íþrótt-
inni hafa ráðið mestu um þá
ákvörðun að hætta. Hvort þessi
32 ára galdramaður sem þrívegis
hefur verið kjörinn verðmætasti
leikmaður NBA-deildarinnar tek-
ur upp þráðinn, sautján mánuð-
um eftir að hann hætti að spila
fyrir Chicago er því enn á huldu,
þrátt fyrir spár margra um að
svo verði.
FRANC Booker, bandaríski
leikmaðurinn, sem leikið hef-
ur með úrvalsdeildarliði Grindvik-
inga í vetur hefur
Frímann verið sagt upp
Óiafsson störfum hjá félag-
skrifar frá inu 0g leika Grind-
víkingar því út-
lendingslausir í dag þegar þeir
mæta Haukum í Hafnarfirði í
öðrum leik liðanna í 8-liða úrslit-
um íslandsmótsins. Booker var
þriðji útlendingurinn til að leika
með liðinu á þessu keppnistíma-
bili því áður höfðu þeir Tony
Smith, sem lék með liðinu á undir-
búningstímabilinu, og Joe Wright,
sem lék með þeim í byrjun, hætt
hjá félaginu.
„Við erum einfaldlega ekki
sáttir við frammistöðu Bookers
og þá höfum við í stjórninni átt í
samskiptaörðugleikum við hann.
Við höfum óskað eftir því að hann
kippti ákveðnum hlutum í liðinn
sem hann gerði ekki og því tókum
við þessa ákvörðun að láta hann
hætta. Við vorum óhræddir við
það þó úrslitakeppning sé byijuð.
En þetta var mjög erfið ákvörðun
vegna stöðu liðsins en varð ekki
dregin lengur og við stöndum og
föllum með henni," sagði Guðfinn-
ur Friðjónsson stjórnarmaður
körfuknattleiksdeildar UMFG.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins liggja örðugleikarnir í því
að Franc Booker hefur ekki viljað
setjast að í Grindavík þrátt fyrir
að deildin hafi tekið á leigu íbúð
þar fyrir hann — „dýrustu skó-
geymslu norðan Alpa“ eins og
gárungarnir í Grindavík segja.
Upphaf þeirra má hinsvegar rekja
til Stjörnuleiks KKÍ sem honum
var bannað að leika vegna bak-
meiðsla en hann var ósáttur við
þá ákvörðun.
Að sögn forráðamanna Grinda-
víkurliðsins eru þeir á höttunum
eftir nýjum leikmanni en ætla sér
að fara hægt í þeim efnum.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR: PÉTUR GUÐMUNDSSON í SJÖTTA SÆTIÁ HM í BARCELONA / F4